Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1983, Blaðsíða 11
DV. FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST1983.
11
Við röbbum viðþá bjartsýnustu
íiaxveiðinni......
„Stefnum að því
að enginn fari
héðan laxlaus”
Rætt við þá Árna Baldursson
og Gunnar Másson um Laxá
og Bæjará í Reykhólasveit
Allur matur
og drykkur
nema hákarl
og brennivín
— fæst í nýju kaupfé-
lagsveitingasölunni á
Selfossi, segir Regína
Thorarensen
Frá Reginu Thorarensen, fréttarlt-
ara DV á Selfossl:
Kaupfélag Arnesinga opnaði fyrir
skömmu mjög glæsilega og fallega
veitinga- og ferðamannaverslun í
anddyri nýja kaupfélagshússins á
Selfossi og hlaut hún nafnið Ársel.
Sjötíu manns geta borðað þar í einu.
Salurinn er allur blómum skreytt-
ur. Borðin eru úr ljósum viði og er
ekki annað að sjá en gestum líði þar
alveg sérstaklega vel. Má ég til með
að skjóta því hér inn í aö ég hef ekki
orðið vör viö neinn framsóknarlit
þama inni.
Hresst ungt fólk vinnur við
þjónustu og kann það vel til verka.^
Og ekki má gleyma henni Sigur-
björgu Eyjólfsdóttur sem sér um
allan grillmatinn með sínum lista-
höndum. Ætti ég kannski frekar að
segja „lystahöndum”?
Aldursforseti á Selfossi, Jón Páls-
son, fyrrverandi dýralæknir, 92 ára,
bauð mér og Ástu Beck I kaffi í
Arselið nýlega og voru veitingamar
rausnarlegar og góðar.
I smásal við hlið veitingasölunnar
fást rammislenskir minjagripir sem
gott er aö nota til að gleöja vini og
frændur erlendis.
Ekki vil ég gleyma íssölunni sem
alltaf er örtröð í. Hún stendur fyrir
sínu.
Finnst mér rétt að segja svona í
lokin að í þessari nýju veitingasölu
fæst allur matur og drykkur nema
hákarl og brennivín. -JGH
Það telst víst til meiriháttar stór-
tíðinda að taka heilar ár á leigu og
setja í þær á hverju ári mikið af
seiðum og það núna þegar verð-
bólgan er að setja annan hvern mann
á hausinn. En þetta hafa samt Arni
Baldursson og Gunnar Másson gert,
en þeir tóku Laxá og Bæjará á ieigu
árið 1982. Stefna þeir að því að sleppa
50 þúsund sumaröldum seiðum ár-
lega í vatnasvæðinu. Sleppingin hjá
þeim frá í fyrra er farin að skila sér
og var veiðin í júlí mjög góö. Við
renndum fyrir fisk í ánni nýlegá og
fengum fimm laxa og átta bleikjur.
Bara haria gott og ekki nokkur vafi á
því að þessar ár eiga eftir að veita
mörgum ánægjustundir í framtið-
inni. Góðir veiöistaðir eru á ánum
báöum og vatnasvæðið í alla staði hið
skemmtilegasta. Við greindum frá
þessum ám fyrr í sumar hér í DV. En
til að fá betri fréttir um þetta náðum
við tali af þeim félögum og spurðum
þáumfyrirtækið.
Hvert var upphafið á þessu ævin-
týri?
„Þetta byrjaði allt þannig að við
fréttum í gegnum vinnufélaga
annars okkar aö árnar væru á lausu.
Viö fórum að athuga þetta betur og
skrifuöum mikið bréf til bænda fýrir
vestan. 1 þessu bréfi sögðum við frá
okkar hugmyndum um þetta mál og
hvað við vildum gera. Undirtektir
voru mjög góðar við þessu og
skömmu seinna var sendur maöur
suður til viöræðna og tókust þær við-
ræður vel. Héldum við síðan fund
með bændum fyrir vestan og var
gert uppkast aö samningum.
Hvað þýðir þessi samningur?
„Þetta er ræktunarsamningur við
bændur og okkar greiðsla upp í leigu
eru seiðin og vinnan sem við leggjum
fram. Við erum að stofna fiskeldis-
stöð og taka fisk í klak. Alla laxa sem
við veiðum og okkur lýst vel á setjum
við í þró við ána og svo munum við
kreistaíhaust.”
Nú veiddist vel í ánum í júlí, gefur
það ekki vonir um bjartsýni?
„Jú, það gerir það, það er komið
mikið af smálaxi í ámar núna, svo
hún er strax farin að skila sér slepp-
ingin í fyrra. En í fyrra slepptum við
5500 ársgömlum seiðum og 500
gönguseiðum, þau ættu að skila sér í
formi laxa næsta sumar. Þetta var
bara smátilraun meö þessi 500
gönguseiði, en hún virðist hafa gefið
góða raun, áttum samt ekkert frekar
vonáþví.”
Nú hlýtur þetta aö vera gífurlega
dýrt fyrirtæki?
VEIÐIVON
GunnarBender
„Það hafa farið miklir peningar í
þetta og enn þá meiri tími, núna í
sumar slepptum við 6000 göngu-
seiðum, en þetta hefði líklega ekki
verö framkvæmanlegt nema með að-
stoð góðra manna. Ölafur Skúlason á
Laxalóni hefur verið okkur gífurlega
hjálplegur, líka hafa vinir og kunn-
ingjarhjálpað.”
Hvað með veiði í ánum í sumar?
„Það er erfitt að gera sér grein
fyrir henni, en það eina sem við
vitum með vissu er aö aðalveiði-
tíminn er að byrja núna í ágúst. En
núna eru komnir á land 25 laxar og
um 30 bleikjur, en mest hefur veiöst i
júli áður 3 laxar. Sá stærsti sem
veiðst hefur í ánum núna er 17 pund
og veiddist á Fransis rauöa. Samt
höfum við veitt í fáa daga í júli því
við ætlum að hvila ámar mikið í
sumar.”
Er ekki hægt að veiða mikið af
bleikju í báðum ánum?
„Jú, ef þetta verður líkt og í fyrra,
þá var mokveiði. En núna er bleikjan
svo til nýkomin upp í ámar, þær
fyrstu komu um 25. júh'. Bleikjan er
líka stærri nú en í fyrra, við höfum
fengið nokkrar 2—3 punda bleikjur.”
Með tíö og tíma, hvaö gætu veiðst
margir laxar í ánum, Laxá og
Bæjará, 200-300 laxar?
„Minnsta kosti það og við stefnum
aö meiri veiði. Þetta hefur gengið
svo vel núna í júlí. Mest hefur veiðst
af laxi í ánum 1975, þá veiddust 34
laxar. Við stefnum að því aö slá þetta
met núna í sumar. Eftir svona fimm
til sex ár ættu þetta að verða orðnar
topp-veiðiár, en þetta tekur nú allt
sinn tíma. Við stefnum að því, þegar
allt verður komið á fullt, að enginn
farihéðan laxlaus.”
Nú veiðið þið lítið á þann slímuga
hér á ánum?
,,Já, þessir laxar sem við höfum
veitt og sett í þróna hafa allir veiöst á
flugu. Við vorum meira að segja á
undan þeim í Grímsá, allt flugu-
veiddur klaklax. Laxáin býður upp á
flugu og í henni er fullt af góðum
fluguveiðistöðum en f bili verður
veitt á þann slímuga í Bæjará. Nema
við seinna meir lögum Bæjará og þá
væri hægt að veiða þar á flugu líka.
Sjáum bara til með það, en Laxáin
verður „hrein fluguveiði,” sögðu fé-
lagamir að lokum. Við skulum láta
framtíðina skera úr um árangurinn
ogsjáhvaðsetur. G. Bender.
Það er viða fallegt vlð Bcjará. Þröstur Eniðason rennir fyrir lax, nestur
honum stendur Arai Baldursson og svo Gunnar Máson.
ISLENSK ALÞÝÐA
ER ANDVÍG
HERNAÐARBRÖLTI
íslensk alþýöa er andvíg hvers konar hernaðarbrölti og
krefst þess aö kjarnorkuvopn veröi aldrei leyfö á íslandi,
aö íslensk efnahagslögsaga verði friðuð fyrir kjarnorku-
vopnum, umferð kjarnorkubúinna skipa og losun kjarn-
orkuúrgangs. Þar eru lífshagsmunir þjóðarinnar í veði.
Við lýsum yfir samstöðu með þeim öflum sem berjast fyrir
friði og afvopnun, alþjóðlegri viðurkenningu á kjarnorku-
vopnalausum Norðurlöndum, fyrir herstöðvalausu landi
utan hernaðarbandalaga.
(Úr 1. maí ávarpi fulltrúaráðs verkalýösfélaganna í Reykjavík, BSRB og Iðnnema-
sambands Islands)
VIÐ HVETJUM FÖLK TIL AÐ TAKA UNDIR ÞESSAR KRÖFUR 1 FRIÐARGÖNGUNNI
6. ÁGÚST NÆSTKOMANDI.
Ásmundur Stefánsson
Ásmundur Hilmarsson
Benedikt Davíðsson
Bjargey Elíasdóttir
Bjarnfríður Leósdóttir
Björn Arnórsson
Bolli Thoroddsen
Grétar Þorsteinsson
Guðjón Jónsson
Guðmundur J. Guðmundsson
Guðmundur Omar Guðmundsson
Guðmundur Þ. Jónsson
Guðrún Þorbergsdóttir
Gunnar Gunnarsson
Hallgrímur Pétursson
Haraldur Steinþórsson
Hjálmfríður Þórðardóttir
Jens Ásmundsson
Jóhann Geirharðsson
Jóhanna Friðriksdóttir
Jón Kjartansson
Kolbeinn Friðbjarnarson
Lea Þórarinsdóttir
Magnús H. Stephensen
Margrét Eiríksdóttir
Olafur Jóhannesson
Oskar Garibaldason
Pétur Eggertsson
Ragna Olafsdóttir
Sigríður Kristinsdóttir
Sigrún D. Elíasdóttir
Sigurbjörg Sveinsdóttir
Skúli Thoroddsen
Snorri Konráðsson
Tryggvi Þór Aðalsteinsson
Tryggvi Emilsson
Þóra Hjaltadóttir
Þórir Daníelsson
Þorbjörn Guðmundsson
Þorsteinn óskarsson