Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1983, Blaðsíða 5
DV. LAUGARDAGUR 9. APRlL 1983.
5
Þeir sem leggja leiö sína um Reykja-
víkurflugvöll hafa ugglaust oftar en
ekki tekiö eftir að þar er oft saman-
kominn talsvert fríöur floti lítilla flug-
véla sem bera erlenda einkennisstafi.
Vélar þessar eru hér auövitað í ýms-
um erindagjörðum en stór hluti er þó
einkavélar sem verið er aö ferja milli
heimsálfa og færa nýjum eigendum.
Slika flutninga annast svonefndir
ferjuflugmenn en þaö eru flugkappar
sem hafa atvinnu sína af því aö ferja
loftför, stór og smá, lengri eöa
skemmri vegalengdir.
Þessi starfsstétt er ekki mjög fjöl-
menn. Talið er aö milli 30 og 40 menn
stundi slíka flutninga reglulega. Til
þessa fámennis liggja ugglaust marg-
ar ástæöur en kannski ekki síst sú að
flutningar af þessu tagi eru mun
áhættusamari en flug almennt. Þannig
ferst aö meöaltali einn flugmaöur á ári
hverju á leiðinni milli Bandaríkjanna
og Evrópu. Af þessu leiöir einnig aö
starfsaldur flugmanna í þessari grein
er sjaldan langur. Fæstir endast leng-
ur en tíu ár og margir mun skemur.
„ Ævintýraþrá og
löngun"
DV rakst á.einn slíkan ferjuflug-
mann af tilviljun fyrir nokkrum dögum
og féllst hann fúslega á stutt spjall viö
blaðið um starf sitt. Sá er Bandaríkja-
maöur, LawrenceH. Lee aðnafni, oft-
ast nefndur Larry Lee og öllu betur
þekktur hér undir því nafni. Hann er
tíöur gestur á Reykjavíkurflugvelli,
hefur ferjað milli 40 og 50 vélar yfir
Atlantshafið á síöustu árum. Margir
þeirra sem þekkja til í flugbransanum
telja hann einn hinn kaldasta á þessu
sviöi, jafnvel einum of á stundum.
Ekki ber hann þó neitt ofurhugrekki ut-
an á sér, er ekki mikill aö vallarsýn og
fremur hæglátur í f ramkomu.
Larry Lee var fyrst spurður hvaö
þaö væri helst sem f reistaöi flugmanna
aö fara út í slíka f lutninga:
„Líklega eru ástæðumar margar og
afar mismunandi. Ég held þó aö ævin-
týraþrá og löngun til aö sjá sem mest
af veröldinni sé þar oftast þyngst á
metunum. Og ekki spillir fyrir aö slíkir
flutningar gefa vel af sér. Margir fara í
þetta stuttan tíma til að ná sér í góöan
pening og hætta svo.”
— Hvers vegna valdir þú flugið aö
ævistarfi?
„Eg var mjög snemma ákveöinn í
því aö veröa flugmaöur og byrjaöi að
læra 16ára gamall. Draumurminnvar
aö komast til vegs og virðingar innan
hersins. Ég lauk því BA og MA prófi í
sögu en háskólapróf er nauösynlegt til
aö komast til metoröa í hemum. Ég
prófaöi herflugiö, var í sjóhernum í tvö
ár, en líkaði ekki nógu vel. Þó var
ánægjulegt aö fá tækifæri til aö kynn-
ast framandi löndum og menningu því
viö vorum lengst af staösettir á Kyrra-
hafinu og höföum bækistöövar í SA-
Asíu. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga
á feröalögum og reynt aö komast eins
víöa og möguleikar hafa veriö á.”
.. ogégfraus
íþess orðs fyllstu
merkingu"
„Eftir þetta fór ég í ferjuflugið í
smátíma en síðan tók við farþegaflug
hjá flugfélagi ó Florida. Ég hef réttindi
á flestar geröir flugvéla og gæti því
eins sest upp í þotu og flogið henni eins
og þessum litlu vélum sem ég er oftast
aö ferja núna. Það varö mikill sam-
drátturhjá farþegaflugfélögunum um
þetta leyti og ég lenti í fjöldauppsögn-
um hjá þessu fyrirtæki. Þá sneri ég
mér að ferjufluginu aftur og hef veriö í
því síðan.
Ferjuflugiö hentar mér mjög vel.
Ég rek mitt eigið fyrirtæki utan um
þetta og er því sjálfs mín herra á all-
an hátt. Fyrirtækið hefur þó litla sem
enga yfirbyggingu því ég tek allar fyr-
irspurnir og pantanir niður í gegnum
símsvara heima hjá mér þegar ég er
aö fljúga og er stjómunarkostnaöur
því lítill sem enginn. Þetta gerir mér
aftur kleift aö bjóða betra verö en
margir aðrir og því hef ég síður en svo
þurft aö kvarta yfir verkefnaskorti.”
— En áhættan sem þessu fylgir,
veldur hún þér engu hugarangri?
„Nei, ég hugsa aldrei um hana.
Maður reynir auðvitaö að sýna
varkámi og tefla ekki í tvísýnu en það
þýöir ekkert í þessum bransa aö láta
einhverja hræöslu ná tökum á sér.”
— Ertu þá aldrei lífhræddur?
„Nei, ég held ekki. Ef ég fer, þá fer
ég. Þegar slysin verða er sáralítiö sem
hægt er að gera.Iskaldur sjórinn sér
fyrir þvíaöþetta tekurfljótt af.”
— V eldur veðriö y kkur ekki of t erf iö-
leikum á leiðinni yfir Atlantshafið?
„Jú, óneitanlega. Oft situr maður
fastur dögum saman og bíður þess aö
veðri og vindum þóknist aö hleypa
manni áfram. Þetta á ekki síst viö hér
á þessu svæði yfir vetrarmánuðina.
Stundum hef ég lent í óhöppum. Þurfti
til dæmis að nauðlenda á Grænlandi í
eitt skiptiö vegna bilunar í vélinni. Þá
var loftkuldinn svo mikill aö ég fraus í
bókstaflegri merkingu og þaö tók mig
sex klukkustundir aö láta líkamann
þiöna þegar niður á jöröina var komiö.
En oftast hefur þetta gengiö áfallalít-
iö.”
„It'sarisky
business"
— Hvernig líkar ykkur þjónustan á
íslandi?
og fjarlægðir á annan
hátt en fullorðnir.
\ ||S8£EBPA" /
„Mjög vel. Hér em allir boönir og
búnir aö aðstoða ef á þarf að halda,
jafnt um helgar sem virka daga. Og
þaö er mjög hentugt aö hafa hótel meö
alla þjónustu hér alveg viö flugvöllinn.
Ekki spillir heldur fyrir aö flugvéla-
bensín er hér ódýrara en annars staðar
í Evrópu og munar þar oft mjög
miklu.”
— Séröu fram á langa starfsævi í
ferjufluginu?
„Eg veit þaö ekki. Sennilega eru þaö
peningarnir sem halda manni í þessu
nú oröið. Ferjuflug getur veriö mjög
ábatasamt og eftir því sem vélamar
em minni er þóknunin og jafnframt
áhættan meiri. Draumurinn er aö geta
sest í helgan stein eftir nokkur ár og lif-
aö á eignunum. Ég hef búið mér heim-
ili í Maine-fylki, sem er noröur undir
landamæmm Kanada og Bandaríkj-
anna. Þar er náttúran óspillt og lífiö
fmmstætt á margan hótt. Kannski ég
endi í einhverri greiöasölu þama
norðurfrá, opna jafnvel krá fyrir veiöi-
mennina. En þetta er allt óráöið. Á
meðan held ég áfram aö ferja flugvél-
ar þegar mér hentar, stunda sport og
skemmti mér þess á milli. Mest um
vert er aö láta hverjum degi nægja
sínaþjáningu.”
Til gamans má geta þess í lokin aö
viödvöl Larry Lee varö öllu lengri hér í
þetta sinn en áformaö var. Meiningin
var að stoppa í tvo daga og fara frá
landinu á föstudegi. En það hentaði
veöurguöunum alls ekki. Þetta þýddi
stopp fram yfir helgi því öll flugvalla-
þjónusta liggur niöri á Grænlandi um
helgar og án hennar komast menn ekki
langt. En þar meö var ekki öll sagan
sögö. Eldur kom upp í flugvélinni
skömmu áöur en leggja átti í hann, svo
enn varö aö fresta för. Dagarnir tveir
uröu því aö tíu eða þar um bil. Það er
því ekki að ástæðulausu sem flug-
maöurinn Larry Lee yppir öxlum í lok-
inogsegir:
, ,It’s a risky business. ”
PLÖSTUN
PLÖSTUM VINNUTEIKNINGAR, ^
VERKLÝSINGAR, VOTTORÐ,
MATSEÐLA, VERÐLISTA,
KENNSLULEIÐBEININGAR,
TILBOÐ, BLAÐAÚRKLIPPUR,
VIÐURKENNINGARSKJÖL, UÖSRITUNAR-
FRUMRIT OG MARGT FLEIRA.
STÆRÐ: BREIDD ALLT AÐ 63 CM.
LENGD ÖTAKMÖRKUÐ.
OPIÐ KL. 9-12 OG 13-18.
LÆKJARGÖTU 2, NÝJA-BlÖHÚSINU S 22680
„711 BENIDORM A SÍANl
FJÖGURRA VIKNA HRD'Si&i
ifi :nauei
WIBmRWKHVl
Vorferð eldri borgara
Ferðamiðstöðin hefur undanfarin vor efnt til sérstakra ferða fyrir eldri-
borgara. Að þessu sinni er þessi ferð 28 dagar/fjórar vikur á sama verði
og þriggja vikna ferðirnar.
Hjukrunarfræðingur verður með í ferðinni. Styttið veturinn og njótið
vorsins á besta sumarleyfisstað Spánar — Beniaorm.
Fjölskyldirferð Frítt fyrir bömin
Auðvitað er fjölskyldufólki boðið að taka þátt í þessari vorferð og til
þess að bæta þetta verðtilboð (fjögurra vikna ferð á þriggja viku verði)
bjóðum við nú frítt far fyrir börnin.Góðar íbúðir eða hótel með fæði.
FM-Feiðalán
FERÐAMIÐSTÖÐIN býður upp á sérstök FM—ferðalán sem byggj-
ast á innlángreiðslum mánaðarlega fram að brottför, og síðan jöfnum
afborgunum í tiltekinn tíma eftir að heim er komið. Kynntu þér þessi
hagkvæmu greiðslukjör og staðgreiðsluafsláttinn.
1FERÐAMIÐSTOÐIIM
AÐALSTRÆTI9
SÍM128133 11255