Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Qupperneq 4
4 DV. MÁNUDAGUR 25. APRÍL 1983. Kristin Halldórsdóttir. Kristín Halldörsdóttir, landskjörinn þingmaður V-listans íReykjanes- kjördæmi: „Mikill sigur fyrir íslenskar konur” „Ég er afskaplega þakklát og ánægö meö þaö hvað okkar sjónarmið hafa fengið góöan hljómgrunn,” segir Kristín Halldórsdóttir, nýkjörinn þing- maöur Samtaka um kvennalista í Reykjaneskjördæmi, er hún er innt eftir áliti á niðurstööum kosninganna á laugardaginn. „Okkarútkoma ermjög svipuö og ég átti von á, viö höföum kannski vissar vonir um aö veröa f jór- ar og þaö varö greinilega mjótt á mun- unum meö þaö. Viö fundum þaö síöustu dagana hvaö fólk haföi vaxandi áhuga á okkar framboöi og ég er sannfærö um þaö aö hefðum við haft svolítið betri tíma hefðum viö fengið ennþá betri útkomu,” segir Kristín. Hvaö tekur við hjá ykkur eftir að þessi úrslit liggja fyrir? „Viö eigum aö sjálfsögðu eftir aö átta okkur aöeins á hlutunum. Við eig- um eftir aö bera saman bækur okkar áöur en alvaran tekur viö,” svarar Kristín. Hvaö um heildarniöurstööur kosn- inganna? „Þetta var mjög svipað því sem var búiö aö spá, þannig aö þetta kom mér ekki mjög á óvart,” segir Kristín. Hvernig leggst nýja starfið í þig? „Eg hlakka til aö takast á viö þetta starf, ég finn aö sjálfsögöu til mikillar ábyrgöar og get engu lofað nema aö gera mitt besta. Þessi úrslit eru mikill sigur fyrir íslenskar konur og mér finnst stórkostlegt aö við skulum verða svona margar á þingi núna. Að mínu mati eru þaö ánægjulegustu úrslitin í þessum kosningum hvaö konum hefur fjölgaö á þingi,” segir Kristín Hall- dórsdóttir, nýkjörinn þingmaöur V- lista í Reykjaneskjördæmi. -SÞS Þorsteinn Pálsson, efsti maðurálista Sjálfstæðisflokksins á Suðutiandi: „Ósk um breytingu” „Þaö sem mér er efst í huga er þakklæti til þess fjölda fólks er unnið hefur aö kosningu Sjálfstæðisflokks- ins,” sagöi Þorsteinn Pálsson, efsti maður á lista Sjálfstæöisflokks á Suöurlandi, um kosningaúrslitin. Og hann bætti viö: „Þaö er ljóst aö þessi úrslit eru ósk um breytingar. ” Þorsteinn tekur nú í fyrsta sinni sæti á Alþingi. Kemur þaö til meö aö breyta einhverju um þína hagi? „Já, óneitanlega veröur svo. Nú veröa ný verkefni sem bíða. Og ég hlakka til aö takast á viö þau,” sagöi Þorsteinn Pálsson. -KÞ Þorsteinn Pálsson. Valdimar Indriöason, 2. maðurá D-lista í Vesturlandskjördæmi: Óánægður með heildar- útkomuna „Eg er ánægöur meö útkomu Sjálf- stæöisflokksins á Vesturlandi,” sagöi Valdimar Indriöason, nýkjörinn alþingismaöur D-lista í Vesturlands- kjördæmi. „Hins vegar er ég ekki nógu ánægöur með heildarútkomuna. Og ég harma aö formaöur Sjálfstæöis- flokksins, Geir Hallgrímsson, skyldi ekki ná kosningu. En svo skammur tími er liðinn f rá því aö úrslit lágu fyrir aö ég tel of snemmt að tjá mig í smáat- riðumumþau.” Valdimar sagöi aö í ljós hefði komið Valdimar Indriðason. aö skoöanakannanir hefðu alls ekki gefiö rétta mynd af fylgi Sjálfstæöis- flokksins. Honum heföi veriö spáö hærra hlutfalli í kosningunum en hann síðan heföifengið. „Hins vegar átti ég von á aö nýju framboöin fengju þetta mikið fylgi,” sagöi Valdimar, „því aö maöur fann á sér, hvemig landiö lá nú fyrir kosning- amar. Eg tel þetta í og meö stafa af því aö fólkiö vilji breyta til frá gömlu flokkunum. En hvort þarna er um hreina áminningu til þeirra aö ræöa, vil égekkisegja.” Valdimar kvaöst engu vilja spá um tilraunir til stjómarmyndunar, „en þaö veröur töluverö vinna aö mynda nýjastjóm,”sagöihann. -JSS. Ragnhildur Helgadóttir, 5. maður D-listans íReykjavík: „Fagna fleiri konum” „Mér finnst úrslit kosninganna ánægjuleg aö því leyti til aö Sjálf- stæöisflokkurinn hefur bætt viö sig kjördæmakjörnum mönnum,” sagöi Ragnhildur Helgadóttir í gær, en hún var í 5. sæti á lista flokksins í Reykja- vík. „Fylgi Sjálfstæöisflokksins hefur vemlega aukist úti um landið og hér í Reykjavík er það mjög svipað og þaö Ragnhildur Helgadóttir. var 1979 þrátt fyrir allerfitt tímabil hjá flokknum undanfariö kjörtímabil, eins og öllum er ljóst. Því er þó ekki að neita aö viö hefðum vænst meira fylgis hérí borginni.” Ragnhildur kvaöst fagna mjög auknum hlut kvenna í þessum kosning- ( um. Aðspurð um hvaö tæki viö aö kosn- ingum loknum, svaraði Ragnhildur: „Nú hljóta aö taka viö viðræður undir forystu formanns Sjálfstæðis- flokksins um myndun næstu ríkis- stjómar. En áður hlýtur núverandi stjóm að biöjast lausnar þar sem hún hefur misst meirihluta sinn. Þaö er og í samræmi við yfirlýsingar ráöherra fyrir kosningar.” -PÁ Ellert B. Schram, 4. maður D-listans íReykjavík: „Flokkurinn stendur mjög Ellert B. Schram. „Þaö veldur mér vonbrigðum að formaöur flokksins skuli ekki ná kjöri,” sagöi Eliert B. Schram í sam- tali við DV um úrslit kosninganna. „Hins vegar verður þaö aö teljast góö kosning hjá flokki sem vinnur sex kjördæmakosin þingsæti, allt í kring- um landiö. Þaö sýnir aö flokkurinn stendur mjög sterkt aö vígi þrátt fyrir alla þá erfiöleika sem hann hefur geng- iðígegnum. Eins og alþjóð veit er flokkurinn í sókn, bætir viö sig mönnum í sex kjör- dæmum. Þaö fer auðvitað ekkert á milli máia aö Sjálfstæðisflokkurinn er langstærsta stjórnmálaaflið á Islandi í dag, með tæplega 40% fylgi þjóöarinn- ar og hann verður aö hafa forystu um aö taka á þeim vanda sem blasir við.” Hvaö tekur viö næstu daga? „Þaö taka viö viöræöur um stjórn- armyndun og þaö er ómögulegt aö spá um þær nú. Ég á von á því aö forsetinn feli formanni flokksins aö reyna stjórn- armyndun. Mér f innst aörar kosningar ekkert á dagskrá einsoger,” sagði Ell- ert. -PÁ . Guðrún Agnarsdóttir, 2,maðurálista kvennaframboðsins: „Við erum himinlifandi” Guðrún Agnarsdóttir. „Niöurstööur þessara kosninga eru afar gleðilegar fyrir okkur. Við erum himinlifandi,” sagöi Guörún Agnars- dóttir, nýkjörinn þingmaöur V-lista kvennaframboðs í Reykjavík. „Eg skal ekki segja hvaöa vonir stuöningsmenn V-listans geröu sér fyr- ir kosningarnar því að slíkt er auðvitað einstaklingsbundið. En skoðanakann- anir höföu spáö okkur töluveröu fylgi. Sjálf haföi ég ekki ímyndað mér aö þær spár rættust, þegar í kjörklefann væri komiö, en hafði gert ráð fyrir tveim kjörnum. Niðurstöður fóru því fram úr mínum björtustu vonum.” Guörún sagöi ennfremur aö gleöi- legust og verðmætust af öllu þætti sér sú umræöa sem farið heföi fram í kringum þetta framboö. Það væri mjög ánægjulegt þegar lítill en ein- beittur og samstilltur hópur kvenna gæti áorkaö svo miklu á svo skömmum tíma. Árangurinn væri sá að hlutur kvenna á Alþingi heföi stóraukist og væriþaðvel. Spurningunni um hvaö nú tæki viö kvaö Guörún erfitt aö svara á þessu augnabliki. „Auðvitað liggur fyrir að' reyna myndun nýrrar ríkisstjómar. Eg geri ráð fyrir að f ram fari einhverj- ar biðlanir eins og gengur. Víst væri möguleiki á að við gengjum til stjórn- arsamstarfs, viö tiltekin skilyröi, en enn er of snemmt að tjá sig nokkuö frekar um þaö. Sem stendur er mér efst í huga hversu mikil gleöi og ánægja það er aö fá aö berjast fyrir þessummálstaö,” sagöiGuörún. -JSS Svo mælir Svarthöfði_________Svo mælir Svarthöfði ______ Svo mælir Svarthöfði Kjósendur sköpuðu enn meira öngþveiti Urslit kosninganna nú um helgina fela ekki í sér neina lausn þeirra vandamála, sem viö er að stríða í þjóðfélaginu. Engar niöurstööur fengust, og mál eru í sömu sjálfheldu og áöur. Ástandið er því alvarlegra nú en þaö var fyrir kosningarnar. At- vinnuleysiö mun halda áfram aö aukast hraðfari á næstu vikum og mánuðum, og þótt tækist aö koma á einhverri stjórnamefnu, myndi hún veröa samsett af svo mörgum flokks- brotum, að hún myndi ekki geta ráðiö viö vandamálin, nema þá á mjög löngum tíma. Popp-kynslóðir landsins hafa nú kosið sína þing- menn, og bætt við tveimur smá- flokkum, sem ráða engum úrslitum um framvindu mála, enda er annar flokkurinn upptekinn við gælumál um stjórnunarhætti, en hitt flokks- brotið beinir huga sínum meira að dagheimilunum en hundrað og tiu prósent verðbólgu. Þannig hefur tekist aö stefna okkur út í enn meira öngþveiti en áöur rikti. Það liggur jafnvel ekkert fyrir um það að nú- verandi stjórn segi af sér í bráö. Þá er komið í ljós að skoðana- kannanir eru lítilsvirði, og varla annað en skemmtiefni handa blað- stjórum, sem vilja nokkrar vikur fyrir kosningar vera viðræöuhæfir um pólitík. Yfirleitt eru forustumenn flokka, bæði nýrra og gamalla, sam- mála um þetta. Þó bentu kannanir í grófum dráttum tii þess, að smá- flokkarnir myndu hljóta fylgi og gekk það eftir. Sjálfstæðisflokknum hafði verið spáð töluverðri aukningu, en formaður flokksins telur nú, að flokkurinn hafi fengið lélegri útkomu en efni stóðu til. Þaö er ekki að undra. Furöulegt má telja, að barátt- an gegn ríkisstjórninni bitnaði fyrst og fremst á Framsókn. Hún lagöi þó til ráð sem dugðu nokkuð á árinu 1981. Þaö eru einu ráðin, sem ríkis- stjórnin beitti á stjórnarferli sinum. Aftur á móti hefur Alþýðubandalagið brugðist kjósendum sinum illilega, skert laun fjórtán sinnum á tima- bilinu, og steypt okkur út í óhóflega rikiseyðslu. Sá flokkur eykur jafnvel við sig í sumum kjördæmum, en það eru kannski siðbúin viðbrögð frá því aö flokkurinn var að boða samning- ana í gildi. Fyrir kosningarnar boðaöi Svavar Gestsson valdatöku afturhaldsafl- anna. Orðiö valdataka hefur sér- staka merkingu í lýðræðislöndum, og má segja, aö að það sé tungunni tamast sem hjartanu er kærast. Þetta oröalag formanns bandalags- ins ætti miklu betur við í löndum Suður-Ameríku. Nú situr Sjálfstæðis- flokkurinn uppi með formann sinn utan þings, sem eitt og sér gerir erfitt fyrir um forustu flokksins í viðræðum um stjórnarmyndun. Hví- lík valdataka. Eini maðurinn, sem unir þessum kosningaúrslitum vel, er dr. Gunnar Thoroddsen, sem nú er farinn að hafa yfir í stjórninni. Hann mun ekki sleppa taumunum strax. Hvorki Framsókn né Alþýðubanda- lag hafa viðburði uppi til að segja af sér. Og tveir ráðherrar úr Sjálfstæöisflokknum eru heldur ekki á förum. Þeir halda hundavaktina með dr. Gunnari meðan formaöur flokksins liggur utan vegar. Nýju flokksbrotin tvö eru alveg óráðin gáta. Ekki er að búast við vit- rænum tillögum frá þeim í bili um lausn efnahagsvandans, enda er forustuliö þeirra of upptekið af gælumálum sínum í bili til að það komi auga á aðrar úrlausnir. Vilmundur kallar niðurstöður kosn- inganna „undarleg úrslit”. Árangurinn á eftir að verða enn undarlegri, þegar líður á sumarið. Hér stefnir til upplausnar og kosningaúrslitin hafa enn aukið á þann glundroöa, sem fyrir var. Við þessar aðstæður hefur kenningin um utanþingsstjórn öðlast alveg nýtt gildi. Þess hafði verið getið til að dr. Gunnar Thoroddsen myndi fresta þess að mynda utanþingsstjórn að kosningum loknum. Líkurnar á þessu jukust að mun um helgina. Flokkar eru nú sex á Alþingi, og ekki ljóst aö þeir geti komið sér saman um eitt eða annað. Við þær aðstæður koma hollvinir til sögunnar og benda á réttar leiðir í stjórnarmyndun. Svarthöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.