Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1982, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1982, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ & VISIR. ÞRIÐJUDAGUR 20. JULI1982. Lausar kennarastöður Við Vélskóla íslands eru lausar til umsóknar kennarastöður í rafmagnsgreinum og í raungreinum, efnafræði og stærðfræði. Nánari upplýsingar eru veittar í Vélskólanum mánudaga og miðvikudaga frá kl. 11—1. Umsóknir sendist menntamála- ráðuneytinu fyrir 25. júlí. Menntamálaráðuneytið. óskar að ráða umboðsmann á Stokkseyri frá og með 1. ágúst. Uppl. hjá Guðfinni Harðarsyni, Dvergasteini, sími 99-3235. Rakarastofan Klapparstíg Sími 12725 Hárgreiðsíustofan Klapparstíg ! Tíraapantanir 13010 SAMKEPPNI UM VERKFRÆÐINGAHÚS Verkfræðingafélag Islands efnir til samkeppni um Verkfræðingahús. Lóð hússins er við Suðurlandsbraut gegnt Hótel Esju og samanlagður gólfflötur hússins er áætl- aður um 2.500 m2. Rétt til þátttöku hafa allir félagar í Arkitekta- félagi íslands og aðrir þeir sem leyfi hafa til að leggja aðalteikningar fyrir Byggingarnefnd Reykjavíkur og uppfylla ákvæði byggingarlaga nr.54/1978. Keppnisgögn verða afhent hjá Gylfa Guðjóns- syni arkitekt og hjá Þórhalli Þórhallssyni fram- kvæmdastjóra Arkitektafélags íslands í Ásmund- arsal, Freyjugötu 41, daglega kl. 13—17. Verkfræðingafélag íslands Nýtt björgunartæki BJÖRGUNARBOMBAN Á sjó, ám og vötnum verða árlega mörg óþarfa slys vegna þess að menn eru ekki í björg- unarbehum. BJÖRGUNARBOMBAN ætti að vera í hverjum báti, bíl og sumarbú- stað. Henni er hægt að kasta 40- 60 metra til drukknandi manns. Blæs út um leið og hún kemur í vatn. Auðveh að endurhlaða. óarco BÁTA- OG VÉLAVERZLUN, LYNGÁSI 6. GARÐABÆ, 53322 *&* 52277 Neytendur Neytendur_____Neytendur ASKORANIR UM UPPSKRIFTIR: HEILSUFÆÐI í FYRIR- RÚMI HJÁ GUÐRÍDI JENSDÓTTUR 1 eldhúsinu sínu í Þingholtunum matbýr Guöríður Jensdóttir eftir kúnstarinnar og hollustu reglum. DV-mynd. Þó. G. Þess var getið síöasta þriðjudag að áskorandinn í dag, Guðríöur Jensdótt- ir, ætti safn af amerískum uppskrift- um og búast mætti við einhverju úr því safni. Reyndar er ein uppskriftin í dag — amerísk — írsk en Guðríður kaus að hafa ekki fleiri uppskriftir úr þeirri áttinni. Hún leggur sig fram um að hafa heilsufæði á borðum fyrir sína fjölskyldu og einnig að undirbúningur fyrir hverja máltíð sé ekki of tímafrek- ur. Áður en við vindum okkur í uppskriftalestur, viljum viö geta þess að það var Þóra Stefánsdóttir píanó- kennari sem skoraði á Guðríði Jensdóttur í dag. Og Guðríöur hefur síðan vahð næsta áskoranda sem er á „sömu línu” og hún — heUsuUnunni. Kjarngóð kjötsúpa 11/2 kg súpukjöt ca 21 vatn 1dlbankabygg 1 dl heUl rúgur 1/2 dl sojabaunir 1/2 dl haframjöl 4 súputeningar (Maggi) svolítið salt, (ekki of mikið), rófur, hvítkál og gulrætur (þeim má sleppa) AUt sett í pott nema kjötið og græn- metiö. Þegar suðan kemur upp erkjöt- inu bætt út í en skera má óþarfa fitu frá áður. Soöiö í ca 1 1/2 klst. eöa þar til kjötiö er soðið. Ef kjötið er soðiö í aöeins eina klukkustund þá eru baunirnar soönar í vatninu hálfa klukkustund áöur en kjötinu er bætt í pottinn. Gott að hafa súrt slátur með súpunni. Amerískt-írskt haframjölsbrauð 3 boUar hveiti 11/4 boUi haframjöl 11/2 sléttfuU msk. ger 11/2 tsk. salt legg 1/4 boUi hunang 11/2—2 boUar mjólk 1 msk. smjörlíki. Smjörlíki, egg og hunang þeytt saman. Þurrefnum bætt í ásamt mjólkinni. Bakað við 170 gr C í ca 1 klukkustund og 15 mínútur. Kryddperur Góðar með steiktu kjöti (lambakjöti, kjúklingum og svínakjöti) 1 heUdós perur 1 boUiedik 1 boUihunang 3 negulnaglar 3 kandstangir AUt sett í pott nema perumar. Soðið stutta stund. Vökvinn síaöur frá perunum og settur í skál (sem þoUr heitt). Sjóöandi vökvanum hellt yfir og síðan látið kólna. Kryddperurnar eru bornar fram kaldar og smakkast sér- lega vel með steiktu kjöti sem áður segir. Vöfflur húsbóndans 3 boUarhveiti (kúfaðir) 1 boUisojamjöl 1 tsk.ger 1/2 tsk. sódaduft 1 tsk. salt 1 egg (másleppa) mjólk vanUludropar Á meöan vöffludeigið er hrært er vöfflujárnið hitaö. Varizt að hafa deigiö mjög þunnt. Bakaö. Vöfflur hús- bóndans bragðast afbragðsvel með sultu og þeyttum rjóma. Annars má bera með þeim salat en þá verða þær aðverakaldar. Læt ég fylgja með hér eina salatupp- skrift ef einhver hefur hug á aö reyna vöfflurmeösalati. Salat 4 msk. majones (kúfaðar) ca 1/3 boUi tómatsósa ca 1 tsk. saxaður, þurrkaður laukur ca 1/2 tsk saxaöur, þurrkaður hvít- laukur ca 1/3 tsk. seUerísalt ca 1/3 tsk. hvítlaukssalt tvö soðin fiskstykki. AUt (nema fiskurinn) sett í skál og hrært. Síðan er fiskurinn stappaður saman við. Geymt um stund í isskáp (helzt í lokuðu íláti) áður en borið fram. Salatið er einnig ágætt á brauð ogkex. Brauðsúpa Geymiö brauðafganga (ekki eingöngu af rúgbrauði) og frystiö þá. Þegar safnazt hefur nóg í súpu eru brauöbitarnir lagðir í bleyti. Einnig 1 bolli af rúsínum, en þó sér. Vatn sett i pott, brauöinu bætt út í (ekki rúsínunum). Soðið og síðan sigtað. Aftur sett í pottinn, sykrað og örlítið salt látið í súpuna og kannski örlítið meira vatn. Þá er rúsínunum bætt í pottinn og hitað aö suðu. Þykkt með kartöflumjöli. Potturinn tekinn af hita og maltöli bætt í brauösúpuna eftir smekk. Brauðsúpan bragbætt einnig með nokkrum sítrónusneiðum. Borðað meö þeyttum rjóma. Hollur drykkur 1/41 ávaxtasafi (floridana eöa tropicana) 3/41mysa. Hrist saman og kslt. Næsti áskorandi: Finnur Karlsson þjálfari í Líkamsræktarstöðinni í Kjörgarði mun svara áskorun minni í næstu viku. Eg þykist vita að brauð hans séu hollur matur og segja kunnugir að hann sé sleipur í matargerðarlistinni. -ÞG Húsráð Föreftir spörk er oft sjást neðan á hurðum og á gólf- listum, hverfa að jafnaöi ef þvegið er með klút vættum í bensínL Einnig er gott að ná fingraförum og skórispum af meögólfbóni. Glerflát gljá bezt ef þau eru þvegin úr heitu vatni, sem edikhefurveriðlátiöí. Gluggarúður Rúður vilja oftast verða skýjaðar þegar þær eru þvegnar. Bezt er að nota volgt vatn blandaö ediki, 1 hluta ediks á móti 4 hlutum vatns. Agætt er að nudda vel yfir á eftir með dag- blaðapappír. Baðkör er bezt að hreinsa með því að taka bómullarklút, bera í hann sápu og strá síöan í hann salti eða ræstidufti en þurrka síöan af með hreinumklút. -RR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.