Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Page 40
40 DV. MÁNUDAGUR 25. APRlL 1983. Andlát______I Ferðalög Óskar Bergsson, áöur til heimilis aö Bókhlöðustíg 6b, Reykjavík, andaöist aö Hrafnistu 20. apríl. Viöar Kristinsson, Greniteig 13 Keflavík, andaöist á barnaspítala Hringsins aöfaranótt 20. apríl. Anna Sigurlaug Einarsdóttir, Langeyrarvegi 7 Hafnarfiröi, lést í Vífilsstaöaspítala 19. þessa mánaöar. Kristin Gísladóttir, Búöargeröi 5 Reykjavík, andaðist miðvikudaginn 20. apríl. Elísabet Karlsdóttir (fædd Pasch) lést í Borgarspítalanum þann 19. apríl sl. Jaröarförin hefur verið ákveöin miðvikudaginn 27. þ.m. kl. 14 frá Ytri- Njarðvíkurkirkju. Olafur Árnason frá Gimli, Grindavík, Skjólbraut 3 Kópavogi, veröur jarösunginn frá Fossvogskapellu mánudaginn 25. apríl kl. 16.30. Guörún Ingibjörg Sigurjónsdóttir frá Siglufiröi veröur jarösungin frá Siglufjarðarkirkju þriöjudaginn 26. aprílkl. 10.30. María Símonardóttir, Sólvallagötu 7a, verður jarösungin frá Fossvogskapellu þriöjudaginn 26. aprílkl. 13.30. Ólöf Jónsdóttir frá Katanesi, til heimilis aö Vallholti 17, Akranesi, lést í sjúkrahúsi Akraness 20. apríl 1983. Hannes Óskar Sampsted, Vífilgötu 7, lést aö morgni 21. apríl á Vífilsstaöa- spítala. Ingvar Magnússon lést á Landakots- spítala aöfaranótt 21. apríl. Jaröaö veröur frá Fossvogskirkju föstudaginn 29. aprílkl. 13.30. Sigríður Magnúsdóttir, áður til heimilis aö Frakkastíg 20, lést á hjúkrunardeild Hrafnistu fimmtudaginn 21. apríl. Jónína Guöjónsdóttir, Njarðargötu 37, lést á Landspítalanum föstudaginn 22. apríl. Páll Pálsson, Drápuhlíö 19, veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 25. anríl kl. 13.30. Ólöf Bjarnadóttir vcrður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 26. apríl kl. 16.30. Ingólfur Arnór Magnússon veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 26. apríl kl. 10.30 f.h. Kveðjuathöfn um Þorkel Guömunds- son kaupmann, Hringbraut 94 Kefla- vík, fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 26. apríl kl. 18 síðdegis. Jaröaö veröur að Fáskrúðarbakka- kirkju miðvikudaginn 27. apríl kl. 14. Bílferö verður frá Hringbraut 94, Keflavík, kl. 8 árdegis og Umferðar- miðstöðinni í Reykjavík kl. 9 sama dag. Einar Jóhannsson, Hrafnistu, sem andaðist 15. þ.m., veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 27. aprílkl. 10.30. árdegis. Jónas Björnsson skipstjóri frá Há- mundarstööum, Vopnafiröi til heimilis aö Hlíöarvegi 5, Kópavogi, andaöist í Landspítalanum 22. apríl. Benedikt Valdimarsson, fyrrv. verslunarstjóri, Gautlandi 13 Reykja- vík, andaöist föstudaginn 22. apríl. TÖIF 12 gjafavöruverslanir á höfuðborgarsvæðinu. TIL DAGLEGRA NOTA Frá Ferðafélagi íslands Miðvikudaginn 27. apríl kl. 20.30 verður kvöld- vaka á vegum Ferðafélagsins á Hótel Heklu, Rauðarárstíg 18. Efni: Jón Jónsson jarðfræðingur: „Litast um á svæði Skaftárelda”, i máli og myndum. Þann 8. júní nk. eru tvö hundruð ár frá því gosið hófst í Lakagígjum. Myndagetraun og verðlaun veitt fyrir rctt- arlausnir. Nýjar bækur Sjónhverfingabók Medúsa hefur gefiö út Sjónhverf- ingabók Daða Guöbjömssonar og Sjóns. Þetta er sjötta ljóöabókin sem kemur út eftir Sjón en áöur hafa komiö út t.d. Hvernig elskarmaöur hendur og Reiöhjól blinda mannsins. Daöi Guö- björnsson hefur um árabil veriö einn af snjallari myndlistarmönnum af yngri kynslóöinni og tekiö þátt í fjölda sýn- inga og bóka. 1 Sjónhverfingabókinni eru ljóð og myndir sem fjalla um erótískar sjónblekkingar og brellur í anda „Kama Sutra” súrrealismans, t.d. er „antílópustellingunni” lýst í fyrsta sinn opinberlega síöan 1936. Bókin er prentuð með rauðu á bleikan pappír í 200 eintökum. Tilkynningar IMeðanjarðarlestin og jass Mánudaginn 25. apríl verður frumflutt á Hótel Borg samtvinnuð leiksýning og jasstónleikar. Þeir sem að sýningu þessari standa eru Alþýðuleikhúsið og Tískuljónin — Quartetto di jazz. Leikritið, sem fiutt verður heitir Neðan- jarðarlestin og er það eftir Imamu Amiri Baraka. Þýðinguna geröi Þorgeir Þorgeirs- son. BELLA Þetta er mjög fallegt en er svart ekki svolítið áberandi? Nauðungaruppboð sem auglýst var í 34., 38. og 43. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982 á fasteign- inni Njarðvíkurbraut 15 Njarðvík, þingl. eign Kristmundar Árnasonar, fer fram á eigninni sjálfri aö kröfu Hafsteins Sigurössonar hrl., inn- heimtumanns ríkissjóös, Jóns Sveinssonar hdl. og Veðdeildar Lands- banka íslands fimmtudaginn 28. apríl 1983 kl. 10.30. Bæjarfógetinn í Njarðvík. Um helgina Um helgina TÖLUR OG AFTUR TÖLUR Það var mikiö um tölur í sjónvarp- inu á laugardaginn. Bandarískur körfuboltaleikur, þar sem stigaf jöld- inn var slíkur aö maður hélt aö slíkt væri ekki mögulegt. Evrópusöngva- keppnin þar semgefin voru stig fyrir hvert lag og svo langt og mikiö kosningasjónvarp þar sem tölur flæddu yfir landsmenn af skerminum. Kosningabaráttunni lauk á föstudagskvöldið meö umræöuþætti þar sem formenn flokka og samtaka sem bjóöa fram í öllum kjördæmum tóku þátt í. Ekki var nú spennan mikil aö mínum dómi. Fjas og karp eins og einkennt hefur kosningabar- áttuna og fegnastur var ég þeirri stund er þættinum lauk. Föstudags- kvikmyndin Skákaö í skjóli nætur var ágætis afþreying, spennandi og ágætlega leikin og þrátt fyrir að mörgu væri ósvaraö í lokin var myndin vel þess viröi aö horft væri á hana. I íþróttaþættinum á laugardaginn var boðið upp á körfuboltaleik sem seint líður úr minni. Liðin voru skipuð bestu kröfuboltamönnum Bandaríkjanna og skiptust í austur og vestur. Þaö var oft á tíðum ótrúlegt aö fylgjast meö tækni þess- ara manna og hittni, enda var stiga- talan hin ótrúlegasta. Söngvakeppni sjónvarpsstööva var nú fyrst sýnd í beinni útsendingu í íslenska sjónvarpinu og er þaö aö sjálfsögöu mikil framför en gæði lag- anna batna ekki viö þaö. Þaö voru tuttugu lönd sem sendu lög ásamt söngvurum til þessarar keppni og voru lögin eins og venjulega hvert ööru leiðinlegra. Sigurlagiö var frá Luxemburg, sungið og samiö af Frökkum og ekki skar þaö sig úr, og búast má viö aö vinsældir láti bíöa eftir sér. Þátturinn stóö í þrjá klukkutíma og var ég löngu orðinn dauðleiður á allri dýröinni. En þó verö ég aö segja það aö það er alltaf spennandi aö fylgjast meö keppni þegar maður veit ekki úrslitin fyrir og því var sjálf stigagjöfin ágætis skemmtun. Kosningasjónvarpinu seinkaði um eina tvo klukkutíma vegna tauga- veiklunar á föstudaginn út af veöri og sýndi sjónvarpiö tvo dag- skrárliði meðan þjóöin beið. Annar var þáttur í þáttaröðinni Þriggja- mannavist, en þaö er virkilega skemmtilegur gamanmyndaflokkur þar sem Lionel Jeffries fer á kostum. Dönsk kvikmynd, Casablancasirkus- inn, var síðan sýnd og var þar um ágæta mynd að ræða, þótt flestir hafi nú verið fegnir þegar hún endaöi og kosningasjónvarpið byrjaöi. Nú, þaö þarf ekki aö fara mörgum orðum um kosningasjónvarpið, þaö heppnaöist ágætlega, og eins og ég bjóst viö var tölvan búin aö ráöa úrslitin löngu áöur en talningu lauk meö litlum frávikum. Inni á milli sýndi sjónvarpiö aö venju skemmti- atriöi. Nú var fariö á Broadway á rokkhátíð og sýnd atriöi úr sýning- unni og einnig voru fengin atriöi aö láni úr kvikmyndinni Meö allt á hreinu. Það er allt gott aö segja um þessi tvö atriði en skemmtilegra væri nú að sjónvarpið sýndi í næstu kosningum eitthvað nýtt en ekki eins og alltaf eitthvaö sem áður hefur veriö gert. Ekki má gleyma eggja- bröndurunum sem sýndir voru um nóttina. Nú húmorinn í þeim var nokkuö sérstakur, hefur sjálfsagt fariö í taugarnar á sumum en skemmt öörum. Eg sjálfur var oröinn dauöleiöur á þeim klukkan fimm um nóttina þegar ég slökkti á mínu tæki. Sunnudagssjónvarpiö var meö venjulegu sniöi. Glugginn, sá ágæti þáttur, kvaddi aö sinni og er vonandi aö hann birtist okkur aftur næsta vetur. Ættaróöaliö hefur falliö fólki mis- jafnlega vel. Allir bjuggust við miklu og hafa sumir oröiö fyrir von- brigðum, aöallega vegna þess hversu rólega þátturinn gengur fyrir sig, en aö mínum dómi er þaö nauösynlegt í söguþræöinum. Textinn er borinn þannig fram aö áhorfandinn veröur aöeins að spá í hann og geta í eyöumar. Frábær framhaldsmyndaflokkur aö mínum dómi þar sem leikaramir eru hver öörum betri. Hilmar Karlsson. Neöanjaröarlestin lýsir blíöum og stríðum fundi svertingja og hvítrar konu í iörum New York-borgar. Höfundurinn Imamu Amiri Baraka er svartur Bandaríkjamaður áður en hann tók sér þetta nafn hét hann Le Roi Jones. Hann fjallar um kynþáttavandamálið af mikilli hörku, enda var hann meölimur Blaek Panther samtakanna. Leikendur í Neðanjarðarlestinni eru tveir, þau Guðrún Gísladóttir og Sigurður Skúlason. Leikmynd gerði Þór Elis Pálsson. Leikstjóri er Lárus Ymir Öskarsson. Jassflokkurinn Tískuljónin er sérstaklega stofnaður fyrir þessa sýningu. Flokkinn skipa Tómas R. Einarsson, Sveinbjörn Baldvins- son, Þorleifur Gíslason og Steingrimur Oli Sigurðsson. Jassinn verður leikinn fyrir, eftir og í sýningunni og geta sýningargestir fengið framreiddar veitingar. Kvenfélag Kópavogs verður með félagsvist þriðjudaginn 26. apríl kl. 20.30 í félagsheimilinu. Allir velkomnir. Nýlega héldu þessar tvær ungu stúlkur, Soffía Lára Hafsteinsdóttir og Elísabet Lára Tryggvadóttir, hluta- veltu og létu ágóðann, kr. 355.- renna í byggingarsjóð krabbameinsfélagsins. Tónleikar kórs tónlistardeildar Oslóarháskóla Kór tónlistardeildar Oslóarháskóla. Tónleika- ferð til Islands í apríl 1983. Kórinn mun halda tónleika á eftirtöldum stöðum: Háteigskirkju í Rvík þriðjudaginn 26.4. kl. 20.30. Skálholtskirkju fimmtud. 28.4. kl. 21. Landakirkju laugard. 30.4. kl. 17. Eldri Verslunarskólanemar bregða á leik Þaö er árviss viðburöur aö gamíir Verslunarskólanemendur minnist skóla síns 30. apríl, eða sem næst þeim degi, en þann dag brautskráði skólinn nemendursína um áratugi. Sú venja hefur skapast að árgangarnir komi saman á hóf nemendasambandsins þá er þeir fagna hálfs eöa heils tugar afmælis frá út- skrift. Oft færa þessir afmælisár- gangar gamla skólanum sínum gjafir og í þessum hófum minnast snjöllustu ræðumenn hvers afmælisárgangs skólans afreksverka sinna árganga og rifja upp gömul glappaskot. Hápunktur hátíöarinnar er svo þegar fulltrúum nemenda, sem eru aö út- skrifastí ár, erfagnað. Þessi nemendasambandshóf Verslunarskóians eru ævinlega hinar fjörugustu skemmtanir. Hófiö í ár veröur í Súlnasal nk. föstudag 29. apríl. Miöar veröa afhentir á skrifstofu VR og er áríöandi að þátttakendur láti þar skrá sig. Stjórnandi kórsins er Knut Nystedt og organisti er Vidar Fredheim. Kórinn hefur á undanförnum árum farið í margar tónleika- ferðir til annarra landa. Afmæli 60 ára er í dag, mánudaginn 25. apríl, Þórir Daníelsson, framkvæmdastjóri. Verkamannasambands Islands. Hann tekur á móti gestum milli kl. 17—19 í dag í húsi rafiðnaðarsambandsins Háaleitisbraut 68. 90 ára er í dag Guðgeir Jónsson, fæddur 25. apríl 1893 aö Digranesi í Seltjarnarneshreppi (nú Kópavogs- kaupstað). Foreldrar hans voru Jón Magnússon og Asbjörg Þorláksdóttir. Guögeir lauk námi frá Félags- bókbandinu í Rvík. 14. jan. 1913 og starfaöi þar frá 1913—18. Hjá Ríkis- prentsmiðjunni Gutenberg vann hann frá 1932-79, þar af verkstjóri í 32 ár. Guðgeir var í stjórn Sjúkrasamlags Rvik., gjaldkeri Bókbindara- félagsins, og starfaöi í Góðtemplara- reglunni í marga áratugi. Guögeir Jónsson tekur á móti gestum í Domus Medica frá kl. 16—18.30 í dag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.