Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1983, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1983, Síða 12
12 DV. LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST1983. Þorsteinn Svavar Mckinstry, Reykjavík, sendi hana þessa og mætti hugsa sér að krakkarnir séu að dorga. Sumurmyndukeppni DV Þá er búið að velja fyrstu litmyndirnar til birtingar í Sumarmyndakeppni DV 1983. Eins og sjá má þá eru börn vinsælt myndefni og þótti því alveg tilvalið að helga því efni fyrstu opnuna. Þátttaka i keppninni er eins og í fyrra mjög góð. Þótt ágúst sé senn liðinn þá gefst enn tími til að senda mynd eða myndir því Sumarmyndakeppn- inni lýkur 10. september. Enda er engin ástæða að hika því að glæsileg verðlaun eru í boði fyrir bestu myndirnar. Keppninni er skipt í tvo flokka, litmyndir og svarthvítar myndir. Fimm verðlaun eru veitt í hvorum flokki og eru þau hin sömu í báðum flokkum, Pentax myndavélar og úttekt á Fujicolorlitfilmum frá versluninni Ljósmyndavörur, Skipholti 31. Fyrstu verðlaun í hvorum flokki eru Pentax ME Super myndavélar. önnur verðlaun í báðum flokkum eru Pentax PC35AF myndavélar. Þriðju, fjórðu og fimmtu verðlaun eru úttekt á Fujicolorlitfilmum að upphæð krónur 2000. Það ber að brýna fyrir mönnum að senda frimerkt umsiag með myndum sínum svo hægt sé að endursenda myndirnar. Auk þess skulu myndirnar merktar með nafni og heimilisfangi á bakhlið hverrar myndar. Myndirnar skulu síðan sendar rit- stjórn DV, Síðumúla 12—14, 105 Reykjavík, merktar „Sumarmynd". Heimilt er að senda fleiri en eina mynd í keppnina, hvort sem er lit- eða svarthvíta mynd. -SLS. Þessi mynd af stúlkum úti á akri er ónafngreind, en sendandi myndarinnar er Bjarni Þjóðieifsson, Reykjavík. „í skjóli trjánna” heitir þessi skemmtilega mynd. Höfundurinn er Nanna S. Bjarnadóttir, Akureyri. Oskar Jónsson, Reykjavík, sendi þessa mynd sem hann kallar „í leit að sól”.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.