Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Side 10
10 DV. MÁNUDAGUR 25. APRIL1983. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd PLO GLUTRAÐINIÐUR SKÁSTA TÆKIFÆRINU Innan raða PLO hafa hófsamari öflin, sem stóðu að baki Arafat og viðræðum hans við Hussein lotið ilægra haldi. Á milli línanna í viðbrögðum Isra- els og Sýrlands við synjun Husseins Jórdaníukonungs á beiðninni um að ganga erinda PLO til friöarsamn- inga viö Israel töldu margir sig geta lesið að stjórnir beggja hefðu verið fegnar þeim málalokum en af ólíkum ástæðum. I þeirri togstreitu sem nú á sér stað milli hinna mörgu og margklofnu aðila í deilu Austurlanda nær — eftir að róttækari öflin innan PLO spilltu viöræðum Arafats við Hussein — virðast þó engar horfur á því að komast megi framhjá PLO. Þjóöfrelsishreyfingin nýtur áfram þeirrar lykilaðstöðu aö vera viður- kennd sem einu samtökin er komið geti fram fyrir hönd palestínsku þjóöarinnar, svo dreifð sem hún er á milli hinna ýmsu arabaríkja. Hussein Jórdaníukonungur tók loks eftir langar viðræöur við Arafat, leiðtoga PLO, af skarið og lýsti því yfir að hann tæki ekki frumkvæði til friðarsamninga við Israelsmenn, hvorki á eigin vegum né annarra. — Viðbrögðin voru á ýmsa lund. Sammála aldrei þessu vant Sú nýlunda gerðist að Israel og Sýrland voru sammála. Stjórnir beggja litu svo á að yfirlýsing Huss- eins táknaði endalok friðaráætlunar Ronalds Reagans Bandaríkjafor- seta. Sú áætlun byggöist á því að Palestínuarabar fengju að stofna sjálfstjómarríki á vesturbakka Jórdanárinnar sem er hernuminn af Israelsmönnum. Það ríki skyldi standa í stjórnarsambandi við Jórdaníu. — Forsenda þess var auðvitað samningar milli Palestínu- araba og Jórdaníustjómar og síöan samningar þeirra viö Israela. Reagan Bandarík jaforseti lýsti því samt yfir að hann mundi halda áfram viðleitni sinni til þess að koma á friði í Austurlöndum nær sam- kvæmt sömu hugmyndum og Yasser Arafat lét hafa eftir sér, þegar hann síöar var á ferð í Stokkhólmi, að hann héldi áfram opnum möguleika á nýjum viðræðum við Hussein Jórdaníukonung. Golanhæðir ígleymsku Þótt tsrael og Sýrland hafi þama bæði verið fegin því að viðræður Ara- fats og Husseins, sem hófust í fyrra- haust, fóm út um þúfur voru fagnaðarefni þeirra ólík. Sýrland og fylgismenn þess innan PLO hafa allan tímann gagnrýnt þessar viðræður. I Damaskus kviðu menn því aö öll athyglin mundi beinast að hernámssvæðunum á vesturbakkan- um og í Gaza en Golanhæðir, sem Sýrlendingar misstu í hendur Isra- elum í sex daga stríðinu, mundu gleymast — eða einfaldlega verða fómaö fyrir málamiðlunina. Landnám gyðinga í Gaza og á vesturbakkanum og deilur þar um hafa haldið stöðugt vakandi umræð- um um framtíð þessara landsvæða. I friðarsamningum sínum við Israel hélt Sadat Egyptalandsforseti uppi vangaveltum um hugsanlega stofnun ríkis Palestínuaraba á þessum svæðum. Á meðan hafa Golanhæðir verið utan brennipunktsins og það var ekki fyrr en fyrir hálfu öðru ári að þær komust aftur á dagskrá. Þá sam- þykkti Israelsþing, Knesset, að leiða í gildi ísraelsk lög á Golanhæöum sem jafngilti því aö þær yrðu annexía í ísraelskri lögsögu. Síðan hefur aftur orðið hljótt um Golanhæðir og Sýrlendingar kvíða því að þær lendi alveg út undan í samningum við Israel. Ef samið verður í áföngum, eins og milli Egypta og Israela, þar sem Sinaí var á endanum skilað Egyptum aftur, sjá Sýrlendingar í anda svipaða lausn á deilunni um vesturbakkann og Gaza einhvem tímann í framtíð- inni en þeir mundu lenda á hakanum með Golanhæöir. Bæði kynnu Sýrlendingar að standa eftir nær einir á báti og eins vinnur tíminn gegn þeim. Eftir því sem árin líða svo aö ísraelsmenn hafi Golanhæðir á sínu valdi skapast lengri hefð á yfirráðum þeirra. Halda áfram landnámi Israelsmenn hafa sömuleiðis gagn- rýnt þessar tillögur Reagans allar götur frá því að hann lagði þær fram í haust. Voru þeir fljótir að lýsa því yfir, eftir að tíöindin voru opinberuð í Amman, að þar með væri sú ráðagerðin komin í ruslakörfuna. Shamir, utanríkisráðherra Israels, áréttaði að Israelsmenn óskuðu samninga á grundvelli Camp David- samkomulagsins frá því 1978. Samkvæmt því skyldi samið milli Israels og Egyptalands, Jórdaníu og Palestínuaraba um sjálfstjórnarríki þeirra síðasttöldu á vesturbakkan- um og í Gaza. Shamir áréttaði atriðiö um, ,f ullkomna sjálfsstjóm”. En jafnframt hefur Israel haldið áfram landnámi gyöinga á hemáms- svæðunum, sem þykir ekki beinlínis í anda þeirrar framtíðarsýnar að þessum landshlutum verði skilað. Fremur þykir það í anda þeirrar stefnu þegar gyðingar byggðu aröbum út á fyrstu ámm eftir stríð í Palestínu. Israel hefur óskað samningavið- ræðna án skilyröa en hefur gert það alveg ljóst að PLO komi ekki til greina sem viðræöuaðili. Israelar líta enn á þjóðfrelsishreyfinguna sem samtök hryðjuverkaafla, óal- andi og óferjandi, og útilokar að líta á hana semfulltrúa Palestínuaraba. Leiðistekki óeiningin Nú þykir auðvitað fullkomlega óraunhæft að ætla að Hussein kon- ungur gangist inn á Camp David- skilmálana eftir yfirlýsingu hans á dögunum um að ógjörningur sé að ná einingu um sameiginlegt framtak Jórdaníu og Palestínuaraba til friðarviðræðna. Og á meðan ekki liggja fyrir aðrar leiðir til úrlausnar en tillaga Reagans, sem komin er í strand, verður ástand óbreytt. Greinilega er það ísraelsku stjóm- inni ekki ógeðfellt því að á meðan er haldið áfram landnámi gyðinga á vesturbakkanum. Ef á hinn bóginn Hussein og PLO gætu orðið ásátt um eitthvað sem Bandaríkjastjóm litist vel á ykist þrýstingurinn á Israela. Það vita þeir auðvitað sjálfir og leiðist því ekki þótt upp úr viðræðum hinna hafi slitnað vegna óeiningar. Áfall fyrir hófsamari öflin Yfirlýsingu Husseins bar upp í sömu mund og Issam Sartawi, helsti málsvari hófsamari aflanna innan PLO, var myrtur á alþjóðaráðstefnu jafnaðarmanna í Portúgal. Hvort tveggja var mikiö áfall fyrir friö- samari Palestínuaraba. Áhrifin af niðurstöðu Husseins munu vara lengur með alvarlegri afleiðingum. Einhver öfgafyllstu samtök Pale- stínuaraba, sem fyrir löngu hafa sagt skilið við PLO, lýstu morði Sartawis á hendur sér. Þeir róttækl- ingar standa utan þjóðfrelsishreyf- ingarinnar. En þeir sem spilltu viðræðum Arafats og Husseins eru hins vegar innan vébanda PLO. Þaö eru róttæklingar að vísu líka sem finna sér samfylgd með Sýrlandi. Að þeim skyldi á elleftu stundu takast að koma í veg fyrir samkomulag sýnir svart á hvítu hversu miklu róttækari öflin fá ráðiö þar innan- borðs. Hlutverk PLO Þetta hefur aftur vakið upp efasemdir um skynsemi þess að fela öfgasamtökum umboð til þess aö fjalla um og ákveða örlög heillar þjóðar eöa standa í milliríkjasamn- ingum. En tilraunir til þess aö fá menn til að endurskoöa hlutverk PLO í hugsanlegum friðarviðræðum sýnast í dag ekki líklegar til að valda stakkaskiptum. George Shultz, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, lýsti því áliti sínu á dögunum aö araba- veldin ættu að afturkalla samþykkt sína frá 1974 um að PLO væri eini réttmæti samningsfulltrúinn sem fram gæti komið fyrir hönd Pale- stínuaraba. Þaö framkallaði strax mótmæli hjá sendiherrum aðildar- ríkja Arababandalagsins hjá Sam- einuðu þjóðunum og svo auðvitað talsmaruii PLO. Góð ráð ófinnanleg Til þessa hafa ekki verið margar leiðir sýnilegar til þess aö koma deiluaðilum að samningaborðinu og eftir þessa þróun mála þykir útlitið dökkna til mikilla muna. Menn standa hreinlega uppi úrræðalausir og fallast hendur í bili. Frómt frá sagt var tillaga Reagans, þótt ekki fengi hún miklar undirtektir Israela og Sýrlendinga, eina brúarstæöið sem hugsanlegt þótti að byggja á samningabrú eftir hugmyndum sem Hussein og Arafat höfðu í mótun. Þar var tekið mið af hugmyndinni um sjálfstjórnarríki Palestínuaraba í bandalagi viö Jórdaníu og einnig kröfu araba frá því í fyrra um sjálf- stætt ríki Palestínuaraba með höfuð- borg í Austur-Jerúsalem. Það var auðvitað ekki fyrirsjáan- legt að Israelsmenn mundu sam- þykkja að sleppa hendi aftur af austurhluta Jerúsalem en ef friðar- samningar hefðu verið í boði annars vegar og nógu fast að þeim lagt af aöalbandamanni þeirra, Bandaríkj- unum, jafnframt, þá verður ekki annað séð en þeir væru neyddir til. Þeir eiga sér ekki minnstu viðreisnarvon í stríði við araba ef Bandaríkjamenn eru ekki til þess að ýtaúr vörmeð þeim. Hussein Jórdaniukonungur og Yasser Arafat, leiðtogi PLO, taka höndum saman, en aðeins fyrir Ijós- myndarann. Minna varð úr samstarfinu þegar á reyndi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.