Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Side 25
DV. MÁNUDAGUR 25. APRlL 1983.
25
(þróttir
(þróttir
(þróttir
íþróttir
„Óvanir að drekka
eins mikið og við
gerðum í hlaupinu”
— sagði Sigurður P. Sigmundsson úr FH, sem haf naði í 45. sæti
í miklu maraþonhlaupi í Seoul í S-Kóreu
ighlauparinn kunni úr FH.
»raði
Ítalíu
eildarkeppninni
Trevor Francis.
Við vorum óheppnir með það að
eftir miklar rigningar að undanförnu
kom mjög heitur dagur hér í Seoul —
og það einmitt þegar maraþonhlaupið
fór fram. Það var 15 stiga hiti þegar
hlaupið hófst og hitinn var orðinn 25
stig í seinni hluta hlaupsins. Þar sem
við erum mjög óvanir að svo miklum
hita, þurftum við að drekka mikið og
því erum við einnig óvanir. Við þurft-
um að vera að drekka með þetta 3—5
km millibili, sagði Sigurður P. Sig-
mundsson, langhlaupari úr FH í stuttu
spjalii við DV í gærkvöldi en hann og
Sigfús Jónsson, sem varð að hætta
keppni vegna hlaupastings, tóku þátt í
miklu maraþonhlaupi í Seoul í S-Kóreu
ígær.
7.118 hlauparar frá 42 löndum tóku
þátt í hlaupinu, og hafnaöi Siguröur P.
í 45. sæti. Fékk tímann 2:33.24 klst.
— Ég var rúmum sex mín. frá mínu
besta í þessu hlaupi, sem voru 25 km,
sagöi Sigurður. — Ég var á tímanum
2:08.00 eftir 23 km hlaup og Sigfús var
þá búinn aö hlaupa 23 km á 2:09.23, en
hann hætti stuttu seinna keppni vegna
hlaupastings sagöi Siguröur.
Sigurður sagöi að það heföi ekki
náöst neinn sérstakur tími í þessu
mikla maraþonhlaupi og vildi hann
kenna þar hitanum um, sem var óþol-
andi. — Það voru aöeins sex hlauparar
sem hlupu á betri tíma en 2:20.00 en
fyrir hlaupiö voru sextán hlauparar
búnir að hlaupa maraþonhlaup á betri
tíma en 2:15,00, sagöi Sigurður.
Svíi sigurvegari
Þaö var sænski hlauparinn Tommy
Persson sem varö sigurvegari í hlaup-
inu — hann hljóp 25 km á 2:16.01 og í
öðru sæti kom Mexíkaninn Carlos
Victorio á 2:16.42. Megerse Tulu frá
Ethiopíuvarðþrii'ji á 2:17.19 og í fjóröa
sæti kom Ný-Sjálendingurinn Paul
Ballinger á 2:17.52. S-Kóreumaðurinn
Kim Yang-Kon fékk tímann 2:18,20 og
Brasilíumaöurinn Antonio Silveira
fékk tímann 2:19.39.
Tveggja barna móöir frá Belgíu
Magda Hands varö sigurvegari í
kvennahlaupinuá 2:40.55.
Ævintýraferð
— Þetta er búin aö vera mikil ævin-
týraferð sem er búin að standa yfir í
átta daga.Móttökur hafa veriö hér
hreint frábærar og höfum við Sigfús
notið mikillar gestrisni S-Kóreu-
manna, sem borga allan feröakostnað
og uppihald fyrir okkur. — Viö vinnum
báöir við sjávarútveg og höfum við náö
aö kynna okkur ýmislegt í sambandi
viö sjávarútveg og þá heimsótt sjávar-
útvegsráöuneytiö hér í S-Kóreu, sagöi
Siguröur sem kemur heim á
föstudaginn.
-SOS
Sigfús Jónsson.
Keflvíkingar lögðu
Skagamenn
Óli Þdr Magnússon rekinn af leikvelli
Keflvíkingar hafa tekið stefnuna á
sigur í Litlu-bikarkcppninni í knatt-
spyrnu, eftir að þeir unnu sigur, 2:1, á
Skagamönnum í Keflavík á laugardag-
inn. Þá unnu FH-ingar sigur, 3:2, yfir
Breiðabliksmönnum í Hafnarfirði.
Oli Þór Magnússon og Björgvin
Björgvinsson skoruöu mörk
Keflvíkinga en mark Skagamanna var
sjálfsmark Rúnars Georgssonar rétt
fyrir leikslok. Keflvíkingar léku 10
síðustu 15 mín. leiksins þar sem Ola
Þór var vísaö af leikvelli fyrir
mótmæli.
Staðan er nú þessi í Litlu-bikar-
keppninni:
Keflavík
Akranes
FH
Breiöablik
Haukar
3 3 0 0 10-1 6
3 2 0 1 6-2 4
2 10 1 3-5 2
2 0 0 2 2—4 0
2 0 0 2 0-8 0
EMM/-SOS
Martin sigur-
vegari íOsló
Bretinn Eamonn Martin varð sigur-
vegari í 10 km hlaupi í Osló í gær. Hann
hljóp vegalengdina á 28.36,2 mín. Steve
Ovett frá Bretlandi varð annar á
28.54,7 og Daninn Niels Kim Hiorth
varð þriðji á 28.54,8 mín.
ð sig vel
;ex sinnum i keppninni og vann
imm viðureignir. Þær vann hann
illar á „Ippon” sem er fullnaðar-
igur.
Þær íslensku hefðu
átt að vinna banda-
rísku blakstúlkumar
Líklega áttu flestir þeir sem lögðu
leið sína í Hagaskólann í gærkvöldi
von á aö sjá bandarísku blak-
stúlkumar afgreiða íslenska kvenna-
landsliðiö á fljótan og öruggan hátt.
En þar höfðu menn ofmetið þetta úr-
valslið 16—19 ára stúlkna frá
Massachusetts, og kannski vanmetið
þaö íslenska, því þær bandarísku
máttu þakka fyrir aö þaö kom í
þeirra hlut aö ganga af leikveUi sem
sigurvegarar.
Ekki síst þar sem blakíþróttin á
rætur aö rekja til Massachusetts-
fylkis — var þar tU ársins 1895 —,
gerðu menn ráö fyrir aö geysiöflugt
lið væri komið í heimsókn sem léki
blak eitthvað í líkingu viö það
sem kvennaUð á ólympíuleikum
gera. En raunin varö önnur.
Bandaríska úrvalsliöiö reyndist
vera af svipuöum styrkleika og
meðal íslenskt 1. deiidarUð. Því verð-
ur aö teljast slakt af íslenska lands-
liöinu aö leggja þaö ekki aö velU í
gærkvöldi.
Islensku stúlkurnar unnu fyrstu
hrinu 16—14. Þær bandarísku tóku
næstu 15—9 en urðu svo að þola 6—15
tap í þriðju, sem var eina hrinan sem
íslenska liöiö lék skikkanlega.
Amerísku skólastelpumar áttu loka-
orðið. Fjórðu hrinu unnu þær 15—11
og þá fimmtu 15—10. Leikinn höföu
þær þar meö unnið 3—2.
Skortur á samæfingu virtist há
íslensku stúlkunum í jöfnum leik en
ekki beint fjömgum. Auöur Aöal-
steinsdóttir hélt íslenska liðinu
lengst á floti. Þá sýndi Hulda Laxdal
Hauksdóttir nokkur glæsismöss sem
aörir léku ekki eftir. Dómarinn,
Samúel örn Erlingsson, var full
eftirlátur gestunum.
Bandarísku stúlkumar leika
annan leik hér á landi í kvöld. Þær fá
að kljást viö Islands- og bikarmeist-
ara Þróttar í Hagaskóla klukkan 20.
-KMU.
Sigurlás Þorleifsson.
Sigurlás á
skotskónum
Sigurlás Þoricifsson, markaskorarinn
mikli frá Vestmannaeyjum, hefur tekið
skotskóna með sér til Selfoss. Sigurlás
skoraði tvö mörk fyrir Selfyssinga þegar
þeir lögöu Víöi úr Garöi aö velli, 3—2, í
Stóru-bikarkeppninni í Garöi um helgina.
Heimir Bergsson skoraöi þriðja mark
Selfoss. Þeir Guðmundur Jens Knútsson
og Daníel Einarsson skoruðu fyrir Víöi,
en þess má geta aö Guðmundur Guö-
mundsson náði ekki að nýta vítaspymu
sem Víðir fékk í leiknum. -emm/-SOS.
Einartryggði
Fram sigur
Einar Björnsson, hinn efniiegi sóknar-
leikmaður Fram, skoraði tvö mörk fyrir
Framara þegar þeir lögöu Fylki aö velli,
3—1, í Reykjavíkurmótinu í knattspymu í
gær og þar með tryggðu Framarar sér
þrjú stig þar sem aukastig er gefið fyrir aö
skora þrjú mörk í leik. Guðmundur Torfa-
son opnaði leikinn fyrir Fram en Örn
Valdimarsson jafnaöi, 1—1, fyrir Fylki
með skoti úr aukaspyrnu. Einar tryggði
Fram síöan sigurinn í seinni hálfleik með
tveimur mörkum. -SOS.
Þorsteinn
með þrennu
Þorsteinn Sigurðsson, leikmaöurinn
marksækni hjá Vai, dustaöi rykiö af skot-
skónum sínum þegar Valsmenn unnu stór-
sigur, 5:0, yfir Armanni í Reykjavíkur-
mótinu í knattspyrnu. Þorsteinn skoraði
þrjú mörk fyrir Valsmenn og er hann nú
orðinn markhæstur í Reykjavíkurmótinu.
Hin mörk Valsmanna skoruðu þeir Samúel
Grytvik og nýliöinn Jón Grétar Jónsson.
Valsmenn tryggöu sér aukastig meö
þessum fyrsta sigri sínum í mótinu. "SOS
Þorsteinn S. Sigurðsson.
Rix og Withe
íenska lands-
liðshópinn
Bobby Robson, landsliðseinvaldur
Englands, hefur valið tvo nýja leikmenn í
landsliðshóp sinn fyrir landsleik
Englendinga gegn Ungverjum á Wembley
á miövikudaginn í Evrópukeppninni. Það
eru þeir Grahain Rix hjá Arsenal og
gamla kempan Peter Withe hjá Aston
Villa.
-SOS.
róttir
íþróttir
íþrótt
íþróttir