Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1983, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1983, Qupperneq 13
Samkeppni í Evrópufluginu 1 fyrstu grein minni hér í DV um ferðamál lýsti ég þeirri skoöun minni að tveir atburðir væru eftirminnileg- astir í íslenskumferðamálum frá ný- liðnu ári. Stofnun Ferðamálasam- taka Vesturlands og tilkoma nýs að- ila á sviði áætlunarflugs miili Islands og annarra E vrópulanda. Að þessu sinni skal gerð nokkur til- raun til að kryf ja síðarnefnda atriðið til mergjar, en máliö er í eðli sínu bæði viðamikið og viðkvæmt. Tvö félög í Evrópuflugi Það er staðreynd að nú annast tvö íslensk flugfélög, Flugleiðir og Arnarflug, reglubundið áætlunarflug milli tslands og annarra Evrópu- landa og að skipting flugleiða hefur verið ákveðin af samgönguráðherra. Ein ástæðan fyrir skiptingu flug- leiðanna var sögð sú að með henni væri mögulegt að koma í veg fyrir óeðlilega samkeppni á sviði verð- lagningar farseöla. Nú má öllum vera ljóst að þó svo að Flugleiöir hafi ekki lengur leyfi til þess aö stunda áætlunarflug á milli Reykjavíkur og Amsterdam, mun fé- lagið vissulega leita eftir að flytja farþega milli þessara staða með við- komu í London eða Kaupmannahöfn. Á sama hátt mun Arnarflug gera átak í þá veru aö fá farþega í sínar ferðir milli Reykjavíkur og Diissel- dorf, sem í raun og veru eru á ferð milli Reykjavíkur og Frankfurt, en á þeirri flugleið hafa Flugleiðir einka- leyfi til áætlunarflugs af hálfu ís- lenskra stjórnvalda. Hörð fargjaldasamkeppni I báðum ofangreindum tilvikum munu flugfélögin vitanlega beita fyr- ir sig sem hagstæðustum fargjöldum til þess að laða til sín viðskiptavini. Mögulegar aðferðir á þessu sviði eru margar, þó að bæði flugfélögin hafi e.t.v. sama verð prentað í gjald- skrám. I því sambandi nægir að nefna mismunandi há umboöslaun og fjárstuðning til handa umboðs- mönnum og fría gistingu eða afslátt á hótelum erlendis og hér á Islandi. Margt annaö mætti nefna, atriði sem allir aöilar íslenskrar ferðaútgerðar eða jafnvel flugfarþegar sjálfir þekkja mæta vel af eigin reynslu. Verðstríð á Kanaríleið Nýjasta dæmið um verðsamkeppni flugfélaganna er um hylli þeirra Is- lendinga, sem hug hafa á að heim- sækja Kanaríeyjar í vetur. Flugfélag Islands og síðar Flug- leiðir hafa um árabil starfrækt leigu- flug frá Islandi til Kanaríeyja yfir vetrarmánuðina í náinni samvinnu við þrjár feröaskrifstofur í Reykja- vík. I haust birtist fyrsta auglýsingin um Kanaríeyjaferðir með Arnar- flugi, sem stofnaö hafði til samvinnu við aörar þrjár ferðaskrifstofur í Reykjavík, og skyldi flogið milli Reykjavíkur og Amsterdam í áætlunarflugi Arnarflugs og þaöan með hollensku leiguflugfélagi til Kanaríeyja. Veröstríð er nú í gangi milli þess- ara tveggja samsteypna og við- skiptavinir geta gert góö kaup í ferð- um til Kanaríey ja í vetur. Eftirlit nauðsynlegt Af því sem að framan segir má vera ljóst að leiðaskipting kemur ekki í veg fyrir samkeppni á sviði verðlagningar flugfarseðla. En er nokkur ástæða til að reyna að koma í veg fyrir sem hagstæðust fargjöld fyrir flugfarþega til eða frá Islandi? Hvern er verið að vemda, flugfé- lögin eða viðskiptavinina? Er hætta á að íslensku flugfélögin gangi svo langt í lækkun fargjalda að rekstri þeirra verði stefnt í hættu og að leita verði á náðir erlendra flugfé- laga um rekstur áætlunarflugsins mUli landa? Nokkurt samhengi er mUU tveggja síðari spurninganna, þ.e.a.s. ef það Kjallarinn BirgirÞorgilsson þykir sennilegt að flugfélögin gangi jafnlangt í samkeppninni og síðari spurningin gefur tU kynna, má færa nokkur rök fyrir því að verið sé aö vernda hagsmuni flugfarþega og ferðaútgerðar í landinu. SUk fööurleg vernd nær þó ekki tU erlendra farþega á leið tU eða frá Is- landi, enda setja þeir ekki fyrir sig að ferðast til sumarleyfisstaða í öðr- um löndum, þó að íslenskt flugfélag fljúgi ekki á viðk<ynandi flugleiðum. Þeir myndu því vafalaust koma til Islands eftir sem áður, þó að þeir þyrftu að ferðast meö erlendum flug- félögum. Hitt er svo annað mál aö enginn Is- lendingur efast um þjóðhagslega nauðsyn á starfsrækslu íslenskra flugfélaga og mikilvægan þátt þeirra í uppbyggingu íslenskrar ferðaút- gerðar, sem seint verður metinn að verðleikum. Vitaskuld eru þau fyrst og fremst að hugsa um hag eigin fyrirtækja, sem starfa í ferðaútgerð- inni, en engu að síöur nýtur alþjóð góðs af. Eftirlit meö verðlagningu flugfar- seðla er nauösynlegt og ekki er rétt að leyfa flugfélögunum að hækka og lækka fargjöld að eigin geðþótta. Sömuleiðis er nauðsynlegt að eftirlit sé haft með því að flugfélög, sem fá sérleyfi til áætlunarflugs, fljúgi sam- kvæmt auglýstri áætlun. Réttindum fylgja skyldur Það veldur óneitanlega vonbrigð- um að Arnarflug hefur fellt niður áætlunarflug á tveimur af þremur sérleyfisleiðum, sem félaginu var út- hlutað síðasta vor, yfir vetrar- mánuðina. Áætlunarflug til þessara staða allt áriö var einmitt nefnt sem ein ástæða þess að félaginu var úthlutað leyfum til áætlunarflugs á viökomandi flugleiðum. A sama hátt verður að gera þá kröfu til Flugleiða að það félag fylgi auglýstri áætlun, en felli ekki niður ferðir í stórum stíl á sérleyfisleiðum að eigin geðþótta í þeim tilgangi að ná óeðlilega hárri sætanýtingu. Hvort tveggja stendur eðlilegri þróun ferðaútgerðarinnar fyrir þrif- um og veldur fjölda farþega fjár- hagslegutjóni. Flugfélag, sem tekur við sérleyfi úr hendi stjórnvalda, verður að gera sér grein fyrir því aö það eru ekki aðeins réttindi sem það tekur við, heldur einnig skyldur. ,Reglubundið" leiguflug Ennþá er ósvarað þeirri spumingu hvort eitt eða fleiri íslensk flugfélög skuli hafa leyfi til áætlunarflugs milli landa. I flugrekstri gilda sömu lögmál og á flestum öðrum sviðum viðskiptalífsins; samkeppni lækkar verð og bætir þjónustu. Hvort tveggja hefur að nokkru sannast síð- an Arnarflug hóf áætlunarflug milli landa. Ennfremur verður að álíta senni- legt að tilkoma Amarflugs eigi eftir aö hafa áhrif til fjölgunar erlendra ferðamanna hingað og um leið til betri hags íslenskrar ferðaútgerðar almennt. Fjárhagslegri afkomu Arnarflugs hefði þó verið betur borgið með því aö stunda frekar „reglubundið” leiguflug milli Islands og annarra landa heldur en að hefja reglu- bundið áætlunarflug milli Reykja- víkur og Amsterdam, Diisseldorf og Ziirich. Jafnvel þótt Flugleiðir hefðu ekki haldið að sér höndum og horft aögerðarlausar á slíka starfsemi þróast h já Amarflugi. Leiguflug úr báðum áttum Leiguflugið er stór þáttur í flutn- ingi ferðamanna í Evrópu og á mörg- um flugleiðum stærra en áætlunar- flugið. Enda er búið að sannfæra al- menning um það með auglýsingum í 25 ár að leiguflugið sé ódýrasti ferða- mátinn. Þetta á einnig við hér. Á sumrin eru farnar allt að fimm leiguflugferðir á viku frá Reykjavík til sólarlanda og auglýsingar um ágæti leiguflugsins dynja á lands- mönnum. Oftast em notaðar hæpnar aðferöir við samanburð á verði, mið- að við áætlunarflug á sömu flugleið- um. I vetur em flestir íslenskir ferða- menn fluttir í leiguflugi, bæði til sól- dýrkunar og skíðaferöa. Það er ekki nokkur vafi á því að ferðamönnum til Islands myndi fjölga til mikilla muna ef slíkt „reglubúndið” leiguflug væri einnig á boðstólum erlendis á flugleiðunum til Islands. Til hagsbóta fyrir þann stóra hóp landsmanna, sem hefur at- vinnu við ferðaútgerðina, og þarmeð þjóðarbúið. Um leið myndi einhver samdráttur verða í áætlunarfluginu. En skiptir það meginmáli til dæmis hvort farn- ar em 12 eöa 9 áætlunarferðir milli Reykjavíkur og Kaupmannahafnar, ef áætlunin er í samræmi við heildar- hagsmuni okkar og henni er fylgt? Aöalatriðið er að marka stefnu í samgöngumálum og ferðaútgerð til lengri tíma og fylg ja henni f ast. Birgir Þorgilsson, markaðsstjóri Ferðamálaráðs. A „Þaö er ekkí nokkur vafi á því að ferða- w mönnum til íslands myndi fjöiga til mikilla muna ef slíkt „reglubundið” leiguflug væri einnig á boðstólum erlendis á flugleiðum til íslands.” DV. FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR1983. FERÐAMÁL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.