Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1983, Síða 7
DV. FÖSTUDAGUR 5. ÁGUST1983.
Útlönd
Útlönd
Sovétmenn enn
ákæröir fyrir
eiturhemað
Bandaríkjastjóm hefur lagt fram
hjá Sameinuðu þjóöunum nýjar
sannanir sem sagt er að sýni að eitur-
efnum hafi verið beitt í hernaði í SA-
Asíu. Sannanirnar eru byggðar á
blóösýnum úr fólki sem sagt er að hafi
orðið fyrir eiturefnaárás í Laos í
nóvember 1981, einnig í janúar og
mars 1982 og í Kampútseu í mars.
Bandaríkjamenn hafa ákært Sovét-
menn fyrir að nota eiturefni í hernaði
í Afghanistan og fyrir að hafa útvegað
leppríkjum sínum eiturefni til
notkunar í hemaöi í SA-Asíu.
1 skýrslu Bandaríkjanna sem send er
Sameinuðu þjóðunum segir að
Bandaríkjamenn fái enn og greini
sannanir fyrir því að eiturefni hafi
verið notuð í hernaði í Laos, Kampút-
seu og Afghanistan. Með nýjum og
mjög fullkomnum greiningaraðferðum
fáist staðfest að eiturefni séu notuð.
Þannig hafi fundist eiturefni í frystu
blóðsýni úr skæruliða í Laos eftir að
hann varð fyrir eiturefnum úr hand-
sprengju sem sprakk nærri honum,
sem og í blóði 10 ára drengs sem var
meöal flóttamanna þegar loftárás var
gerð á hópinn. 44 þeirra 154 sem urðu
fyrir þessum árásum létust innan
tveggja til fimm daga.
Valdarán
íEfri-Volta
Yfirmaður fallhlífaherliðs Efri-
Volta lýsti því yfir í morgun að hann
hefði tekiö völdin í þessu Vestur-
Afríkuríki.
Thomas Sarkara kafteinn (34 ára),
sem vikið var úr forsætisráðherra-
embætti í maí í vor, sagði í útvarpi að
hann og fleiri foringjar úr hemum
hefðu bylt stjóm Jean-Baptiste Que-
draogo í gærkvöldi.
Sagði hann að Quedraogo (42 ára
herlæknir) væri fulltrúi óvina alþýð-
unnar. Sett hefur verið á laggimar
byltingarráð sem fara skal með stjóm
landsins.
Sarkara er sagöur hallast á sveit
með Líbýu í mörgum málum.
Síðan Frakkar veittu Efri-Volta
sjálfstæöi 1960 hefur gengið á með
valdaránum og byltingum. Herinn rak
stjórn landsins frá völdum 1966,
studdur af verkalýðsfélögunum. Borg-
araleg stjórn tók aftur við völdum 1970,
en fjórum árum síðar náði herinn
völdum á ný. Verkalýðsfélögin knúöu
herinn frá 1978, þótt æðstráðandi her-
klíkunnar, Lamizana hershöfðingi,
væri kosinn forseti. Zerbo ofursti ýtti
honum úr vaidastóli 1980 en Quedraogo
bylti honum svo í nóvember síðasta
vetur. Quedraogo beitti sér fyrir
hreinsun innan hersins og lofaði stjórn
samkvæmt stjórnarskrá.
Stjórn Quedraogo þótti hófsöm og
vildi viðhalda tengslum við Frakkland
og Vesturveldin. Sarkari reyndi að
snúa stjórninni til róttækari stefnu og
bauð Gaddafi, leiðtoga Líbýu, til
heimsóknar í vor án þess að ráðfæra
sig fyrst við forsetann. Það leiddi til
þess að honum var vikið frá í maí.
Efri-Volta er með snauðari þróunar-
ríkjum heims og fátækt af náttúruauð-
lindum. Þar búa tæpar 7 milljónir.
Þjóðartekjur á mann eru ætlaðar vera
um 1800 krónur á ári.
PALME HARÐORÐ-
URíGARÐ DANA
UMFERÐARMENNING
Sænska ríkisstjómin sendi í gær
dönsku stjóminni harðorð mótmæli
vegna olíuborana Dana í Kattegat. Á
blaðamannafundi, sem Olov Palme
forsætisráðherra Svíþjóðar hélt í gær-
dag, gagnrýndi hann ríkisstjórn Pouls
Schlúthers mjög harölega. Sagði hann
að þaö sem nú heföi gerst í samskipt-
um Danmerkur og Svíþjóðar hefði
aldrei getað átt sér stað í tíð ríkis-
stjómar Ankers Jörgensens.
Jörgensen lýsti því hins vegar yfir í
útvarpsviðtali í morgun að flokkur
hans styddi þá afstöðu dönsku ríkis-
stjórnarinnar að leyfa tilraunaboranir
á hinu umdeilda svæði i Kattegat.
Samtímis því sem Palme gagnrýndi
ákvörðun Dana lét hann þá von i ljós að
enn væri unnt aö leysa deiluna við
samningaboröiö ella yröi alþjóöadóm-
stóllinn í Haag að dæma í málinu.
Utanríkismálanefnd danska þings-
ins kemur í dag saman og mun þá
meðal annars ræöa hin harðorðu mót-
mæliSvía.
-GAJÍLundi.
fclk f
■éttum
Ánægður Islandsfari
Nýlega birti breska vikublaðið
NME, viðtal við kvenskörunginn
Lindsay Cooper. Stór hluti við-
talsins snýst um tíðar ferðir
Lindsayar til íslands. „Fyrst var
það vegna atvinnu minnar“, seg-
ir Lindsey. „Ég var með í að
framleiða þessa mynd, „Gold“,
meðJulie Christie. Svo spilaði ég
með kvennahljómsveitinni F. I.G.
í Reykjavík. S. 1. haust kom
ég svo til íslands að athuga með
tónleika fyrir okkur David „Pere
Ubu“ Thomas. Þá rakst ég inn
á veitingastað sem heitir Pítan.
Hann er á Bergþórugötu í
Reykjavík. Þarfæst frábæraust-
urlenskur réttur, sem heitir píta.
Pítan er svo góð að ég hef síðan
komið 8 sinnum til íslands gagn-
gert til að fá mér pítu með kóti-
lettum“!
Miss Ellie:
Hélt við íslenskan ráðherra!
„Ég hefi lent í ævintýrum eins og
aðrir“, segir Barbara Bel Geddes
í nýlegu Rapportblaði. Barbara,
betur þekkt sem Miss Ellie í Dal-
lasþáttunum, heldur áfram: „I
sumarfríinu mínu átti ég t. d.
skemmtilegt ástarævintýri í
Reykjavík. Fyrsta kvöldið mitt þar
fór ég í samkvæmi hjá sendi-
ráðinu. Þar hitti ég íslenskan
ráðherra. Við eyddum öllum
stundum saman eftir það: Fórum
í sund á morgnana, fengum okk-
ur pítu í hádeginu, syntum fram
eftir kvöldi og fengum okkur pítu
í kvöldmat. Ráðherrann borð-
aði ekki annars staðar en í Pít-
unni á Bergþórugötu. „Ekkert
jafnast á við pítu með kjúkling-
um“, sagði hann alltaf. Mér
finnst píta með fiski miklu
betri".
Elvis
gengur
aftur!
Um siðustu helgi sást Elvis heit-
inn Presley á gangi i New York.
Tvær fullorðnar konur æptu upp
yfir sig þegar söngvarinn birtist
skyndilega fyrir framan þær. Við
ópin komst styggð að rokkkóng-
inum. Hann leystist upp í eld-
glæringar.
Skömmu síðar kom hann
fram á miðilsfundi i Texas.
Aðspurður um hvað hann vildi,
svaraöi söngvarinn: „Mig langar
í pitu með buffi“!
ALDREI
AFTUR
HIROSHIMA!
Vid undirritadir rit-
höfundar hvetjum fólk
til olmennrar þátttöku
íFridargöngu ’83.
á morgun, laugardaginn
6. ágúst.
Anton Helgi Jónsson
Ási í Bæ
Baldur Oskarsson
Björn Th. Björnsson
Einar Bragi
Einar Olafsson
Elías Mar
Elísabet Þorgeirsdóttir
Fríða Á. Sigurðardóttir
Gils Guðmundsson
Guðbergur Bergsson
Guömundur Steinsson
Guðrún Helgadóttir
Gunnar M. Magnúss
Halldór Laxness
Helgi Hálfdanarson
Helgi Sæmundsson
Ingibjörg Haraldsdóttir
Jakobína Sigurðardóttir
Jónas Árnason
Kjartan Ragnarsson
Njörður P. Njarðvík
Oddur Björnsson
Olga Guðrún Árnadóttir
Pétur Gunnarsson
Sigurður A. Magnússon
Snorri Hjartarson
Steinunn Sigurðardóttir
Svava Jakobsdóttir
Thor Vilhjálmsson
Tryggvi Emilsson
Vilborg Dagbjartsdóttir
Þorsteinn frá Hamri