Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1983, Blaðsíða 19
DV. FÖSTUDAGUR 29. JULl 1983.
19
Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir
Gene
Hackman
Hann hefur leikid í yfir 40
myndum og hef ur afneitad
stórum hl utverkuin
í myndum eins og
APOCALYPSE NOW og
ORDINARY PEOPLE. Samt
sem ádur hef ur gengið
á ýmsu á leikaraf erli
Haekmans þar sem skipst
haf a á skin og skárir
Þaö eru fáir sem ekki kannast við
nafniö Gene Hackman. Þessi 53 ára
bandaríski leikari hefur leikiö í
fjölda mynda síðan hann kom fyrst
fram á hvíta tjaldinu í myndinni
Lilith áriö 1964. Hann sló þó ekki
verulega í gegn fyrr en áriö 1967 þeg-
ar hann lék í myndinni Bonnie and
Clyde sem kempan Arthur Penn leik-
stýrði. Þar lék hann m.a. á móti
Warren Beatty og Faye Dunaway.
Tveimur árum síöar. hlaut Hack-
man mjög góöa dóma fyrir leik sinn í
myndinni I Never Sang For My
Father. Myndin, sem byggð var á
samnefndu leikriti Robert Anderson,
fjallaði um uppkominn mann (sem
var leikinn af Hackman) er sá há-
öldruðum föður sínum farboröa.
Skapaði þetta oft á tíðum vandamál
fyrir soninn ekki síst hvað varðaði
samskipti hans viö annað f ólk.
Sú mynd með Gene Hackman sem
reglulega sló í gegn og flestir muna
líklega eftir var THE FRENCH
CONNECTION. Hún var gerð 1971
undir leikstjóm WiUiam Friedkin og
fjaUaði um alþjóðlegan eiturlyfja-
smygUiring með aösetur í New York
og þrjóskan leynUögreglumann sem
tókst að rjúfa hringinn. Auðvitað fór
Gene Hackman með hlutverk lög-
reglumannsins og fékk óskarsverð-
launin það árið fyrir túlkun sína. Auk
þess var myndin kosin besta mynd
ársins, leikstjórinn vaUnn besti leik-
stjórinn og handritshöfundurinn og
klippari hlutu verðlaun fyrir að vera
taldir bestir í sinni grein.
Sígurá ógæfuhliðina
Þótt lögreglumaöurinn í myndinni
hafi verið kallaður Popeye Doyle var
handritið byggt á frásögn Eddie Eg-
an sem í raunveruleikanum kom upp
um smyglhringinn. Þetta var hið
mesta hörkutól og varð því Hackman
að tUeinka sér sérstakt göngulag og
atferU tU að ná persónueinkennum
Egans. Lagði hann mikla vinnu í
undirbúninginn enda hætti fólk eftir
frumsýningu myndarinnar að gera
greinarmun á Gene Hackman og svo
Popeye Doyle. I augum þess var
þetta einn og sami maðurinn. ,,Fólk
hélt ég væri svona mikiU harðjaxl,”
var haft eftir Hackman, „en það er
eins fjarri sannleikanum og hægt er.
Eg varð mjög undrandi yfir öllu
þessu ofbeldi sem fylgdi starfi og lífi
þessara manna. Eg hefði verið dauð-
hræddur í þeirra sporum.”
En þótt Hackman hafi orðið heims-
frægur á svipstundu í FRENCH
CONNECTION þá gekk honum erfið-
lega aö fylgja eftir velgengni sinni.
Hann var ekki nógu kröfuharður við
val sitt á hlutverkum og lék því of oft
í myndum í lágum eða meðalgæða-
flokkum. Má þar nefna myndir eins
og CISVO PIKE, PRIME CUT, sem
sýnd var á sínum tíma í Hafnarbiói,
og svo stórslysamyndina THE
POSEIDON ADVENTURE. Allar
þessar myndir voru meira eða
minna mislukkaðar og fólk gleymdi
Gene Hackman.
Listrænar myndir
Árið 1973 bauðst Hackman hlut-
verk í myndinni THE CONVERS-
ATION sem Francis Ford Coppola
leikstýröi og er taUn af f jölmörgum
kvikmyndaáhugamönnum ásamt
undirrituðum ein besta myndin sem
gerð var á árunum 1970—1980. Fjall-
aði hún um einkaspæjara sem sér-
hæfði sig í að taka leynilega upp
samtöl eða kvikmynda stefnumót og
var það síðan aðaUega notað í hjóna-
skUnaðarmálum. Dag nokkurn, þeg-
ar hann var að stiUa kvikmynda- og
tónupptökubönd sín í skemmtigarði,
varð hann vitni að samtali tveggja
aðila sem voru að skipuleggja morð
og samsæri. Hackman, í hlutverki
einkaspæjarans, ákveður að kanna
máUð nánar upp á eigin spýtur og áð-
ur en hann veit af er hann flæktur í
morðmál og valdatafl.
I myndinni THE CONVERSATION
er eitt frábært atriöi þar sem
Coppola, með góðri hjálp Hackmans,
leikur sér að áhorfendum með því að
halda þeim stífum af spenningi i
sætunum án þess að láta nokkuö
merkUegt gerast á tjaldinu. Hack-
man kemur að hálflokuðum dyrum
hótelherbergis, fullviss um að innan
dyra þess sé að finna Uk. Raunar er
hann ekki einn um þá skoðun því aö
með góöu handriti hafði Coppola tal-
iö áhorfendum trú um það sama.
Þegar Hackman ryðst inn í herberg-
ið standa áhorfendur á öndinni og
bíða eftir því að myndavélin finni lík-
ið. En herbergið virðist tómt og
áhorfendur draga andann léttara.
Hvarerlíkið?
En hvað var þetta? Það var ein-
hver þúst undir rúmábreiöunni.
Hackman gengur að rúminu, sviptir
ábreiðunni af — en ekkert Uk, aðeins
samanvöðlaður koddi. Aftur draga
áhorfendur andann léttara. En þá
stöðvast myndavéUn við baðher-
bergisdymar sem voru í hálfa gátt.
Svo þar var þá Ukið. Hackman ryðst
inn í baðherbergið en Ukt og áður
finnst ekkert Uk. Þó var nú ekki öll
von úti því viti menn; plasthengið
var dregið fyrir baökerið og með
dálitlu ímyndunarafU mátti sjá móta
fyrir mannsUkama þar bak við.
Þetta var síðasti felustaðurinn þar
sem bæði Hackman og áhorfendum
gat dottið í hug aö fela heilt Uk svo nú
náði spennan hjá báðum hámarki.
En viti menn: Eftir að hafa dregið
hengið snöggt frá reyndist baðkerið
tómt.
Ahorfendur fylgdust með hvemig
Hackman slakaði á þegar hann hafði
leitað af sér allan grun um að Uk fyr-
irfyndist í herberginu og gerðu því
slikt hið sama. Coppola hafði tekist
að halda uppi spennu í myndinni í um
5—8 mínútur án þess að nokkuð
markvert gerðist. En rétt áður en
Hackman yfirgefur herbergið þarf
hann aö bregða sér á salernið. Þegar
hann reynir að sturta niður kemur í
ljós að klósettið er stíflaö og upp flýt-
urblóðidrifiðlak.
Brennivín og
fégræOgi
Þótt THE CONVERSATION hlyti
mikiö lof gagnrýnenda þá hlaut hún
Gens Hackman i Mutvsrkl auðkýflngsins Jack McCann i myndinni
Eureka sem Nicoias Roag laikstýrOi.
UNDER FIRE gerist i Nicaragua þar sam Hackman leikur blaðamann
sem dragst inn í pólitiska baráttu sandinista.
H6r sést Hackman sam Jack
leitinni stóð.
an lifi meðan i gull-
lélega aðsókn. Sama gerðist með
næstu mynd Hackmans, sem bar
heitið SCARECROW.sem Jerry
Schtazberg leikstýrði. Hún hlaut
einnig lof en litla aösókn. Siðan tók
Hackman að sér hlutverk í myndinni
LUCKY LADY þar sem hann lék eitt
aðalhlutverkið á móti Liza Minelli.
LUCKY LADY var rándýr í fram-
leiðslu, hlaut ekkert lof og þar aö
auki enga aðsókn.
,ílg varð mjög raunamæddur og
þunglyndur eftir aö SCARECROWog
THE CONVERSATION slógu ekki í
gegn,” sagði Hackman í viðtali viö
kvikmyndatímaritið American Film.
„Eg fór að drekka. Ég taldi mig ekki
vera alkóhólista en ég var farinn að
fá mér tvö vodkaglös um kvöldmat-
arleytið og skömmu síðar fylgdi ann-
ar umgangur. Þá fór ég að segja við
sjálfan mig: Eg mun á næstunni
leika í myndum sem munu ganga vel
og þá mun ég örugglega fara að
græða peninga aftur. Þetta var hrein
tálvon og gekk því alls ekki. Svona
hlutir ganga hreint og beint ekki
lengur. Þegar stóru kvikmyndaverin
stjómuðu þessum iðnaöi í gamla
daga og áttu öll kvikmyndahúsin
gátu þau ráðið alveg hvaða leikara
þau settu í aðalhlutverkin í myndum
sínum. Fólk var t.d. tilbúið að sjá
kvikmynd bara af því Clark Gable
lék í henni. En svona hlutir ganga
ekki lengur. Þess vegna lék ég í
myndum (á borö við LUCKY LADY)
til að spila upp á f járhagslegt öryggi
en það reyndist mér síðar dýr-
keypt.”
Þáttaskil
Með þessi sjónarmið í huga lék
Hackman í tveimur fádæma lélegum
myndum sem voru DOMINO
PRINCIPLE (1977) og svo MARCH
OR DIE (1977) sem einn af fram-
leiðendunum stakk upp á aö yrði
endurskírð og köUuð WATCH OR
DIE ef það gæti hjálpaö upp á að-
sóknina. Á þessum tíma lék hann
einnig í myndinni NIGHT MOVES
sem Arthur Penn leikstýrði og nú
hefur verið sett í flokk með svoköU-
uðum „Cult-” myndum.
En í lok ársins 1977 urðu tímamót í
lífi Gene Hackmans. Eftir að hafa
hirt launaávísunina fyrir Ieik sinn í
SUPERMAN I og II myndunum
ákvaö hann að þetta gengi ekki leng-
ur og dró sig í hlé. Hann seldi húsið
sitt í Beverly HUls, fór aö stunda
íþróttir og ferðast meðan hann safn-
aði orku til að takast á við verkefni
framtíðarinnar.
Eftir tveggja og hálfs árs hvUd tók
Hackman að sér hlutverk í gaman-
myndinni ALL NIGHT LONG þar
sem hann lék á móti Barböru Streis-
and. Ekki hlaut myndin neinar sér-
legar móttökur hjá kvikmyndahúsa-
gestum en flestir voru sammála um
að gaman væri að sjá Hackman á
hvíta tjaldinu aftur.
Crilsamtár
En Hackman lætur ekki þar við
sitja. I ár hefur hann leikið í þremur
stórmyndum. Sú fyrsta er framleidd
af MGM/UA og heitir EUREKA.
Henni leikstýrir Nicholas Roeg og
var hún sett á markaðinn fyrr á ár-
inu. Líkt og fyrri myndir Roeg, eins
og MAÐURINN SEM FELL TIL
JARÐARINNAR og DON’T LOOK
NOW, þá er EUREKA nokkuð sér-
stæð mynd sem hefur yfirleitt hlotið
góöadóma.
Hinar tvær myndimar verða frum-
sýndar í haust. Sú fyrri nefnist
UNDER FIRE og fjallar um banda-
riskan blaðamann sem hefur aðsetur
í Nicaragua og fylgist með málunum
þar. Er hér um að ræða mynd sem
þræðir ekki ósvipaðar slóðir og
MISSING sem sýnd hefur verið víða
við góðar undirtektir. Það er Nick
Nolte sem leikur á móti Hackman í
þessari mynd en leikstjórinn er
Roger Spottiswoode. Hin myndin er
framleidd af Universal og kallast
MISUNDERSTOOD og fjallar um
samskipti sonar og föður. Það er
Henry Thomas, barnahetjan úr ET-
myndinni, sem leikur strákinn.
Það verður gaman að fylgjast með
hvort Gene Hackman nær sér aftur á
strik. Hann hefur sýnt og sannað að
hann er hæfileikaríkur leikari og þaö
yrði mikill missir fyrir hina fjöl-
mörgu aðdáendur hans ef hann
ákvæðiaðdragasigafturíhlé. B.H