Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1982, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1982, Side 4
4 DAGBLAÐIÐ & VlSIR. ÞRIÐJUDAGUR 20. JULÍ1982. Vigdis forsati var glöð i bragði er hún kom tíi Heimaeyjar eftír farð út i Surtsey. Hún flaug til Surtseyjar ásamt gestum slnum, Bertílprins og Lilian prinsessu. DV-mynd Guðmundur Sigfússon. Seinnipart sunnudags flugu forsetí íslands og hertogahjónin af Hallandi tíl Vestmannaeyja. Bertil prins ræðir hér við Ólaf Elisson bæjarstjóra og Sig- urgeir Ólafsson forseta bæjarstjórnar i Vestmannaeyjum. D V-m ynd Guðmundur Sigfússon. Lilian prinsessa skoðaði íslenzkan heimilisiðnað sl. sunnudag og horfði þar á tizkusýningu. Hún skoðaði skart sýningarstúlknanna og sést hór sýna einni þeirra eigin hálsfestí. Lilian sagðist kalla þenn- an ágæta grip „Gibraltarklettínn sinn". DV-mynd Þó.G. Við komuna til Vestmannaeyja voru Lilian prinsessu og Vigdisi for- seta færð blóm. Þær sjást hór i hópi fólks. Næst þyriunni má greina dr. Sigurð Þórarinsson en hann var leiðsögumaður i Surtseyjarferðinni. DV-mynd: Guðmundur Sigfússon. Hertogahjónin af Hallandi, Bertil prins og Lilian, prinsessa, gistu Island dagana 16. til 19. júlí í boöi forseta Islands. Ekki blés byrlega fyrir sænsku hertogahjónunum í upphafi feröarinnar til Islands. Áætlað var aö þau kæmu til Islands aö morgni sl. föstudags en vegna veöurs var óger- legt aö lenda á Keflavíkurflugvelli. Lenti SAS vélin sem Bertil og Lilian voru farþegar í á Grænlandi. Seinna á föstudaginn var svo flogið til Islands frá Grænlandi. Hertogahjónin heim- só' u þá sænska sendiráðið og sátu kvöldverðarboöáBessastöðum á föstu- dagskvöld. Á laugardaginn hélt Vigdis Finn- bogadóttir forseti austur fyrir fjall ásamt gestum sinum. Sænski prinsinn og kona hans skoöuðu Gullfoss og Geysi. Að því loknu héldu forsetinn og Bertil prins með þyrlu að Hrauneyja- fossvirkjun. Lilian prinsessa ók hins vegar til Reykjavíkur og leit við í Garðyrkjuskóla ríkisins í Hveragerði. Bertil prins hafði ætlað sér að renna fyrir lax í Elliðaánum á sunnudag en hvarf frá því ráöi. I staö þess kaus hann að skoöa Þjóðminjasafnið. Ferð á Þjóðminjasafniö hafði verið á dagskrá á föstudag en af henni varð ekki vegna tafa á ferðum hertogahjónanna. Lilian prinsessa heimsótti Islenzkan heimiUsiðnað á sunnudagsmorguninn. Síðar um daginn var haldiö í heimsókn til Vestmannaeyja. A mánudags- morgun héldu hertogahjónin heim úr Islandsheimsókninni. -SKJ Bertíl prins veifmði / kveðjuskyni er hann yfirgaf Þjóðminjasafnið að skoðunarferð þar lokinni. Við hlið hans stendur Haraldur Ólafsson lektor. DV-myndÞó. G. ÍSLANDSREISA HERTOGAHJÓNANNA AF HALLANDI Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði I „Signalment” af fjallatoppum Fréttastofa útvarpsins hefur með nokkrum ágætum breytt fréttaflutn- ingi á liðnum árum i þá veru, að ein- stakar fréttaskýringar eru teknar saman og fluttar undir nafni, og byggðar á upplýsingum úr opinber- um málgögnum. Þessi háttur hefur stundum orðið til þess, að Svarthöfði og fleiri hafa þóst kenna áróðurs í áherslum á atriði, sem ekki koma rétt til skila nema báðar hliðar mála séu ræddar. Hefur mátt kanna þar vinstri villu, sem mjög vill ryðja sér til rúms í f jölmiölum sem eðlilegt er, og er auðvitað ekki nær sannleikan- um en hægri villa. En þótt fréttastofa geti legið undir ámæli fyrir það, sem flokkast undir meiningarmun, eða mun á lifsviðhorfum, er alveg frá- leitt að saka hana um, að hún fari út fyrir verksvið sitt við að miðla upplýsingum með þessum hætti. For- maður Alþýðuflokksins sakaði fréttastofuna nýlega um þessháttar athæfi, og bar við að hún væri ríkis- rekin og þar af leiðandi hefði hún takmarkaða heimild. I ljós kom að fréttastofan hafði heimildina, en hef- <r auk þess siðferðilegan rétt til að 'ytja hlustendum upplýsingar sem /rir liggja, þótt hún sé ríkisstofnun. Helgi Jónsson, fréttamaður, sem stundum getur verið harður spyrill, leyfði sér að setja saman fréttaþátt út af skrifum blaða um hugsanlegar viðræður Alþýðuflokksmanna og ráðherra um stuðning við rikis- stjórnina vegna aðgerða í efnahags- málum. Svarthöfðl benti á það áður en þessar umræður urðu almennar, að Iíkur gætu verið á þessu vegna þess, að ekki verður breytingum á kosningafyrirkomulagi við komið verði kosið í haust, og því atriði fyrir Alþýðuflokkinn að stjórnin lifi fram á næsta vor, svo timi vinnist til að undirbúa breytinguna. Fréttaskýr- ing Helga Jónssonar var fyrst og fremst um framkomin atriði, þótt formaður Alþýðuflokksins teldl að honum væri ekki heimllt að ræða málið af því fréttastofan er ríkisrek- in. Indiánar i Norður-Ameriku skipt- ust á orðsendingum með reykmerkj- um, sem sáust úr mikllli fjarlægð. Hentugt þótti að gefa þessi „signal- ment” af fjallatoppum og stjómuðu höfðingjar þjóðflokka gjarnan merkjasendingum. Nú hafa svona reykmerki verið í gangi milli Alþýðu- flokks og Alþýðubandalags i nokkum tíma, en að hætti æfðra stjómmála- manna hefur verið svarið fyrir allar þreifingar, og era aðilar litið betri i svardögum sinum en venjan er í bamsfaðemismálum. Engum sér- stökum getum skal að þvi leitt hverj- ir era Sitting Bull og Crazy Horse í þeim merkjasendingum, sem fram fara um þessar mundir, en til ábend- ingar má nefna, að Kjartan Jó- hannsson, formaður Alþýðuflokks- ins, kom á Volvo sínum nokkrum sinnum heim til Ólafs Ragnars Grimssonar á Seltjamamesi i sið- ustu viku og þar á undan, og sat hjá honum á kvöldin. Ólafur Ragnar er formaður þingflokks Alþýðubanda- lagsins og hefur hagsmuna að gæta i breyttu kosningafyrirkomulagi, enda skipar hann f jórða sæti á lista i Reykjavik, sem getur í mesta lagi fengið þrjá kosna að óbreyttu. Stórir svardagar em ævinlega hafðir uppi i pólitík þegar upp kemst um þreifingar af því tagi sem nú era á döfinni milli Alþýðuflokks og Al- þýðubandalags. Og það er til lítils að skamma fréttastofu útvarps fyrir að gera skyldu sína, fyrst Alþýðuflokk- urinn vill endilega ræða málin við Alþýðubandalagið, eins og kvöld- heimsóknir Kjartans til Ólafs Ragn- ars bera vitnl um. ísland er ekki stórt og þess vegna varla hægt að halda uppi „leyniviðræðum” öðra vísi en þær verði á vitorði fjöl- margra. Þeir Sitting Bull og Crazy Horse hafa að líkindum gefið „signalmentin” innan húss á Nesinu að þessu sinni, en þau hefur líka bor- ið fyrir sjónir af f jallatoppum. Svarthöfði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.