Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1983, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1983, Blaðsíða 21
21 DV. LAUGARDAGUR 29. JANUAR1983. Frá stórmótinu í Wijk aan Zee Skák Bandaríkjamannsins unga, Yasser Seirawans, við Kuligowski frá Póllandi, er ein skemmtilegasta skákin til þessa á sigurvegaramótinu í Wijk aan Zee. Margir héldu aö Seirawan myndi tapa skákinni, því riddari hans lenti í einkennilegri klemmu á drottningarvængnum. Hann fann hins vegar leið út úr ógöngunum: Eins og hendi væri veif- aö beindi hann spjótum sínum aö svarta kónginum, fómaöi báðum riddurunum og náði óstöövandi mátsókn. Sannarlega skjót umskipti, en jafnframt eina leiö Seirawans til þess aö komast hjá tapi. Sá hann þetta allt fyrir, eöa var hann hepp- inn? Hvítt: Seirawan Svart: Kuligowski Enski leikurinn. I.c4 c5 2.RÍ3 Rf6 3.Rc3 d5 4.cxd5 Rxd5 5.e4 Rb4 6.Bc4 Rd3+ 7.Ke2 Rf4+ 8.KÍ1 Re6 9.b4 cxb4 10.Rd5 g6 ll.Bb2 Bg7 12.Bxg7 Rxg7 13.Rxb4 Rd7 Þetta afbrígöi varö uppi á teningn- um í tveimur áskorendaeinvígjum 1980, Hiibner-Portisch og Polugaj- evsky — Kortsnoj. Svartur lék í bæði skiptin 13.—0—0 14.d4 Bg4 og náöi góðum árangri. 14.(14 Rb6 15.Bb3 a5 16.Rd3 a4 17.Bc2 6-0 E.t.v. er nákvæmara að leika 17 — Bg4, sem hvítur svarar best meö 18.d5! ? með óljósu tafli. 18.h3 Dc7 19.Hcl Bd7 20.g3 Rc4 21.Kg2 Bb5 22.Rc5 Db8 23.Hbl Ra3 24.Hb2 b6 25.Rxa4! ? Hc8 26.Bb3 Da7 Svartur virðist vera að vinna mann, því aö hvert á hvíti riddarinn aö fara? Skákin tekur nú óvænta stefnu. 27. Dd2! Bxa4 Um annaö er vart að ræöa — hvít- ur hóaði 28.Db4. 28. Dh6Bxb329.Rg5! Hótar máti í 2. leik. Aftur á svartur ekki nema eitt svar. 29. —f6 30.Dxh7+ Kf8 31.Hxb3 fxg5 32.d5! ? Auövitaö var ekkert því til fyrir- stööu aö leika 32.Hf3+, eöa 32.Dh8+ Kf7 33.Hf3+ sem vinnur annan manninn til baka og nokkur peö aö auki. En riddarinn á g7 sleppur ekki burt og peðsleikurinn tekur m.a. e6- reitinn af kóngnum. 32.—Rc4 33.Dh8+ Kf7 34.Hf3+ Rf5 35.Dh7+ Kf6 36.exf5 Re5 37.Hel! Hótar37.fxg6+ Rxf338.df7mát. 37.-g4 38.hxg4 Dd7 39.g5+ — Og svartur gafst upp, enda mát næsta leik. Aknreyrarmeistarar, sveit Júlíusar Thorarensen. Standandi frá vinstri: Jóhann Helgason, Al- freð Pálsson, og Armann Hclgason. Sitjandi frá vinstri: Stefán Jóhaunesson, Júlíus Thorarcn- sen og Jakob Kristinsson. Ljósm.: Norðurmynd, Akureyri. Bridgedeild Akureyrar Sveitakeppni Bridgefélags Akureyr- ar, Akureyrarmót í bridge, lauk sl. þriðjudagskvöld. Akureyrarmeistari 1983 varö sveit Júlíusar Thorarensen en auk hans eru í sveitinni Alfreö Páls- son, Jóhann Helgason, Ármann Helga- son, Stefán Jóhannesson og Jakob Kristinsson. Keppnin var allan timann mjög spennandi og tvísýn og úrslit ekki ráðin fyrr en í síöustu umferðinni, en í henni sigraöi Júlíus — Jón 20—0, Páll — Ferðaskrifstofa Ak. 17—3, Hörður — Stefán 19-1. Spilað var í þremur riðlum í mótinu, aUs 18 sveitir og uröu efstu þessar: sveitir A-RIÐILL: Júlíus Thorarcnscn 71 Páll Pálsson 63 Hörður Steinbergsson 55 Stefán Pálsson 49 Jón Stefánsson 46 Fcrðaskrifstofa Ak. 16 B-RIÐILL: Stefán Vilhjálmsson 64 Halldór Gestsson 57 Anton Haraldsson 56 C-RDDILL: Kári Gísiason 87 Eirikur Jónsson 72 Una Sveinsdóttir 37 Keppnisstjóri var sem fyrr Albert Sigurðsson og stóö hann sig meö mikilli prýöi aö venju. — Næsta keppni félags- ins verður tvímenningur, Akureyrar- mót, sem hefst nk. þriðjudagskvöld. Þátttöku þarf aö tilkynna til stjórnar félagsins fyrir kl. 19 nk. sunnudags- kvöld. FráTBK Aöalsveitakeppni félagsins hefst fimmtudaginn 3. feb. nk. Spilaö verður aö venju í Domus Medica og hefst spilamennskan kl. 19.30. Þátttaka til- kynnist í síma 19622 (Auöunn) og 78570 (Guðmundur). Keppnisstjóri verður Agnar Jörgenson. öllum er heimil þátttaka. Bridgefélag Breiðholts Eftir fjórar umferöir í aöalsveita- keppni félagsins er staöan þessi: stig 1. Sveit Baldurs Baldurssonar 73 2. Sveit Rafns Kristjánssonar 61 3. Sveit Heiga Skúlasonar 52 4. Svcit Lcifs Karlssonar 49 Næstkomandi þriöjudag verðui keppni haldið áfram og verður þá spilað í nýju húsnæöi í menningamiö- stööinni Gerðubergi v/Austurberg og hefst spilamennskan kl. hálfátta stundvíslega. Háaloftið um hríö líkt og mennirnir sem fara í prófkjör ár eftir ár til þess eins að falla. En nú hafa mætustu menn komist aö þeirri niöurstööu, að þaö eina sem geti bjargað þjóöinni sé aö fjölga þingmönnum um þrjá og í tilefni af því er veriö að stofna þrjá nýja flokka þessa dagana til aö berjast um þingsætin. Þaö virðist sem sagt ekki skorta menn sem eru tilbúnir aö setja landið endanlega á höfuöið meö aðstoö útlendinga sem framleiöa verðbólgu, aö sögn stjórnmálamanna, og selja okkur hana fyrir fisk. Stríð Þaö er kunnara en frá þurfi aö segja aö í útlöndum hafa menn löngum átt í stríöi meö tilheyrandi manndrápum og eyöileggingu húsa. Sem betur fer höf- um viö verið lausir viö slíka óáran frá því á SturlungaÖld ef undan er skiliö þorskastríö viö Breta sem sendu hing- aö nokkur herskip aö þvælast fyrir tog- urunum þeirra og koma í veg fyrir aö þeir gætu veitt innan landhelgi. En nú herma fregnir aö Strætis- vagnar Reykjavíkur hafi sagt Verölagsstofnun stríö á hendur með því aö hækka fargjöldin sin um helming sem er bannað samkvæmt lögum en auövitað jafnnauösynlegt fyrir þaö. Eg skil ekki í öðru en flestum Islendingum megi vera sama um hvort strætisvagnar eru til eöa ekki, því aö fyrir skömmu var reiknaö út aö hér væru tveir bílar á hverja fjölskyldu í landinu og hvað hefur tveggjabíla fjöl- skylda aö gera meö strætisvagn? Og ég sé ekki betur, þegar ég fer í bæinn, en aö strætisvagnamir geri lítið annað en aö þvælast fyrir bíleigendum sem hringsóla í miðbænum í leit aö bíla- stæöi. En Verðlagsstofnun er viðkunnanleg stofnun sem vemdar rétt smælingj- anna og setti því lögbann á hækkun strætisvagnafargjalda sem eru inni í vísitölunni og hækka því laun hátekju- manna, en samkvæmt stefnuskrá þeir hafa á réttu aö standa eöa röngu. Var þess getið að tungl þetta væri ekki tiltakanlega hættulegt nema menn færa meö nefið ofan í þaö fljótlega eftir að það lenti og voru mestar líkur tald- ar á aö það lenti í sjó en hins vegar gæti þaö lent nánast hvar sem væri í hinum siðmenntaða heimi. Enginn veit hvaö gervihnötturinn var að gera í geimn- um, nema Sovétmenn og þeir segja ekki frá því, og er viöbúið að þetta sé ekki sá eini sem viö þurfum aö óttast aö fá í höfuðið einn góöan veðurdag. Reyndar telja fróöir menn aö himin- hvolfiö sé oröiö svo fullt af alls konar rusli aö þar veröi ekki þverfótað fyrir því og kann því svo aö fara aö draslið veröi einn helsti farartálminn á leið okkar í leit að öðrum hnöttum þegar viö emm búnir aö eyöileggja þann sem viönúlifumá. Hvort sem það er bót í máli eöa ekki getum viö þó allténd huggað okkur viö aö gervihnöttum hefur fækkaö um einn. Kveöja Ben. Ax. Uót í n»áli Nú er þorri genginn í garö og elsku- legar eiginkonur búnar aö gefa mönn- um sínum blóm á bóndadaginn og færa ieim kaffi í rúmiö en hafa sjálfsagt hætt viö aö bjóða þeim út að boröa í sama mund og skattaskýrslunni var potað inn um bréfalúguna. Þótt þorrablót séu til margra hluta nytsamleg og eflaust gamall og góður íslenskur siöur hafa þau reynst mörgum hálfgerð raunaganga a.m.k. úti á landsbyggðinni. Þar eru þorra- blót um hverja helgi og sumir sækja iau ÖU og eru það sjálfsagt mennirnir sem hoppa á öörum fæti í kringum húsiö sitt af því aö þeir vita ekki að Ámi í Botni er búinn að gefa út yfir- lýsingu um aö hoppið sé bara þjóösaga og komi engum aö nokkru gagni. En Is- lendingar eru þrjóskir aö eðlisfari og halda því s jálfsagt áfram aö hoppa enn ríkisstjórnarinnar er ekki meiningin aö hækka þeirra laun heldur lágtekju- fólks og er stjórnin í óða önn að reyna aö finna ráö tU þess. Eg er aö vísu ekki klókur í þessum málum en vU þó gefa stjóminni eitt ráö, sem ég held aö dygði, og þaö er aö koma verðbólgunni á svipað stig og í helstu viðskiptalönd- um okkar. Tungl Þau uggvænlegu tíðindi bárust hing- aö til lands í vikunni aö sovéskur gervUinöttur, þar aö auki geislavirkur, sveimaöi stjómlaus um geiminn á leiö tU jaröar og vissi enginn hvar hann myndi lenda nema Sovétmenn sem enginn tekur mark á lengur hvort sem Benedikt AxHsson f

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.