Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1983, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1983, Qupperneq 20
20 DV. LAUGARDAGUR 9. APRlL 1983. Sérstæð sakamál Sérstæð sakamál Sérstæð sakamál Fullhomið morð? Rebecca Heath var fórnarlambið. Morðið átti að iita út eins og um umferðaróhapp hefði verið að ræða. Jerry Heath langaði til að hjálpa litla bróður. Hann visaði honum á mann sem gæti ráðið Rebeccu afdögum. Charles Edward Owens, sá fremri, var illa leikinn afheróini. Hann var aðal- framk væmandi. Auðvitað eru framin fullkomin morð. Það eru framin morð þar sem enginn er grunaður og því er enginn dreginn til ábyrgöar. Þaö var hugmyndin aö málið um særða augað yrði hinn fullkomni glæp- ur. Oldsmobile bifreiö stóð við vegar- brún í fylkingu Georgíu í Bandaríkjun- um. 1 Suðurríkjum Bandaríkjanna eru sumrin löng og heit og mánudags- morguninn 31. ágúst var lof tið þungt og mollulegt. Maöurinn sem ók í norður til litla bæjarins La Grange hemlaði. Fyrir framan hann var kröpp beygja á veginum. Hjólför í háu grasinu á hægri vegarhelmingi sýndu að bíll hlaut að hafa ekið út af í beygjunni. Bólga í kringum hægra auga Maðurinn varð undrandi að sjá yfir- gefinn bílinn á þessum eyðilega stað. Kannski var einhver í nauðum staddur. Maöurinn nálgaðist kyrr- stæðan bílinn. Þaö var púst og terpen- tinulykt í loftinu. Maðurinn uppgötv- aði, þegar hann var kominn upp aö bílnum, að hann var í gangi. Klukkan var nokkrar mínútur yfir níu. Bíllinn virtist mannlaus og maöurinn hvarf á braut. Skömmu síðar drapst á bílnum. Fleiri áttu leið hjá, en'sáu ekkert at- hugavert. Það sá því enginn konuna sem lá í hnipri í Oldsmobilebifreiðinni. Klukkan var orðin 11.10 þegar lögreglan átti leið um svæðið. Þeir fundu hina látnu. Hún var ung og í öku- skírteininu hennar stóð nafnið Rebecca „Becky” Heath frá Phenix City sem var í rúmlega 70 km f jarlægö. Phenix City er ekki í Georgíu heldur í nágrannafylkinu Alabama við Chatta- hoochee-fljótiö. Á þjóðvegum Bandaríkjanna láta árlega tíu þúsund manns lifiö. Hin tuttugu og eins árs gamla Rebecca Heath var greinilega eitt fórnarlambiö enn í langri röð. Svo leit út sem hún hefði ekið of hratt inn í vinstri beygju og misst stjórn á bílnum. Tjónið á bíln- um var óverulegt en andlit frú Heath var bólgið í kringum hægra auga. Hún hafði greinilega rekið höfuðiö í mæla- borðið og höggið drepið hana. Engum datt morð í hug, ekki þá. Lífsglöð stúlka Þegar óhappið átti sér staö var f rú Heath greinilega á leið til móður sinnar. Foreldrar Rebeccu hétu McGuire og voru í góðum álnum. Faðir hennar átti íbúöir og fyrirtæki bæði í La Grange og Columbus. Eiginmaður Rebeccu, Larry Heath, vann viö eitt af fyrirtækjum tengdaföður síns. Larry haföi raunar hringt í móður Rebeccu um hálfellefuleytið til að athuga hvort Rebecca væri komin. Tengdamóðirin vissi ekki til þess. Hún stakk upp á að hún hefði ef til vill stoppað hjá foreldr- um Larry. Þeir áttu heima rétt hjá staðnum þar sem hún f annst. Þegar farið var að athuga líkið, fóru að renna tvær grímur á rannsóknar- menn. I bólgunni umhverfis hægra auga Rebeccu voru nokkrar svartar agnir eins og húðin heföi sviðnað. Þegar augnalokinu var lyft kom í ljós að hún hafði verið skotin með byssu- kúlu. Hún hafði verið skotin á stuttu færi og augnalokinu hafði verið lokað yfir skotsárið. Aö lokum haföi bifreið- aróhappið verið sett á svið. Hver hafði drepið Rebeccu Heath? Þegar hún fannst hafði hún veriö dauð í minnst tvo tíma. Hún ók mér í vinnuna sagði Larry. Klukkan var nokkrar mínútur yfir hálfníu þegar viö kvöddumst. Hún sagðist ætla aö aka til LaGrange. Tíminn leið. Larry Heath var meö fullkomna fjarvistarsönnun. Hann hafði verið í vinnunni frá 8.35. Þetta var allt saman mjög dular- fuilt. Rebecca Heath átti enga óvini. Hún hafði verið mjög ung þegar hún giftist Larry, aðeins átján ára. Þau áttu tveggja ára gamlan son. Það fór mjög gott orð af henni og hún hafði verið lífsglöö og hress stúlka. Steinhella og spólf ör Þaö mátti kannski segja að herra og frú McGuire hefðu getað kosið sér annan tengdason en Larry Heath. Það voru skuggahliðar í f ortíö hans en hann hafði tekið sig á þannig aö herra McGuire haföi ekkert út á hann að setja. Þeim hjónum hafði þó þótt leitt aö unga fólkið hafði orðað það að flytja til Tenessee þar sem Larry vænti þess aðfágottstarf. Nú var það vandamál leyst á harm- rænan hátt. Lögreglustjórinn og þeir sem unnu meö honum komust aö nokkrum athyglisveröum staðreyndum. Uppi við framsætiö í bil Rebeccu lá steinhella af þeirri gerö sem notaðar eru í garðstíga. Á staðnum þar sem hún fannst fundust einnig för eftir annan bíl sem hafði snúiö viö og spólað á leiðinni í burtu. „Þetta þarf ekki aö vera í neinum tengslum viö morðiö,” sagði Jones lögreglustjóri. „En þaö má líka ímynda sér aö það hafi veriö tvær manneskjur sem hafi staðiö aö morð- inu. Önnur hafi ekiö bíl hinnar myrtu og hin ekið á eftir í annarri bifreiö. Þær hafi síöan sett atburöina á sviö þannig að við héldum að um slys hefði verið að ræða. Þær hafi ekið út af veginum og þrýst bensíngjöfinni niður með stein- hellunni. Hellan hafi síðan runnið af þannig aö bíllinn hafi bara orðiö fyrir minniháttar skemmdum. Morðingj- arnir hafi síðan ekki þorað að endur- taka tilraunina og stungiö af.” Larry Heath var sýnd steinhellan. Hann þekkti hana strax. Hún lá lengi fyrir framan bílskúrinn okkar heima. Viö lögðum hana í farangurs- geymsluna hjá Rebeccu fyrir nokkrum dögum. Við ætluðum að henda henni en gleymdumþví. Lögreglan á blindgötu? Kenning Jones lögreglustjóra var athyglisverð. Hún fletti þó ekki ofan af morðingjanum. Þegar blöðin skrifuðu um málið var það undir fyrirsögnun- um: Morðið á ungu konunni gáta. Lögreglan á blindgötu. Tveim dögum eftir andlát sitt var Rebecca jarðsett á Phenix City. Chatahoochee áin myndar rúman helming af landamærum milli Georgíu og Alabama. Frá Phenix City á vestur- bakkanum liggur brú yfir til Columbus í Georgíu. Phenix City og La Grange eru smábæir þar sem enn má finna dálítið af gamla Suðurríkjasjarman- um. Lífið gengur hægar en í norðrinu og fólk er yfirleitt vingjarnlegt og ræðið. Columbus er öðruvísi. Hún er stórborg með þau vandamál sem fylgja stórborgum. Sama dag og Rebecca var greftruð gekk hvítklædd, fógur, dökkhærð stúlka eftir götu í Columbus. Hún stansaði við búðarglugga, leit flóttalega í kringum sig og hélt áfram að næsta götuhorni. I húsasundi stóð velklæddur hör- undsdökkur maður og lét sem hann væri að lesa dagblaö. Hann kinkaði kolli svo að varla sást. Það tók enginn eftir þeim þegar hún rétti honum umslag sem innihélt hluta af greiðslunni fyrir morðið á Rebeccu Heath. Maöurinn talaði án þess að bæra varirnar. — Ertu viss um að löggan elti þig ekki? — Alveg viss, svaraði stúlkan. — Skilaöu kveöju og segðu að viö bíðum ekki lengi eftir af- ganginum. Á meðan stúlkan gekk áfram stikaði maöurinn yfir götuna að kyrrstæðum bíl. Augasteinarnir voru örsmáir eftir síðustu heróínsprautuna. Leigumorðingi Denise Lambert vartuttugu ára og frá Virginíu þar sem faðir hennar var apótekari. 1980 tók hún þátt í sam- keppni um titilinn ungfrú Virginía. Denise varð númer tvö. Hún var raunar mjög glæsileg stúlka. Hún hafði komið til Columbus vorið 1981. Hún hitti Larry Heath í lok júní. Nú hindraði Larry Heath reyndi þegar í janúar 1981 að leigja menn til að drepa eiginkonu sína. Það var fyrst um sumarið sem honum heppnaðist það. Gregory Lumkin hleypti skotinu af. Hann var ekki gripinn fyrr en þremur mánuðum eftir morðið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.