Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1982, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1982, Side 32
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. ÞRIÐJUDAGUR 20. JtJLl 1982. 32 Tryllingur ársins í New York er „höfuöfat” sem fær þig til að líkjast geimveru. I New York heitir það „deely-bobbers” og er alveg fáránleg- ur hlutur sem ekkert notagildi hefur — utan þess aö pirra samborgarana. New York búar eru þekktir fyrir að láta heillast af alls konar dellufyrir- brigöum. Sumar dellurnar eða tízku- fyrirbrigðin hafa orðiö vinsæl víða um lönd s.s. hjólaskautar, hjólabretti og míkrósegulbönd. Þó held ég að dellan sem heltók New Yorkara fyrir tveim árum , að ganga með stein í bandi, hafi hvergi annars staðar notiö vinsælda á jarðkringlunni. Höfuðfat En nú er það nýjasta nýtt sem sagt eins konar höfuðfat. Það er úr harð- plasti og tveim spírölum sem teygja sig upp í loftiö og efst á þeim tróna svo einhverjir klumpar, hjörtu eða lauf eða kúlur. Þegar þú gengur með þetta hristast spíralarnir og skakast glaðiega i takt við göngulagið. Á öllum aldri Seljendur deely-bobbers eru á hverju götuhorni. Og hvert höfuðfat kostar einn dollara og allir þeir sem teljast vilja menn með mönnum verða aö kaupa þetta. Því þetta er tízkan í ár. Þegar þú lítur á myndina ímyndar þú þér ef til vill að þetta skraut sé aðeins fyrir böm. En það er mesti mis- skilningur. Ef þú ferð til New York þá sannfærist þú um þetta sjálf. Komdu viö í Central Park á sunnudegi. Þar munt þú komast að raun um að það eru jafnt fertugir og sextugir sem böm með deely-bobbers dinglandi á hausnum. Og oftast er þetta fólk líka á hjólaskautum með lítil míkrósegul- bönd og heyrnartæki. Milljónari Sá sem fann þessa dellu upp heitir Stephan Askin og er frá Los Angeles. Hann reiknar með því að græða um 20 milljónir dollara á deely-bobberunum þetta árið. Hann hefur fyrir löngu krafizt þess að fá einkarétt á þessari uppfinningu, en ekkert svar fengið ennþá frá einkaleyfisveitendum. Og nú hafa margir stolið frá honum hug- myndinni og framleiða delluna í stómm stíl. Askin er afar fúll yfir þessu og segist ekkert skilja í því að mönnum leyfist að nota annarra .manna hugmyndir til þess að græða á þeim. (Eflaust hefur hann gleymt þvi aö hann býr í landi frelsisins þar sem frjáls samkeppni er leyfileg). Askin segist enga trú hafa á að þessi della endist lengur í Bandarikjunum en eitt ár. En hann hefuraugastaðá er- lendum mörkuöum svo sem í Eng- landi, Þýzkalandi, Frakklandi og Japan. En fyrir New York-markaðinn verður hann að finna upp á nýrri neyzludellu. — Hverjusvosem? „Kannski úöara sem ver mann fyrir kjarnorkugeislum.” — En varla Hér má 8 já Regine Coco, söngkonuna í The Piatters, meft nýjustu delluna f rá New York á hausnum. Nefnilega deely-bobbers. kaupir nokkur úðara í dós því þaö er fyrir löngu sannað að dósaúðarar eyöa ósónlagi loftsins sem ver okkur mannaböm fyrir hættulegum útfjólu- bláum geislum? „Jú, jú, elskan mín góða, segir Stephan. „Þetta er bara allt spuming um að kunna aðauglýsa.” Nýjasta dellan frá New York KRAUM AR í KREMINU Dustin Hoffman er nær óþekkjanlegur á þessari mynd. En hún var tekin er veriö var að kvik- mynda nýjustu myndina sem hann leikur í „Tootsie”. Þar leikur hann dömu eina og kostaöi búningurinn hann viku í rúminu. Hann þoldi ekki andlitsfarðann sem hann þurfti að nota og hljóp því allur upp í einhverju and- styggðar ofnæmi. Þessu hefur nú verið kippt í liöinn og eru önnur krem notuð sem betur hæfa við- kvæmu hörundi leikarans. Björn Borgs gata í Lítde Rock Gatan verður nefnd eftlr Birnl Borg. Bæjarstjórnin í Little Rock í Arkansas hefur nú ákveöið aö nefna götu eina í bænum eftir Bimi Borg tennisstjömu. Upphaflega átti gata þessi aö bera heiti tennisstjörnunnar John McEnroes, en helmingur bæjar- stjómarinnar sagði aö það kæmi ekki til greina. Fannst þeim sem McEnroe ætti slikt ekki skilið, hann væri orölagöur skapofsamaður og væri sífellt aö valda hneykslun með fram- ferði sínu. Bjöm Borg hefur hins vegar lagt mikið af mörkum tennisíþróttinni til heiðurs og það mun verða haft í minn- um lengi. Eða það er að minnsta kosti skoðun stjómmálamanna í Little Rock. Það var ekki einungis í Falklandseyjadeilunni sem Argentína og Bretland háðu orrustu heldur líka í al- heimsfegurðarsamkeppninni. Hér á myndinni sjást þátt- takendur í alveg jafnfáránlegu stríði og Falklandseyja- deilan var. Á milli ungfrú Wales og ungfrú Bretlands er ... já akkúrat ungfrú Argentína. Brooke Shields og kærastinu, Patrick Cassidy. Mamma ræður engu Mamma hennar er ekkert ánægð með þetta, en hún fær ekki viö neitt ráöið. Það lítur út fyrir að Brooke Shields sem orðin er 16 ára sé farin að stjórna sínu eigin lífi. Móðir hennar hefur aftur á móti þá skoðun að það sé bezt fyrir Brooke að halda í ímyndina um litlu saklausu stúikuna sem lengst. Þess vegna er það alveg bannaö að láta sjá sig með strákum. En Brooke féll alveg kylliflöt fyrir tvítugum náunga, Patrick Cassidy að nafni. Og hún er ekkert að fara í felur með það. Það er öruggt mál að þessi fregn á eftir að særa margt amerískt strákshjartað. En þeir kaupa sig þó inn á myndir með henni eftir sem áður. Brooke er alveg hæstánægð og tekur vin sinn meö sér hvert sem hún fer, en alls ekki mömmu sína. Patrick Cassidy er enginn hr. Hversemer. Hann er yngstur þriggja bræðra og þeir tveir elztu eru nú þegar orðnir frægir en þeir heita David og Shaun. Patrick ætlar sér líka að verða frægur. Hann hefur nú þegar fengiö hlutverk á leiksviði á Broadway. Þó mamma Brooke Shields hafi að einhverju leyti rétt f yrir sér er hún heldur því fram að þetta samband Brooke við Patrick geti skaðaö mannorð hennar þá er alveg öruggt að nafn Patricks veröur enn þekktara fyrir vikið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.