Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1982, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1982, Page 5
DAGBLAÐIÐ & VISIR. ÞRIÐJUDAGUR 20. JULl 1982. 5 PllfiSÍIltÍý Kjarvalsstaðir: Málþingum öldrun Efnt verður til málþings á Kjarvals- stöðum í kvöld. Þar mun Jón Snædal læknir ræða spuminguna: Hvað er hægt að gera til aö halda andlegum og líkamlegum kröftum? Á eftir mun dr. Friðrik Einarsson stjórna umræðum um málefniö. Efnt er tii þessa mál- þings á vegum Samtaka lífeyrisþega ríkis og bæja og er þaö haldið í tengsl- um við sýninguna „Oft hefur ellin æsk- unnar not”. Málþingið hefst klukkan 20.30. -SKJ. 23 punda lax úrVatnsdalsá 23 punda lax veiddist í Vatnsdalsá í gærmorgun. Veiðimaðurinn, Árni Eyjólfsson, sagöist hafa náð hængnum á flugu í svokölluöum Brúarhyl. Hann kvað þrjá laxa til viðbótar hafa veiðzt á þessumsamastaöígærmorgun. Hylurinn er á silungasvæði árinnar. -GSG. Nýr sveitar- stjori raðmn á Eyrarbakka Sveinn Guðmundsson rafmagns- verkfræðingur hefin- verið ráöinn sveitarstjóri á Eyrarbakka og hóf hann störf í gær. Hann tekur við af Þór Hagalín sem veriö hefur s veitarst jóri á Eyrarbakka síðastliðin tólf ár. Níu manns sóttu um starfiö en „hreppsnefndin varð eftir vandlega íhugun einhuga um að ráða Svein,” eins og Magnús Karel Hannesson odd- viti Eyrbekkinga orðaöi það í samtali við blaöamann DV. Sveinn Guðmundsson hefur siöastlið- in átján ár starfað á verkfræðingadeild bandariska hersins á Keflavíkurflug- velli. -GAJ. „Elliðaámar bakkafullar af laxi" „Þótt laxinn hafi gengið seint i ár og veiðin sé í heild minni en í fyrra, það sem af er veiðitímanum, er óhætt að Vandi tog- aranna bíður — en ágreiningur um það milli stjómarflokkanna „Eg geri ráö fyrir því að þessi mál verði öll lögð fyrir í einu. Þaö verður alla vega ekki gert neitt sérstaklega í málum togaraútgerðarinnar á allra næstu dögum,” sagði Þröstur Olafsson aöstoðarmaöur fjármálaráðherra í samtali við DV í gær. Hann er í þriggja manna embættismannanefndinni sem nú f jallar um efnahagsráöstafanir. Þetta er, samkvæmt heimildum DV, afstaða bæði sjálfstæðismanna í ríkis- stjóm og alþýöubandalagsmanna. Framsóknarmenn telja hins vegar að ráðstafanir vegna togaranna þoli ekki bið. Þeir og þá einkum Steingrímur Hermannsson sjávarútvegsráðherra eru súrir yfir því að þetta mál dragist frekar. Utgerðarmenn telja ráðherr- ann hafa gefið þeim fyrirheit um skjót- ari viðbrögð. Bendir margt til þess að afstaða samstarfsflokkanna í ríkis- stjórn hafi komið honum á óvart. HERB. segja að Elliðaárnar séu núna bakka- fullar af laxi,” sagði kátur veiðimaður við ámar um helgina. Frá því um fyrri helgi hefur verið gifurleg ganga í árn- ar og mokveiði var núna um helgina. Á sunnudagskvöld höfðu Veiðzt 415 laxar og 40 urriðar í Elliðaánum en 403 laxar á sömu stundu í fyrra. Hins veg- ar vora 2.205 laxar gengnir upp um teljarann nú á móti 1.603 í fyrra. Mesta ganga var á mánudag og þriðjudag í síðustu viku, 640 laxar þá tvo daga. Urriðinn, sem var eina veiðin á opnunardeginum í vor og hrelldi menn í fyrstu, hefur sáralítið veiðzt síðan, aðeins einn og einn meö nokkurra daga bili. Mest af laxinum úr Elliöaánum er smátt eins og vant er, 4—6 pund. Fá- einir af stærri gerðinni hafa þó gefið sig. Stærsta laxinn hingað til veiddu þeir Konráö Gislason kompásasmiður og Ásgeir Gunnarsson forstjóri Veltis hf. á laugardaginn, 16 punda hæng. Fengu þeir hann í Efri Móhyl á maðk. Þann dag veiddust alis 27 laxar og 28 á sunnudaginn. HERB. Þennan 6,5 pundara fékk Bjami Helgason á fyrri veiðitimanum á sunnudag í EUiðaánum—þar sem laxaganga er nú orðin mun meiri en á sama tíma í fyrra. NyKrona hin hljóðláta bylting Facit 8000,8100og 8110 - ný kynslóö ritvéla sem búin er rafeindatækni tölvualdar, Fislétt leturkróna, NyKrona færir þér hljöðláta en eldfljóta prentun, jafnan ásláttog fallegri áferö en nokkru sinni fyrr Facit NyKrona býður þér fjölmarga tæknilega yfirburöi. Vélin sér um sjálfvirka upp- færslu og línuskiptingu, línuminniö gerir þér kleift aö vélrita stööugt um leið og þaö auö- veldar einnig leiöréttingar, sjálf virkur talnadálkastillir tn/ggir þér margfaldan tímasparnaö og margt fleira léttir þér störfin á margvíslegan hátt. Facit 8000 er einfaldasta ritvélin í NyKrona línunni, en engu aö siður búin öllum þeim tækniyfirburöum sem máli skipta þegar vélritun þarf aö vera lipur, hrööog þægileg. Með Facit 8100og8110nálgast þú ritvinnslukerfi tölvualdarinnar enn frekar. Þú tengir þær viö tölvu- eða telexkerfi skrifstofunnar og tæknivæðir hana til frambúöar. HEnsia framtíðarþekking í nútímaþágu GÍSLI J. JOHNSEN HF. n 1 Smiðjuvegi 8 - Simi 73111 Umboósmenn á Akurevri Skrifstofuval hf. Kaupaligi v-Mýraigötu sími (96) 25004 L31 .V imeygóuj þér meö 1 í síöustuJ A ætini SKIPTIFERÐIR AÐILDARFÉLAGA 31. júlí-18. ágúst, laus sæti. 13 daga rútuferð um Danmörku. 7 dagar í sumarhúsum í Kaup- mannahöfn. Verð frá kr. 6.000,- Á íslendingaslóðir í Kanada 3 vikna rútuferð um Kanada meö dvöl í Toronto og heimsókn á íslendingadaginn í Gimli. Brottför 26. júlí. Bergen Brottför 23. júli. Vikuferð á frábæru verði. Portoroz 22. júlí, örfá sæti laus. 12. ágúst, 3 sæti laus. 2. september biðlisti. Rimini 29. júlí — biðlisti 9. ágúst — biðlisti 19. ágúst — biðlisti 30. ágúst, örfá sæti laus. Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTR/ETI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 3rita öryggissæti fyrir börn Britax bílstólar fyrir börn eru öruggir og þægilegir í notkun. Meö einu handtaki er barniö fest. - og losað BENSINSTOÐVAR SKELJUNGS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.