Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Side 8
8 Útlönd Útlönd Útlönd DV. MÁNUDAGUR 25. APRIL1983. Utlönd TEUA SIG HAFA FUNDIÐ DA GBÆKUR HITLERS — efasemdir um hvort þær séu ófalsaðar Virtur breskur sagnfræðingur, Hugh Trevor-Roper, mun á blaðamanna- fundi í Hamborg í dag reyna að sýna fram á áreiðanleika ritaðra heimiida sem sagðar eru vera leynilegar dag- bækur Adolfs Hitlers, en miklar efa- semdir eru um hvort þær séu ófals- aöar. Utgáfufyrirtæki ,,Times”-blaðanna bresku birti í gær í Lundúnablaðinu Sunday Times fyrstu útdrættina úr dagbókunum, en fyrirtækiö reiðir sig mjög á dóm Trevor-Roper um áreiöan- leika heimildanna. Sagnfræðingurinn er höfundur einnar mest metnu úttektarinnar á síöustu dögum nasistaleiðtogans. Hann segir fréttamönnum að það sé hugsanlegur möguleiki að dagbæk- umarséufalsaðar. „En hefði samt verið feikilega vandasamt verk að falsa þær. Eg hef skoðað rithöndina og tel að hún sé Hitlers sjálfs. Réttast er þó að láta sér- ,Hvenær átti Hitler að hafa stund aflögu til þess að halda dagbók?” spyr herbergisþjónn hans. fræðingunum eftir aö dæma það,” sagðihann. Það var þýska blaðið Stem sem skýrði frá dagbókunum á föstudag en þær era sagöar handskrifaðar í 60 stílabækur. Síðan hafa sprottið upp miklar deilur um það hvort dagbæk- urnar séu ekta eða falsaðar. Fræði- menn hafa skorað á þýsku stjórnina að láta málið til sín taka og fá til banda- ríska, þýska, franska, breska og gyðingasérfræöinga til þess að rann- saka gögnin. Stern sagði aö dagbókunum hefði verið komið fyrir í flugvél sem flogiö hefði frá Berlín á síðustu dögum seinni heimsstyrjaldarinnar. Hún hefði síðan brotlent á svæði sem nú tilheyrir A- Þýskalandi. Tímaritið segist hafa haft upp á dag- bókunum, sem síðast hafi veriö geymdar í svissneskum banka eftir flæking um A-Þýskaland og Suður- Ameríku. — Stern mun birta sína fyrstu útdrætti úr bókunum í dag. Tveir af fyrri samstarfsmönnum Adolfs Hitlers hafa efasemdir um að bækurnar séu ekta. — „Þetta er aðeins ein draugasagan enn, sem viö erum orðin svo vön í gegnum tíðina,” sagði Nikolaus von Below, sem var þjónn Hitlers frá því 1933 til loka styrjaldar- innar. Hann segir aö Hitler hafi oftsinnis ekki gengið til náða fyrr en um þrjú- eða fjögurleytið að nóttu og aö útilokað sé aö hann hafi haft stund aflögu til þess að halda dagbækur. Þýska blaöið Bild Am Sonntag hafði samband við Henry Picker, sem var hraðritari Hitlers, og skrifaði niöur nær allt sem Hitler sagði um tveggja ára bil í stríðinu. Picker segir að ein- hver minningarbrot og persónulegir minnismiöar hafi verið til en hann segist viss um að það hafi allt brunnið í flaki JU352-flugvélarinnar. Bandariskur rithandarsérfræðingur sagði fréttamanni Reuters að hann hefði fengið aö sjá eina síðuna úr dag- bókunum hjá Stem í fyrra og borið hana saman við þekkt sýnishom af rithönd Hitlers. Segist hann viss um að þetta sé skrifað af Hitler sjálfum. Hitler og Eva Braun, en þessi mynd ■^“var tekin á síðustu dögum stríðsins. Dagbækurnar eiga að ná til þess tíma. Kanslarí Austumkis sagði af sér eftir ósigur sósíalista Þrír helstu stjórnmálaflokkar Austurríkis þykja eiga framundan erfiðar og hugsanlega langdregnar viðræöur til myndunar nýrrar ríkis- stjórnar eftir ósigur sósíalista- flokksins í þingkosningunum í gær. Brano Kreisky kanslari (72 ára) sagði af sér eftir aö hafa setið fjögur kjörtímabil eða 13 ár á kanslarastóli. — Kreisky er sá þjóöarleiötogi Evrópu sem lengst hefur setið í forsæti. Undir forystu hans hefur Austurríki einatt gegnt mikilvægu hlutverki í alþjóða- málum, þótt vinsamleg afstaða Kreiskys til kröfu Palestínuaraba um eigið heimaland hafi kallað yfir hann gremjulsraels. Sósíalistaflokkur Kreiskys fékk 90 þingmenn kjörna (af 183) og mun Kreisky hafa forgöngu um fyrstu viöræður flokkanna til stjómar- myndunar. Hinn íhaldssami „alþýðuflokkur” þykir vera sigurvegari kosninganna en hann bætti við sig fjórum þingsætum (upp í 81). Miðflokkurinn fékk 12 þing- sæti. Yfirlýsingar sósíalista þykja ekki benda til þess að sósíalistar og alþýðu- flokkurinn geti starfað saman í ríkis- stjórn. Líklegra þykir að ofan á verði aö sósíalistar og miðflokkurinn taki höndum saman. Alois Mock, leiötogi alþýðuflokksins, hefur þó lýst því yfir að hann telji eölilegast að stærstu flokkamir tveir myndi sam- steypustjóm. — Þriggja flokka stjórn þykir útilokuö. Einn af hverjum þrem er njósnarí —segir forstöðumaður FBI um sovéska og austantjalds- diplómata í Bandaríkjunum Kreisky kanslari. Enn þingkosn- ingaríPortúgal Almennt er því spáð um kosning- amar í Portúgal í dag að þær muni leiöa aftur til valda Mario Soares fyrr- um forsætisráðherra og sósíalista hans til þess að glíma við efnahagsvanda- málin. Hægri flokkar hafa farið með stjórnina síðustu þrjú árin. Þetta eru tíundu kosningamar í Portúgal á níu áram og alls bjóöa fjórtán flokkar fram en venjulega hafa stóra flokkarnir fjórir, sósíalistar, sósíaldemókratar, kristilegir demókratar og kommúnistar, fengið 99% atkvæða og obbann af þing- sætunum 250. Kosningarnar ber upp á afmæli „blómabyltingarinnar” sem leysti fyrir níu áram Portúgal undan hálfrar aldar einræðisstjórn. Hátíðarhöldum hersins í tilefni þess hefur þó verið af- lýst vegna kosninganna. William Webster, forstöðumaður FBI, sagöi í gær aö einn af hverjum þrem sovéskum og austantjalds-dipló- mötum í Bandaríkjunum væri njósnari. I sjónvarpsviðtali í gær sagði Webster að það væru í Bandaríkjunum um 3000 diplómatar frá Sovétríkjunum, austantjaldsríkjunum og Sovétháðum löndum. „Einn af hverjum þrem hefur skyldum að gegna við leyniþjónustuna. 30-40% þeirra eiga hlut að njósnum,” sagði hann. — Bar hann sig upp undan því að alríkislögreglan ætti oröið æ erfiðara með að fylgjast með erlendum diplómötum vegna skorts á rekstrarfé og starfsfólki. Auk venjulegra njcsna um hemaðarleyndarmál sagði Webster Sovétmenn hafa lagt sig meir eftir njósnum um æðri tækni, einkanlega á sviði tölvu- og lasergeislatækni. Eins væri mjög reynt aö komast yfir sýnis- hom af tækjum. „Sovétmenn hafa óskammfeilið reynt með fjármagni að ná tökum á ýmsum félagssamtökum innan kjarn- orkuandstöðunnar i Bandaríkjunum,” William Webster, forstöðumaður FBI. sagði Webster. Hann sagði að engar óyggjandi sannanir lægju fyrir því að þeim heföi tekist það.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.