Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1983, Blaðsíða 12
12
DV. LAUGARDAGUR 29. JANUAR1983.
°»o
ÞÚ KEMUR EKKI AÐ
TÓMUM KOFUNUM
HJÁ OKKUR
Nú höfum viö heldur betur aukiö verksviö okkar,
með auknum vélakosti og samstarfi viö lands-
þekkta aöila í verkstæðis- og verktakaiönaði. Get-
um nú boðið upp á eftirtalda þjónustu:
1. Kranabílaþjónustu m. lyftigetu í allt að 33 m hæð
2. Kjarnaborun og steypusögun
3. Málmhúðun með castolin-aðferð
4. Vinnuvélaviðgerðir, ásamt viðgerðarsuðu og slit-
suöu
5. Útleigu á 2ja drifa þjónustubifreið m. öllum hugsan-
legum verkfærum og áhöldum, s.s. rafsuðu, logsuðu,
logskurðartækjum, rafstöðvum 220 v., 380 v. allt aö
50 kv, slípirokkum, borvélum fyrir járn og stein,
flóðljósum og handlömpum, stigum o.fl. o.fl.
Símar okkar eru: 40880 76590
72542 78600
73747
Þetta er eUld
ehttóm
hávaðaruUa”
— segir Þráinn Karlsson um bréfberann í Arles sem
hann leikur í samnefndu leikriti er Leikfélag
Akureyrar f rumsýnir á f östudaginn
,Bréfberinn er mjög góöur karl sem hefur
mikið brjóstvit og óskaplega hlýjar mannlegar
tilfinningar. Þaö er langt síðan ég hef leikið
hlutverk sem ég hef haft eins gaman af að fást
við.,>
Þannig fórust Þráni Karlssyni
leikara orö þegar hann var spurður uml
Joseph Raulin, bréfberann frá Arles,i
sem Þráinn leikur í sýningu Leikfélags
Akureyrar er frumsýnd veröur á f östu-
daginn. „Bréfberinn frá Arles” heitir
leikritiö og er eftir Ernst Bruun Olsen.
Leiksviöiö er smábærinn Arles í Suöur-'
Frakklandi árið 1888. Þar dvelst lista-
maöurinn Vincent van Gogh undir'
verndarvæng bréfberans og fjölskyldui
hans. Gauguin kemur einnig viö sögui
ásamt ýmsum þorpsbúum.
Viðar Eggertsson leikur Vincent van
Gogh, hollenska listmálarann, sem
leitar skjóls í Arles. Theodór Júlíusson
leikur Gauguin, kollega hans. Sunna
Borg leikur eiginkonu bréfberans, sem
veröur einskonar móðurímynd van
Gogh. Leikstjóri er Haukur Gunnars-
son, sem undanfarin ár hefur starfað1
viö leikstjóm á Islandi í Finnlandi,
Noregi og Danmörku, en hann býr í
Osló. Leikmyndina gerir Svein Lund
Roland, sem kemur frá Osló fyrir til-
stuölan Norrænu leiklistamefndarinn-
ar. Lýsinguna hefur Viðar Garðarsson
hannað og Freygerður Magnúsdóttir'
saumar búninga.
Hver var van Gogh?
Van Gogh var prestssonur sem
ungur fór í læri hjá listaverkasölu
Goupila í París. Þaöan var hann
rekinn, en þá geröist hann trúaöur og
gekk í þjónustu heimatrúboðs námu-
verkamanna í Belgíu. Þar teiknaöi
hann m.a. fátæka verkamenn og þar
kom að hann fann köllun til aö gerast
listmálari. Þaðvaráriö 1880.
Bróöir van Gogh var Theo, sem var
happasæll kaupsýslumaður. Kom þaö
sér vel fyrir van Gogh, því að Theo hélt
bróöur sínum uppi fjárhagslega. Mjög
kært var meö þeim bræörum.
Fram til 1886 málaði van Gogh í Hol-
landi og Belgíu og myndefni hans voru
verkafólk og einstaklingar. Þá voru lit-
irnir dökkir og brúnleitir. Sjálfur
kallaöi hann þetta tímabil „svart”.
Áriö 1886 kom van Gogh til Parísar
og var hann þá 33ja ára. Þar vann
hann á málarastofu Cormons og í
París kynntist hann Gauguin sem hann
dáöist aö.
I París kynntist van Gogh einnig
impressjónismanum og fyrir áhrif
hans fór hann aö mála með sterkari og
bjartari litum. Fyrirmyndirnar breytt-
ust einnig.
Þaö var síöan í febrúar 1888 aö van
Gogh hélt til Arles í Suður-Frakklandi
og samkvæmt ósk hans kom Gauguin
þangaö nokkru seinna. Þarna varö enn
ein gjörbreytingin á listsköpun van
Gogh. Hann fór hamförum í blindandi
sólarbirtunni, málaöi eitt málverk á
dag — og eru engin dæmi um slík
afköst. Hann vann áfram aö andlits-
myndum, en myndirnar urðu nú enn
persónulegri og ástríðufyllri. Hann
sagði skiliö við impressjónismann og
reyndi aö nálgast náttúruna með
ákafri litbeitingu og nánari lýsingu
smáatriða.
Gauguin í heimsókn
Gauguin kom til Arles í október 1888
til aö dveljast hjá van Gogh, en sá
síðarnefndi átti draum um aö koma
þar á fót vinnustofu myndlistarmanna.
Samskipti þeirra félaga gengu illa
þegar til kom. Þeir lentu í rökræðum
og síðan logandi illindum. Van Gogh
braut glas á höföi vinar síns og síðan
hljóp hann á eftir honum um götur
Arles meö rakhníf í hendi. Gauguin
ofbauð og fór, en van Gogh var settur á
sjúkrahús. Hann var lagöur inn á hælið
í Saint-Rémy, þar sem hann skaut sig
„Þaö verður enginn verri maður af að glima við túlkun siíkrar persónu/
segir Þráinn Karlsson um bréfberann íArles.
til bana 27. júlí 1890. Afköst hans í
málverkum og teikningum voru
gífurleg síðustu mánuðina, sem hann
lifði, og stíll hans var ennþá ofsafengn-
ari; litirnir loguöu og drættirnir
sterkir. Þennan barnslega,
gæfusnauöa sósíalista dreymdi um aö
mála myndir í káetur sjómanna og
matsali verkamanna. Þess í staö eru
þær nú orönar margviröi þyngdar
sinnar í gulli á listmarkaði auökýfinga.
Bréfberinn í Arles,
hver var hann?
Uppruni bréfberans í Arles hefur
ekki tryggt honum boösmiöa beint inn í
listasögu heimsins og enn síöur inn í
leikbókmenntir nútímans. Joseph
Raulin hét hann fullu nafni, þessi
ölkæri bréfberi sem studdi van Gogh
meö ráöum og dáö síðustu æviár lista-
mannsins.
Bréfberinn og Augustine kona hans
gengu Gogh í foreldra staö. Þau áttu
þrjú börn og fjölskyldan var mikilvægt
myndefni hjá málaranum. Húsmóð-
urina málaöi hann sem vinalega
móöurímynd og málverk af bréfber-
anum sýnir föðurlega veru, sem viröist
halda hægri hendi um ósýnilegan
stjórnvöl. Bréfberinn horfir beint
framan í áhorfandann/listamanninn,
öruggur í fasi. I ööru málverki af bréf-
beranum, sem van Gogh málaði ári
síöar, sýnir listamaöurinn aö hann
litur á vin sinn, bréfberann, sem
verndarengil. Þar birtist Raulin sem
faðir. Blágræn augun horfa mild og
skilningsrík og munnsvipurinn
ákveðinn og alvarlegur bak viö stíl-
færöa skegglokkana. Umhverfis hann
svífa öll blómin af akrinum. Þaö var
þessi Raulin, sem fékk Vincent van
Gogh meö sér í gönguferöir þegar
listamaðurinn dvaldi illa haldinn á
hælinu í Saint Rémy. Hann hlýtur að
hafa hjálpað Vincent í og úr hugarvíli
hans meö öryggi sínu og sálaró, alveg
eins og hann skildi hvernig Vincent fór
hamförum í litum sínum og skynj-
unum.
Gæti gerst
hvar sem er
„Ætli við veröum ekki aö kalla þetta
tragikomidíu þar sem höfundurinn
fléttar saman alvarlegum og
skemmtilegum atriöum í áhrifamikla
heild,” sagöi Haukur Gunnarsson leik-
stjóri í samtali viö DV.
„Þetta verk var frumsýnt 1975 og
hefur síðan verið leikiö mjög víöa, en
þetta er fyrsta uppfærsla þess hér á
landi. Verkiö fjallar um vináttu van
Gogh og bréfberans Raulin og er byggt
á sögulegum staðreyndum. Hins vegar
þarf áhorfandinn ekki aö þekkja sögu
listamannsins til aö átta sig á boöskap
verksins. Höfundurinn notfærir sér
örbirgö listamannsins í mannfélaginu
og fordóma almennings gagnvart þeim
sem falla ekki inn í mynstrið. Hann
fjallar um hvernig fólk snýst í
vanþekkingu gegn einstaklingseðlinu,
hvernig múgæsingin grípur um sig í
litlu samfélagi þar sem fólkiö lætur
sterka leiðtoga reka sig eins og kýr.
Þetta er saga sem gæti gerst hvar sem
er og allt eins í dag eins og 1888.
Ævi van Gogh fellur vel aö þessum
hugmyndum. Verkiö er gætt
mannlegri hlýju, kímni og sterkum
broddi. Þaö segir sögu sem gæti allt
eins gerst á meöal okkar í dag eins og
árið 1888,” sagöi Haukur.
OG SUMAR
USTINN ER KOMINN
Þú situr heima í rólegheitum og pantar, ekkert búð-
arráp eða stress. Gerið raunhæfan verðsamanburð.
Auðvelt og þægilegt.
OTTO VERSAND umboðið
simi 66375 alla daga.
Pósthólf 4333, 124 Reykjavik.
STÁL-ORKA
SIIWIJ- 0<i VIIHÍIÍUMMONIJSTAN
Trúlofunarhringar
Flott úrval.
munstraðir
með
hvítagulli.
Sendum litmyndalista.
Þeir eru vinsælir hring-
arnir frá Jóni og Úskari.
Pantið tímanlega.
Póstsendum
Jón og Óskar
Laugavegi 70 — Sími 24910.
Kennara vantar
Iþróttakennara vantar strax að Grunnskóla Fá-
skrúðsf jarðar. Gott húsnæði fyrir hendi.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 5224 í skólan-
um og í heimasíma 5159.