Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Síða 15
DV. MÁNUDAGUR 25. APRIL1983.
15
hagsmuni sem eru ríkjandi þegar
stjórnarskráin er sett.
Löggjafinn og
stjórnarskráin
Þetta felur þaö í sér aö þess er ekki
aö vænta aö hinn almenni löggjafi setji
vænlega (góða) stjómarskrá. Hann á
meðal annars aö taka náiö tillit til
samtímaaðstæöna og tímabundinna
hagsmuna. Ef hinn almenni löggjafi er
kosinn almennri lýðkosningu hlýtur
athygli hans að mótast af þessum
brýnu en hversdagslegu málefnum.
Þaö eru þessi málefni sem líklegust
em til að hafa áhrif á kjósendur. Til að
tryggja sér fylgi hljóta þingmenn því
aö helga sig þessum málum fyrst og
fremst. Hversu mikilvæg og brýn sem
þessi úrlausnarefni kunna að vera þá
eiga þau ekki erindi í mótun stjórnar-
skrárinnar, vegna þess aö þau eru
samtímaleg og tímabundin. Hug-
myndir og hugarfar sem einkum mót-
ast af þessum viöfangsefnum eiga þá
ekki heldur erindi í mótun stjómar-
skrárinnar.
Þaö er enn annað sem veldur því að
hinn almenni löggjafi er ekki líklegur
til aö setja góöa stjómarskrá og aö
hver sú stjórnarskrá sem hann setur
veröur tortryggileg. Löggjafinn á aö
starfa undir ákvæöum stjórnarskrár-
innar og leita samræmis við hana í öll-
um geröum sínum. Af þessum sökum á
hann sjálfur mestra hagsmuna aö
gæta í mótun stjómarskrárinnar.
Hann veröur því, ef hann setur
Um
stjórnskipun
og
stjórnarskrá
stjómarskrána sjálfur, dómari í eigin
sök. Því blasir viö honum sú freisting
að haga stjómarskránni sjálfum sér í
hag, og setja sig, meðlimi sína, hags-
muni sína og hagsmuni þeirra ofar lög-
um og hugmyndum og hugsjónum sem
aö baki þeim búa. Sl£k aöstaða gengur
greinilega gegn hugmyndum manna
um réttarríki.
Þessar almennu athugasemdir
benda þegar á heildargalla á stjómar-
skránni 1944, á breytingunum sem nú
er í ráöi að gera á henni og á aðferðun-
um sem notaðar hafa verið viö aö ná
tillögunum um breytinguna fram. Um
ýmsa þessara ágalla, verður fjaliað
ítarlegar síöar í þessum greinum, en
hér látiö nægja aö drepa aöeins á
nokkur almenn atriöi, sem nánast
tengjast því sem þegar hefur verið
sagt í þessari grein.
Núverandi staða
I fyrsta lagi er stjórnarskráin 1944
ekki virkur heildarrammi um samfé-
lagslíf okkar, bæði vegna þess að
ákvæði hennar viröast ekki skipta máli
og vegna þess að í hana virðist skorta
ákvæði er gætu skipt máli. Mikilsverö-
ustu ágreiningsmál og álitamál í
stjómmálalífl okkar virðast þannig
vera utan ramma stjórnarskrárinnar.
Gleggsta dæmiö um þetta eru bráöa-
birgöalög.
I öðru lagi er stjórnarskráin ekki
nógu föst og stööug eins og gleggst má
sjá af því að í henni eru ákvæöi um bú-
setuskiptingu á landinu. Það er ein-
mitt þessi nákvæmni ákvæða stjórnar-
skrárinnar sem nú er gerö að tilefni til
aö breyta henni.
I þriöja lagi er hvatinn til þess að
breyta stjórnarskránni nú einkum sá
að koma fyrir innan hennar eöa meö
henni nákvæmlega tilteknum og tima-
bundnum hagsmunum; þ.e. hagsmun-
um landshluta og stjómmálaflokka.
Hér eru hagsmunir iíðandi stundar
látnir móta þaö hvernig taka megi
hagsmuni saman í óvissri framtíð.
I fjórða lagi hefur löggjafinn,
mennirnir sem hann skipa og flokkam-
ir sem aö honum standa í tillögum sín-
um um breytingar fyrst og fremst
hugsaö um eigin hag. Þaö sem greini-
lega skiptir mestu máli í umræðum
stjómmálamanna um kjördæmamáliö
er aö þeir og flokkamir vilja tryggja
núverandi aöstööu sína. Meö þessu er
hversdagsleg stjórnbarátta, sem á aö
lúta stjómarskránni, sett ofar henni.
Lýður.
STIGK) í
VITK>
I Nokía stígvélum
er óhætt að bjóða bleytu
og snjó byrgínn.
Nokía stígvél
eru þrælsterk og þolin,
og þau endast
von úr vítí.
Það er því vít í að kaupa
Nokía stígvél.
Handunnin
gæðavara frá Finnlandi
IMOKIA
HHHSK BŒ FlffNSK
VIKA ItF VÓRUKYHHIHC
Í STAÐ STREITUFERÐA:
ÆVINTÝRI OG UNAÐUR
SUÐURLANDA
COSTA DEL SOL
TORREMOLINOS/MARBELLA
Verð frá kr. 12.320,-
Miðjarðarhafsströnd Andalúsiu með besta loftslag álfunnar,
náttúrufegurð sem óviða á sinn lika, bestu hótel Spánar,
ódýrt og fjölbreytt skemmtanalif og verslanir og óteljandi
ferðamöguleika fyrir þá sem vilja kynnast töfrum þessa sól-
bjarta lands. Enginn staður i álfunni tryggir ferðamanninum
betur hinn eftirsótta fagurbrúna hörundslit þvi hér skin sólin
a.m.k. 320 daga ársins.
Brottför:
5. maí — 3 vikur — sérstök greiðslukjör.
26. maí — uppselt.
16. júní — uppselt.
23., 30. júní — laus sæti.
7., 14., 21. júli — laus sæti.
28/7 og 4/8 — fá sæti laus i 3 vikur.
11., 18. ágúst — uppseltí 3 vikur.
25/8, 1/9, 8/9 — laus sæti.
15/9 — 2 vikur — fá sæti laus.
29/9 — 3 vikur — laus sæti.
MALLORCA ‘
PALMA NOVA/MAGALUF
Verðfrákr. 13.100,-
Vinsælustu og bestu baðstrandabæirnir á Mallorca, um 15—
20 km frá höfuðborginni, Palma, á vesturströnd Palmaflóans.
Hér rikir hinn rétti andi til hvildar og hressingar — frjálslegt
andrúmsloft og besta aðstaða til sjó- og sólbaða, fjölbreytt
skemmtanalif, fjöldi verslana og góðra matsölustaða.
Brottför:
3. maí — 3 vikur — sérstök greiðslukjör.
25. mai — 3 vikur — fá sæti laus.
15. júní — 3 vikur — laus sæti.
6., 27. júli — 3 vikur — nokkur sæti laus.
17. ágúst — 3 vikur — örfá sæti laus.
7. sept. — 3 vikur — laus sæti.
GULLNA STRÖNDIN
LIGNANO
SABBIADORO
Verð frá kr. 13.330,- (2 vikur)
Fjölskylduparadís í 10 ár
Fjölskylduparadís í 10 ár
Mjúkur sandur og aðgrunn ströndin i Lignano gera hana
ákjósanlegan leikvöll fyrir unga sem aldna. Glæsilegir gisti-
staðir, frábærir veitingastaðir, úrval verslana sem opnar eru
frameftir öllu kvöldi alla daga vikunnar, framandi og forvitni-
legt þjóðlíf, saga og listir, fjölbreytt úrval kynnisferða.
Brottför:
31. mai.
21. júni.
, 12. og 26. júlí.
2., 9., 16., 23 og 30. ágúst.
Margar ferðir að seljast upp.
PORTÚGAL
ALGARVE
Verð frá kr. 13.890,-
Einn sólríkasti staður Evrópu, mjúkar, hvitar, hreinar strend-
ur, góðir gististaðir i ibúðum eða hóteli, fjölbreytt úrval
veitingahúsa, næturklúbba og diskóteka. Ótrúlega hagstætt
verðlag.
Hýr og glæsilegur áfangastaður Útsýnarfarþega.
Brottför:
18. maí — fyrsta beina leiguflug frá íslandi til 1
Portúgals — örfá sæti laus 8. og 29. júní.
20. júlí.
10. ágúst — uppselt.
31. ágúst — örfá sæti laus.
21. september.
Fleiri ferðir að seljast upp.
A Þeir sem panta og staðfesta fyrir 15. maí geta greitt ferðina \ ák
með 8 mánaðarlegum greiðslum.
Útsýn tryggirþér toppferð með toppafslætti
Austurstræti 17,
sími20100,
Ferðaskrifstofan
ÚTSÝN
Hafnarstræti 98,
Akureyri
simi22911.
SÓLARSJÓÐUR ÚTSYNAR GERIR ÞER FÆRT
AD FERDAST