Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1983, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1983, Qupperneq 23
DV. LAUGARD AGUR 27. ÁGUST1983. Popp Popp 23 Popp Popp Popp þýöir að kveina eða harma). I fyrstu starfaði með þeim söngvarinn Junior Braithwaite sem neyddist til að hætta er fjölskylda hans fluttist til Bandaríkjanna. Auk þess tvær söng- konur, Rita (verðandi eiginkona Marleys) og Beverley Kelso (um af- drif hennar er ekki vitað). Þremenningamir vöktu brátt nokkra athygli á Jamaica. Peter Tosh var stór og mikill, kjaftfor og róttækur í skoðunum, Bunny innhverfur og hugsandi og Marley lagasmiður og forsvarsmaður. Wailers voru í fyrstu taldir hljómsveit ruddamennanna, vændiskvennanna, áflogahundanna og strætislýðsins. Hljómsveitin fékk samning við lítið plötufyrirtæki í Kingston, Beverley Records, og í fyrstu léku þeir, þótt ótrúlegt megi virðast, létta, trúar- lega popptónlist, oft í ætt við gospel. Robert Nesta Marley fæddist í smáþorpinu St. Anne á Jamaica þann 6. febrúar 1945. Hann var sonur innfæddrar konu, Cedellu Booker, og bresks sjóliðsforingja sem var horf- inn á braut er Marley kom í heiminn. Marley ólst upp aö mestu í fátækra- hverfi Kingston er nefnist Trench- town og snemma munu tónlistar- gáfur hans hafa komið í ljós. Hann fæddist inn í trúaða fjölskyldu sem tilheyrði rastasöfnuðinum. Rastatrú- in byggir á þeirri vissu að svarti kynstofninn eigi rætur sinar að rekja til konunganna Salomons og Davíös sem aftur munu vera afkomendur Jakobs. Rastarnir eru einnig þess fullvissir að vilji guðs sé sá að allir svertingjar búi í Afríku, það sé hin eina eiginlega fósturjörð negra. Rastarnir (eða dreadlokkamir, kenndir við slöngulokkana) trúa því að auki að fyrrum Eþíópíukeisari, Haile Selassie, hafi verið Rasta holdi klæddur. Hann hafi átt að leiða blakka kynstofninn til fyrirheitna landsins í Afríku þar sem þeir byggju í sátt og samlyndi. Rastarnir boöa frið og neita afskiptum af stjórnmálum í eiginlegri merkingu. Þeir krefjast raunar fullra lýðréttinda negrum til handa. Þessi trú var inntakið í öllu því sem Bob Marley tók sér fyrir hendur, í það minnsta á síðari hluta lifshlaups síns. Sem unglingur afneitaði hann Rasta og hélt því fram að trúin væri aðeins tæki heimsvaldasinna til aö fá blakka til aö sætta sig við kjör sin. En smám saman frelsaöist Marley. Það sem varð til að fullvissa hann um réttmæti rastatrúarinnar og inni- lega ást Rasta voru alvarleg veikindi sem hann átti við að stríða. Skömmu áður en Bob Marley & The Wailers slógu rækilega í gegn á Vestur- löndum um miðjan síðasta áratug kom í ljós að Marley gekk með krabbamein. Hann lét sig hverfa og margir hugðu hann hafa leitað til Eþíópíu eftir friöþægingu. Leið hans lá hins vegar á frægt krabbameins- sjúkrahús í Vestur-Þýskalandi þar sem færustu sérfræðingar fóru um hann höndum. Læknar höfðu reyndar sagt honum áður að hann ætti skammt eftir ólifaö. En á sjúkrahúsinu náði Marley sér á furðuskömmum tíma. Sumir töluðu um kraftaverk, þar á meöal Marley sjálfur. Eftir það var hann sannfærð- ur um að Rasta vekti yfir öllum hans gjörðum og leiddi hann um lífsins braut. Það fór hins vegar ekki fram hjá neinum að afturbatinn myndi aðeins verða tímabundinn. Hverfum þá til baka aftur í tímann. Þegar á unglingsárum hafði tónlistin náð tökum á Marley. Móðir hans leist hins vegar illa á framtíð fátæks svarts tónlistarmanns og heimtaði að hann læröi einhverja iðn. Fyrir valinu varð rafsuða. Á verkstæði vann hann siðan um skeið með reggaesöngvaranum Desmond Dekker sem síðar átti eftir aö ná töluverðum vinsældum í Bretlandi. Það var einmitt Dekker sem dró Marley inn í stúdíó þar sem hann tók upp sitt fyrsta lag; Judge Not. Þá var Marley 15 ára. Skömmu síðar stofnaði Marley ásamt tveimur félögum sinum, þeim Bunny Livingstone og Peter Machin- tosh (Peter Tosh) hljómsveitina The Wailers (af sögninni to wail sem Bob Marloy Ferill reggaesnilllngslns rifjadur upp Fyrri hluti Þann 11. maí síðastiiðinn voru liðin tvö ár frá andláti reggaekonungsins Bob Marley. Með Marley féll frá sá tónlistarmaður sem gert hafði reggaetónlistina að því sem hún er í dag; einum helsta áhrifavaldi alþýðu- og dægur- músíkur heimsins, liggur mér við að segja, en þá skírskota ég aðeins til Vesturheims. Saman- ber að við nefnum sögu vest- rænnar menningar mannkyns- sögu. Þrátt fyrir þessa staðreynd (það er að Marley lést fyrir 2 árum) kom nýlega á markað breiðskífa með eldri upptökum Bob Marley & The Wailers, Confrontation, sem vissulega sannaði enn einu sinni að enginn reggaemúsík- ant hefur komist með tærnar þar sem Marley hafði hælana. Helgarpoppið í dag verður helgað sögu Bob Marley og ekki dugar ein síða undir þá sögu þótt stiklað sé á stóru. Hér birtist því fyrri hlutinn og hinn seinni að tveimur vikum liðn- um. Síðar komust þeir í kynni viö Coxone nokkum Dodd, frægan prúsent og ryþmista, sem kom þeim á reggaebragöið. Dodd fórnaði fyrir- tæki sínu á altari Wailers með þeim afleiöingum að fyrirtæki hans varð gjaldþrota árið 1966. Þá var komið að Wailers að borga fyrir sig. Þeir sendu frá sér hvert hitlagið á fætur öðru og nægði það Dodd að koma fótunum undir fyrirtæki sitt á nýjan ieik. Uppgangurinn var svo mikill að hver meðlima Wailers fékk væna fúlgu í vasann. Ölvaður af ánægju fluttist Marley til Bandaríkjanna ásamt móöur sinni og fékk vinnu í einni af bílaverksmiðjum Chrysler. Einn daginn fékk Marley boð um að ganga í herinn og halda til Víetnam. Hann hafnaöi boðinu. Er hér var komið sögu var Marley orðinn þátt- takandi í réttindabaráttu blökku- manna. Hann neitaði þó enn um sinn alfarið að beita valdi í þeirri baráttu. Aftur lá leið hans til Jamaica. Þótt Marley hefði náð þar umtalsverðum vinsældum átti hann í erfiðleikum með að rífa sig upp. Hann reyndi, ásamt félagögum sínum aö koma á fót plötufyrirtæki, Wailing Soul, sem fór á hausinn vegna lélegrar skipulagningar. Árið 1969 hófst samstarf Wailers og Lee Perrys sem áður hafði unnið fyrir Dodd. Perry gaf út þrjár breið- skífur fyrir Wailers á eigin merki, Upsetter, og voru þær meðal annars gefnar út í Bretlandi (Soul Rebels, Rasta Revolution og African Herbs- man). Á þessum tíma lágu saman leiðir Wailers og bræðranna Carly og Aston Barrett, trommara og bassista og gerðust þeir ryþmasveit Wailers. Árið 1973 urðu straumhvörf í sögu Bob Marley og félaga hans. Það ár komust þeir á samning hjá Island út- gáfufyrirtækinu en þar réð ríkjum Chris Blackwell sem hafði óbilandi trú á Marley og reggaetónlistinni. Að hans tilhlutan fengu The Wailers ótakmarkaðan upptökutima í stúdíói á árinu 1973. Afraksturinn varð breiðskífan Catch A Fire. Þessi plata var vandaöasta reggaeplata sem gerð hafði verið og vestrænir dreifingaraðilar og neytendur voru ekki lengi að taka við sér. En um líkt leyti hljóp snuröa á þráð Wailers. Samstarf félaganna þriggja var á enda. Bunny vildi snúa til baka og hreiðra um sig í ró og næði og reykja sitt hass. Tosh vildi reyna sjálfur, fannst hann standa i skugganum af Marley. Einn míkrafónn er ekki nógu stór fyrir tvo var haft eftir honum. Hróður Marley barst nú víða. Mest munaði um lagið I Shot The Sheriff sem Eric Clapton gaf út á plötu 1973 (461 Ocean Bouleward) og náði miklum vinsældum. Árið 1974 ákvað Marley að endurvekja Wailers og nú fékk hljómsveitin nafniö Bob Marley & The Wailers. Framhald að tveimur vikum liðnum. -TT.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.