Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1982, Blaðsíða 10
10
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1982.
Bæjar- og svcitarstjórnarkosningarnar
Bæjar- og sveitarstjórnarkosningarnar
Sveitarstjórnarkosningar á Flateyri:
Vinstrí menn sameinaöir
gegn sjálfstæðismönnum
A Flateyri búa nú um 490 manns
og hefur orðið þar lítil fjölgun síð-
ustu árin. í desember 1978 var íbúa-
fjöldinn 469 manns. Þrátt fyrir það
vekur það athygli aðkomumanns að
mikið er byggt af nýjum íbúðarhús-
um og hreppurinn stendur ítöluverð-
um framkvæmdum. Nú stendur yfir
bygging sundlaugar sem áætlað er að
ljúka á þessu ári og fyrirhugað að
byggja áfast við hana nýtt íþrótta-
hús.
Við síðustu hreppsnefndarkosning-
ar voru bornir fram þrír listar. Eng-
inn starfandi meirihluti var myndað-
ur í hreppsnefndinni. Að þessu sinni
eru tveir listar í kjöri, C-listi, sem
borinn er fram sameiginlega af Fram-
sóknarflokki, Alþýðuflokki og óháð-
um, og D-listi, sem Sjálfstæðisfélag
Önundarfjarðar stendur að.
Núverandi oddviti Flateyrarhrepps
er Guðvarður Kjartansson skrifstofu-
maður. en hann skipar þriðja sætið á
lista vinstri manna. Núverandi sveit-
arstjóri, Kristján Jón Jóhannesson,
skipar hins vegar annað sæti á lista
Sjálfstæðisfélagsins.
Séð eftir Aðalgötu á Flateyri.
DV-mynd GVA.
VANTAR FLEIRIATVINNUTÆKIFÆRI
— segir Ægir E. Hafberg sem skipar 1. sæti á lista vinstri manna og óháðra
„Okkur er varla stætt á því að fara
út í miklar framkvæmdir næstu tvö ár-
in eða svo, en það er nauðsynlegt að
fara út í frekari gatnagerð þegar líður á
kjörtímabilið,” sagði Ægir E. Haf-
berg, sem skipar fyrsta sætið á listai
vinstri manna og óháðra.
,,Um þennan lista náðist samstaða
meðal allra vinstri manna og við gerð-
um með okkur stefnuskrá þar sem við
setjum okkur meðal annars það mark-
mið að skuldsetja ekki plássið um of og
fara varlega í framkvæmdir.
Við leggjum á það áherzlu að ljúka
framkvæmdum sem nú standa yfir.
Það þarf að klára sundlaugina sem nú
í hreppsnefnd
þarf starfhæf-
an meirihluta
— segir Eiríkur Finnur Greipsson, efsti maður
á lista Sjálfstæðisflokksins
er í byggingu og halda áfram með
íþróttahúsið. Einnig þarf að ljúka við
smábátahöfnina og helzt að laga hér
höfnina sem hefur farið versnandi, en
þar er við ríkisvaldið að eiga.
Hér vantar lóðir fyrir iðnaðarhús-
næði og það er bagalegt að geta ekki
lyft undir menn sem vilja koma hér upp
smærri þjónustuiðnaði. Hér vantar
fleiri atvinnutækifæri og þau verður
helzt að skapa með iðnaði.
Þá má einnig nefna að við höfum hér
lækni og við leggjum geipilega áherzlu
á að skapa honum betri aðstöðu hér,
bæði persónulega og í tengslum við
heilsugæzlustöðina,” sagði Ævar E.
Hafberg.
ÓEF
Ægir E. Hafberg sparisjóðsstjóri skip-
ar efsta sætið á lista vinstri manna og
óháflra.
DV-mynd GVA
o ,
Framboðslistar
„Við sjálfstæðismenn gerum okkur
góðar vonir í þessum kosningum því að
í opinni skoðanakönnun sem við
héldum hér í febrúar voru 115 þátttak-
endur en við fengum aðeins 88 atkvæði
í síðustu kosningum,” sagði Eiríkur
Finnur Geirsson, efsti maður á lista
Sjálfstæðisflokksins.
„Við höfum verið að vinna að
stefnuskrá og verður henni dreift í hús
á næstunni. Helztu stefnumál okkar
Eirfkur Finnur Greipsson kennari er
efstur á iista Sjálfstæðisfélags Önund-
arfjarðar.
eru að haldið verði áfram byggingu
íþróttahúss og sundlaugar. Við viljum
að sundlaugin verði tekin í notkun á
þessu ári og að íþróttahúsið verði byggt
í beinu framhaldi af þvi.
Þáermikilvægtað Ijúka hafnarfram-
kvæmdum sem hafnar voru á síðast-
liðnu sufnri. en það urðu okkur mikil
vonbrigði að ekki skyldi veitt fé til
hafnarframkvæmda á þessu ári á fjár-
lögum. Við leggjum einnig mikla
áherzlu á það að fá á næsta ári nýja
heimkeyrslu í þorpið.
Á siðasta ári var stofnað hér öldrun-
arheimili þar sem búa nú nokkrir vist-
menn. Við viljum halda þessu starfi
áfram og gera það fýsilegra fyrir aldr-
aða að búa þar, til dæmis með því að
hafa þar vakt allan sólarhringinn.
Við höfum staðið í mjög fjárfrekum
byggingar- og hafnarframkvæmdum á
síðasta kjörtímabili sem hefur þýtt það
að gatnagerð hefur setið á hakanum.
Við stefnum að því að taka betur á
þeim málum þegar sameiginlegt gatna-
gerðarfyrirtæki sveitarfélaganna á
Vestfjörðum hefur verið stofnað.”
Eiríkur Fínnur sagði að lokum að á
síðasta kjörtímabili hefði enginn
ákveðinn meirihluti verið starfandi i
hreppsnefndinni. Með hliðsjón af
þeirri reynslu teldu sjálfstæðismenn
rétt að ekki yrði hafið annað kjörtíma-
bil án þess að starfhæfur meirihluti
væri fyrir hendi.
ÓEF
Pessir iistar veröa í kjöri vW *veitar»tjómar-
kosningar f Flateyrarhrappi 22. maf 1982.
C-Hsti
vinstri manna og óháðra
1. Ægir E. Hafberg, Eyrarvogi 9
2. Steinar Guðmundsson, Hafnarstraati 23
3. Guðvarðor Kjartansson, HjaHavegi 5
4. Aslaug Armannsdóttir, Eyrarvegi 13
B. Guömundur Björgvinsson, Eyrarvegi 12
6. Böðvar Gtolason, ólafstúnS 7
7. Hóifdán Kristjánsson, Grundarstíg 9
8. Bjöm Ingi Bjamason, Hjallovegi 12
9. Guömundur Jónas KHstjénsson, Ránargötu
1
10. Gróa Bjömsdóttir, Grundarstíg 1
TH sýslunefndar:
1. Guðmundur Jónsson, Gmndarstfg 8
2. Siguröur Sigurdórsson, Bórugötu 3
D-listi
Sjálfotaoöisfólags önundarfjarðar
1. EirBtur Finnur Greipsson, Hjaliavegi 6
2. Kristján Jón Jóhannesson, Ránargötu 2
3. Hinrík Krístjénsson, ólafstúni 4
4. Magnús Th. Benediktsson, Ólafstúni 8
5. Sigrún Gerða Gfsladóttir, Sólbakka
6. Bergþóra Ásgairsdóttir, Tjamargötu 7
7. Guðmundur Finnbogason, Hjallavegi 8
8. Rogna Óladóttir, Unnarstfg 2
9. Grótar Krístjánsson, Ólafstúni 14
10. Sigrlður Slgursteinsdóttlr, Drafnargötu 17
Tll sýskmefndar:
1. Gunnar Benediktsson, Tjarnargötu 6
2. Garðar Porsteinsson, Drafnargötu 8
Urslitin 1978
Clrslít siðustu kosninga til hreppsnefndar í Flateyrarhreppi urðu þessi:
atkvæði fulltrúar
Framsóknarfiokkur; Aiþýðuflokkur og óháðir (C)
62 1
Sjátfstæðisfiokkur (D) 88 2
Framfaraféiag Flateyrar (E) 71 2
Hreppsnefndina skipuðu:
Steinar Guðmundsson vélsmiður (C), Einar Oddur Kristjánsson framkvæmda-
stjóri (D), Hinrik Kristjánsson sjómaður (D), Henrik Tausen matsveinn (E) og
Guðvarður Kjartansson skrifstofumaður (E).
Spurningin
Hverju spáir þú um úrslit
kosninganna og hverjir
heldur þú að muni mynda
meirihluta að þeim lokn-
um?
(Spurt á Flateyri)
Sólveig Kjartansdóttir húsmóðir með
meiru: Ég hef lítið vit áþessuen held
þó að þetta verði nokkuð jafnt.
Gréta Ingimundardóttir fóstra: Eg
hef lítið leitt hugann að því ennþá því
ég hef lítinn tíma haft til þess. Ætli
þetta verði ekki nokkuð jafnt.
Sígrún Magnúsdóttir húsmóðir:
Þetta er svolítið tvísýnt. Það eru þrír
flokkar saman um lista á móti Sjálf-
stæðisflokknum en ég vona að Sjálf-
stæðisflokkurinn fái samt meirihluta.
Unnur Brynjólfsdóttir verzlunarmað-
ur: Ég þori ekki að segja til um það.
Ég held að það verði mjótt á munun-
um.
Jón Ingiberg Guðmundsson verzlun-
arstjóri: Það er ómögulegt að svara,
það er svo mikil óvissa. En ég vona
að C-listinn fái meirihluta.
Jóhanna Guðmundsdóttir verka-
kona: Ég hef lítið pælt i þessu. Helzt
vildi ég að kosningarnar snerust um
menn en ekki pólitíska lista. En ég
vona samt að Sjálfstæðisflokkurinn
vinni ekki.