Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1983, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1983, Blaðsíða 12
12 DV. FÖSTUDAGUR1. JUU1983. DAGBLAÐIÐ-VÍSIR Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustióri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóriogútgáfustjóri: HÖROUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. AOstoöarritstjóri: HAUKUR HELGASON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: Síöumúla 12—14. Sími 86611. Auglýsingar: Síöumúla 33. Sími 27022. Afgrciösla, áskriftir, smáauglýsingar,skrifstofa: ÞVERHOLTI ll.SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 86611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF., SÍOUMÚLA 12. Prentun: ÁRVAKUR HF„ SKEIFUNNI 19. Áskriftarverö á mánuði 230 kr. Verð í lausasölu 20 kr. Helgarblaö 22 kr. Skammhlaup ríkissaksóknara Þjóðkirkjan hefur formlega neitað allri aðild og ábyrgð á skammhlaupi því, sem varð í embætti ríkissaksóknara, er hann höfðaði opinbert mál á hendur gamanblaðinu Speglinum fyrir meint guðlast, klám og ýmislegt fleira. Þjóðkirkjunni er vel kunnugt um, að veraldleg vanda- mál fylgja fermingum. Frammámenn hennar hafa sjálfir kvartað um, að fermingar séu gerðar að féþúfu unglinga. Þeim kemur því ekki á óvart, að grín sé gert að fermingum. Þjóðkirkjan er auðvitað betur fær en ríkissaksóknari um að meta, hvort dregið hafi verið dár að trúarkenn- ingum hennar og guðsdýrkun. Og hún hefur réttilega komizt að þeirri niðurstöðu, að svo hafi ekki verið. Enginn stjómmálamanna landsins hefur tjáð sig á þann veg, að hann telji sér hafa verið minnkun gerð með klámi eða á annan hátt í því tölublaði Spegilsins, sem olli hinu furðulega skammhlaupi í embætti ríkissaksóknara. 1 áratuga langri sögu Spegilsins hafa stjórnmálamenn ekki frekar en aðrir vanið sig á að gera veður út af inni- haldi tímaritsins. Þeir hafa talið gamanmál þess vera eðlilegan eða að minnsta kosti þolanlegan þátt þjóð- lífsins. Hlægilegastur hefur ríkissaksóknari orðið af þeim þætti málshöfðunarinnar, sem snýr að meintu klámi. Samtök kvenna hafa nefnilega tekið saman stóran bunka inn- lendra og erlendra tímarita með mun hrikalegra klámi. Af þeim bunka má sjá, að ríkissaksóknari heldur verndarhendi yfir sölu á hinu ógeðslegasta klámi í annarri hverri sjoppu landsins. Hans er ábyrgðin á því klámi, af því að hann hirðir ekki um að hafa hemilinn, sem honum ber. Aðgerðaleysi ríkissaksóknara gegn klámritum hefur verið skýrt með því, að almenningsálitið telji ástæðulaust að elta sérstaklega ólar við klám í þjóðfélagi, þar sem kynferðismál eru að hætta að vera feimnismál. Árum saman hafa ráðamenn og almenningur látiö klámritin í friði. Kvartanir hafa verið fáséðar og vægar. Ríkissaksóknari hefur með aðgerðaleysinu verið talinn taka tillit til almenningsálitsins fram yfir bókstafinn. Svo verður skyndilega það skammhlaup, að ríkissak- sóknari fer að fetta fingur út í meinleysislegt klám í gamanstíl, sem stingur í stúf við ógeðslegt og alvörugefið klám, er þessi embættismaður hefur hingað til vemdað. öll meðferð ríkissaksóknara á Spegilsmálinu er hreint og tært rugl. Hún hlýtur að vekja umhugsun um, að nauð- synlegt kunni að verða að búa svo um hnútana, að ekki sé frekari hætta á skammhlaupi í hinu valdamikla embætti. Ef dómstólar vísa ruglinu út í yztu myrkur, svo sem réttmætt er, má telja líklegt, að ríkissaksóknari hafi bakað ríkissjóði og skattgreiðendum fjárhagstjón með afbrigðilegum skoðunum á trúmálum, klámi og ýmsu fleiru. Ríkissaksóknari tók sér heilan mánuð til að grafa upp kæruatriði út af því tölublaði Spegilsins, sem hann lét gera upptækt í maílok. Hann hefur haft nógan tíma til að láta þjóðkirkjumenn, stjómmálamenn og siðferðismenn hafa vit fyrir sér. Af ákærunni er ljóst, að þetta hefur ríkissaksóknara ekki tekizt. Hann situr því uppi sem dæmigert Spegils- efni, aðhlátursefni almennings. En í alvörunni eiga ekki að geta gerzt skammhlaup af þessu tagi. Jónas Kristjánsson Eru ekki til úrvals- rít fyrír böm? I þinglok vorið 1981 samþykkti Alþingi að stofna skyldi sjóð til þýð- inga á eriendum bókmenntum. Sam- kvæmt lögunum á sjóðurinn að n jóta tekna úr ríkissjóði samkvæmt fjár- lögum ár hvert og framlag má ekki vera lægra en kr. 500.000 miðað við verðlag ársins 1981. Þessi sjóður er mjög athyglisvert framlag og ætti að geta tryggt útgáfu erlendra bóka á íslensku sem annars yrðu ekki gefn- ar út. Það er skilyrði af hálfu lögg jaf- ans, að um sé aö ræða vandaðar er- lendarbókmenntir. Það má segja, að töluverð eftir- vænting hafi ríkt er upplýst var hvaða rit myndu njóta slíks styrks er úthlutun fór fram í vor í fyrsta sinn. Þá var úthlutað rúmlega 1,1 milljón króna. Þar kenndi ýmissa grasa og þau verk sem styrks njóta eru öil góðra gjalda verð. En okkur sem höfum látiö okkur útgáfu barnabók- mennta nokkru skipta var þessi út- hlutun mikill vonbrigðavaldur. Nefiidin sem að úthlutun stóð veitti aðeins einnl barna- og unglingabók styrk. Þykir mér þar svo sannarlega skjóta skökku við. Það hyggst ég rökstyðja nánar. Islenskir bókaútgefendur hafa á siðustu árum kvartað mikið undan því að lágt verð á bama- og unglinga- bókum, en hlutfallslega hár útgáfu- kostnaður standi í vegi fyrir því að margar vandaðar erlendar bama- og unglingabækur séu þýddar á is- lensku og gefnar út. Framboðiö á góðum bókum erlendis er mikið og því um margt að velja, sem gæti aukið gæði útgáfunnar hér á landi. Þeim mun frekar er ástæða til að styðja við bakið á útgáfu barna- og unglingabóka aö skipulega er unniö að því að reyna að telja íslenskum unglingum trú um að bókin sé á und- anhaldi og í hennar staö komi „video”, tölvuspil og svokallaöir spilakassar. Ég er ekki tilbúinn til að fordæma þau fyrirbæri alfarið. Þeir em áreiðanlega margir sem geta haft ánægju og jafnvel lifsfyllingu af slíkum tólum. En þeir em fleiri, sem Kjallarinn SigurðurHelgason Og þá er ekki úr vegi aö gera sér aðeins grein fyrir því hvaöa aðiiar í íslensku þjóðfélagi leggja eitthvað af mörkum i þágu bamabókaútgáfu. Það er fljótupptalið. Fræðsluráð Reykjavíkur hefur um árabil veitt bestu frumsömdu og bestu þýddu barnabókinni á íslensku verðlaun ár hvert. Það er eina hvatningin sem þeir aðilar er við þessa iðju fást njóta. Og hún er svo sannarlega þakkarverð. En væri úr vegi að gera eitthvert átak í þessum efnum? Spumingin er sú, hvort þeir aðilar sem gefa út bækur á Islandi stefni skipulega að því að gera útaf við bókaútgáfu í landinu. Hvort þeir telji markaðinn fyrir barnabækur ekki þess verðan að sinna honum og reyna að bæta hann frekar en hitt? áBfc „Framboðið á góðum bókum erlendis er ^ mikið og því um margt að velja, sem gæti aukið gæði útgáfunnar hér á landi.” myndu ef kostur væri frekar lesa góðar bækur heldur en horfa á video. Dapurlega lítill hlutur Það er menntamálaráðuneytið sem stýrir þýðingarsjóði þeim sem fyrr er um getiö. Það er umhugsun- arvert hversu „glæsilegur” hlutur þeirra stofnunar er varöandi upp- byggingu bamabókaútgáfu á Islandi. Hlutur þeirrar stofnunar sem ber ábyrgð á menntun þjóðar- innar og ætti að ganga fram fyrir skjöldu er svo dapurlega lítill, ef hann er þá einhver, að við liggur aö tárum taki. Og þá er þáttur þeirrar stofnunar í uppbyggingu bókasafna á Islandi ekki ýkja stór og langt frá því að vera samboðinn „bókaþjóð- inni”. En þaö heiti nota ráðherrar og ráðamenn viö hátiöleg tækifæri, en raunveruleikinn er með öömm og óglæstari hætti. Hann er til skamm- ar. Það liggur alveg í augum uppi aö til þess að fólk lesi bækur um alla fram- tíð þá þarf að gera ráð fyrir að böm og unglingar haldi áfram þeirri iðju. Annars líður að því að „neytendum- ir” verði ekki lengur fyrir hendi. Og hvað erþá til ráða? Atján þúsundirnar sem mennta- málaráðuneytið sá ástæðu til að veita bömum og unglingum þessa lands til að tryggja þeim erlendar úr- valsbókmenntir eru í rauninni hrein móðgun við þann stóra hóp þeirra er lesa bækur reglulega. Þær era um 1 1/2% þeirrar fjárhæðar sem veitt var úr þýðingarsjóðnum og það sjó allir þeir sem þetta lesa, að hlutfallið milli fjölda lesenda í yngstu aldurs- fiokkunum og fjárhæðarinnar sem bækur við þeirra hæfi fá er algjör- lega fóránlegt. Og svo sannarlega vona ég að þetta gerist ekki aftur. Sigurður Helgason bókavörður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.