Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1983, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1983, Síða 6
6 DV. LAUGARDAGUR 9. APRlL 1983. Rafmagnsorgelið: Yj/jci alþýðu- hljóð- færið! Kennarar Orgelskóla Yamaha, eina orgelskóla landsins sinnar tegund- ar, sjást hér í húsakynnum skólans að Vitastig tiu. Talið frá vinstri: Guðrún Margrét Pálsdóttir, Guðmundur Haukur Jónsson og Sigurbergur Baldursson. Kennslustund í Orgelskólanum. Námskeiði i orgelleik er skipt niður i fimm stig. Þeir sem kunna gjör- samlega ekkert á hljóðfæri hefja nám sitt á fyrsta stigi, þar sem und- irstöðuatriði orgelleiks eru numin. Kennt er á tveimur tólf vikna nám- skeiðum á hverjum vetri. Nemend- ur útskrifast svo úr skólanum að af- loknu tveggja og hálfs árs námi. ekki kenndur í skipulögðum köflum, heldur er honum smeygt inn í orgel- námið af og til þegar viðeigandi tæki- færi gefst. Sjálfbjarga í leik dægurmúsíkur og léttklassískra verka Á lokastigi orgelkennslunnar, að af- loknu fjögurra anna námi, á nemand- inn (ef hann hefur fylgst vel með í tím- um og gert heimaverkefni sín sam- viskusamlega!) að vera oröinn sjálf- bjarga í nótnalestri og geta spilað alla léttklassíska músík svo og dægur- músík og létta dinnermúsík, óað- finnanlega. Þegar nemandinn útskrif- ast svo frá orgelskólanum á hann einnig að vera orðinn fær um að semja sín eigin tónverk og geta útsett önnur verk að sínum smekk, en á þetta tvennt er lögð áhersla á síðustu kennslustigum orgelnámsins. Fyrirtækiö Yamaha stendur fyrir slíkum námskeiðum í orgelleik — eins og hér að framan hefur verið greint f rá — í nær öllum þjóölöndum heims þar sem rafmagn er á annað borð fyrir hendi. Kennarar námskeiðanna öölast réttindi sín í sérstökum skóla sem fyrirtækið rekur gagngert til að starf- rækja þessi námskeið. Nefnist hann Yamaha Music Foundation. Elsti neminn sjötugur, sá yngsti fjögurra Aö sögn kennaranna þriggja sem reka orgelskólann á Vitastíg eru orgel- námskeiðin mjög vinsæl, og fara vinsældir þeirra vaxandi. Til marks um það berrtu þeir á að fyrstu árin, sem þeir starfræktu skólann, — fyrir um fimm árum — voru um þrjátíu nemendur í kennslu hjá þeim, en nú er skólinn orðinn fullsetinn og vel það; rúmlega tvö hundruð einstaklingar sækja skólann í ár. — Hvers konar fólk? „Alis konar fólk,” svara kennararn- ir. „Þaö er engin stéttaskipting meðal nemendanna okkar, og ekki verður heldur vart við kynslóðabil. Elsti nemandinn okkar er kominn yfir sjö- tugt og sá yngsti er á fimmta ári. Flestir eru þó á aldrinum milli tvítugs og fertugs; einstaklingar sem alltaf hefur langað til að læra á hljóðfæri en ekki komið sér til þess fyrr en á full- orðinsaldri.” — Er orgelið kannski búið að taka sess í þjóðfélaginu sem hið eina sanna alþýðuhljóðfæri? „Við teljum svo vera. Það er orðið mjög algengt að fólk fjárfesti í raf- — litid inn á námskeið í orgelleik sem löngum hefur þött, í huga menningarvita, annarsflokks tönlistarnám Orgelnám hefur margt lengi verid talid annars fíokks tónlistarnám, og segja þeir sem því halda fram ad nú- tímaorgel geti varla talist htjódfœri, þetta séu skemmtar- ar, nokkurs konar spilabox sem takmarkadan lærdóm sé hægt ad draga af. . . ,, Vid erum vissulega ekki ad ala upp nein tónlistarséní, ekki neina klassíkera, ” segja aðstandendur Orgelskóla Yamaha, sem er eini skóli sinnar tegundar á íslandi. Þangad litum vid í heimsókn á dtígunum og rœddum við kennarana Guðmund Hauk Jónsson, Gudrúnu Margréti Pálsdóttur og Sigurberg Baldursson sem reka þennan skóla. Hann er staðsettur í gtímlu tvílyftu steinhúsi í brekkunni á Vitastíg tíu. . . „Kennsla okkar miðast ekki vid að útskrifa ,,prófessjónal” einleikara, heldur er þetta fyrst og fremst alþýðufrœðsla, í jákvœðum skilníngi þess orðs, ” halda þau áfram, ,, fólkið leitar hingað til okkar til að lœra sér og sínum til skemmtunar. Þetta er eins oy hvert annað tómstundagaman í hugum þess. Það langar að læra und- irstöðualriðin í orgelspili til að geta leikið sjálft sína tón- list í nœðinu heima hjá sér. Og þá þjónustu erum við að veita með þessum skóla okkar. ” Tilefni heimsóknar okkar í Orgelskólann var að fá að frœðast um slíka tónlistarkennslu sem orgelnám er. Eins og kemur fram í orðum þremenninganna hér að framan er hér um alþýðufræðslu að ræða sem hver meðaljón úti í bæ getur gengið að án nokkurs tóneyra eða meðfœddra hœfi- leika í hljóðfœraleik. Þetta er sem sagt nám (fyrir mig og þig), veslingana sem alltaf hefur langað til að lœra á hljóðfæri en ekki treyst sér tilþess af hræðslu við að gera sig að fífíi frammi fyrir klárum tónlistarséníum. Þannig fer námið f ram Nám í alþýðufræðum orgelleiks spannar yfir fimm tólf vikna annir, sem samsvarar tveimur og hálfu ári. Þeir sem ekkert kunna fyrir sér í hljóö- færaleik, hef ja nám á fyrsta stigi. Þar eru kennd undirstöðuatriöi orgelleiks. Lögö er áhersla á aö nemandinn, þótt hann kunni ekkert fyrir, byrji að spila á hljóðfærið strax í fyrstu kennslutím- um sínum. Nemendur eru látnir spreyta sig á einföldum laglínum á þessu stigi, varla fleiri en fimm mis- munandi tóntegundum. Mikilvægast er í þessu sambandi að fólkið fái hreyf- ingu í fingurna, tilfinningu fyrir nótna- borðinu, hljómnum í hljóöfærinu og möguleikum þess. Á næstu stigum kennslunnar er sífellt bætt við þekk- ingu og þjálfun í meðferð orelgsins. Þar eru nemendur famir að leika létt- klassísk verk undir leiðsögn kennara og spreyta sig á erfiðum stefum og stefjasamsetningum. Þjálfun í hljóðfæra- leiknum tekin fram yfir f ræðif yrirlestra Eins og sést á framangreindu er aöaláherslan lögö á spilið sjálft og þjálfun í því í kennslunni í stað þess að lesa yfir nemendum langa fyrirlestra og fræðirullur um tónlistina, svo sem um tónlistarsögu, æviágrip þekktra höfunda og tónfræði. Það er þó ekki þar fyrir utan að á þessa þætti sé minnst í kennslunni, þeir em hinsveg- ar ekki teknir reglulega fyrir, heldur em þessi efni látin koma nokkurn veg- inn af sjálfu sér eftir því sem líður á sjálft orgelnámið. Þannig er til dæmis nótnalesturinn — sem áhersla er lögð á að nemendur nái góðum tökum á — Opið ALLAN UREVRLL STÆRSTA BIFREKMSTÖÐ BORGÞ^ ce

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.