Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1983, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1983, Blaðsíða 2
2 DV. FÖSTUDAGUR1. JOLI1963. Albert Guðmundsson, dagpabbi: Mín fjölskylda vill ekki annað en pítu. Og það er allt 1 lagi, því hún er svo ódýr, þ.e. pítan ekki fjöl- skyldan, og svo saðsöm að 2—3 krakkaormar geta rifið í sig einu og sömu pítuna og orðið saddir af. Guðrún Helgadóttir, vörubflstjóri: Píta er góð að bíta í. Þetta rímar, er það ekki? Kolfinnur Andrésson, þingmannsefni: Ég er ógurlega gráðugur í allt austurlenskt. Sér- staklega er ég gráðugur í pítu! Ég gæti þess vegna slafrað hana í mig með bréfi og öllu saman. Jóhanna Sigurðardóttir, verkstjóri hjá Bifreiðaverkstæðinu: Þessa stundina borða ég ekkert nema pítu. Auðvit- að borða ég líka franskar og svoleiðis. En ég næ því ekki hvað pítan er góð hjá strákunum í Pítunni á Bergþórugötu. íbúar við Kleppsveg hafa trúlega velt því fyrir sér undanfama daga hvað nú standi til að byggja á svæðinu við Holtaveg. Þar hefur verið gert allmikið jarðrask síðustu daga og greinilega framkvæmdir í gangi. En íbú- amir geta enn horft yfir sundin blá, til Esj- unnar og fleiri fagurra staða, því að þama á aðeins að malbika bílastæði. Það er Sam- band íslenskra samvinnufélaga sem fyrir framkvæmdunum stendur. Er fyrirhugað að bílastæðið verði td afnota fyrir þá sem eiga erindi i Sambandshúsið í Holtagörðunum. -JSS/-DV-mynd GVA. Ragnhildur Helgadóttir, sjómaður: Ég get bara ekki, hvernig sem ég reyni, gert upp á milli pítu með fiski og pítu með kjúklingi. „Fyrsta guðlasts- ákæra í sögu lýðveldisins” — segir Úlfar Þormóðsson um kæru ríkissaksóknara á hendur Speglinum „Ríkissaksóknari hefur ekki enn ■sýnt mér þó kurteisi að birta mér kær- tuna.og því get ég næsta lítið um hana sagt,”.sagði Clfar Þormóðsson, útgef- andi Spegilsins í samtali við DV. Ríkissaksóknari hefur sem kunnugt er kært Spegilinn fyrir að draga dár að þjóðkirkjunni, fyrir birtingu klám- mynda og fleira. Ulfar sagöi: ,,Eg hélt að það væri venja að birta mönnum kæru áöur en hún er send til fjölmiöla, en ef til vill er þetta bara húmor ríkis- saksóknara. Samkvæmt þeim úrdrætti sem fjöbniðlar hafa birt úr kærunni ákærir ríkissaksóknari mig fyrir guölast. Mun það vera í fyrsta skipti í sögu lýðveldisins sem það er gert og annað skipti í Islandssögunni. Eg stóö einn að fjármögnun þess tölublaðs Spegilsins sem hald var lagt á og ber því allan f járhagslegan skaða. Eg stefni ótrauður að því að koma út 3. tölublaði í lok næstu viku og vona aö þjóðin taki því vel og flýti sér að ná í eintök á undan Þórði og hans mönnum. Ef sala næsta tölublaös gengur ekki vel verð ég að selja allt mitt, það er alveg ljóst.” -ás. Síðasta umferð skákmótsins í Bela Crkva í Júgóslavíu var tefld í gær. Svo óheppilega vildi til að þeir Jón L. Arna- son og Margeir Pétursson drógust saman og urðu þeir að tefla þrátt fyrir að þeir mótmæltu við skákstjórann. Jón sagöi í samtali að skákinni hefði lyktað með „stórmeistarajafntefli”, einsog viðværiaðbúast. Hlutu þeir Margeir því 9 1/2 vinning samtals og uröu í 3.-7. sæti á mótinu. Sigurvegari varö Júgóslavinn Mart- inovic með 101/2 vinning en hann vann biðskák í gærmorgun og gerði síðan jafntefli við Murshed frá Bangladesh í siöustu umferðinni. Murshed þessi varð annar með 10 vinninga. Hinir Islendingarnir þeir Jóhann Hjartarson, Elvar Guðmundsson og Karl Þorsteins gerðu allir jafntefli í sínum skákum í gær og hlaut því Karl 8 vinninga á mótinu og þeir Jóhann og Elvar 7 vinninga hvor. Jón L. Ámason heldur nú á mót í Belgrad sem hefst á morgun og stendur til 18. júlí. Mót þetta er ívið sterkara en mótið í Bela Crkva. Þátt- takendur eru 24 og tefla þeir í fyrstu í þremur riðlum, átta í hverjum. Þannig verða sjö umferðir tefldar en síðan sex umferðir í opnum flokki, alls 13 um- ferðir. Vegfarendur á Breiðholtsbraut hafa undan- farið veitt athygli þessum torfustöflum vinstra megin brautarinnar. Þarna á að planta í trjábeð og eru þau hugsuð bæði sem fegurðarauki og snjóvöm. Skógræktarfélag Reykjavíkur hefur umsjón með gróðursetn- ingunni. pá/DV-mynd: EÖ. Hver er þinn uppáhalds- matur? Ólafur Jóhannesson skag- fírskur sælkeri: Píta með buffi og frönsk- um. Láttu mig líka fá kokkteilsósu með. — ætlar að reisa lítið verslunarhús á Fjarðarsvæðinu ef leyfi fæst Starfsmenn Kaupfélags Isfirðinga hafa undanfarið unnið kappsamlega aö því að flytja vörur og tæki úr vöru- markaðinum á Fjarðarsvæðinu á Isa- firði. Eins og kunnugt er gengu kaupin á vörumarkaði Ljónsins frá i haust til baka og var kaupfélaginu gert að yfir- gefa húsið nú um mánaöamótin. Sverrir Bergman kaupfélagsstjóri sagði í samtali við DV í gær aö kaupfé- lagið hefði sótt um til bæjaryfirvalda á Isafirði að opna litla verslun á Fjarð- arsvæðinu. Væri ætlunin að leysa vandamál hverfisins þar meö þvi að fá lóð og reisa á henni 100—120 m* hús úr steyptum einingum. Þetta myndi einnig létta mjög á búöunum inni i bænum. Síðan væri stefnan að byrja á byggingu 1000—1300 m2 vörumarkaðar strax næsta vor á lóð sem kaupfélagið á nærri miðbænum. -JBH. Saga Kaupfélags Isfirðinga i vöru- markaðl Ljónsins varð ekki löng. Hús- næðið var keypt i október 1982. 1 vetur gengu þau kaup til baka og nú er öllu lokið. Þegar þessi mynd var tekin i fyrradag voru kaupfélagsmenn að ljúka við flutning úr húsinu. DV-mynd: Valur Jónatansson. Skákmótið í Bela Crkva: JónL ogMargeir enduðu í3.-7. sæti ísafjörður: KAUPFELAGIÐ FLYTUR UR VÖRUMA RKA ÐINUM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.