Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1982, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1982, Page 10
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. ÞRIÐJUDAGUR 20. JPLI1982. 10 Útlönd Útlönd Útlönd Utlönd Hvað verður um Frelsis- samtök Palestínumanna? Stórt er spurt og kannski er lítið umsvör. Frelsissamtök Palestínumanna hafa beðið gífurlegan hnekki í Líbanon en fráieitt er að telja að þau séu með öllu búin að vera. Er þetta er ritað eru skæruliðar enn í herkví í Vestur-Beirút. Þúsundir skæruliða hafa verið felldir eða teknir höndum. Staöa Yassers Arafats hefur ber- sýniiega veikzt mjög innan samtak- anna. I raun og veru hefur hann ætíð verið hófsamari en margir aðrir inn- an samtaka hans. En haukamir munu e.t.v. gera uppeisn gegn hon- um núna, er ljóst er orðið aö friðsam- leg barátta hefur beðið skipbrot Næsta öruggt má telja að hvort sem Arafat situr áfram eða ekki muni stefria samtakanna hér eftii verða mun róttækari og grimmari. Varkárstefna Arafats bjargaði þeim ekki frá sprengjum Israelsmanna. Og víst má telja að ofsi og morðæði Israelsmanna létti smaladrengjum róttækra afla innan hreyfingarinnar mjög verk sitt. Sérfræðingur í mál- efnum araba lét hafa það eftir sér að Arafat muni missa tangarhald sitt á hinum ýmsu sveitum Frelsissam- takanna ef þær dreifist um Araba- lönd. Habash og félagar Stærstu sveitir innan Frelsissam- takanna eru aö sjálfsögðu A1 Fatah sem Arafat tilheyrir. En næstfjöl- mennustu samtökin eru samtök Dr. George Habash. Hann er marxisti og telur að koilvarpa beri stjómunum sem við völd eru í „hófsömum” Arabaríkjum. PFLP samtök hans hafa 1000 skæruliða undir vopnum. Öruggt má telja að þeim fjölgi á næstunni. Hann hefur sterk tengsl við alþjóðleg hryðjuveriíasamtök. Samtök hans eru ábyrg fyrir „svarta september”. Hann hefur gefið í skyn að hann og félagar hans muni haldi annaðhvort til Suður-Yemen eða Sýr- lands. Þau samtök sem komast næst A1 Fatah og PFLP aö félagatölu eru samtök sem Nayef Hawatmeh stjórnar. Hann og félagar hans klufu sig frá PFLP fyrir 13 árum. Þeir eru hallir undir Sovétmenn. Þeir leggja ekki neina áherzlu á að ræna flugvél- um heldur vilja þeir ráðast á Israels- ríki sjálft. Til dæmis hafa þeir ráðizt á skóla í Israel. Talið er að Hawat- meh muni fara til einhvers róttæks Arabaríkis en ekki er vitað hvert hann getur hugsað sér að fara. Enn ein samtök eru svo undir stjórn Achmad Jabril sem eitt sinn var foringi í sýrlenzka hemum. Þessi samtök hafa ætíö fordæmt ákaft hugmyndir um friðsamlega lausndeilna. Ef fylkingar róttækra Palestínu- manna dreifast um Arabalönd má víst teljast að öngþveiti sigli í kjöl- fariö. Þeir myndu vissulega halda áfram að ráðast á Israel. Líklegt má Yasser Arafat: stefna bans hefur beðið skipbrot. telja að þeir taki upp gamlar bar- áttuaðferðir eins og flugvélarán. Síð- ast en ekki sízt munu þeir berja hver á öðrum. Gestgjafar þeirra eru svo vísir til að beita þeim gegn óvinum landsforseti sigað þeim á Hussein Jórdaníukóng. Hvemig sem allt fer má víst telja að Frelsissamtök Palestínumanna munu hneigjast til að beita hryðju- sinum. Til dæmis gæti Assad Sýr- verkum í stærri stíl en þau hafa gert um langt skeið. Stríðið sem átti að binda enda á öll stríð hefur ekki gengið af Frelsissamtökunum dauðum. En hófsömu öflin munu verða undiríkjölfarþess. ás/Newsweek. Rannsóknarstof nun utanríkismála í Bandaríkjunum leggur til: „Bandarísku hersveitimar í Kóreu og Evrópu verði kallaðar heim ff þeir peningar sem við það sparast verði notaðir til að ef la bandaríska sjóherinn Niðurstaöa rannsóknar sem Rannsóknarstofnun utanríkismála í Bandaríkjunum hefur látið gera er á þá leið að heppilegast sé fyrir Banda- ríkjamenn að senda heim stærsta hlutann af bandarískum hersveitum sem eru í Evrópu og Suður-Kóreu. I þess stað er lagt til í skýrslu stofnun- arinnar aö fremur sé treyst á sjóher- inn til að gæta bandarískra hags- muna erlendis. Rannsóknin endurspeglar vax- andi fylgi í bandaiíska þinginu við að fækka í bandarískum hersveitum í Evrópu og Asíu og að Evrópumenn og Asíubúar sjái í auknum mæli sjálfir um sínar vamir. Búizt er viö að þessi afstaöa muni fá aukinn hljómgrunn meöal þing- manna á þessu ári og hinu næsta þeg- ar kröfur um að dregið verði úr hernaöarútgjöldum Bandaríkjanna gerast háværar til þess að draga úr fjárlagahallanum. „Þaö er kominn tími til fyrir Bandaríkin aö kalla heim mestallan landher sinn í Evrópu,” segir meðal annars í skýrslunni. I þess stað beri aö efla sjóherinn þannig að hann verði fær um að gæta hagsmuna Bandaríkjanna erlendis. „Japanir ekki síður en Vestur- Evrópumenn ættu að bera höfuðá- byrgöina á vömum sínum sjálfir bæði gagnvart ógnunum Sovét- manna og annarra,” sagöi enn- fremur í skýrslunni. Japanir tilkynntu fyrir skömmu aö þeir hygöust á næsta fjárlagaári sínu, sem byrjaði l.apríl 1983, auka útgjöld til hemaðar um 7,34 prósent. I skýrslunni er lagt til að Banda- ríkin aðstoði viö eflingu herafla Suður-Kóreu, en dragi að því búnu herliösitt ílandinuheim. Embættismenn í Pentagon segja aö 40 til 60 prósent af hemaðarút- gjöldum Bandaríkjanna, sem áætluð eru 215 milljarðar dollara fyrir árið 1983, muni renna til Atlantshafs- bandalagsins og aö þaö muni kosta 17 milljarða dollara í fimm ár að draga hersveitimar heim til Banda- ríkjanna. Theodore F. Stevens, öldunga- deildarþingmaöur og repúblikani frá Alaska, segir að bandarískar hemaöarskuldbindingar viö Nató muni á næsta ári kosta 133 milljaröa dollara. Bandaríkin eru nú með 337.300 manna herlið í Evrópu, þar af eru 220 þúsund menn í landhemum. I Suöur- Kóreu eru 38.200 bandarískir hermenn, þar af 28.500 í landher. Á báöum stöðunum er afgangurínn annaöhvort úr sjó- eða flughernum eins og allir bandarísku hermennimir í Japan. Annar höfunda skýrslunnar, Jeffrey Record, segir að það sé tvennt sem kalli á byltingu í her- skipulagi Bandarikjanna. Annars vegar sé það að óhjákvæmilegt virðist aö möguleikum Atlants hafsbandalagsins á að halda uppi sameiginlegum og fullnægjandi vömum fyrir Vestur-Evrópu. Síöara atriðið sem Jeffrey Record nefmr er að ógnanir viö öryggishagsmuni Bandaríkjanna hafi farið mjög vax- andi í Suðvestur-Asíu og annars staðar utan Evrópu þar sem Banda- ríkin hafi ekki pólitískt ömgga hernaöaraðstöðu á landi. I skýrslunni er því haldið fram að þýöingarmiklir bandamenn í Evrópu — og eru V-Þjóöverjar sérstaklega nefndir í því sambandi — hafi ekki tekið fullnægjandi þátt í hinum sameiginlegu vömum. Robert J. Hanks, fyrrverandi aðmíráll, sem er annar höfundur skýrslunnar, viðurkennir aö það yrði Bandaríkjunum mikið áfall ef Sovétríkin ynnu Vestur-Evrópu en hann bætir því við aö Evrópubúar komist ekki hjá að viðurkenna að sh'kur atburður sem vissulega væri hinn hörmulegasti fyrir Bandaríkin yrði þó ekki banabiti þeirra eins og hann yrði örugglega fyrir Evrópu. Niöurstaða skýrslunnar er sú að hersveitimar skuh sendar heim og þeir f jármunir sem við það sparast notaðir til að stækka flotann og auka hreyfan- leika hersins. -GAJ. . ' I Igm Bandarískir hennenn i Kóreus tríðinu 1950. Skuldbindingar Bandarikjanna gagnvart Nató munu á næsta ári kosta 133 milljarða doilara.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.