Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Side 16
16 DV.MANUDAGUR25. APRIL1983. Spurningin Fyndist þér að íslendingar * ættu að taka þátt í [ Eurovision-söngvakeppninni? Slgurður Gunnarsson verslunarstjóri: j Það væri svo sem allt í lagi, ég efast þó um aö við réðum viö aö halda slíka j keppni ef við ynnum. En við eigum marga góða listamenn. Snorri D. Halldórsson verslunarmað- ur: Alveg hiklaust. Það er ekki nokkur 1 vafi að við gætum það. Helgi Jóhannsson iðnrekandi: Ja, við höfum ekki efni á að halda hana hér ef við vinnum hana. Margrét Hilmarsdóttir nemi: Já, mér finnst það. Eg held að íslenskt lag gæti unnið. Ingibjörg Öladóttir húsmóðir: Já, já, við þurfum þá líka að geta haldið hana. ' Það er alls ekki útilokaður möguleiki | að við gætum unnið. Þórhalla Arnardóttir nemi: Mér finnst að við ættum hiklaust að taka þátt í keppninni. Það eru margir góðir söngvarar og tónlistarmenn sem við eigum. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur RAFMAGNSVEITUR R(KISINS Nafnnúmer 7126-4181 Raforkureikningur m 4548 1 e MÆLISNÚMER FYRRI ÁLESTUR SEINNI Alestur NOTKUN Mán./dag. MælisstaSa Mán./dag. Mælisstaða Dagafj. Fj. kwst. 38314370 04/27 86726 10/26 4208 182 17482 MARKAFLSMÆLIR MEÐ 8, 0 KW AFL 288 KWH I 3 DAGA A 24 »20 AUR/KWH TAXTI UPPHÆÐIR I KRÓNUM Notkunarg|ald Fastagjald/Annað 69,70 0,00 51,18 2.633,43 0,00 1.930,74 2.167,83 0,00 1.574,63 749,40 0,00 671,15 1.796,77 -7.763,00 3 DAGAR A 8837 KWH 92 DAGAR A 5859 KWH 61 DAGAR A 2498 KWH 26 DAGaR A VERÐJÖFNUNARGJ. 4.007,00 OG I 92 DAGA 4.928,00 OG I 61 DAGA 6.062,00 OG 1 26 DAGA 6.062,00 OG 803,26 555,00 KR/ARSKW 29,80 AUR/KWH 683,00 KR/ARSKW 37,00 AUR/KWH 840,00 KR/ARSKW 30,00 AUR/KWH 840,00 KR/ARSKW SöLUSKATTUR 993,51 FRADREGNIR AÆTLAÐIR REIKNINGAR FRA FYRRI ALESTRI _____ -—t „Á minu heimili er rafmagn notað til upphitunar og bæði lagður söluskatt ur og verðjöfnunargjald á greiðslu fyrir það," segir bréfritari og sendir okkur Ijósrit af rafmagnsreikningi þvi til sönnunar. iHátt orkuverð á landsbyggðinni: „£r pólitískur W//i til að laga þetta?” —spyr Þuríður Kristjánsdóttir, Búðardal iÞuríður Kristjánsdóttir (9846-1213) Búðardal skrifar: „Eg las í dálkum Velvakanda hinn 27. febrúar sl. að Gísli Jónsson [ prófessor fullyröir að hvorki sölu- .skattur né veröjöfnunargjald komi á ' rafmagn til húshitunar. Þetta eru alveg nýjar fréttir fyrir mig. Á mínu heimili er rafmagn notað til upphit- unar og bæði lagður söluskattur og verðjöfnunargjald á greiðslu fyrir það. Hér með fylgir ljósrit að einum reikn- ingi máli mínu til sönnunar. Að vísu er i ekki sérstakur mælir fyrir hita, en ljóst má vera hverjum sem er að stærstur hluti rafmagnskostnaðar er vegna upphitunar. Og fyrst ég er nú farin að skrifa ykkur vil ég undirstrika þaö óréttlæti sem kemur fram í þessum gjöldum, í stað þess að bæta úr hækka þau kostn- aðinn enn hjá þeim sem mest greiöa. Þegar viö í dreifbýlinu kvörtum yfir því ranglæti sem hiö háa orkuverð er, rísa íbúar Stór-Reykjavíkursvæðis gjarnan til andmæla og eru hræddir við að lagfæring á því myndi bitna á þeim. Því er til að svara aö þaö á ekki að þurfa að bitna á einum frekar en öðrum þó að þetta sé lagfært. Við trúum því einfaldlega ekki að orku- veröið þurfi að vera svona hátt. Við vitum líka vel að verðjöfnunargjaldið er ekki notað (nema brot af því) til að jafna orkukostnað. Gjarnan er sagt við okkur þegar þessi mál ber á góma: „Af hverju flytjið þið bara ekki í bæinn?” Jú, auð- vitað geta bara allir flutt í bæinn, en ætli færi þá ekki að hallast á ýmislegt í þessu landi? Ein ágæt frú hélt því fram að þaö væri nú svo mikill munur hvað auðvelt væri að komast yfir húsnæði úti á landi, bara lúxus hjá unga fólkinu, þetta kostaöi bara ekki neitt. Sem dæmi tók hún ung hjón sem hún þekkti. Þau hefðu selt litla, gamla kjallara- íbúð sem þau áttu í Reykjavík og keypt þetta líka glæsilega einbýlishús í þorpi úti á landi, svo að þetta lá nú alveg ljóst fyrir. Hún varð aftur á móti svolítið klumsa þegar spurt var hvað fólkiö, sem seldi einbýlishúsið, hefði fengið fyrir andvirðið. Jú, litla kjallaraíbúð í Reykjavík. Hver græddi á þessum viðskiptum? Já, það er von að maður spyrji. Enn eitt. Furðulegt er að sjá tilsvör eins og þessi tilsvör Steingríms Her- mannssonar á beinni línu hjá DV. Hvar hefur ráðherrann verið? Hann hefur greinilega ekki búið í kjördæminu sínu. Já, ég er svo sannarlega sammála Steingrími, þetta er „svakalegt og ráð- gáta hvernig á því stendur í raun og veru!” Erí raun nokkur pólitískur vilji til að lagfæra þetta? Væri þá ekki löngu búiðaðþví?” Meö bestu kveðjum. Þuríöur Kristjánsdóttir 9846-1213. „RINGULREIB í SKÓLA- mAlum í KÓPAVOGI” 1—12 nemendur í Víghólaskóla skrifa Kæru lesendur! Við erum nemendur í Víghólaskóla í Kópavogi en hann er skóli fyrir ungl- inga á aldrinum 13—16 ára. Þessi skóli hefur starfað í 20 ár og er orðinn rót- gróinn í bænum. I honum eru um þaö bil 350 nemendur. Nú í vetur hefur ýmislegt verið gert sem ekki hefur áður gerst í skólanum. Meðal annars hefur verið komið á fót möt uneyti og í fyrsta skipti í sögu skólans var haldinn verkefnavika sem tókst geysivel og unnu margir nemendur að því að gera skólann vistlegri meö smíði og sauma- skap. Einnig var loksins hægt að stytta viöverutíma okkar í skólanum og gera hann samfelldan því að þetta er fyrsti veturinn sem skólinn er einsetinn. Við viljum koma því á framfæri að þessi vetur hefur verið mjög góður, t.d. hefur skólinn sjaldan komið eins vel út 'í samræmdu prófunum og einnig öðrum prófum. Nú virðist okkur sem bæjaryfirvöldum finnist orðin einsetinn skóli algjör bannorð, hvort sem skólanum vegnar betur þegar hann er einsetinn eður ei. Þau eru komin meö það á heilann að einsetinn skóli sé skóli sem er ekki fullnýttur og nú ganga okkar háttsettu yfirmenn í bæjarstjórn meö þá flugu í hausnum að það sé góð úrlausn á húsnæöisvanda- málum skólanna hér í Kópavogi (en þau eru í hinum mesta ólestri hér í bæ vegna þess aö Menntaskólinn í .Kópavogi hefur einungis vesældarlegt |þak yfir höfuðið) að leggja niður Iskólann okkar og lofa MK að fá ihúsnæði Víghólaskóla. Okkur, ■nemendum Víghólaskóla, yrði svo dreift á barnaskólana hér í Kópavogi sem yrðu þá aftur tví- og þrísetnir. Við erum á þeirri skoðun að þetta sé engin lausn. Hér er aðeins verið að auka á vandamálið, ekki að leysa þaö. Einnig viljum viö vekja athygli á því að við teljum að bæjarstjórnin viðhafi hér mjög ólýðræðisleg vinnubrögö því að meinið er að hér í Kópavogi vita mjög fáir um þessar fyrirhuguöu framkvæmdir. Það er stutt síðan okkur var sagt frá þessu og sagt að þetta væri í þann veginn að verða samþykkt. Þetta kom því sem reiðarslag yfir okkur og foreldra okkar sem vissu ekkert heldur um þetta mál.1 Við viljum eindregið hvetja alla, hvort sem þeir búa í Kópavogi eða ekki, að tjá sig um málið og veita okkur lið. Þaö er á hreinu að viö munum ekki yfirgefa skólann okkar meö góðu og án þess að leyfa almenn- ingi aö vita hvað er að gerast hér í Kópavogi. Hér eru ýmsir kennarar sem munu jafnvel missa stöður sínar og einnig fjölmargir krakkar sem munu missa vináttusambönd vegna þess aö þeim verður dreift á hina og þessa skóla. Við biöjum þig, sem lest þetta nú, að veita okkur lið í baráttunni gegn myrkraverkum bæjarstjórnar Kópavogs, í baráttunni um líf Víghóla- skóla, með því að tjá þig um málið. Við þökkum blaðinu kærlega fyrir birtinguna. Virðingarfyllst: Magnús Árni Magnússon 8-F Kristján Pétur Vilhelmsson 7-H Gunnar Guömundsson 7-N Flosi Þorgeirsson 8-C Sváfnir Sigurösson 7-E Halldór Gunnarsson 9-B Hjörleifur Finnsson 7-G Guðbjörg Sigurgeirsdóttir 8-D Jón Eyþórsson 9-D örn Árnason 7-F Þórhildur Þórhallsdóttir 8-E Maria Kristín Björnsd. 8-C „Það er á hreinu að við munum ekki yfirgefa skólann okkar með góðu ..." segir m.a. i bréfi 12 nemenda Vighólaskóla i Kópavogi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.