Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1983, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1983, Side 32
32 DV. FIMMTUDAGUR 6. JANUAR1983. DÆGRADVÓL DÆGRADVÖL DÆGRADVOL „Þaö var eins og hiö innra með henni fsddist einhver geysilegur nýr styrkur, einhver stálslegin ákvöröun sem duttlungar daganna fengju ekki haggað.” HEILSURÆKT Baldur Hermannsson ÁKVÖRDUN ELÍNBORGAR — saga sem byrjar vel „Syona þegiö þiö krakkar,” æpti maöurinn, ,pná maöur aldrei horfa á þetta sjónvarp í friði. Þiö heimtið aö fá aö glápa á Tomma og Jenna og nú ætla ég að fá aö hlusta á hann Gunna Thor ogþegið þiösvo.” „Vertu þægur Stebbi minn. Hann pabbi vill fá aö hlusta á hann Gunnar tala,” sagöi Elínborg dálítið smeöju- lega viö krakkann, og krakkinn þagn- aði en var ólundariegur til augnanna en það varö aö hafa þaö. Forsætisráöherrann var gneypur á að líta og lagði frá honum einhvern drunga sem Elínborg kunni mæta vel við. Þaö er styrjöld í aðsigi, margvís- legar ógijir steöja aö þjóöinni, þaö er kominn í okkur einhver beygur og viö veröum aö passa betur upp á skreiö- ina, sagöi Gunnar, en Elínborg hlust- aði ekki svo grannt eftir oröunum — hún virti öldunginn vandlega fyrir sér og hugsaði: æ, óskaplega er hann orö- inn fyrirgengilegur hann Gunnar minn. Þaö var þá eitthvað öðruvísi hér áöur fyrr, þaö voru góðir tímar og allir sáttir nema þegar hann Ásgeir fór fram en nú er eins og hundur hund, hitti á tófugreni. En svona gengur þaö, ellin hlífir hvorki háum né lágum. Hún fór fram og gáöi í spegilinn. Sjálf var hún komin af léttasta skeiði, en hörundið var ennþá sæmilega slétt og þurfti ekki aö kvarta mikið yfir því. Aö vísu voru komnar dálitlar hrukkur út frá augunum og í ennið en ekkert til þess aö æðrast út af. Hún seildist í dollu meö rauögulu mauki og smuröi í hrukkumar. Augun vom víst búin að missa þetta skínandi blik sem þau höföu þegar hún var ung en í staöinn höföu þau áunnið sér einskonar vel- sældarblik eöa staöfestu. Eg er bara einum of feit, hugsaði hún, en þaö em næstum allar konur á mínum aldri. Þó ekki alveg allar. Hún sneri sér á hlið og virti fyrir sér litlu bumbuna. Engan veginn nógu gott. Svo sneri hún sér alveg við og reyndi aö sjá sig aftan- veröa og þaö voru komnir á hana kepp- ir upp af þjóhnöppunmn. Gróft blóts- yröi hraut henni af vörum. Hann Eirík- ur á betra skiliö en þetta, hugsaöi hún, hann sem var svo grannur og spengi- legur og þó reykti hann tvo pakka á dag og svolgraði kolsvart kaffi og ekki var aö sjá aö hann borðaöi neitt minna en aðrir karlmenn, þaö haföi hún margsannfærst um í matarboðum þeirra systranna. Eiríkur var níölatur á heimilinu og geröi ekki mikið annað en skipa fyrir og derra sig en hann var ákaflega góður viö krakkana og forkur duglegur aö vinna fyrir heimilinu. Hann var meö doktorspróf í verkfræöi og spilaöi listavel á píanó þegar hann var kenndur. Best aö fara að hella svo- lítiö út í hjá honum þá myndi skapið fara að skána. ----- „Ella!”, kallaöi Eiríkur reiöilega, „Ella!” „Sagöi hann eitthvaö merkilegt,” spuröi hún og meinti Gunnar sem var horfinn sjónum og ljóshærður kven- maöur kominn í staðinn og farinn aö þylja upp dagskrá kvöldsins. „Æ, þetta venjulega kjaftæöi um áföll í þjóöarbúskapnum og íslenska menningu sem allir eru orðnir hund- leiöir á. Og eitthvað var hann aö vitna í Bólu-Hjálmar. Sýnist mér fyrir hand- an haf, upp risa vonardagur, eöa þess háttar. Fer ekki kaffið aö koma? ” „Nú ætla ég aö fara til þess,” sagði hún og fór fram aö laga kaffi. En hugurinn var allt kvöldið eins og límd- ur viö hennar eigiö hold, hversu digurt það var orðið og hve nauðsynlegt var að grípa nú til stórra ráðá. Hún hellti upp á könnuna og einmitt á því andar- taki er fyrstu dropamir sytruöu gegn- um brúnan kaffihauginn og niöur í gömlu, bláu kaffikönnuna, þá var eins og eitthvaö fæddist hið innra með henni, einhver geysilegur nýr styrkur, einhver stálslegin ákvöröun sem duttl- ungar daganna fengju ekki haggaö. „Eg fer í heilsurækt,” sagöi hún stundarhátt, „þaö er nú akkúrat þaö sem ég ætla aö gera. Áramótin eru svo tilvalin til þess aö fitja upp á einhverju nýju og nú skal ég taka til höndunum og grenna mig svo um munar. Strax í fyrramáliö ætla ég að byrja í heilsu- rækt, lyftingar viö hæfi kvenna meö ljósum og gufubööum. Þaö er víst ekk- ert óhollt nema hvaö safinn fer svolitið úr brjóstunum eftir því sem hún Rósa Ingólfsdóttir segir en þau eru nú hvort sem er óþarflega mikil.” „Kaffi, kemur kaffiö eöa kemur þaö ekki,” öskraöi Eiríkur. „Svona gæskur, nú færðu kaffið þitt. Viltu ekki lögg út í gæskur áöur en skaupiðbyrjar?” Og Eiríkur fékk sér viský út í kaffið. Svo fékk hann sér kaffi út í viskíið og að lokum var þaö bara viskí. En þá var hann líka oröinn innilega glaöur og rak Elínborgu sinni og krökkunum rembingskossa og skellihló aö skaup- inu þótt enginn annar sæi neitt fyndið í því. Á heilsuræktarstöðinni — Já, þú hefur ákveöiö að skella þér hingað á heilsuræktarstööina, Elín- borg? „Já, ég hugsaði meö mér að þaö þýddi ekkert aö láta þetta dragast mjög lengi, þá yröi bara ekkert úr þessu. Þetta er í annað sinn sem ég kem hérna. Eg var nú alveg dauðfeim- in fyrst, sérstaklega innan um alla þessa karlmenn en svo rjátlast f eimnin af manni og þá finnst manni bara eðli- legra að bæöi kynin séu hér að æfa.” — Tekuröumikiöá? „Nei, ekki finnst mér það. Þjálfarinn bannaöi mér aö hamast mikiö alveg svona í byrjun. Maöur á víst að byggja sig upp, þolið og styrkinn, og þá getur maöur f ærst meira í f ang. ” — Hvemig er með tímann? Áttu hægt meö aö sæk ja æfingarnar? „Já, ég held það. Eg er búin á skrif- stofunni um hálffimmleytið og þá tek ég strætó beint hingaö. Eg æfi mig svo í klukkustund eöa tæplega þaö og það finnst mér alveg viöráöanlegt. Eg æfi bara þrisvar í viku svo aö hina dagana hef ég nógan tíma til þess aö fara í búö- ir. En þetta er óskaplega spennandi og það er allt miklu þægilegra hér en ég haföi gert mér í hugariund og ég held aö konur almennt ættu aö gefa sig meir aðsvona heilsurækt en þær gera.” — Nú er þaö oft svo, Elínborg, að fólk byrjar af ansi miklum krafti en guggnar svo og hættir aö mæta. Væri þér sama þótt við hér í Dægradvölinni fengjum aö fylgjast svolítið meö þér framan af árinu? „Þó það nú væri. Hvenær sem þiö viljið. Eg býst við aö veröa hérna mánudaga, miövikudaga og föstu- daga. Blessaðir komiö þiö bara sjálfir aö æfa héma, þiö hefðuð örugglega bara gott af því!” sagöi Elínborg að lokum og snaraöi upp lóöunum. MAÐUR MEÐ MARKMIÐ Magnús Ásgeirsson er 35 ára tré- smiöur, búsettur í Reykjavík og æfir hjá Líkamsræktinni. Hann er maður meö markmið, eins og sagt var um annan Islending í eina tíö, því hann tekur orðiö 75 kíló í bekkpressu og stefnir nú miskunnarlaust á 100 kilóin. En hvað er svona sérstakt viö aö taka 100 kíló í bekkpressu? Ekki annaö en þaö aö þar skilur á milli vaskra drengja og hraustra kari- manna, eftir því sem gamalreyndur lyftingamaður tjáöi mér fyrir langa löngu. En þessi 25 kíló sem Magnús á eftir ótekin í bekkpressunni veröa ekki sótt nema með mikilli elju og ástundun og trúlega má Magnús hafa sig allan viö til aö ná þeim á árinu þótt hann byrji þaö vel. „Eg æfði 4 mánuöi í fyrravetur en varö þá aö hætta vegna anna,” segir- Magnús. „Svo byrjaöi ég aftur í desember og það tekur aö ég held nokkum veginn mánuö að ná upp sínum fyrri styrkleika — hann dettur niöur þegar maður leggur niöur æfingarnar en þaö er ekki þar meö sagt aö hann hverfi úrlíkamanum.” — Láöur þér betur í heilsurækt- inni? „Ja, maöur öðlast almennt betri líöan, nær úr sér vöövabólgum og þess háttar óáran. Líkaminn styrkist og þolið eykst og sumir segja aö þeir eigi betra með svefn en ella. Eg er dálítið á skíöum líka og margar æfingar hér em til þess fallnar aö styrkja fætuma fyrir skíöamennsk- una.” Magnús Ásgeirsson tekur á honum stóra sínum. Mynd BH.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.