Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1983, Side 9
DV. FIMMTUDAGUR 6. JANUAR1983. 9
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
A MORGUN
hefst okkar árlega
verksmiðjuútsala
ognú »
á nýjum stad
Blossahúsinu — Ármúla 15.
Opið: föstudag kl. 10—22
laugardag kl. 10—19.
Verksmiðjuútsalan
Blossahúsinu — Ármúla 15
Sími 86101.
VERÐUR EKKJA
MAOS TEKIN AF LÍFI?
Jiang Qing, hin 69 ára gamla ekkja
Maos formanns, verður tekin af lífi
eftir mánaðartíma ef Kínverjar
framfylgja dómnum, sem „hæsti-
réttur alþýðunnar” kvað upp yfir
henni fyrir tveim árum. Sök hennar
var afbrot sem hún þótti hafa framið
á tíma menningarbyltingarinnar
áratuginn 1966—76.
En mönnum er mjög til efs að
dauöadómnum verði nokkum tíma
fullnægt. Aö kínverskri réttarvenju
fékk Jiang Qing tveggja ára biðtíma
fyrir fullnustu dómsins sem tækifæri
til að iðrast verka sinna og sýna betr-
un. Haft er þó eftir embættismönn-
um í Peking að hin gallharða ekkja
hafi ekki sýnt neina yfirbót.
Þegar réttarhöldunum lauk á
sínum tíma töldu flestir víst að hinir
nýju valdhafar í Kína, Deng Xiaop-
ing og félagar hans, mundu vilja
lægja óróann í landinu eftir umrót
menningarbyltingarinnar og valda-
átökin við fjórmenningaklíkuna eftir
fráfall Maos með því að fara eins
mildilega og fært þótti með sjálfan
höfuðpaur fjórmenningaklíkunnar.
Eftir alla stórglæpina sem ekkjunni
höfðu veriö bomir á brýn þótti ekki
hjá dauðadómi komist en líklegast
þótti aö mildi yröi sýnd og ekkjunni
hlift viö hnakkaskotinu, sem er af-
tökuaðferðin íKína.
Enn þykir líklegast að dauöarefs-
ingunni verði breytt í lífstíðarfang-
elsi á elleftu stundu, en ekki eru allir
jafnvissir um það lengur.
Að undanfömu hefur borið nokkuð
á harðri gagnrýni á stjórnarstefnuna
EBE leggur
blessun sína
á fískveidi-
reglur Breta
Framkvæmdastjórn Efnahags-
bandalagsins hefur lagt blessun sína á
fiskveiðireglur Breta, sem valdið hafa
gremju danskra fiskimanna. I yfirlýs-
ingu til aðildarríkjanna segir að reglu-
gerðin breska — sem og annarra landa
— mundu gilda sem lög EBE fram til
26. janúar.
Með þessari yfirlýsingu hafa Bretar
fengið fullt umboð EBE til að sækja að
sínum lögum þá sem brjóta fiskveiði-
reglumar nýju og þar með dönsku
fiskimennina, sem væntanlegir em á
bresku miðin í dag til þess að veiða þar
í trássi við viövaranir breskra yfir-
valda.
Nokkrir danskir togbátar vom
komnir á miðin í gær og hafði land-
helgisgæslan afskipti af þeim án þess
að gera nokkra tilraun til þess að fara
um borð í þá. Danska stjómin hefur
hvatt sjómennina til þess að ögra ekki
breska flotanum.
Framkvæmdastjórn EBE lagði
einnig blessun sína á fiskveiðireglur
V-Þýskalands, Frakklands, Irlands,
Italiu og Hollands og veitti Grikklandi,
Belgíu og Danmörku frest til næsta
mánudags til þess að gera grein fyrir
hvernig þau ætluðu að bregðast við.
rra vinstn armi Kmverska kommun-
istaflokksins. Má vera að landsfor-
ystan, sem virðist ekki enn hafa
ákveðið hver örlög ekkjunni veröi
búin, telji sig þurfa aö taka áhang-
endur fjórmenningaklíkunnar aftur
haröari tökum. Þá gæti orðið brátt
um JiangQing.
Jiang Qing, ekkja Maos formanns, í
stúku sakbomings við réttarhöldin
fyrir tveim árum. Hún neitaði staö-
fastlega að bera vitni, en greip æ
ofan í æ frammi fyrir vottunum og
æpti ókvæðisorð að dómnum. Voru
réttarverðir oft látnir fjarlægja hana
úr dómsalnum.
Giftist 82 konum
freista vildu þess að bjarga svaml-
andifólkinu.
Allar þessar fómir vom til
einskis því að hundurinn
dmkknaöi.
Ekkikjarn-
orkustríd 1983
Að undanförnu hafa fremstu
stjörnuspámenn heims þingað í
Nýju-Delhí á Indlandi um örlög
heimsinsárið 1983.
Samkvæmt niðurstöðum þeirra
getum við iiuggað okkur við að það
kemur ekki til neinnar kjarnorku-
styrjaldar á árinu. Af öðmm
jákvæðum.tíðindum má nefna aö
verö á olíu lækkar og sovéski her-
inn hörfar frá Afganistan. Annars
viröist fátt um fína drætti fyrir
okkur á árinu og vara stjörnu-
spekingamir mjög viö því að hin
neikvæöa spenna í heiminum muni
vaxadagfrá degi.
53 ára gamall maður hefur játað að
hafa á tuttugu ámm kvænst 82 konum.
Hann hefur nú verið ákærður fyrir fjöl-
kvæni og dreginn fyrir rétt í Phoenix í
Arizona.
Giovanni Vigilotto var handtekinn í
Panamaborg í Flórída en framseldur
til Arizona, en raunar segist hann hafa
stofnað til þessara hjónabanda í átján
ríkjum USA og níu löndum. — Komið
hefur í ljós aö hann hefur átta sinnum
verið á geðspítala, en skamma hríð í
senn.
Hann er sakaður um aö hafa svikiö
fé út úr sumum þessum eiginkonum
sínum. Mest 36.500 dollara af konu
einni í Phoenix, sem hann kvæntist
1981.
Réttlætiísíams
Ogift barnshafandi stúlka frá
sveitaþorpinu Dir í Pakistan (rétt
við landamæri Afghanistans) hefur
verið dæmd í tveggja ára fangelsi
og jafnframt til að þola 100 vandar-
högg fy rir að hafa drýgt hór.
Hinir múhameösku dómarar
hennar hlífðu henni samt við
þyngstu refsingu sem liggur við
hórdómi, en þá eru ógiftar mæður
grýttartilbana.
Pakistönsk blöö segja að meintur
barnsfaöir stúlkunnar hafi sloppið
við ákæru vegna skorts á sönnun-
um.
Mannréttindi
Pólska stjórnin hefur vísað á bug
sem markleysu tilnefningu Hugo
Gobbi sem erindreka fram-
kvæmdastjórnar Sameinuðu þjóð-
anna til þess að kynha sér ástand
mannréttinda í Póllandi.