Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1982, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1982, Síða 14
14 DAGBLAÐIÐ & VISIB. ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLl 1982. LAUSSTAÐA Staða yfirfiskmatsmanns á Norðurlandi vestra hjá Framleiðslueftirliti sjávarafurða er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfs- manna ríkisins. Umsóknir er tilgreini menntun og fyrri störf send- ist sjávarútvegsráðuneytinu fyrir 15. ágúst nk. Sjávarútvegsráðuneytið, 15. júli 1982. Bíll og tjaldvagn til leigu Lada station meö tjaldvagni og öllum útbúnaði laus til leigu nú þegar. Verö kr. 500,00 á dag. — 4 kr. á km með söluskatti. Tjaldaleigan v/Umferðarmiðstöð, simi 13072. Öræfaferðir 1982 12 daga ferðir: Askja-Sprengisandur Brottfarardagar: 26. júlí, 2. ágúst, 9. ágúst, 16. ágúst, 23. ágúst. I/erðkr. S.040.00. 13 daga ferðir: öræfí-KverkfjöH- Sprengisandur Brottfarardagar: 25. júlí, 1. ágúst, 8. ágúst. Verð kr. 5.460.00. Innifaliö i verði: Fullt fæði, leiðsögn og tjöld. Heiztu viðkomustaðir: Þingvellir — Borgarfjörður — Akureyri — Ásbyrgi — Hljóða- klettar — Dettifoss — Herðu- breiðarlindir — Askja — Mý- vatn — Sprengisandur — Land- mannalaugar — Eldgjá — Gull- foss — Geysir — Laugarvatn. Heiztu viðkomustaðir: Þórsmörk — Skaftafell — Höfn — Hallormsstaður — Kverkfjöll — Mývatn — Sprengisandur — Landmannalaugar — Eldgjá — Gullfoss — Geysir. Ferðaskrífstofa Guðmundar Jónassonar hf. Borgartúni 34, sími83222. — Fyrri grein — SÓKNÍ STEINULLAR- MÁUNU Á 104. löggjafarþingi 1981-’82 lögöu allir þingmenn Suöurlands- kjördæmis fram eftirfarandi tillögu til þingsályktunar: „Alþingi ályktar að fela rikis- stjóminni aö ganga nú þegar til samninga viö Jaröefnaiönaö hf. um byggingu steinullarverksmiðju í Þorlákshöfn á grundvelli laga nr. 61/1981.” Á síðasta aöalfundi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, sem haldinn var á Þingvöllum 23. og 24. apríl 1982, var samþykkt áskorun á ríkisstjórn og Alþingi aö byggö veröi steinullarverksmiðja í Þorlákshöfn. Á fulltrúaráðsfundi samtakanna og stjórnar Jarðefnaiðnaðar hf., 16. maí sl. er þessi samþykkt ítrekuö. Þar harmar fulltrúaráöið afstöðu Alþingis en skorar á ríkisstjóm að staösetja verksmiðjuna í Þor- lákshöfn. Hvers vegna þessi einarða afstaða? 1. Þjóðfélagslega er rangt að reisa verksmiöju fyrir noröan því innanlandsmarkaöur er 75% á Suðvesturlandi og æskilegt aö stefnaáútflutning. 2. Þjóðnýtingaráform ríkisstjórnar í almennum rekstri ber aö stööva, sérstaklega þegar hags- munaaðilar, einstaklingar og fél- ög treysta sér til athafna og ábyrgðar í rekstri. 3. a) Dýrmæt reynsla fæst viö hráefnameöhöndlun, rafbræðslu, spunagerð, mottugerö, markaös- setningu og almennan rekstur, sem nýtist viö frekari úrvinnslu, m.a. í framleiðslu á léttum milli- veggjaeiningum, hljóðeinangr- andi plötum og röraeiningum. b) Rafbræðsluofn og vélbúnað má nýta til framleiðslu K-ullar. c) Hægt er aö nota steinull til ræktunar plantna, viö sáningu og fjölgungræðlinga. 4. Flutningskostnaður frá Sauðár- króki til aöalmarkaössvæðis er svo miklu meiri en frá Þorláks- höfn. Þaöbreytirenguþótt Ríkis- skip sé látiö taka á sig kostnaöinn. Þennan dreifingar- kostnaö greiöir skattborgarinn aö lokum. Hver sem áhuga sýnir þessu máli og les rækilega í gegn skýrslu „Stein- ullarnefndar iönaöarráöuneytis” nr. 81-4, mars 1981, sér þar ótalmarga ótvíræða þætti, sem styöja þessa skoðun. Steinullarfram- leiðsla arðbær „0.1. Athuganir nefndarinnar benda til aö steinullarframleiösla á Islandi til notkunar innanlands og til Kjallarinn H jörtur Þórarinsson útflutnings geti orðið aröbær og þjóðhagslega hagkvæm. Nauösynlegt er þó að ganga frá viöskiptasamningum um útflutning áöur en tekin er ákvörðun um byggingu verksmiöju.” Útflutning vill Steinullarfélagiö ekki og getur ekki flutt út m.a. vegna flutningskostnaðar og hafíshættu. Þó bendir nefndin á (bls. 11) aö með því aö útiloka útflutning þá veröi innanlandsveröiö aö hækka um 15-19%. Hagkvæmasta stærð „0.2. Hagkvæm stærö verksmiöju er talin svara til 14.000—\5.000 tonna ársframleiöslu. Arðsemi verksmiöju sem miðuö væri einvörðungu viö innlendan markaöyröi verulega lakari.” Steinullarfélagið hf. bað sér- staklega um aö metin væri lítil verk- smiöja (7.500 tonn/ári) „meö hliðsjón af óformlegum tilboöum, sem félagið fékk frá fyrirtækinu St. Gobain.” Nefndin færir byggingar- og rekstrarkostnað til samræmis viö 14.400 tn/ári verksmiðju Jungens Elkem en „vegna takmarkaðra upp- lýsinga sem fengist hafa frá St. Gobain er stofn- og rekstrar- kostnaöur áætlaöur af nefndinni.” Ennfremur segir (bls. 94) aö „aöferöin hafi lítið veriö könnuö af nefndinni og upplýsingar allar af skornum skammti.” I.T.I. telur ýmsa annmarka á aöferö St. Gobain. Þá verður aö greiöa 3% framleiöslugjald til franska fyrir- tækisins. Ennfremur bendir f ulltrúi Steinull- arfélagsins á áð „fyrirtæki sem nota aðferð St. Gobain beri ægishjálp yfir keppinauta sina.” (bls. 123). Brostnar forsendur Síöan er upplýst í desember 1981 aö allt tal um samstarf viö St. Gobain væri endanlega úr sögunni. Margra mánaða töf viö samanburð á þessum tveim tegundum verksmiöja og verkið unniö fyrir gýg. Stofnkostnaður 106,89 milljónir „0.3. Stofnkostnaðurl4.000-15.000 tonna steinullarverksmiöju yrði um 106,8 m. kr. og framleiðsluverðmæti um 55—60 m. kr. á ári, miöaö viö full afköst. Starfsliö yröi 68 manns samtals ...” (Ath. Allt verölag er miöaö viö 1. janúar 1981). Heildarstofnkostnaður 10% hærri á Sauðár- króki sem er 24% hærra en hlutafjár- framlag ríkis Hér er spuming um hvaö munar um aö sleppa hlutdeild ríkissjóös (40% af 23,1 milljón), 9,24 milljónum en meta raunhæft hve byggingar- kostnaöurinn er miklu lægri í Þor- lákshöfn. I áætlun nefndarinnar er stofn- kostnaöur talinn sá sami á Sauöár- króki og í Þoriákshöfn. I reynd er svo ekki þar sem reikna veröur meö aöfluttu vinnuafli á báðum stööum og mismunandi kostnaöi af þeim sökum. Ef gert er ráö fyrir 50% aöfluttu vinnuafli á Sauöárkróki (frá SV- landi) og 75% í Þorlákshöfn (há- marksfjöldi við byggingu og véla- uppsetningu áætlaöur um 100 manns og 27000 manndagar alls) veröur heildarstofnkostnaöur um 10% hærri á Sauöárkróki en í Þorlákshöfn. I áætlun nefndarinnar er kostnaður viö rafmagnsheimtaug áætlaður 1,0 millj. króna. Samkvæmt bréfi Raf- magnsveitna ríkisins dags. 10.12.80 er kostnaöur hins vegar metinn kr. 1,28 millj. á Sauðárkróki en kr. 580 þúsund í Þorlákshöfn. Vegna flutnings verksmiðjunnar nær aöveitustöö svo sem nú er gert ráö fyrir lækkar kostnaður í Þor- lákshöfn væntanlega í um 480 þúsud. krónur. Stofnkostnaðarmunur af þessum sökum veröur því um 0,8 millj. króna Þorlákshöfn í vil. Stofn- kostnaður í Þorlákshöfn á því aö lækka úr kr. 106,8 millj. á verölagi 1. janúar 1981 í kr. 106 millj. Stofnkostnaöur á Sauðárkróki hækkar hins vegar um 10% eða úr kr. 106,8 millj. i kr. 117,5 millj. Stofnkostnaöur 14000 tonna stein- ullarverksmiöju á Sauöárkróki veröur því kr. 11,5 millj. hærri en sams konar verksmiðja í Þorláks- höfn sem er liölega 24% hærri upphæð en hlutafjárframlag rikisins (40% af 23,1 millj.). Stofnkostnaöar- munur minni verksmiðju (6000 tn) verður svipaöur hlutfallslega þó heldur hærri þar eð vinnulauna- kostnaöur er hlutfallslega heldur hærri í minni verksmiðju. Þórsmerkurdeilan: Fararstjonnn neitaoi fyrir hönd farþeganna Einn farþeganna í rútu Ferða- félagsins sem fór í Þórsmörk um helgina hafði samband við DV. Hann kvað það ekki rétt, sem fram hefði komið í frétt blaðsins í gær, að farþegamir hafi neitað að greiða gjald fyrir inngöngu á svæðið. Sannleikurinn sé sá að fararstjórinn hafi neitað þessu fyrir hönd farþeganna en margir þeirra hafi verið reiðubúnir til að greiða. -GSG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.