Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1983, Page 17
DV. LAUGARDAGUR 27. AGUST1983.
17
Bílar
Bflar
Bflar
Bflar
Bflar
mm. - n iNgíi^.A \
Með BMW 524td er kominn nýr keppinautur á ört vaxandi markað dísilbila sem eiga að bafa sömu aksturseigin-
leika og bensínbilar.
BMW 5241 «1:
Turbodísil
Fyrir tíu árum var hlutfall dísilbíla
af fólksbílum aðeins fjögur prósent í
Vestur-Þýskalandi. I fyrra hafði þetta
hlutfall aukist í yfir 15%. Svipuð þróun
hefur átt sér staö í flestum öðrum
ríkjum Evrópu og í Bandaríkjunum en
á sama tíma hefur nýskráöum bílum
fjölgaðtífalt.
Aðalástæðan fyrir vinsældum dísil-
bíla er hagkvæmni þeirra þótt hér á
landi komi þetta ekki eins vel út vegna
skattlagningar. Þessi hagkvæmni galt
þó þess að dísilbílar hafa fram til þessa
ekki verið eins sprækir og bílar meö
bensínvélum af sömu stærö.
Forþjappan, eöa turbo, hefur átt
sinn þátt í að gera dísilvélina sprækari,
togað meira afl út úr vélinni. Þetta
hafa margir bílaframleiðendur gert
við dísilvélar sínar bæði í stórum
vinnuhestum og í fólksbílum. Volvo
kom með turbodísil í nýja 760 bílinn og
Citroén í CX bílinn.
Nýjasti bíllinn á þessu sviði er hinn
nýi BMW 524td. Vélin í 524 er byggð á
þrautreyndri sex strokka vél sem fram
aö þessu hefur verið í 3- og 5-línunni frá
BMW og með rúmtaki 2,0 til 2,7 lítra.
Turbo og útborun á sog- og útblásturs-
greinum tryggir mikla hagkvæmni.
Með rúmtaki upp á 2,4 lítra og 115 hest-
öfl (85kW), togafli 210 Nm við 2400
snúninga þá gefur þessi vél gott afl.
Aksturseiginleikar 524td eru sagðir
góðir. Það tekur aðeins 12,9 sekúndur
að fara frá 0 og upp í 100 km hraða.
BMW disil —
eðlileg þróun
Á síðasta ári framleiddu BMW verk-
smiðjurnar meira en 377 þúsund bíla.
Velgengnin byrjaði árið 1962 meö
hinum nýja BMW 1500, sem var fram
haldið meö 02 línunni og síðar 3, 5, 6 og
7 línunni. 1982 var enn bætt um betur
og bætt við nýjum bíl 525e og nú í ár
þriðju kynslóöinni, 524 turbo dísil.
Þessar tvær nýju linur eru til að mæta
þeim kaupendum sem áður fengu ekki
óskir sínar uppfylltar í þeim gerðum
sem voru á framleiöslulínum BMW.
Dísilvélar hafa oft þótt leiðinlegar
vegna þess að þær þarf að hita áður en
gangsetning í kulda getur átt sér stað.
Tæknimönnum BMW hefur tekist að
stytta þennan tíma verulega þannig að
aöeins þarf að hita vélina í 8 sekúndur
—hrad-
skreiðasti
dísil-
bfllinn?
þótt hitastigið sé aðeins 0 gráður. Við-
vörunarljós sýnir hvenær vélin er til-
búin til gangsetningar. Sé hitastigið yfir
60 gráður á kælivatni vélarinnar má
setja hana strax í gang líkt og bensín-
vélar.
Þessi dísilvél þykir sérlega lágvær
og með hjálp turbosins þá svarar hún
mjög líkt og bensínvél í akstri.
Forþjappan flytur vélinni 40% meira
loft og gefur vélinni meira afl og tog-
kraft.
Byggingarlag 524td er byggt á fimm-
línunni en þó er hér ekki um aö ræða
„bensínbíl með dísilvél” heldur var
bíUinn endurhannaöur aö verulegu
leyti tU að mæta kröfum dísUútfærsl-
unnar. MikU áhersla var lögð á að
fyrirbyggja titring og hávaða frá vél-
inni. Fimm gíra gírkassinn sem er
„standard” hefur verið hannaður tU að
mæta lægri snúningshraða og jafn-
framt afUnu sem turboið gefur.
Þeir hjá BMW telja sig hafa komið
fram meö bU sem sameinar kosti dísU-
og bensínbUs og nú er að sjá hvemig tU
hefur tekist og getur reynslan ein
skorið úr.
-JR.
BUlinn er að útliti eins og „f imm-línan” en endurhannaður að verulegu leyti tU að mæta disUvélinni.
Þannig vinnur forþjappan — TU hsgri er blöndungurinn, næst skófluhjól for-
þjöppunnar, þá soggrein og mótorinn.
Þannig vlnnur
forþjappan
Fleiri og fleiri bílar bjóðast nú með
turbo eða forþjöppu sem gefur vélun-
um verulega aukið afl. Tvær gerðir eru
aðaUega af forþjöppum, önnur er knú-
in beint af snúningi vélarinnar en hin
er knúin túrbínu sem fær afl sitt af út-
streymi útblástursloftsins frá vélinni.
Forþjappan, sem er nokkurs konar
skófluhjól, er knúin beint frá vélinni
t.d. með tenntri reim. Hún snýst því
ávaUt með og þjappar saman blöndu
lofts og eldsneytis svo aö stimplarnir
fá verulegt „spark”. Aukningin á afl-
inu er á mUU 30 og 50% svo þaö munar
um þjöppuna. Forþjappa af þessari
gerð gefur aukið afl við lágan snún-
ingshraða og léttan og jafnan akstur.
Forþjappan heimtar að vísu sitt afl,
um tíu prósent af vélarafUnu fer í að
knýja þjöppuna.
Hið eiginlega turbo, eða túrbínan,
tekur ekkert afl frá vélinni. Hún er
knúin af útblæstri vélarinnar sem ekki
nýtist tU annars en að óhreinka loftið í
kringum okkur. Utblásturinn er hægur
við lágan snúningshraða en eykst
þegar gefiö er inn.
Túrbínan er ekki annað en for-
þjappa, sambyggð túrbínu. Túrbínan
situr á öðrum enda öxuls en forþjapp-
an á hinum. Utblásturinn kemur i stað
reimdrifsins á beintengdum forþjöpp-
um. Túrbínuknúnar forþjöppur þykja
á margan hátt skemmtilegri því þær
skila sínu afli best þegar menn vilja
helst fá aukaaf 1 út úr véUnni.
Enn sem komið er þá eru turbobílar
verulega dýrari en þróunin er slUi að
aUt bendir tU að þeir verði ódýrari á
næstunni. ÞeU- fá aukið afl án þess að
útheimta mikla orku. Það má segja aö
turboið sé það næsta sem viö höfum
komist eUífðarvéUnni svoköUuðu.
i:itl hundrað þiisund
dísilbflar frá Volvo
BMW 524 td:
Lengd: 4620 mm Gírkassi: fimm gira eða fjögurra gíra sjálfskipting.
Breidd: 1700 mm Fjöðrun: sjálfstæð á öUum hjólum.
Hæð: 1415 mm Bremsur: diskar að framan/skálar aö aftan.
Þyngd: 1300 kUó Hjól: 175HR14/51/2 X14. Snúningsradíus: 10,9m.
Vél: 2443 rúmsentimetrar. 115 hestöfl (85 kW) við Eyðsla: Við 90 km meðalhraða, 5,2 lítrar, innanbæj-
4800 snúninga. Þjöppun 22,0:1. ar 9,0 lítrar.
Af þeim bUum sem keppa um mark-
aöinn þegar til dýrari dísUbíla kemur
er Volvo 760 turbo dísil. Volvo kynnti
fyrst dísUvél í fólksbílum sínum í 240
gerðinni árið 1979 og síðar turbo dísil í
760 gerðinni. Verksmiðjurnar urðu
fyrstar tU að koma fram með fjölda-
framleidda sexstrokka dísilvél.
„Þaö að bæta dísdvéUnni við þær
vélargerðir sem við bjóðum upp á
hefur opnað dyrnar fyrir nýjum kaup-
endum, segir Hákan Frisinger, aðal-
forstjóri Volvo.
Sala disUbíIa hefurstöðugt aukist frá
Volvo og árið 1982 seldust samtals 26
þúsund bílar. Þar af voru 2000 760
turbo dísU.
Þegar turbo dísilvélin kom fram þá
var boðið upp á dísUvél sem býður upp
á sömu eiginleika og bensínvél. Vél
sem að mörgu leyti samsvarar því sem
BMW hefur nú kynnt í 524td bíl sínum
sem sagt er f rá hér tU hUðar.
Sala dísilbíla frá Volvo gengur best á
Italíu og í Bandaríkjunum, þessi tvö
lönd skara fram úr en önnur lönd eins
og Frakkland og Vestur-Þýskaland
koma þar fljótlega á eftir. Sala d 'sil-
lilafer að sjálfsögðu mikið eflir því
hvemig verðmunur er á milli bensíns
og disUolíu i viðkomandi landi.
Nú nýlega var eitt hundrað þúsund-
asti dísilbillinn frá Volvo afhentur við
hátíðlega athöfn á ItaUu og var aðal-
forstjóri Volvo þangaö kominn til
að afhenda hinum nýja eiganda lykl-
ana.
Hér tekur Alberto Barorelli við lyklunum að hundrað þúsundasta dísUbUnum frá
Volvo, 760 GLE turbo dísU, frá Hákan Frisinger, aðalforstjóra Volvo, og Thomas
Malm, forstjóra Volvo á ítalíu.