Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1983, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1983, Qupperneq 14
14 DV. FIMMTUDAGUR 6. JANUAR1983. Prófkjör Framsóknar í Reykjavík Prófkjör Framsóknarflokksins í Reykjavík mun fara fram I næstkomandi sunnudag, 9. janúar, á flokksskrifstofu Fram- sóknarflokksins. A sama stað befur fariö fram utankjörstaða- atkvæðagreiðsia frá þvi þriðjudaginn 4. janúar en kosningarétt | hafa fuiltrúaráðsmenn framsóknarfélaganna í Reykjavík og varamenn þeirra, einnig þeir sem sitja á þingi eða í borgar- stjórn, nefndum og ráðum fyrir Framsóknarflokkinn, sem og varamenn þeirra. DV birtir hér stutt viðtöl við frambjóðendur í prófkjörinu en tíu manns bafa boðlð sig fram í þau sex efstu sæti sem kosið er um. Ólafur Jóhannesson: „Égleggáherslu á lýðræði og þingræði” „Ég legg áherslu á lýöræöi og þing- ræöi og nauösyn þess aö atvinnuveg- irnir séu þannig í stakk búnir aö at- vinnulífið sé blómlegt,” sagöi Olafur Jóhannesson utanríkisráöherra. „Ég tel að á því byggist allt annað í þjóð- félaginu, menningarlegs og félags- legs eöbs. Annars veröa áhugamál mín svipuö og verið hefur. Ég verö aö ætla aö mönnum séu störf mín kunn og stefna á undanfömum árum. Hvaö stefnu í utanríkismáium varö- ar veröur hún óbreytt. Og um næstu ríkisstjórn veröur ekkert sagt á þessu stigi. Þar verða málefnin aö ráöa.” Olafur J óhannesson er fæddur áriö 1913 í Fljótum. Hann varö stúdent úr MA 1935 og cand. juris frá Háskóla Islands 1939. Starfaöi hann eftir þaö sem lögfræöingur og endurskoöandi. Hann var settur prófessor viö Há- skóla Islands 1947 og skipaður ári síöar. Olafur hefur gegnt fjölmörg- um trúnaöarstörfum, meðal annars formennsku í Framsóknarflokknum, varö forsætisráðherra og dóms- og kirkjumálaráðherra 1971, dóms- og viðskiptamálaráöherra 1974 og er nú utanríkisráðherra. Einnig hefur Olafur stundaö ritstörf og verið af- kastamikillfræöimaöur. JBH r Asta Ragnheiður Jóhannesdóttir: „Böm verði ekki vanrækt” „Ég gef kost á mér í prófkjöriö vegna þess aö mikilvægt er aö konur sæki fram til áhrifa, ekki síst meðan hlutur okkar í stjórn lands og þjóö- mála er eins lítill og nú er,” sagði Ásta Ragnheiöur Jóhannesdóttir út- varpsmaður. „Þaö er erfitt aö draga út einstök mál í svo stuttri kynningu því aö ærin verkefni blasa viö. Meðal þeirra er aö beita sér fyrir því aö meöalf jölskylda geti framfleytt sér á launum einnar fyrirvinnu, meöal annars svo aö böm veröi ekki van- rækt vegna mikils vinnuálags for- eldra. Auka þarf lán til húsbygginga og íbúöakaupa og afnema núverandi lánafyrirkomulag sem er víta- hringur sem erfitt er að komast út úr. Ég bý í bamflesta hverfi Reykja- víkur, Breiðholtinu, og veit aö hér er fjöldi bama sem ekki fær þá aðhlynningu sem nauðsynlegur er í uppvextinum. Þetta er fólkiö sem tekur viö þjóöfélaginu eftir 15—20 ár og viö veröum aö búa aö því sem best.” Ásta Ragnheiður er 33ja ára og starfar sem dagskrárgerðarmaður viö útvarpið. Hún er stúdent frá MR og lagði stund á ensku og þjóöfélags- fræöi viö Háskóla Islands. Hún hefur starfaö sem kennari við gagnfræða- skóla og framhaldsskóla. Var starfs- maður Barnaársnefndar mennta- málaráöuneytisins á bamaárinu. Undanfarin sumur hefur hún verið leiösögumaöur íslenskra feröa- manna erlendis. Frá 1971 hefur hún stjómaö fjölmörgum dagskrárþátt- um í útvarpi og sjónvarpi. Er gift Einari Erni Stefánssyni fréttamanni og eiga þau 2 böm. JBH HaraldurÓlafsson: ,Áhersla á lögun kjördæmaskipunar’ „Þaö er margt sem kemur til greina,” sagöi Haraldur Olafsson dósent. „Eitt áherslumál er aö laga kjördæmaskipan svo Reykjavíkur- og Reykjaneskjördæmi fái þar stærri hlutdeild en nú er. Þá tel ég stórmál aö auka jafnrétti í þjóðfélaginu því þar er enn ótal margt aö gera þó ýmislegt hafi áunnist. Þaö má nefna endurskoðun ýmissa stofnana á mörgum sviöum sem viö höfum kom- iö okkur upp en ég tel of sérhæfðar. Þar þarf meiri blöndunar viö, ekki aö draga fólk svo mjög í dilka. Ég tel þaö líka eitt hlutverk stjómmála- manna aö standa vörö um sjálfstæði þjóðarinnar og vinna aö því aö draga úr spennu í heiminum sem viö gerum best meö náinni samvinnu við ná- grannaþjóðirnar. Eitt mikilvægt verkefni má nefna enn sem er nauö- syn þess aö s já ungu fólki fyrir störf- um án þess aö beina ölium inn á ákveöin stig, svo sem háskólanám. Til þess mætti fara meira inn á braut launajöfnunar.” Haraldur Olafsson dósent er fædd- ur 4. júlí 1930. Hann tók stúdentspróf frá MR og stundaði síðan nám í mannfræöi og heimspeki í tvö ár í Frakklandi. Hann lauk síðan fil. lic. prófi frá Stokkhólmsháskóla 1966 í mannfræöi og félagsvísindum, var síöan dagskrárstjóri við útvarpið í tíu ár en hefur nú um nokkurra ára skeið gegnt dósentsstööu viö Háskóla Islands. Krístín Eggertsdóttir: „Fullorðinsfræðsla þaðsemstefna skalað” „Ahugamál mín eru fyrst og fremst menningarmál og fræöslu- mál,” sagöiKristín Eggertsdóttir. „Eg hef sérlega áhuga á fullorðins- fræöslu og endurhæfingarmálum og mér finnst þaö verði aö leggja áherslu á aö sem flestir fullorðinna fái kost á endurmenntun og endur- hæfingu, eftir því sem þjóðfélagiö og störfin breytast og veröa flóknari.” Kristín Eggertsdóttir fæddist 16. september 1931 aö Vatnshomi í Skorradal. Hún gekk í skóla í Borgarnesi, en fór þaðan til náms viö Kennaraskólann í Reykjavík og hús- mæðraskóla. Hún hélt siöan til Dan- merkur og læröi þar matreiðslu og veitingarekstur og starfaöi lengi sem forstööumaöur kaffistofunnar í Norræna húsinu. Hún hefur nú starf- aö tvö ár sem fræðslufulltrúi Menningar- og fræöslusambands al- þýðu. Hún hefur starfaö mikiö áöur að félagsmálum. Björn Líndal: „Vísitölukerfinu verði breytt” ,,í stuttu máli má segja aö ég gefi kost á mér vegna þess að ég vil aö tekið verði á efnahagsvanda þjóöar- innar af mun meiri festu en áhuga- leysi sjálfstæðismanna og kreddu- festa alþýöubandalagsmanna hefur leyft ríkisstjórninni aö gera,” sagöi Björn Líndal. „Eg tel höfuðnauðsyn aö núgild- andi vísitölukerfi verði breytt svo aö draga megi úr víxlhækkunum kaup- gjalds og verölags. Þetta kerfi, sem í upphafi var hugsað til varnar fyrir launþega í landinu, hefur nú snúist upp í andstæöu sína og eyðileggur viðleitni stjómvalda til þess aö draga úr veröþenslu og halla á við- skiptum viö útlönd. Samhliða breyt- ingu á vísitölukerfinu er þó brýnt aö verja kjör hinna lakast settu. Sam- hliða þessu tel ég brýnt aö örva arð- bæran atvinnurekstur, einkanlega iönaö. Þetta tel ég best gert af stjórn- valda hálfu með óbeinum aðgerðum. Eg vænti þess einnig aö í vor verði kosið um nýja stjórnarskrá. Aö kjör- dæmamálinu undanskildu tel ég mikilvægt aö í nýrri stjómarskrá veröi ákvæöi um eftirlit löggjafar- valdsins meö hinum greinum ríkis- valdsins, aðallega framkvæmda- valdinu. Samhliöa sliku eftirliti ætti aö setja ákvæöi sem bönnuöu þing- mönnum setu í nefndum og ráöum á vegum f ramk væmdavaldsins. ” Björn Líndal fæddist 1. nóvember 1956. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1976 og lagði stund á laganám í Háskóla Islands en þaðan lauk hann prófi 1981. Hann hefur starfað í við- skiptaráðuneytinu síðan í október 1980. Sambýliskona hans er Sólveig Guðmundsdóttir lögfræöingur. Steinunn Finnbogadóttir: „Hef beittmérað heilbrigðis- og félagsmálum” „Áhugamál mín, eins og annarra Islendinga, er staöa og störf Alþing- is,” sagöi Steinunn Finnbogadóttir. „Yfirleitt hef ég beitt mér aö heil- brigöismálum og félagsmálum því þar tel ég mig geta orðiö að liði. Eg hef mikið beitt mér fyrir mál- um aldraðra og öryrkja, þar sem ég hef getað meðan ég sat í borgar- stjóm, og þar sem ég hef getað kom- ið ár minni fyrir borö. Mér er þaö mikið áhugamál aö takist aö sam- ræma heilbrigðiskerfiö og leita allra ráöa til þess aö nýta þá fjármuni sem til þess er varið á sem bestan hátt. Eg er ekki aö gagnrýna heilbrigðis- kerfið með þessu en þaö hlýtur aö skipta mestu máli hvaö kemst til skila af þvísem eytt er.” Steinunn Finnbogadóttir er fædd 9. mars 1924 í Bolungarvík. Hún er ljós- móöir aö mennt og hefur unniö viö ljósmóöurstörf og ýmsa félagslega þjónustu og er nú forstöðumaður Dagvistar Sjálfsbjargar. Hún hefur setiö í borgarstjórn Reykjavíkur. Bolli Héðinsson: „Villáta gottaf mérleiða” „Eg býö mig fram vegna áhuga á þjóömálum og efnahagsmálum yfir- leitt,” sagöi Bolli Héðinsson. „Ég vil láta gott af mér leiða við endurbætur á því kerfi sem viö höf- um komið okkur upp.” Bolli Héöinsson er fæddur 5. febrú- ar 1954, lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum viö Hamrahlíð 1974 og var viö nám í V-Þýskalandi 1974— 76. Hann var viö nám í Háskóla Is- lands 1976 til 1981 og var blaðamaöur á Dagblaöinu meö námi en frétta- maður hjá sjónvarpinu 1981 til 1982. Hann tók síöan viö starfi hagfræö- ings hjá Farmanna- og fiskimanna- sambandinu 1982. Dollý Nielsen: „Efnahagsmálin helsta áhugamálið” „Efnahagsmálin eru mitt helsta áhugamál eins og flestra annarra,” sagöi Dollý Nielsen verslunarmaöur. „Þaö veröur aö sjá svo um aö þjóöin hafi atvinnu. Viö erum svo lánsöm aö hafa nánast fulla atvinnu og þaö veröur aö haldast. Utanríkismálin eru kannski ekki alveg minn málaflokkur en viö verö- um aö vera áfram í NATO og sætta okkur viö aö hafa vamarliðið. I landbúnaðar- og sjávarútvegs- málum hefur Framsóknarflokkurinn ákveöna stefnu. Ég held mig viö hana. Islenskan iðnað þarf auövitaö aö efla og skapa þannig fleiri at- vinnutækifæri.” Dollý Nielsen er gagnfræöingur aö mennt og hefur aö mestu unnið við verslunarstörf. Hún er fædd áriö 1943, hefur starfað mikiö að málefn- um málfreyja og er stofnforseti Mál- freyjudeildarinnar Yrar. JBH Viggó Jörgensson: „Húsnæðisvanda ungafólksins verðurað leysa” Ámi Benediktsson: „Verðbólgan erhelsta viðfangsefnið” „Eg legg mesta áherslu á efnahags- málin,” sagðiÁmiBenediktsson fram- kvæmdastjóri. I „Helsta viöfangsefnið í efnahags- málum er verðbólgan, en það viöfangs- efni endist sem betur fer ekki lengi. Veröbólgan þarf ekki að standa lengi. ” Árni Benediktsson er fæddur 30. desember 1928 og lauk prófi frá Sam- vinnuskólanum áriö 1949. Hann hefur starfaö síðastliðin þrjátíu ár í sjávar- útvegi, aðallegaaðstjómunarstörfum. „Það er ljóst að minn vettvangur er framtíöin frekar en nútíöin,” sagöi Viggó Jörgensson. „Vandamál dagsins í dag veröa ekki leyst nema með framleiöslu- aukningu í fmmatvinnuvegunum og þá sérlega í iðnaði. Landbúnaður og sjávarútvegur taka ekki við fleira fólki en starfa þar nú þegar. Hvaö varöar nútíöina er það ljóst aö við eyðum meir en aflaö er. Þaö verður fráleitt lagað nema allir minnki viö sig, og þá á ég viö aö allir geri það, ekki aðeins launafólk. Það gengur ekki tii lengdar að taka lán fyrir um- frameyðslu. Ég hef sérlega áhuga á vandamál- um ungs fólks og má þar nefna hús- næðisvandann sem verður aö leysa.” Viggð Jörgensson er fæddur 17. janúar 1961 og starfar sem skrif- stofumaöur. Hann sitin- í stjóm Fé- lags ungra framsóknarmanna og er varamaður í stjóm Sambands ungra framsóknarmanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.