Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Page 6
6 DV. MÁNUDAGUR 25. APRIL1983. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Hagræðing í sölu eggja ÍlliSSff segir Framleiðsluráðið Hvers vegna ættu aö gilda aðrar reglur um eggjasölusamlag eða dreifingarstöð á eggjum? Hvers vegna eiga framleiðendur að berjast þar hver viö annan? Þannig er spurt í frétta- bréfi frá Upplýsingaþjónustu land- búnaðarins. Þarsegir ennfremur: Undanfama daga hafa farið fram undarlegar umræður um sölu á eggjum. Neytendasamtökin hafa mót- mælt og margar konur skrif aö lesenda- bréf þar sem þær lýsa áhyggjum sínum á „einokun meö egg”. Þessar umræöur eru mjög svipaðar þeim umræöum, sem áttu sér staö fyrir 25 árum þegar Osta- og smjörsalan var stofnuð. Nú er það viðurkénnt af neytendum og framleiðendum að það fyrirtæki hafi stuðlaö að mjög jákvæðri vöruþróun og frjálslegum viðskiptaháttum þótt það hafi ekki verið í samkeppni við aðra sem seldu hliðstæða vöru. í fréttabréfinu er haldiö áfram og bent á það að þegar afurðasöiumál bænda séu skoðuð meö nokkurri sanngimi, ætti öllum að vera þaö ljóst að landbúnaöurinn væri nær útilokaður ef bændur ættu að vera allir i látlausu stríði hver við annan um markaðinn. Það má með sama rétti halda því fram að launþegasamtök séu óþörf með öllu, markaðurinn geti bara á- kveöiðvinnulaunin. Eftirfarandi tiilaga var samþykkt á fundi Framleiðsluráðs landbúnaöarins um miðjan mars síðastliöinn. „Framleiðsluráð landbúnðarins viðurkennir Samband eggja- framleiðenda sem heUdsöluaöila fyrir egg samkvæmt 36. gr. iaga nr. 95/1981 um Framleiðsluráð landbúnaöarins, verðskráningu, verðmiðlun, sölu á landbúnaðarvörum og fleiru. Jafnframt samþykkir Framleiösluráð lög Sambands eggja- framleiðenda og treystir því aö félags- menn sambandsins hlíti ákvæðum þeirra. Framleiðsluráð leggur ríka áherslu á aö eggjaframleiðendur sameinist um uppbyggingu og rekstur fulUcominnar pökkunar- og heildsölu- dreifingarstöðvar, sem fái fjárhags- legan stuðning til að fulinægja sann- gjömum kröfum eggjamarkaðarins og tekur leyfiö gildi þegar sUk stöð hefur starfsemi sína. SamhUða veröi komið á skipulegri stjóm eggjaframleiðslunnar svo hún fullnægi efth-spurn á eggjum, án þess að undirboö í verði þurfi tU að fram- leiðslan seljist. Þá skorar Framleiðsluráð á land- búnaðarráöherra að vinna að því að slík stöð, ef reist verður, fái aöstöðu til að selja egg á KeflavíkurflugvelU og skipuleg vinna að f ramgangi þess máls tengist uppbyggingu dreif ingarstöðvar eggja.” Yfirskrift fréttarinnar í frétta- bréfinu er Hagræðing í sölu eggja. -ÞG. Rétt /erö áréttuveröi ^ KYNNIST FEGURÐ ÞÝSKALANDS 2ja og 3ja vikna hópferðir til Þýskalands, sem hefjast um borð í lúxusferjunni M/S Eddu. Stutt sigling til Bremerhaven og síðan verður ekið á íslenskum /angferðabílum um fögur héruð og borgir Þýskalands. Fjö/breytt og áhyggjulaus skemmtiferð fyrir fólk á öllum a/dri. íslenskur bílstjóri og íslenskur fararstjóri eru með hópnum alla ferðina. Brottfarardagar: 1., 8. og 15. júní. 13. júlí. 3., 24. og 31. ágúst. | _______Bókanir eru hafnar - Hafðu samband við okkur sem fyrst.______ I Helgarpakkarnir vinsælu á London: Verð frá kr. 9.346,- í 5 nætur. Brottför alla fimmtudaga. Gildir til 15 maí n.k. Flug og bíll: í eina til fjórar vikur til Glasgow, London, Kaupmannahafnar, Ósló, Stokkhólms, Frankfurt, ^ Parísar og Luxemborgar í sumar. JMAl Öll almenn farseðlaþjónusta innanlands og utan. FERÐAmmwmVAL Ferðaskrifstofa - Kirkjustræti 8 - Símar: 19296 og 26660 Sælges ogsa: 1-6*1981 Síðastí söludagur á hnetusmjörinu var1.júní1981. DV-myndS. Hnetusmjörmeð nærtveggjaára dagstimpli Kópavogsbúi einn, Þórhallur aö nafni, keypti sér í aprílbyrjun hnetusmjör í versluninni Vörðufelli í Kópavogi. Þegar heim var komiö með krukkunatók hann eftir þvíaðáhenni stóð „Sælges ogsá 1-6-1981”. Þótti manninum vera heldur rösklega komið fram yfir þennan dagstimpil. Hann færði okkur því krukkuna. Haft var samband viö Rafn Sverris- son, verslunarstjóra í Vörðufelli. Hann sagðist hafa tekiö við versluninni fyrir rúmlega ári og þyrði ekki að fullyrða um hvort krúsin hefði þá leynst einhvers staðar í hillu. Innflytjandi þessa hnetusmjörs er Faxafell hf. Þar fengust þær upplýsingar að engin sending heföi verið afgreidd í Vörðufell síðan um áramótin 1981—1982. Omögulegt er að segja til um það hvort þessi krús er úr þeirri sendingu eða annarri eldri. Rafni voru fluttar þessar fréttir og hann jafnframt hvattur til að fylgjast betur með því að dagstimplar á þeirri vöru sem hann seldi væru ekki út- runnir. Lofaði hann því. -DS.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.