Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1983, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1983, Side 15
DV. FÖSTUDAGUR 29. JULI1983. 15 hádegisverð en minnst í kvöldverð. Einnig eru minni líkur á að fæðan safnist í fitu yfir daginn þegar maður er önnum kafinn heldur en á kvöldin þegar maður fer aö slaka á og leggj- ast til svefns. Þreyta að kvöldi hefur einnig þau áhrif að maður freistast meira til að fá sér aukabita. Þess vegna hætti ég viö kvöldverðinn sem aðalmáltíð dagsins. Með því að borða ' minna á kvöldin finn ég aö auðveld- ara er að vinna á kvöldin eða stunda einhverja heilsurækt. Ef ég þarf að sleppa úr máltíð þá kýs ég að sleppa kvöldverði fremur en morgunverði eða miðdegisverði. Aö borða leifar var eitt af vanda- málum mínum. Eg hafði verið alin upp við það að syndsamlegt væri aö leifa mat því að svo margir liðu skort í heiminum. Maðurinn minn var einnig alinn upp við þetta sama sjón- armið. I staðinn fyrir að borða allt sem við höfðum eldað eins og áður þá söfnuöum við afgöngunum saman í sérstakar umbúðir, settum þá síðan í frystikistuna og eftir nokkra daga var nóg til að búa til rétti eins og „omelettu” og nota með því græn- meti og krydd. Þetta er aðeins eitt ráð af mörgum sem nota má til að draga úr neysluvenjum sem eru fit- andi. Dr. Henry Jordan, höfundur bókarinnar Eating is okay, og aðrir sem hafa gefið þessum málum gaum leggja einnig áherslu á eftirfarandi: Borðaðu hægar. Settu minna á gaffalinn og skeiðina og tyggðu leng- ur en þú ert vanur. . . Ef þú hefur fé- lagsskap viö matborðið skaltu tala við félagana en aldrei með fullan munninn. Skammtaðu þér matinn á minni disk. Minni skammtar sýnast þannig stærri og þú munt ekki fá á tilfinninguna að þú hafir ekki fengið nóg. Ef þú ert enn svangur eftir fyrsta skammtinn skaltu bíða með aö fá þér þann næsta í ca 20 mín eða jafnlangan tíma og það tekur heilann að fá merki um það hvort þú sért svangur eða ekki. Reyndu að borða allar máltíöir á aöeins einum eða tveim stöðum í hús- inu, eldhúsinu eða boröstofunni. Þetta hjálpar til að fækka þeim stöð- um sem þú getur sett í samband við mat. Sértu vanur að fá þér í svanginn á milli mála meðan þú ert að aöhafast eitthvað skaltu breyta út af venj- unni. Til dæmis er gott ráð að fara út að ganga í staðinn fyrir að setjast fyrir framan sjónvarpiö með fulla skálaf sælgæti. Verslaðu ekki í matvörubúðinni þegar þú ert svangur. Gerir þú það er líklegra að þú kaupir meira af fit- andi mat. Einnig skaltu gera inn- kaupalistann þegar þú ert búinn að borða. Skipuleggðu geymsluna í ísskápn- um þannig aö þegar hann er opnaöur blasi ekki við eitthvaö sem kemur bragölaukunumaf staö. Á máltíðum skaltu fyrst borða það semþérfinnstbest. Skildu ekki eftir mat eða annað þar sem hann blasir við þér. Jafnvel sultukrukka á eldhúsborðinu gæti freistað þín. Vertu sem minnst í eldhúsinu nema á matmálstímum. Eldhúsið ætti eingöngu að vera staður þar sem matur er búinn til og borðaður. Vertu ófeiminn við að leifa mat. Gerðu sjálfan þig ekki aö lifandi öskutunnu. Hvers virði eru líkamsæf- ingar og þjálfun? 1 allri viðleitni til að öðlast stjóm á fæðuneyslu sinni og þyngd má maður ekki gleyma hinni hlið jöfnunnar, þ.e.a.s. brennslu fæðunnar. Erns og áður hefur verið minnst á í grein þessari verður það sem borðað er, mælt í hitaeiningum, að vera jafn- mikið og brennslan i hitaeiningum til að eðlileg þyngd haldist. Því meira sem þú hreyfir þig þeim mun meira þarftu að boröa til aö halda eðlilegri þyngd. Þannig getur farið að þig vanti beinlinis mat til aö fullnægja orkuþörfinni. Af því sérðu að hreyf- ingin gegnir gífurlega mikilvægu hlutverki og getur þú á sama hátt haldið dagbók yfir hversu mikið þú hreyfir þig á dag, á viku eða í tvær vikur. Dagbókin ætti að lýsa hvað þú hreyfðir þig, hve mikið eða í hve langan tíma, t.d. hvort þú gekkst, skokkaöir eða hjólaðir út í búð 1 1/2 kílómetra, tókst lyftu eða gekkst upp á 3ju hæð og hvort þú barst inn- kaupapoka. Einnig skal nefna þar ósköp hversdagsleg heimilisstörf eins og þaö að hengja upp þvott eöa setja í þurrkarann. Þú þarft ekki að verða að einhverjum „sportidíót” þó að þú aukir hreyfingu þína verulega og mundu að margt smátt gerir eitt stórt. Skildu bílinn oftar eftir þegar þú ferð út í búð. Hættu að taka lyftur og leggðu á þig aö ganga. Sem sagt vertu skynsamur og leggöu inn á hreyfingarbankann. Þú þarft ekki að fara lengra en í sundlaugarnar til aö sjá hvernig hreyfingarleysiö og fitan hefur gert fólk á besta aldri beinlinis ljótt. Fólk missir m.a. fallegar mitt- islínur á besta aldri og verður gam- altá skrokkinn. Þó að ég eigi alltaf ákaflega ann- ríkt þá hef ég ekki orðiö vör við að það að grípa hvert tækifæri til að hreyfa mig, ganga í staðinn fyrir að aka, hengja upp þvottinn, ganga upp stiga en taka ekki lyftur o.s.frv. hafi nein áhrif í þá átt að ég hafi minni tíma aflögu fyrir sjálfa mig. Ef eitt- hvað er þá hef ég haft mjög gntt af þessu líkamlega og er á allan hátt röskari og vinnst allt mikið auðveld- ar. Því meira sem ég hugsa um lík- amann og hreyfi mig þeim mun bet- ur líður mér og þarf minna að sofa. 1 staöinn fyrir aö ég þurfi 8 stundir áður fýrr þá þarf ég ekki að sofa nema 6 klst.núna og er þá alveg út- sofin. Meðan aðrir sofa fer ég út að skokka eða hlaupa. Nokkur góð ráð til að hafa í huga: Þó að þú farir yfir markið í byrjun skaltu ekki láta það verða afsökun fyrir aö hætta við allt saman og fara í sama fariö aftur. Þú ættir ekki aö skipuleggja neysluna svo stíft aö þú hafir ekki efni á því að fara yfir markiö einstöku sinnum. Byrjaðu ekki á þessum grennandi lifnaðarháttum rétt fyrir sumarfrí eða jól þar sem þú veist að þá er sér- staklega erfitt að byrja að borða minna. Þú skalt ekki vigta þig oftar en einu sinni á tveggja vikna fresti. Að léttast tekur tíma og mögulegt er að þér fallist hendur ef þú sérð ekki dag- legan mun á þyngdinni. Þegar þú hefur náð þeirri þyngd sem þú sættir þig við skaltu vigta þig einu sinni í viku og það mun næg ja til að þú hald- ir þér í sömu þyngd. Strax og þú sérö að þú ert farinn að þyngjast aftur skaltu losa þig við það áður en þaö safnast saman. Minnkaðu neyslu á salti sem held- ur vatni í líkamanum og hindrar upp- lausn á fituvefnum. Neyttu sem minnst af drykkjum sem innihalda koffein, svo sem tei, kaffi og kóladrykkjum. Koffeinið örvar matarlystina. Drekktu glas af vatni fyrir mat og dreyptu á vatni og öðrum sykur- snauðum drykkjum milli mála. Það er mettandi án þess aö fylla mann af hitaeiningum. Byrjaöu máltíðir með heitri súpu. Súpuna verður maður að borða hægt og hún fyllir vel og kemur í veg fyrir að þú belgir þig út af aðalréttinum á eftir. Reyndu að taka eftir og lesa vöru- merkingar sem upplýsa um hitaein- ingafjölda. Þannig lærirðu smátt og smátt að þekkja þær fæðutegundir sem eru mjög hitaeiningaríkar. Munur á hitaeiningum í mjólk og léttmjólk getur numið allt að 100 hitaeiningiun i hverjum skammti. Á einum degi geta hitaeiningarnar sem maður forðast með þvi að nota létt- mjólk í staðinn fyrir fituríkari mjólk- urafurðir numið nokkur hundruð hitaeiningum. I flestum mataruppskriftum er mælt með miklu meiri fitu, við t.d. steikingu heldur en nauðsynlegt er til að matbúa. Reyndu að nota helming- inn af þvi sem uppskriftin gerir ráð fyrir og ef það reynist í lagi þá skaltu minnka skammtinn ennþá meira. ástæðum. Eg byrjaöi á því aö þjálfa mig í því að verða svöng þegar ég átti aö vera það, sem sagt á matar- tímum. I fyrsta sinn síðan ég var stelpa borðaði ég þrjá máltíðir daglega: áöur hafði verið algengt, og þá oftast mjög fitandi snarl. Þetta reyndist mér svo vel að ég hef lagt mjög mikið upp úr regluleg- um máltíðum, sérstaklega morgun- verði sem að mínu mati er undir- súkkulaði, kók og fleira fitandi og óhollt, eins og ég reyndar var vön áð- ur. Það var talsvert átak fyrir mig í upphafi að venja mig á að borða þeg- ar ég var svöng eða á matartímum. Annað atriði í þessari skipulagn- morgunverð, hádegisverð og kvöld- verð. Ef ég var ekkert sérstaklega svöng á máltíðum borðaði ég minna en boröaöi alltaf holla fæöu. Þessi regla minnkaði löngun mína til að fá mér í svanginn á milli mála, sem stööumáltíð dagsins. Ef ég veit ekki fyrir víst hvort ég kemst í mat er ég fer í vinnuna tek ég alltaf með mér nesti, svo sem jógúrt, ávexti og fleira sem er nærandi. Þetta kemur í veg fyrir að ég freistist til að fá mér ingu minni var að leggja mismun- andi áherslu á hinar ýmsu máltíðar dagsins. Ég er morgunmanneskja eins og kallað er og nota mikla orku fyrri hluta dags. Því var eðlilegast að ég borðaöi mest í morgunverð og

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.