Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1983, Side 3
DV. LAUGARDAGUR 29. JANUAR 1983.
3
Umogeftirhelgina:
Prófkjör—
forval—skoð-
anakönnun
— alþýðubandalags-
menn, framsóknar-
menn og kratar
kjósa víða um land
Stjómmálaflokkarnir hafa prófkjör,
forval og skoöanakönnun í mörgum
kjördæmum nú um helgina og fram
eftirnæstuviku.
Síöari umferö í forvali
Aiþýöubandalagsins í Reykjavík
verður laugardag og sunnudag. I fram-
boði eru 16 manns, þingmennirnir 4 og
12 efstu menn úr fyrri umferð. Urslita
er aö vænta á sunnudagskvöldið. Á
Suðurlandi voru alþýðubandalags-
menn með forval í fyrradag og ættu
niðurstööur að liggja fyrir í dag.
Kratar hafa prófkjör í tveim
kjördæmum. Á Reykjanesi berjast 5
menn um efstu sætin. I prófkjörs-
kynningu DV síðastliðinn fimmtudag
gætti nokkurrar ónákvæmni um
framboð í tiltekin sæti. Hið rétta er að
Ásgeir Jóhannesson forstjóri,
Gunnlaugur Stefánsson, fyrrverandi
alþingismaöur, Karl Steinar Guönason
alþingismaður og Kjartan Jóhannsson
alþingismaöur bjóða sig fram í 1.-3.
sæti. Kristín H. Tryggvadóttir býður
sig fram í 2.-3. sæti. Kosið er bæði á
laugardag og sunnudag. Talning
verður á sunnudagskvöld í Alþýðu-
húsinu, Hafnarfirði. Á Norðurlandi
eystra hófst prófkjör krata í gær og
lýkur annaö kvöld. Þar eru 4 fram-
bjóðendur í kjöri. Stefnt er að talningu
atkvæöa á mánudagskvöldið.
I prófkjöri framsóknarmanna á
Austurlandi eru 12 manns í kjöri. Þar
verður byrjaö aö telja strax og
kjörgögn berast til Egilsstaða. Verður
það aö líkindum á mánudag eða
þriðjudag. Framsóknarmenn á Vest-
fjörðum eru einnig með prófkjör um
helgina. Allir kjörstaðir nema einn
verða opnir eins og auglýst hefur verið
undanfarið. Á Patreksfiröi hefur kosn-
ingu verið frestað um allt að viku. Gert
er ráð fyrir talningu um næstu helgi. —
Framsóknarflokkurinn í Norðurlands-
kjördæmi vestra heldur aukakjör-
dæmisþing á sunnudag. Þar fer fram
skoðanakönnun um röð efstu manna á
framboðslista. -JBH.
ítreka hótun
sína gagnvart
Flugleiðum
Hvalfriðunarsinnar hafa ítrekað
hótun sína gagnvart Flugleiðum um að
beita sér fyrir mótmælum við skrif-
stofur flugfélagsins erlendis mótmæli
Islendingar hvalveiöibanninu. David
McTaggart, formaður Greenpeace-
samtakanna, sendi Sigurði Helgasyni,
forstjóra Flugleiða, skeyti þess efnis í
fyrradag.
McTaggart hafði áður skrifað Sig-
urði Helgasyni bréf þann 18. janúar
síðastliðinn þar sem mótmælaað-
gerðum var hótaö við Flugleiðaskrif-
stofur í Evrópu og Bandaríkjunum.
Því bréfi svaraði forstjóri Flugleiða
þess efnis að þaö væri ekki í valdi
fyrirtækisins að taka ákvaröanir í
hvalveiðimálum. Því svaraði McTagg-
art með skeytinu í fyrradag. Segir þar
meöal annars aó þaö sé ekki ætlunin að
valda Flugleiðum t jóni en þeir hyggist
notfæra sér það að f élagið er íslenskt.
-KMU.
Patreksfjörður:
Hinirlátnu
jarðsettirá
þriðjudag
Utför þeirra fjögurra sem fórust í
skriðuföUunum á Patreksfirði um síð-
ustu helgi verður gerð frá félagsheim-
iUnu á Patreksfirði næstkomandi
þriðjudag klukkan 13. Utförin er gerð á
vegum Patrekshrepps. Séra Þórarinn
Þór sóknarprestur á Patreksfirði
jarðsyngur. -SþS.
Kjósum
baráttumann
áþing
Karl Steinar Guðnason
Prófkjör Alþýöuflokksins á Reykjanesi
29.—30. janúar
Stuðningsmenn.
Fyrirtiyggja
I ferðamálum
Þú getur byrjaö strax í
SL-feröaveltunni
SL-ferðaveltan gerir íarþegum okkar
kleiít að búa nú þegar í haginn fyrir
nœsta sumar, safna á auðveldan hátt
álitlegum íarareyri og skapa sér þannig
ánœgjulegt sumarleyíi, laust við hvimleið-
ar íjárhagsáhyggjur.
SL-ferðaveltunni svipar til venjulegrar
spariveltu, - nema í einu grundvallaratriði
- sem einmitt gerir gœfumuninn.
Líkt og í spariveltunni leggur þú
mánaðarlega inn ákveðna upphœð á
Ferðaveltureikning í Samvinnu-
bankanum og fœrð upphœðina síðan
endurgreidda í einu lagi að 3ja til 9
mánaða sparnaði loknum, ásamt láni írá
bankanum jafnháu sparnaðarupphœð-
inni. Þú hefur þannig tvöfalda upphœð til
ráóstöfunar að ógleymdum vöxtunum.
Sérstaða SL-íerðaveltunnar ér síðan
fólgin í því að þú greiðir lánið á 5-11
mánuðum, 2 mánuðum lengri tíma en
venja er til. Samvinnuferðir-Landsýn
fjármagnar framlengingu endurgreiðslu
tímans, hver greiðsla verður léttari og
sumarleyíið greiðist upp án fyrirhafnar.
Þökk sé SL-ferðaveltunni og fyrirhyggju
þinni.
Þú þarft ekki að hugsa þig tvisvar um,
-tryggðu þér tvöfaldan ferðasjóð strax.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
SL-ferðavelta - nýr lánamöguleiki \
SPARNAÐAR- TÍMAÖIL MÁNAÐAR- LÉGUR áPARNAÐUR SPARNAÐURí LOK TÍMABILS LÁN FRÁ SAMVINNU- BANKA RÁÐSTÖFUN- ARFÉMEÐ VÖXTUM MÁNAÐARLEG ENDURGR. ENDURGR. TÍMI
3 mánuðir 1300.00 2600.00 3900.00 3900.00 7800.00 11700.00 3900.00 7800.00 11700.00 7974.00 15948.00 23922.00 865.70 1731.50 2597.20 5 mánuðir
5 mánuðir 1300.00 2600.00 3900.00 6500.00 13000.00 19500.00 6500.00 13000.00 19500.00 13512.50 27040.00 40552.50 1066.20 2132.50 3198.70 7 mánuðir
7 mánuðir 1300.00 2600.00 3900.00 9100.00 18200.00 27300.00 9100.00 18200.00 27300.00 19233.00 38481.00 57729.00 1200.60 2401.20 3601.80 9 mánuðir
9 mánúðir 1300.00 2600.00 3900.00 11700.00 23400.00 35100.00 11700.00 23400.00 35100.00 25150.50 50301.00 75451.50 1305.50 2611.00 3916.50 11 mánúðir
Gert er ráð fyrir 42% innlánsvöxtum og 42.964% útlánsvöxtum svo og lántökukostnaði (stimpil- og lántökugjaldi). Vaxtakjör eru háð ákvörðun Seðlabankans. Framangreind vaxtakjör gilda frá 1.11. 1982.