Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1982, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1982, Side 7
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLI1982. 7 Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Múlakaffi kistunni drjúgur J.Ó. á Reyðarfiröi skrifar: Ég ætla að senda smáupplýsingar með seðlinum um heimilisbókhaldiö. Ég hef skrifað niður tölur og haldið bókhald af og til í lengri tíma en aldrei f yrr sent ykkur seðil. Við erum fimm í heimili, hjón með þrjú böm, 12 ára, 7 ára og 9 mánaöa gömul. Ég vil taka það fram, vegna þess aö matarkostnaður fyrir júní er nokkuð lægri en meöaltal DV, að ég átti að mestu fisk í frystikistunni fyrir mánuðinn. Undir liönum annaö er ýmis kostnaður, s.s. bensín á bOinn og tryggingar af honum, síðan kostnaður við tannviðgerðir, víxill og fleira. Eg vona að þið skiljiö þetta krass hjá mér og kannski sendi ég aftur seðil til ykkar. Kveðja. -J.Ó. Svar: Við fögnum því alltaf þegar okkur berast upplýsingaseölar frá fólki í fyrsta sinn. Vonum við sannarlega að framhald verði á sendingu mánaðar- lega, þetta „kannski” tekið út af dag- skrá og í staðinn komi „ég ætla”. Rétt er það að matarkostnaöur á heimilinu er langt undir landsmeðaltali síöasta mánaöar (sem var kr. 995), er aöeins kr. 625,- á þessum júníseðli. Um leið og við þökkum J.O. á Reyðarfirði bréfið. hvetjum við fleiri neytendur til að senda okkur línu og svo auðvitað upplýsingaseðla til samanburöar á heimiliskostnaði. -ÞG. í f rysti- tekin í kaffiteríunni í Hallarmúla. Veggurinn fyrir aftan Stefán er hannaður af Snorra Friðrikssyni. DV-myndir: Bj. Bj. Veitingastaðurinn Múlakaffi í Hall- armúla hefur starfað í 20 ár og hefur nú farið fram mikil endurnýjun á staðnum. Tækjakosturinn endurnýjað- ur svo nú þurfa viðskiptavinirnir ekki að bíða eftir matnum, hann er látinn á heita diska, og stendur undir hitalömp- um, á meðan neytandinn fær sér græn- meti úr salatbarnum sem er meðal nýjunga á staðnum. Eigandi Múlakaffis er Stefán Olafs- son og starfar hann þar ásamt eigin- konu sinni og tveimur sonum þeirra. Alls starfa nú 40 manns á „kaffiterí- unni” eins og hún er kölluð en fyrir 20 árum voru aöeins 15 starfsmenn. Að- eins er lokað í Múlakaffi á jóladag og annan í jólum, aðra daga er opið frá klukkan 7—23.30. Daglega gefst mönn- um kostur á að velja um 3 kjötrétti og tvo fiskrétti sem eru strax tilbúnir og á verðinu frá 48—90 krónur, einnig fást þar kleinur, pönnukökur, brauð og kaffi. Reynt er að hafa matinn með Raddirneytenda Fiskurinn „heimilisbragði”, ekki veizluréttir með furðulegustu nöfnum og sósum sem fæstir þekkja, þaö eru réttir sem menn hafa vanizt heima hjá sér, enda SUZUKI FOX er sterkbyggður og lipur japanskur jeppi, sem hentar sérstaklega vel fyrir íslenskar aðstæður. í sparaksturskeppni B.f.K.R. ’82 eyddi Suzuki Fox aðeins 6,78 I pr. 100 km. Verð kr. 106.000,—(gengi 30/6 ’82) SVEIM EG/LSSON HF SKEIFUNNI 17 SÍMI 85100 REYKJAVÍK SUZUKl 4ra strokka vél 45 hestöfl. Hátt og lágt drif. Beygjuradíus 4,9 m. Þyngd 855 kg. Rúmbott farþegarými með sætum fyrir 4. Byggður á sjálfstæðri grind Eyðsla 7—10 I pr. 100 km. Hjólbarðar 195 X15 — sportfelgur. Hæð undir lægsta punkt 23 cm. Stórar hleðsludyr að aftan. Aftursæti sem hægt er að velta fram. endumýiað —eftir 20 ára starfsemi verði stillt í hóf. Auk þess sem fyrirtækið selur mat á staðnum er einnig sendur matur til fyrirtækja og stofnana. Gamlir kunningjar hittast á Múlakaffi og snæða sinn hádegisverð, þeir vinna í nærliggjandi húsum jafn- vel mikið fjær. Salatbar — grillhorn og köld þorrageymsla Það var fyrirtsddnu Franke í Sviss sem var falið að sjá um endurnýjun á tækjakostinum og allri vinnuaöstöðu. „En það var hann Axel í Rafha sem smíðaði fyrirmynd af staðnum fyrir tuttugu árum og stendur hún enn óbreytt,” sagði Stefán. „Allt kom hing- aö frá Sviss í 40—50 cm einingum sem síðan voru settar saman á staðnum. Staönum var lokaö kl. 14 á laugardegi og opnaður aftur á mánudagsmorgni kl. 7, nýrogbetri staður.” I Múlakaffi eru 160 sæti og koma um 1700—2000 manns daglega. Þó er það engum vandkvæðum bundið aö af- greiða heitan mat til alira á skömmum tíma. Eftir matinn fá menn sér kaffi sem kostar 5 krónur og sitja þar sumir á kvöldin og horfa á sjónvarp. Meðal helztu nýjunga á staön- um er köld geymsla fyrir þorramat, en mikill þorramatur er afgreiddur þegar sá tími stendur y fir. Heitur matur fer á bökkum úr eldhúsi og fram í af- greiöslu, beint i hitaskáp. En í stað gamla afgreiðsluborðsins hefur verið komið upp hitaborði. Grænmeti og fleiri matvörur eru gufusoðnar svo eiginleikamir haldi sér og frönskum kartöflum er haldið mjúkum í þar til perðum kartöfluhitara. Diskar eru Íf!?í!r ur heitum diskaskömmturum, efsti diskurinn er alltaf í sömu hæð og er það mikil hagræðing fyrir starfsfólk staöarins. Þegar maturinn er kominn á diskana er hann látinn undir hitalampa á meðan viðskiptavinurinn velur sér drykk meö matnum. Eftir þessar breytingar á Múlakaffi, meö þeim tækjum sem áöur er getiö, endumýjuðu grillhomi með vinsælum salatbar, og nýjum húsbúnaði er staðurinn hinn vistlegasti og afgreiðsl- an gengur hraðar fyrir sig en áður. -RR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.