Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1983, Side 5
DV. LAUGARDAGUR 29. JANUAR1983.
5
Dauðaslys í
þýskum togara
— Slysavarnaf élagið beðið um aðstoð
Slysavamafélag Islands fékk
seinni partinn í fyrradag beiöni frá
umboösmanni þýskra togara á
íslandi um aö ná í slasaðan sjómann
í vesturþýskan togara, sem staddur
var suður af landinu. Til þess kom
ekki því maðurinn lést skömmu eftir
aöbeiöninkom.
Togarinn sem er frá Bremerhaven
og heitir Mullom, var staddur um 250
sjómílur suöur af landinu þegar
slysiö varö. Skipstjórinn haföi sam-
band viö Ludwig Siemsen, umboðs-
mann þýskra togara á fsiandi.og baö
hann um aö kanna aðstoö hérlendis
þar sem mjög alvarlegt slys hefði
orðiö í vélarrúmi togarans.
Eftir aö beiðnin haföi borist Slysa-
varnafélaginu var strax hafist handa
viö björgunaraögeröir, en síöar
kom i ljós að maðurinn var látinn og
afþakkaöi skipstjórinn aðstoðina.
-JGH
Patreksfjörður:
Eignir og lausafé
verulega vantryggt
Linur eru nokkuö famar aö skýrast
um tjón einstaklinga á Patreksfiröi á
fasteignum og lausafé. Endanlegt mat
liggur þó ekki enn fyrir en í ljós hefur
komið aö fasteignir og lausafé er veru-
lega vantryggt. Aö sögn Ulfars B.
Thoroddsens sveitarstjóra hefur
varla nokkur þeirra er uröu fyrir tjóni í
skriðuföllunum um síöustu helgi vá-
tryggt eignir sínar nálægt raunvirði.
„Stóra spurningin er um mismuninn
og um þaö getum við ekkert annaö sagt
aö sinni en aö viö vonum þaö besta,”
segir Ulfar.
Þá hefur töluverðrar óvissu gætt hjá
þeim bifreiðaeigendum á Patreksfiröi
Vestmannaeyjar:
Þór fær
að kaupa
Bæjarstjóm Vestmannaeyja staö-
festi í fyrrakvöld samþykkt bæjarráös
frá 17. janúar sl. um aö selja íþrótta-
félaginu Þór gamla Hamarsskólann,
Steinker-húsiö. Fimm fulltrúar sjálf-
stæðismanna greiddu atkvæöi með en
tveir úr minnihlutanum og einn sjálf-
stæöismaöur greiddu atkvæöi á móti.
Einn sathjá.
Fram kom breytingartillaga um aö
fresta málinu. Hún var felld með fimm
atkvæðum gegn þremur.
Fulltrúi Alþýöubandalagsins,
Ragnar Oskarsson, taldi þaö mjög
miöur aö í þessu máli væri verið að
stilla mönnum upp viö vegg sem
Þórurum eöa Týrurum.
-KMU/FÖV, Vestmannaeyjum.
sem uröu fyrir tjóni í skriöuföllunum
um hvort húftrygging bæti tjóniö. DV
kannaði málið hjá nokkrum trygginga-
félögum og í ljós kom aö þær bifreiðir
sem eru húftryggðar veröa bættar aö
fullu.
SÞS
Uppsagnimar hjá Cargolux:
Um 20 íslending-
um sagtupp
—f lugmenn stofna félag til að útvega störf við tímabundin
verkefni
Taliö er að allt aö 20 Islendingar
veröi í hópi þeirra hundraö starfs-
manna Cargolux sem fá uppsagnar-
bréf nú ummánaðamótin.
Fulltrúar starfsmanna og viðkom-
andi verkalýðsfélaga hafa verið á
stöðugum fundum meö stjómendum
fyrirtækisins síöustu daga. Hefur
starfsfólk reynt aö draga úr
uppsögnunum eftir mætti. Upp-
sagnarfrestur hjá flugmönnum og
flugvirkjum er 4 til 6 mánuðir,
þannig aö enginn af þeim sem nú er
sagt upp mun hætta fyrr en í sumar.
Ragnar Kvaran, flugmaður hjá
Cargolux, sem situr fundina fyrir
hönd félags flugmanna, sagöi aö ekki
væri víst aö allar uppsagnirnar
tækju gildi. Sagöist hann hafa trú á
aö verkefni félagsins myndu aukast
meö næsta hausti og yrðu þá upp-
sagnimar afturkallaðar. Sumariö er
samdráttartímabil í fraktflutning-
um, að sögn Ragnars, en ef félagiö
liföi fram á haust gæti afkoma þess
glæöst.
Vegna þessara uppsagna, sem
hafa vofað yfir starfsfólki um nokk-
um tíma, hafa fjórir flugmenn hjá
Cargolux sameinast um stofnun
félags sem sæi um aö ráöa menn í
tímabundin verkefni. Að sögn eins
stofnenda félagsins gæti þaö veitt
mörgum flugmönnum atvinnu.
Hefur Cargolux meöal annars notaö
sér þjónustu slíkra félaga viö ráön-
ingu flugmanna til tímabundinna
starfa. Félagsstofnun þessi munfara
leynt enn sem komið er þar sem flug-
mennirnir vilja ekki láta líta út fyrir
aö þeir séu komnir í samkeppni viö
Cargolux áður en ákveðið hefur verið
hverjir missa vinnuna.
OEF
Prófkjör
Alþýöuflokksins
um helgina
Ég vil hvetja flokkssystkin mín og ykkur sem eruð
óflokksbundin til að taka þátt í prófkjöri Alþýðuflokks-
ins í Reykjaneskjördæmi nú um helgina. Hvert
atkvæði hefur áhrif, en í prófkjöri flokksins í
kjördæminu árið 1979 réð eitt atkvæði úrslitum um
skipan eins sætis.
Ég vil með framboði mínu leitast við að efla
frumkvæði til framkvæmda og verka. Ég treysti fólki
til þess að velja á milli manna og sæta svo best þjóni
baráttu Alþýðuflokksins fyrir endurreisn og bættum
lífskjörum.
Kosningaaldur: Þeir sem eru 18 ára 25. júní nk. og eldri.
Kjörstaðir: Mosfellssveit: JC salur, Verslunarmiðstöðin Þverholt 2.h. ♦ Seltjacnarnes: Fornaströnd 8. ♦ Kópavogur: Hamraborg 7, 2.h. ♦ Garðabær-Bessastaðahr., Goðatún 2.
Hafnarfirði: Alþýðuhúsið. ♦ Vogum: Heiðargerði 12. ♦ Njarðvík-Hafnir: Kaupfélagshúsinu. ♦ Keflavík-Garður: Tjarnargata 7. ♦Sandgerði: Dagheimilið. ♦Grindavík: Kvenfélagshúsið
Prófkjörið stendur yfir laugardag 14-19 og sunnudag 14-22. Kosið verður á sunnudegi í Vogum og Sandgerði.
dk
STÓR-ÚTSÖLU
/ leiftursóknarsalnum
SKÚLAGÖTU 26
á horni Skúlagötu og Vitastígs
VINNUFATABÚÐIN
ÍA