Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Qupperneq 21
DV. MÁNUDAGUR25. APRlL 1983. 21 Vilmundur Gylfason, Bandalagi jafnaðarmanna: „Mikil ánægja og ogaðra.” — Hvaöa flokkar standa ykkur næst? „Það er ekkert hægt að segja um það núna. Forvígismenn annarra framboða hafa ekki rætt um þaö sem við köllum sérstök baráttumál kvenna, ótilneyddir. Þannig að í raun er ekki komin nein reynsla á afstöðu þeirra til baráttumála okkar og því erfitt að svara spumingunni. Skilyrði okkar fyrir stjórnarþátttöku eru aö sérstök baráttumál kvenna fái forgang, að mannleg verðmæti verði tekin með í reikninginn við alla ákvarðanatöku. Viö munum ekki hvika frá stefnu okkar í efnahagsmálum og sama gildir umallaaðramálaflokka.” -ás. Formennirnir samankomnir í útvarpinu i gær þar sem f jallað var um úrslit kosninganna. DV-mynd Bjarnleifur. „Urslit kosninganna eru stórsigur fyrir íslenskar konur og kvennabar- áttu,” sagði Sigríöur Dúna Krist- mundsdóttir, efsti maöur Kvennalist- ans í Reykjavík, er DV bað hana um aö meta úrslit kosninganna. „Ég er geysi- lega ánægð og ekki síst í ljósi þess að við höfðum aðeins örfáar vikur til aö koma sjónarmiðum og baráttumálum okkar á framfæri. Jafnframt verður að taka með í reikninginn að viö höfðum ekkert fjármagn á bak við okkur, enga kosningamaskínu, ekkert málgagn. Viöhöfðum aðeins hugvit okkar og dugnað. — Eruð þið tilbúnar til að taka þátt í ríkisstjóm? „Viö stefnum ekki aö því að komast í stjóm en við erum tilbúnar til að taka þátt í stjórn með þeim sem vilja fallast á okkar stefnumál og eru reiðubúnir til að veita þeim forgang. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að leiðrétta það misrétti sem konur búa við. Á Alþingi munum viö eiga frumkvæði að og fylgja eftir laga- setningu sem stuðlar að raunverulegu jafnrétti og kvenfrelsi. Hagsmunir kvenna snerta öll svið íslensks þjóðlífs og við munum standa vörð um hags- muni og réttindi kvenna á öllum sviðum og hvar sem er. Eg vil nota tækifærið og lýsa ánægju minni meö að hlutur kvenna á Alþingi hefuraukistum200%. Þetta ersannar- lega stór stund í sögu íslenskra kvenna og ég vænti góös samstarfs við konur á Alþingi hvar í f lokki sem þær standa.” — Vilmundur Gylfason sagði í út- varpsumræðum í gær að nýju sam- tökin á þingi ættu að ræða rækilega saman. Eruð þið tilbúnar til aö taka upp samstarf á þingi við Bandalag jafnaðarmanna? „Við munum ræða við Vilmund eins Sigríður Dúna Kristmundsdóttir: „Við höfðum aðeins hugvit okkar og dugnað.” óánægja „Það er í bland mikil óánægja og ánægja meö úrslit þessara kosninga, ég hefði sjálfur óskað eftir stærri sigri,” sagði Vilmundur Gylfason í samtali viö DV í gær. „Við erum í mjög undarlegri stööu, samkvæmt öllum staðreyndum íslenskrar sögu. Við erum að segja nýja hluti, við viljum fara langleið með umsköpun íslensks flokkakerfis og þar er Kvennalistinn á sömu braut. Að ööru leyti kann ég ekki að meta þá stöðusemnúerkomin upp.” Verða tvennar kosningar á þessu ári? „Nei, þær veröa ekki, ég hef enga trú á því. Eg held hins vegar aö þegar flokkarnir byrja aö ræða saman muni áhugi og skilningur vakna á því sem við erum að benda á í stjóm- skipunarmálum. Eg hef áður gengið í gegnum það að fá góðar undirtektir í kosningum, árið 1978. I kjölfar þess varð mér ljóst hve raunverulegar breytingar em vonlausar í flokkunum. Þetta varö til þess að ég, ásamt nokkmm félögum mínum, fór að hugsa mjög alvarlega um gallana í stjóm- kerfinu, ekki hvað síst eftir að Alþýðuflokkurinn var rekinn í ríkis- stjórn þar sem stefna hans náöi ekki fram aö ganga. Á næstu vikum munu menn skoða og pa er pao kovyiio — sjónvarpið sem allir kaupendur ráða við! Vegna margra ára góðrar reynslu, þá bjóðum við 3JA ÁRA ÁBYRGÐ A ÖLLU TÆKINU!! íbland” Vihnundur Gylfason: „Ég hefði sjálfur óskað eftir stærri sigri.” DV-mynd Bjarnleiiur. skilja hvað það er sem Bandalag jafnaðarmanna raunverulega leggur til: að þjóðin fái að kjósa forsætís- ráðherra beinni kosningu. Flokkarnir hafa gífurlegra hagsmuna aö gæta í ríkiskerfinu sem þeir verja meó oddi og egg. Við erum aftur hagsmunalaus, þessir sjö fulltrúar nýrra afla, og rek- um okkur strax á þaö.” Eigið þiö þá samleiö meö Kvenna- listanum að einhverju leyti? „Málefnalega er mikd samstaö með okkur og Kvennalistanum. Ef frá er skUinn stjómkerfisþátturinn, segjum við mjög líka hluti og hann,” sagði Vil- mundur. -pA. GERIÐ VERÐSAMANBURÐ Einkaumboð á íslandi: SJONVARPSMIÐSTÓÐIN SIÐUMULA 2 - SIMI39090 Utsolustaðir: Akranes: Skagaradió — Blönduós: Kaupfélag Húnvetninga Egilsstaðir: Kaupfólag Hóraðsbúa ísafjörður: Póllinn Hvammstangi: Kaupfólag Húnvetninga Keflavik: Radíóvinnustofan — Selfoss: Radióver h/f Vestmannaeyjar: Kjarni Akureyri: Radióvinnustofan Borgarnes: Kaupfólag Borgfirðinga Sauöárkrókur: Radió- og sjónvarpsþjónustan Hella: Mosfell h/f Höfn Hornafirði: a23£SB&&8$§ Railioþjcnustan V&& Stykkishólmur: Húsið Opið laugardaga kl. 10-12. 20" KOLSTER (staðgreiðsluverð) kr. 18.480,- 22" KOLSTER (staðgreiðsluverð) kr. 19.920,- 22" KOLSTER m/fjarstýringu (staðgreiðsluverð) kr. 22.780,- 26" KOLSTER (staðgreiðsluverð) kr. 24.610,- 26" KOLSTER m/fjarstýringu (staðgreiðsluverð) kr. 26.580,- ER KOSTURINN Sigríður Diína Kristmundsdóttir, efsti maður á Kvennalista íReykjavík: „STÓR STUND í SÖGU ÍSLENSKRA KVENNA”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.