Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Síða 28
28 DV.MÁNUDAGUR25. APRÍL1983. BWBf BJÖRGVIN GISLASON — ÖRUGGLEGA: f TAKT VIÐ TÍMANN Björgin Gíslason gerir það ekki endasleppt. Á dögunum gaf hann út þriðju sólóplötu sína, rúmu ári eftir að sú númer tvö kom. Hét sú Glettur. Nýja platan heitir hins vegar Örugg- lega. Björgvin þarf vart að kynna enda búinn aö standa í eldlínunni hátt á annan áratug. Þegar Glettur komu út haföi liðið nokkur tími síðan Björgvin hafði látið verulega til sín taka. Biöu því margir spenntir eftir því hvaö Björgvin hefði verið að bjástra við. Glettur ollu mér að minnsta kosti nokkrum vonbrigðum. Ekki þar fyrir aö hljóöfæraleikur væri ekki allur upp á hið besta heldur var einhver gamall og hálfúreltur svipur yfir plötunni allri. Hún hefði falliö í kramið fyrst á 8. áratugnum. örugglega er aftur á móti miklu betri plata í alla staði. Lögin eru að vísu nokkuð misjöfn. Að mínu mati skiptir þar nokkuð í tvö horn, annaðhvort verulega athyglisverð og góð lög eða lög sem virka eins og uppfylling. Af þeim fyrrtöldu vil ég sérstaklega nefna Afa, L.M. Ericson og Xylophone. En í síöari hópinn vil ég flokka 1 takt viö tímann, Alþýöu Jón og Tjútt svo einhver séu nefnd. Instru- mentallögin eru fjögur. Af þeim ber Tunglskin í trjánum af. Hin eru þó mjög frambærileg nema Tjúttið sem er hluti af uppfyllingunni. Því er ekki að neita aö enn er dálítið gammeldags svipur yfir tónlistinni þótt ekki sé í nærri sama mæli og var á Glettum. Nú finnst mér þaö bara vera til bóta. Björgvin hefur tekið hljóö- gervla í notkun og beiting þeirra er oft á tíðum mjög skemmtileg. Eins og á Glettum eru þeir Pétur Hjaltested og Ásgeir Oskarsson Björgvin til aöstoðar og Gunnar Smári Helgason við upptökutækin. Allir skila þeir hlutverkum sínum með sóma. Og án þess á neinn sé hallað kemst ég ekki hjá því að minnast á hlut Ásgeirs viö slagverkið. Hann er stórgóður. Ég nefni til dæmis lokakaflann í Hetju- draumar og millikaflann í Alþýðu Jón. Og ekki má gleyma Björk Guð- mundsdóttur sem syngur Afa eins og engill. TextarBjartmarsGuðlaugsson- ar eru smellnir og falla vel að lögum Björgvins. Þegar á heildina er litið er ég á því aö þetta sé eitt það besta sem Björgvin hefur gert. Aö vísu var ég ungur þegar gömlu grúppumar hans vom upp á sitt besta. Björgvin hefur tekist að laga sig að nýjum tímum og stefnum án þess aö missa tengslin við fortíðina. Það er meira en margir aörir hafa gert. Örugglega er ömgglega ömgg fjár- festing. Og að endingu vil ég minnast á umslagið sem er mjög smekklega úr garði gert. Mættu fleiri taka sér það til fyrirmyndar. Heiðurinn af því á Sveinbjöm Gunnarsson og Bjami Jónsson ljósmyndari. -TT. ORCHESTRAL MANOEUVRESIN THE DARK - DAZZLE SHIPS Snoturmyrkraverk Hljómsveitin með langa nafnið hóf opinbera spilamennsku sína árið 1978 á slóöum Bítlanna í Liverpool, en þaðan era aðalmennimir ættaöir, þeir McCluskey og Humphreys. I byrjun var því oft talað um nýja Bítla, mest vegna þess hvaðan þeir komu, en líka vegna þess hve melódísk og léttileg tónlist þeirra oft var. Þó ber OMD samt sterkari keim af öðrum postulum poppsins t.d. Kraftwerkinu þýska og þykir eins og þeim gaman að leika sér að rafmögnuðum gervihljóðum. Tónlist OMD er hins vegar ekki eins kaldranaleg og oft vill verða hjá þessum „tölvuköllum”, hún er oftast blíö og hlýleg og á vel skilið vöm- merkið: nýrómantík. Dazzle Ships er hin f jórða stóra plata. OMD, en næsta plata á undan, Architecture and Morality, var sú fyrsta sem náði umtalsverðum vinsældum. Þessar tvær plötur eru ekki ósvipaöar. Það er sama heildar- myndin á þeim og ég get ekki gert upp á milli þeirra, en báðar þykja mér góðar. Á Dazzle Ships em þó nokkur lög sem gætu náö vinsældum því að þau em grípandi og taktföst, en á milli eru kaflar sem varla geta talist vinsælda- listamatur, em hljóð án laglínu, umhverfishljóö, útvarpsþuliraökynna stöðvar sínar, símaklukkan og fleira, allt uppdubbað og samsett. Textar laganna em stundum merkingarlitlir, en oft er í þeim fínleg gagnrýni á vélmenningu og sálarleysi nútímans. Þar eiga tónarnir einnig sinn þátt. Þessi plata er með þeim betri sem em á þessari „nýrómantísku tölvupopp-línu” og ekki spillir að umslag plötunnar gleöur mjög augað fyrir frumlega og snyrtilega uppsetn- ingu. Ég tók plötuna með mér á manna- mót um daginn og laumaði henni undir nálina þegar lítiö bar á. Þá sögöu félagarmínirm.a. J: ErþettaOMD? S: Þetta laghef égheyrt. K: Mér líst stórvel á þessa plötu. J: Svolítið líkt Prestley, en þeir fá sumt frá Kraftwerk. Á: Þettaerskemmtilegtalbúm. S: Svolítið væmið lag. TOMAS LEDIN — THE HUMAN TOUCH | GÓÐ TILRAUN Tomas Ledin heitir maður og er kynjaður frá Svíþjóð. Hefur Tómas fengist við rokktónlist um alllangt árabil með misjöfnum árangri, en helst hafa sænskir unglingar heillast af verkum hans á tónlistarsviðinu. Vegur Tómasar hefur þó fariö vaxandi hin síöari ár enda hefur hann verið í nánu samkrulli við ÖBBUrnar frægu. Meðal annars hefur hann tvisvar sinnum fetað í fótspor þeirra sem fulltrúi Svía í slagarakeppni evrópskra sjónvarps- stöðva en ekki haft erindi sem erfiöi. En skömm þeim sem gefur sig, nú ætlar Tómas að freista þess að komast inn á alþjóða rokkmarkaðinn og hefur því nýskeð komið út sólóplata þar sem hann syngur ein tíu lög eftir sjálfan sig. Fyrirfram hélt ég að þama væri á ferðinni sami gamli vælukjóinn og sá Tomas Ledin sem ég mundi eftir frá Svíþjóðarárum mínum. En batnandi manni er best aö lifa og það má sannarlega segja um Tómas, því að hann sýnir á sér ýmsar nýjar og betri hliðar á þessari plötu en við var að búast. Vissulega er ekkert nýtt hér á feröinni en allt er þetta mjög vel gert og vinna lögin mjög á eftir því sem oftar er hlustaö. Eitt lagið á plötunni, lagið Never Again, syngur Tómas ásamt ÖBBUnni Agnetu, og hafa eflaust margir heyrt það og séð flutt í Skonrokksþætti hér á dögunum. Þetta lag stingur talsvert í stúf við önnur lög plötunnar því að þama er á ferðinni dæmigerður slagari í anda Evrópu- keppninnar og ÖBBU. Hin lögin eru frekar í ætt við bandarískt popp en þarsem fleirihundruð og fiinmtíu þúsund bandarískir popparar em að gera það sama og Tómas á ég ekki von á að honum takist að slá í gegn þar. Góðtilraunenguaðsíður. -SþS. R: Ég held það vinni of fljótt á og verði leiöigjamt. Á: Er plötuspilarinn bilaöur? ...nei, nei, það var allt í lagi með hann og Dazzle Ships hljómaöi til enda flestumtilánægju. Járn. STYX — KILROY WAS HERE: TILBRIGÐIUM STEF Á ferðalagi erlendis fyrir nokkrum árum vakti það athygli mína að hvar- vetna á almenningssalemum blasti við tilkynningin „Kilroy was here”. Onefndir höfðu párað þetta upp um alla veggi og sérstaklega blasti það viö þegar maður sat á klósettinu og staði á útkrotaða hurðina. Ég hef aldrei komist að því hver þessiKilroyer eða var, ensíðarsannfrétti égaðviövistar- tilkynning þessi er alþjóðleg. Mér datt þetta í hug þegar ég leit nýju plötu Kalíroníudrengjanna Styx fyrst augum. Hún heitir nefnilega Kilroy was here. Þeir eða öllu heldur foringi þeirra, Dennis DeYoung, hafa búið til sögu um rokkarann Kilroy sem vondir menn hnepptu í fangelsi. Vondu mennirnir voru í samtökum sem nefndust The Majority For Musical Morality (MMMJ. Fyrirmyndina er ekki langt að sækja; Morai Majority, fanatískt hreintrúarfólk sem vann það sér meöal annars til ágætis að binda endi á Löðurþættina endalausu. MMM hneppa semsagt Kilroy í f jötra og gera ýmsan annan óskunda. Hins vegar bjargar neðanjaröarhreyfing undir forystu Jonathans nokkurs Chance öllu saman. Og rokkið hefur að lokum yfirhöndina. Eitthvað á þessa leið er Styx. söguþráðurinn. Kilroy was here er ekki bara hljómplata, heldur heil bíó- mynd sem drengirnir leika í og spila músík. Frómt frá sagt efast ég um að bíómyndin veki eftirtekt á borð við marga rokksöngleiki aðra. Eg hef auðvitað ekkert fyrir mér nema tón- listina. Söguþráðurinn er samt smell- inn og alls ekki ólíklegt að gera megi stóra hluti meö myndefnið. Nema þá myndin verði bönnuö! Á KWH em aðeins níu lög sem kann aö vekja nokkra furðu þar sem um heila kvikmynd er að ræða. Mestum vinsældum hefur fyrsta lagið, Mr. Roboto náð enda líklegast til að öðlast einhverja frægð. Mér hefur satt að segja aldrei fallið tónlist Styx vel í geð. Mér hefur þótt þeir fremur væmnir. Og einhvern veginn ansi léttvægir. Hins vegar get ég mun betur sætt mig viö þá heldur en margar amerískar graðhestahljómsveitir aðrar. Þeir eru léttari, hressari og melódískari. Einu er þó ekki hægt að neita að fimmmenningarnir em allir frábærir tónlistarmenn. Hljóðfærin leika i höndum þeirra og útsetningar gera lögin oft á tíöum lífleg og hress. En svo detta þeir alveg niður á milli. Söngur- inn er kannski það væmnasta. Dennis DeYoung reynir alltof mikið að vera „heartbreaker” sem ég efa ekki að takist vestur í Kalífomíu. En ekki hér. Þegar á heildina er litið er Kilroy was here svona rétt tæplega miðlungs- plata — nota bene skv. mínum skala. Þeir sem á annað borð hafa áhuga á Styx verða eflaust ekki sviknir. En þessi sending er í engu frábrugðin þeim sem Styx hafa sent hingaö frá þvi ég heyrði fyrst í þeim. -TT.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.