Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1983, Page 3
DV. FIMMTUDAGUR 6. JANUAR1983.
liiktoria
ymtr\(nicn! 12
Erlendir ríkisborgarar í
þjónustustörfum á Vellinum
Uggvænleg
tíðindi
umafsal
réttinda
— segir lögmaður Verslunarmannafélags
Suðumesja um viðbrögð varnarmáladeildar
Páll S. Pálsson, lögmaöur
Verslunarmannafélags Suöurnesja,
hefur nú ritaö vamarmáladeild utan-
ríkisráöuneytisins bréf þar sem hann
óskar svara viö spurningum um er-
lenda þegna í borgaralegum þjónustu-
störfum á Keflavíkurflugvelli. Eins og
greint hefur veriö frá í DV óskaöi
Verslunarmannafélagið eftir því aö
höföaö yröi mál til aö koma í veg fyrir
aö bandaríski herinn flytti inn vinnuafl
til aö gegna þjónustustörfum.
Ríkissaksóknari vísaöi þessu máli
frá sér meö þeim rökum aö þaö væri
utan hans lögsögu en snerti einvörð-
ungu framkvæmd vamarsamningsins
frá árinu 1951, aö viðlagöri ráöherra-
ábyrgö utanríkisráöherra. RíkLssak1
sóknari vísaöi í svari sínu til bréfs
vamarmáladeildarinnar um sama efni
frá árinu 1978 þar sem segir aö eigin-
konur hermanna og annað skylduliö
hafi unniö störf á vegum hersins og
haft til þess efalausa heimild á þeim
svæöum sem afhent hafa verið til
afnota fyrir varnir landsins. Saksókn-
ari bætir síðan viö aö þessi skilningur á
vamarsamningnum hafi veriö stað-
festur í reynd síöastliöiö 31 ár, enda
hafi verið ráö fyrir því gert í upphafi
aö herinn heföi starfsliö „og er þá ekki
átt við Islendinga aö sjálfsögðu”, segir
ísvarihans.
Páll S. Pálsson bendir á aö í varnar-
samningnum séu einnig ákvæöi þess
efnis aö það skuli vera háö samþykki
Islands hverrar þjóöar menn séu í
hemum og meö hverjum hætti hann
hagnýtir aöstööu sína á Islandi. Þá
skuli þaö háö samþykki íslensku ríkis-
stjórnarinnar hversu margir menn
hafi setu á Islandi samkvæmt samn-
ingnum. Boöi bréf vamarmáladeildar
því ný og uggvænlegri tíðindi til
réttindaafsals en áöurhafi veriö.
I bréfi Páls S. Pálssonar segir síöan
orörétt: „Málaleitan Verslunar-
mannafélags Suöurnesja til mín var
upphaflega á þá leiö aö ég leitaði til
dómstóla um aö hnekkja því aö
vamarliðið flytti inn vinnuafl án þess
aö innlendur aðili fengi rönd viö reist.
Svaraöi ég á þá leið aö lögfræöi og
dómstólar nái skammt til aö ráöa þær
rúnir, sem ristar hafa veriö þama
syöra af stjórnmálamönnum og ráðu-
neytum. Hinsvegar litist mér betur á
tillögu VS um að ella rói stéttarfélögin
á önnur miö og óski eftir því aö íslensk
yfirvöld setji reglur um erlenda starfs-
liöið í borgaralegum störfum á Kefla-
víkurflugvelli, þar sem forgangur Is-
lendinga sé tryggöur.”
Segir Páll síöan að hann vilji ekki
skiljast viö þetta mál án þess að fá
upplýst á sæmilega skýran hátt hvern-
ig þessi mál séu í pottinn búin. Ber
hann því fram fjórar spumingar sem
hann óskar svarað af varnarmáladeild
utanríkisráöuneytisins.
1 fyrsta lagi spyr Páll hvort ráöu-
neytið telji óeölilegt og óæskilegt að
það hlutist til um aö erlendir ríkisborg-
arar, sem hyggjast stunda borgaraleg
störf á Keflavíkurflugvelli, hafi til þess
atvinnuleyfi. I ööru lagi hvort ráöu-
neytiö hafi gert sér far um að fylgjást
með því hvemig háttaö sé ráöningu
' borgaralegra starfskrafta í þágu
vamarliösins. I þriöja lagi hversu
mörgum mönnum hafi verið veitt leyfi
til „setu” á Islandi til borgaralegra
starfa í þágu varnarliösins samkvæmt
vamarsamningnum og í fjóröa lagi
hvort ráöuneytiö telji, eöa varnar-
máladeildin fyrir þess hönd, aö tími sé
kominn til eöa þörf sé á áö endurskoða
ákvæöi varnarsamningsins aö því er
margnefnd borgaraleg störf í þágu
vamarliösins snertir.
ÓEF
Verslunarmannafélag Suöurnesja
hefur óskað eftir rannsókn á því
hvers vegna hundruð erlendra
ríkisborgara séu í borgaralegum
störfum hjá bandaríska hernum
og það á lægri launum en ís-
lendingar. Myndin er af starfs-
mönnum bandaríska hersins eyða
frístundum sínum yfir spilaköss-
um.
Duglegustu
mæður kom-
ust ekki
tilað
sækja bömin
Regína Selfossi, miövikudag klukk-
an 15.00:
Að sögn Sigþórs Erlendssonar,
kennara viö bamaskólann á Sel-
fossi, var sæmilegt veöur í morgun
þegar skólinn byrjaöi klukkan átta
en mjög ábúöarlegt veður. Mæting
var bara ágæt en fljótlega eftir að
bömin komu í skólann fór veörátt-
an aö versna og geröi bara aftaka-
veður aö mér er sagt. Sjálf hef ég
ekkert fariö út. Klukkan tvö vora
flest börn komin heim til sín og þau
síðustu á heimleiö aö sögn Sigþórs.
Hann sagöi mér einnig aö þetta
heföi gengið afar seint en engin böm
heföu fengiö aö fara úr skólanum
nema í fylgd meö fullorönum. Það
má líka geta þess aö þaö er stelpa
hérna uppi á lofti, 10 ára gömul, og
hún var klukkutíma aö komast
heim smáspöl. Mér er líka sagt að
smábörn séu föst á bamaheimilinu
og þar var bara eldað fyrir þau.
Duglegustu mæöur sem ætluöu
aö sækja börn sín komust ekki til
þess og stoppuðu í næstu húsum.
Lögreglan var voöa hjálpleg við
að koma börnum heim en hún sér
ekkert betur en Pétur og Páll því
þaö er svo mikiö dimmviðri. Sam-
staöan viö að hjálpa hefur veriö
mjög góð.
Regína Thor Selfossi/óm