Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1983, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1983, Síða 9
DV. LAUGARDAGUR 29. JANUAR1983. 9 Umgengnln vid einstakllnginn Ekki er nema tæpur mánuður síðan við klingdum glösum og fögnuðum nýju ári. Hver og einn hefur eflaust horf t b jörtum augum til komandi árs, óskað sér gæfu og gengis og eflst af lífslöngun og þrótti meö hækkandi sól á nýju ári. En enginn veit sín örlög. A Patreksfirði eins og annars staðar ríkti friöur og ró um áramótin og mannfólkiö þar bauð nýtt ár velkomið með tilhlökkun og eftir- væntingu. En fljótt skipast veður í lofti. A einum laugardagseftirmiðdegi, á einni örskotstundu, dundi ógæfan yfir. Hamfarir náttúrunnar, áhlaup hennar, skildi við bæjarfélagið í rúst fjórir létust, mannvirki eyðilögðust. Enginn má viö slíku, enda höfum við Islendingar valið okkur það hlut- skipti að bjóöa náttúruöflunum byrg- inn. Við færum fórnir í þeim átökum, á sjó og landi, og lútum höfði gagn- vart þeim ógnum sem yfir okkur ganga. Við syrgjum hina látnu og öxlum tjónið. En engum dettur upp- gjöf í hug. Smæðin ógnarstór Minnumst þess aö aðrar þjóðir eiga einnig við margvíslegt böl að etja. Ýmislegt má þar upp telja. Utgjöld vegna hervarna, óttinn við styrjald- ir, atvinnuleysi, hryðjuverkamenn og ógnaröld vegna þeirrar firringar, ^em múgur og milljónir manna búa við í f jölmennum þjóðfélögum. Segja má að smæð hvers og eins sé ógnar- stór, þegar litið er til þess tillitsleysis sem einstaklingur í stórborg verður að sætta sig við. Ibúi er rændur og jafnvel drepinn á götu úti um há- bjartan dag, án þess að vegfarendur láti svo lítið að virða þaö viðlits. Opersónulegt viðmót, skeytingar- leysi um hagi annarra, einangrun í mannfjöldanum eru einkenni þess samfélags, sem er laust við tilfinn- ingar og tengdir. Islendingar lifa í litlu samfélagi, þar sem ættarbönd eru sterk og kunningsskapur mikill; þar sem hver finnur til með öðrum, tilbúinn til að rétta hjálparhönd eða votta samúð í verki. Þannig eru viöbrögð þjóðarinnar, þegar neyð skapast á Patreksfiröi, rétt eins og viðbrögðin voru þegar snjóflóð steyptist yfir Neskaupstaö hér um áriö, eða eldgosið braust út í Eyjum. Einkamál þjóðarinnar Þessi samkennd kemur og fram með ýmsum öðrum hætti. Ásgeir Hannes Eiríksson flytur góða út- varpsþætti um utangarðsmenn, og þjóðin hlustar á átakanlegar lýsing- ar „rónanna” og finnur til með þeim. Bræðumir Gísli og Arnór Helgasynir flytja þáttinn „Snerting” fyrir blint fólk og koma þar á framfæri tilkynn- ingum, jafnvel persónulegum orð- sendingum, án þess að nokkrum þyki það í frásögur færandi, að Ríkisút- varp allra landsmanna sé vettvangurinn. Morgunblaðið, einn stærsti fjölmiðill þjóðarinnar, birtir reglulega minningargreinar um nánast hvem þann landsmann, sem látist hefur. Það er talið ómissandi efni. I öllum þessum tilvikum verða vandamál sem era einstaklingsbund- in, minningargrein, sem er nokkurs konar einkabréf til hins látna, eða frásagnir af slysförum, sem er prívat mannraun, að tilfinningamáli fjöldans. Ef voða ber að höndum, er spurt um allan bæ: hver er maður- inn, skyldi ég þekkja hann? Þegar fyrstu fréttir bárust um snjóflóðin á Patreksfirði, og útvarpið gat þess, að „nokkrir hefðu farist”, reis helmingur þjóðarinnar upp við dogg og óttaðist um líf einhverra Patreksfirðinga, semfólk þekkti til. Nafnbirtingar A þeirri stundu, þegar fyrstu frétt- ir bárust, var auðvitað ekki vitað, hverjir höfðu farist, jafnvel ekki hve margir, en það minni á, að nafnbirt- ing látinna eða týndra er ávallt vandmeðfarin. Stundum er tregða af hálfu löggæslu eða annarra yfir- valda,aölátaslíktuppi fyrreneftir dúk og disk. Allajafna reynist það óþörf og óæskileg tillitssemi af þeim ástæðum, sem að framan eru raktar. Það er ábyrgðarhluti að halda þúsundum manna í ótta og óvissu um örlög nákominna undir slíkum kringumstæöum. Hið sama gildir um meinta afbrotamenn, nafnbirting þeirra er sömuleiðis vandmeðfarin. Hér á það gagnstæöa við, að sökum smæöar samfélagsins og kunnugleika vítt og breitt, getur verið varasamt fyrir ábyrga fjölmiðla aö slá upp fréttum eða frásögnum af meintu en ósönn- uöu refsiverðu athæfi þeirra. Það er auðveldara að reyta æruna af mönn- um en að hreinsa hana á nýjan leik. Gróusögur, ásakanir og rógburður er lágkúruleg iðja, sér i lagi í landi, þar sem allir þekkja alla. Laugardags- pistill Ellert B. Schram rítstjóri skrifar Tillitið til einstaklinganna má ekki eingöngu fá útrás, þegar hörmungar steðja að, og menn eiga um sárt að binda vegna dauða eða slysa samborgaranna. Það tillit, sem okkur er í blóð borið, verður einnig að sýna sig gagnvart æru, nafni og persónu hvers þess, sem lendir i sviðsljósinu af góðu eöa slæmu tilefni. Takmörk frelsis Einstaklingsfrelsi er okkur dýr- mætt, enda forsenda almenns frelsis, lýðræöis og mannréttinda. Frelsið getur hinsvegar aldrei verið án tak- markana í skipulögðu og siðuðu þjóð- félagi. Við setjum reglur, búum viö stjórnvaldsákvarðanir og sættum okkur viö umgengnisvenjur og mannleg samskipti, sem hefta frelsi okkar af ýmsum ástæðum. Sú deila veröur aldrei til lykta leidd, hvar setja beri mörkin, og fer þá eftir því, frá hvorum sjónarhólnum menn nálgast frelsishugtakið. Annars- vegar em frjálshyggjumenn, sem boða að mestu óheft frelsi, hinsvegar skipulags- eða stjórnhyggjumenn, sem boða afnám þess. Einhvers staðar mitt á milli erum við stödd, og verður ekki farið frekar út í þá sálma, enda óendanlegt pólitískt þrætuepli. Hafa vit fyrir öðrum En því er á þetta minnst, að þegar öllu er á botninn hvolft, þá er einstaklingurinn, líf hans og svig- rúm, athafnir og langanir, æra hans og heiður, þaö mikilvægasta og merkilegasta fyrir hvert og eitt okkar. ÖU erum við upptekin af sjálfum okkur, tilveran snýst um okkar eigin vitund. Við þurfum hvorki hagfræöinga né heimspek- inga tU að uppgötva þá einföldu stað- reynd. I rauninni snýst ÖU stjórn- málaumræöa, öll vísindi, hagspeki, fræðsla og veraldarvafstur um aðferðir og stjómsýslu, sem henta einstaklingunum. Stundum fara menn yfir lækinn tU að sækja vatniö, telja að einn eigi að hafa vit fyrir öðmm, að kerfi sé mikUvægara en tilfinningar, að formúlur séu betri en eðlisgáfa. Það sem hefur gerst í seinni tíð, á okkar tímum, er að fræðslan og vísindin hafa einfaldlega leitt í ljós, að eftir því sem f jarstýringin verður fulUcomnari og stjómsýslan mið- stýrðari, verður hvöt einstakUngsins og þörf hans sterkari fyrir sjálfstæði ogeiginsvigrúm. Lífsháttabylting FóUc er sér betur meövitað um eigin hæfileika og sjálfs sín getu. Konur skynja betur jafnræðismögu- leika sína gagnvart karlmönnum. Þar hefur orðið vakning. Börn fræðast og þroskast fyrr í heimi sjón- varps og tölvu, og virðing er borin fyrir hugsunum þeirra og persónu- leika. Þar hefur orðið stórfelld breyt- ing. Hver einstakUngur, karlar sem konur skynja betur að lífið er ekki bara matur, vinna og svefn, heldur tómstundir og athafnir af margvís- legum öðmm toga. Þar hefur orðið lífsháttabylting. Hún er enn í gerjun. Hún kemur fram í framantöldu, og hún birtist í þeirri frístundaiöju, sem nú breiðir úr sér í vaxandi mæli. Lífsnautnin er ekki fólgin í fylleríi og ofáti, ekki í venjubundnu og stöðluöu lífsformi. Hún fær útrás í annars konar skemmtan, samræðum, líkamsrækt, áhugamáU. I stjórnmálum er fólk óháðara og kredduminna, hræsnin dvínar í siðapredikunum, og hver einstakur leyfir sérvisku sinni og sérkennum að njóta sín án hræðslu um álit annarra. Löngun til lífsfyllingar Auðvitað getur þessi þróun haft sínar slæmu hliðar, sjálfselskan vex, gömlum dyggðum er boðio byrginn, heföir virtar að vettugi. Samt sem áður ber að viðurkenna að mestu máli skiptir að hver einstakl- ingur hlýtur að ráða sinni ferð, og ef þaö ber hann ekki af leið, ef hann flæmist ekki til óreglu og glatar fót- festu, þá er þessi þróun jákvæð. Umhyggja okkar fyrir samborgur- unum beinist ekki aðeins að því að sýna þeim samúð á erfiðum stund- um, virða æm þeirra og berjast fyrir „einstaklingsfrelsi” í pólitískum skilningi. Við hljótum aö fagna því, ef fræðsla, efnahagur og þroski vekur borgarana til vitundar um alhliöa möguleika og löngunar til lífsfyllingar. Þegar ógnaratburðir eiga sér stað, eins og á Patreksfirði, þar sem f jór- ar manneskjur eru sviptar lífi fyrir- varalaust; þegar viö lesum minningargreinar um fólk sem dáið hefur í blóma lífsins, eða heyrum reynslusögur „rónanna” í bænum, þá hlýtur lífslöngunin að skerpast. Þá hlýtur hver einstakur að þakka fyrir sitt eigið líf og gera sitt besta til að njóta þess. I því er frelsi einstakl- ingsins fólgið. EUert B. Schram

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.