Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1983, Side 17
DV. LAUGARDAGUR 29. JANUAR1983.
17
Hinn ólmi tónfugl hefur sig til flugs — táknmerki Islensku hljómsveitar-
innar sem veitt hefur nýju og fersku lifi inn i menningu okkar. Efnisskrá
fjórðu tónleika hennar ber þess merki að þar er á ferðinni áræðinn hópur
ungs tónlistarfólks með hugsjónir: Framsögn Ijóða, látbragð leikbrúða,
ballettdans og kvikmyndir er eitthvað sem varla hefur áður heyrst og
' sést á sinfóniutónleikum.
Kvikmynd við
undirleik sinfóníu
Á síðari hluta tónleikanna verður
sýnd gömul frönsk kvikmynd,
Pacific 231, sem gerð var við sam-
nefnda tónlist franska tónskáldsins
Arthur Honegger. Þessi mynd — sem
tekur örfáar mínútur í sýningu — er
sérstæð að því leyti að hún lýsir því
hvernig mekanismi járnbrautarlest-
ar starfar eftir brautarteinunum og
er tónlistin við myndina tilraun til að
lýsa þeirri ferð og einkennum henn-
ar. Þess má geta að Arthur
Honneger er einhver ötulasti tón-
smiður hvita tjaldsins. Islenska
hljómsveitin stefndi að því að fá
hingað til lands kvikmyndina
Napóleon eftir Gance sem Honegger
samdi tónlist við fyrir réttum fimm-
tíu og fimm árum og sýna valda
kafla úr henni við undirleik hljóm-
sveitarinnar. Kvikmyndin Pacific
kemur í hennar stað.
Sieglinde Kahmann óperusöng-
kona flytur ásamt hljómsveitinni
tvær aríur úr óperu Giocomo Puccini
sem að öðrum ólöstuðum hóf ítalska
óperu til mestrar virðingar í lok
nitjándu aldar. Fram hjá verkum
Puccinis verður því vart gengið á
tónleikum sem þessum.
Þessum fjórðu tónleikum Islensku
hljómsveitarinnar lýkur svo með þvi
að hún frumflytur nýja ballettsvitu
eftir Skúla Halldórsson tónskáld sem
samin var á síðasta ári. Félagar úr
Islanska dansflokknum hafa samið
dans við þetta tónverk Skúla og
koma þeir fram undir stjóm Nönnu
Olafsdóttur.
Stjómandi Islensku hljómsveitar-
innar verður s:m fyrr Guðmundur
Emilsson.
Áræðni og
nýjungagirni
Islenska hljómsveitin hefur nú
starfáð i rúmt hálft ár. Á þeim tima
hefur greinilega komið fram að góð-
ur grundvöllur er fyrir hana í tón-
listarlífi okkar. Hún hefur veitt nýju
_og fersku lífi inn í menningarlíf okk-
ar. Félagar hennar eru áræðnir og
nýjungagjarnir. Það sýna þessir ein-
stæðu tónleikar sem þeir e&ia til um
helgina. Þar er um fjölbreytta og
hressilega dagskrá að ræða, þar sem
allir geta fundið eitthvað við sitt
hæfi.
Hér áður fyrr settu útsölur bæinn á
annan endann og sögur urðu til um út-
söluæði, fólk tróðst undir og stundum
leið yfir viðskiptavini í öllum hama-
ganginum.
Þetta er til allrar hamingju höin tíð
og útsölur ekki lengur neinir óróastaðir
þó að stemmningin geti oft orðiö góð.
I því útsöluflóði sem nú stendur yfir
er ein sem sker sig úr. Það er Partn-
er-verksmiðjuútsalan, sem nú er hald-
in í Blossa-húsinu í Armúla. Þetta er
óvenjuleg útsala því þarna er ekki
aðeins verið að selja restar eða gallað-
ar vörur, heldur einnig nýjar góðar
vörur sem manni finnst að eigi lítið er-
indi á útsölu.
Að sögn þeirra Partner-manna er þar
um að ræða ýmsa verksmiðjuafganga
víðs vegar að úr heiminum, sem þeim
hefur boðist á stórlækkuðu verði.
„Við höfum mikla ánægju af að geta
boðið upp á slíka vöru jafnódýrt og
raun ber vitni, enda er tilgangurinn
með þessari verksmiðjuútsölu ekki
aðeins að losna við gallaða og óútgengi-
lega vöru. Þetta er ekki síður leið
okkar til aukinna áhrifa á Reykja-
víkurmarkaðnum.
Þar höfum við haft of litla markaðs-
hlutdeild miðað við landið í heild og það
er skoðun okkar að kynnist fólk einu
sinni Partner buxum, muni það taka
þær fram yfir önnur merki næst þegar
það kaupir sér buxur. ’ ’
En það er sennilega ekki aðeins vöru-
úrvalið og lágu prísamir sem valda
hinum miklu vinsældum Partner-verk-
smiðjuútsölunnar, því þjónustan er frá-
bær og andrúmsloftið einstaklega
skemmtilegt. Afgreiðslumennimir em
ungir og hressir strákar, sem ekki hafa
áður verið við afgreiðslustörf, segjast
reyndar allir vera af sjónum og aðeins
tekið að sér útsöluna milli túra. Þeir
hafa greinilega mjög gaman af þessari
tilbreytingu og létt geð þeirra smitar
alla sem koma inn.
En það em ekki aðeins þeir fullorðnu
sem skemmta sér vel, því bömin hafa
nú fengið sitt leiksvæði með litabókum
og Andrés-blöðum að ógleymdum
leiktækjum sem njóta mikilla vin-
sælda. Foreldramir eiga oft í erfiðleik-
um með að fá bömin af staðnum og
Stundum er sagt að tónlistin sé
af tvennum toga. Annars vegar er
sú tónlist, sem samin er sjálfrar
sín vegna og lýtur þeim lögmál-
um einum sem tónskáldið ákveð-
ur. Þar má nefna margar sinfón-
íur, strengjakvartetta og píanó-
sónötur. Hins vegar er tónlist
sem lýtur utanaðkomandi lög-
málum og er þá til dæmis átt við
leikhússtónlist, ljóðatónlist og
kvikmyndatónlist. Hið síðar-
nefnda er umf jöllunarefni fjórðu
tónleika íslensku hljómsveitar-
innar á þessu fyrsta starfsári
hennar. Þeir bera yfirskriftina
„Tónlistin — þjónn listanna.”
Þetta þema veröur tekiö fyrir á
tvennum hljómleikum. Annars
vegar í kvöld og hins vegar á
mánudagskvöld. Og að öllum líkind-
um veröur þar um allsérstæða dag-
skráaöræöa.
Á tónleikum þessum veröur leitast
viö aö sýna hvemig tónlistin getur
þjónaö orðsins list, bæöi söng og
framsögn, látbragðslist, listdansi
og kvikmyndalist. Hefjast hverjir
tónleikar á því aö flutt verða þrjú
intermezzo úr óperunni Krýning
Poppeu, eftir ítalska sautjándu aldar
tónskáldiö Claudio Monteverdi. Þá
mun Siguröur Skúlason leikari og
Anna Málfríöur Sigurðardóttir
píanóleikari flytja Melodrama
ballööur eftir Schumann, Schubert
og Liszt, þaö er framsögn ljóöa viö
píanóundirleik. Þessi tónverk þóttu
mergjuð listaverk á öldinni sem leið
en heyrast varla nú orðiö.
Aö þætti önnu og Sigurðar loknum
mun Leikbrúöuland flytja Brúöulát-
bragðsleik, sem Helga Steffensen
hefur samið sérstaklega fyrir þessa
tónleika við tónlist eftir sænska tón-
skáldið Miklos Maros. Islenska
hljómsveitin leikur undir látbragö
brúöanna.
FJórdu tónleikar íslensku hljómsveitarlnnar:
Tónlistin — þjóiftift listanna
— fersk og fjölbrey tt ef nisskró vid hæfi allra listunnenda
Þegar er uppselt á tónleikana á
laugardag, en sem fyrr segir veröa
þeir endurteknir á mánudagskvöld.
Miðar á þá tónleika veröa seldir í
Bókaverslun Sigfúsar Eymundsson-
ar í Austurstræti, versluninni Istóni
Freyjugötu 1, á skrifstofu hljóm-
sveitarinnar að Fríkirkjuvegi 11 og í
miðasölu Gamla bíós, en í sal þess
mun þemað „tónlistin — þjónn list-
anna” opinberast.
-SER.
hrífur þá best loforð um að koma aftur
seinna, en einnig hjálpa til limmerkin
sem strákamir útdeila af mikilli rausn.
Partner-verksmiðjuútsalan er opin í
dag, laugardag, kl. 10—17 og því tílval-
ið tækifæri fyrir alla fjölskylduna að
skreppa og kynnast þessu sérstæða
fyrirbæri.
Óvenjulegt fyrirbæri
í útsöluflóðinu