Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1983, Síða 7
DV. MIÐVHÍUDAGUR 28. SEPTEMBER1983..
Neytendur Neytendur
/ mörgum stórverslunum hér ar algengum osttegundum pakkað / teygju-
plast og er það miður. Betra væri að setja ostinn fsórstaklega feitan ost)
í loftdregnar umbúðir.
Plastfilma
varhugaverð
utan um feita osta
— notuð í sumum stórverslunum hér
— Plastefni í margvíslegum mynd-
um hafa á síðustu áratugum orðið svo
ríkur þáttur í daglega lífinu, að án
þeirra værum viö „handalaus” við
heimilisstörf. Með þessum orðum hefst
grein í Húsfreyjunni 3. tbl. 1983 sem er
nýkomið út. Greinin er um plastmeng-
un matar og rituð af dr. öldu Möller,
dósent.
I greininni segir meðal annars:
Piastefni eru sérstakt svið innan
efnafræðinnar, enda eru þau mjög
margvísleg og með mismunandi
vinnslu og viðbót annarra efna má
gefa sama hráefni mjög mismunandi
eiginleika. Greinir dr. Alda frá helstu
matvælaplastefnum og grípum við
niður í kaflann um plastfilmuna eða
teygjuplastið. Þessi plasttegund nefn-
ist „polyvinylklóríð” (PVC) og ertært
og hart, notað í margs konar ílát og
diska. Eiginleikum efnisins má breyta
mjög með viöbót mýkingarefna
(„plasticizers”), sem gera það teygj-
anlegt og vinsælt til notkunar utan um
mat, því að plastþynnan leggst þétt og
misfellulaust að.
Veldur krabbameini hjá mús-
um
I PVC plastfilmum er algengasta
mýkingarefnið nefnt DEHA (di-2-etyl-
hexyladipat). Þetta ákveðna mýking-
arefni hefur orðið tilefni rannsókna á
Norðurlöndum og í Bandaríkjunum,
því að það berst mjög auðveldlega úr
plastinu y fir í f itu matvæla.
Sérfrasðinganefnd WHO (al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar)
taldi haustiö 1981 takmaikaðar sann-
anir vera fyrir því að DEHA ylli
krabbameini hjá músum, en taldi ekki
hægt að meta áhrif efnisins á menn út
frá niðurstöðum rannsókna.
Eigi að síöur, segir í grein dr. öldu,
hafa sænsk heilbrigðisyfirvöld farið
fram á, að teygjuplast verði ekki notað
um osta, hvert sem mýkingarefnið er,
og sett strangar reglur um hámarks-
mengun mýkingarefna í osti.
Neytendur fundu óbragð
að osti
Tilefni sænsku rannsóknanna var, aö
ýmsir neytendur urðu varir við óbragð
af osti, sempakkað varí teygjuplast.
Rannsóknir sýndu, að mýkingarefn-
iö barst hratt yfir i ostinn, hraðar í hita
og hraðast í feitasta ostinn, svo að yfir-
borðsmengunin varð margfalt meiri
en yfirvöld vilja leyfa, en náði lítið inn í
ostinn. Svipaðar niðurstöður fengust
fyrir kjötfars og hakk.
Síðar í greininni segir. Því miður er
öllum algengum osti pakkað í teygju-
. plast í sumum stórverslunum hér, en
betra væri að selja ostinn í þar til
gerðum loftdregnum umbúðum, sem
notaðar eru í Osta- og smjörsölunni og
ekki hafa að geyma mýkingarefni.
Kæfu í litlum stykkjum ætti heldur
ekki að pakka í teygjuplast. Hér hefur
aðeins veriö drepið á það helsta í grein
dr. öldu Möller í tímaritinu Húsfreyj-
unni um plastmengun matar. Neyt-
endur hér á landi ættu ,að vera vel á
veröi og fara með gát við kaup á ostum
í teyg juplasti. Allur er varinn góöur.
-ÞG.
Sýni voru
tekin af
nauta- og
kindahakki i
tólf versiun-
um á Stór-
Reykjavíkursvæð-
inu. Aiit bendir tii
að niðurstöður sóu
„vægast sagt
slæmar".
Gerlafjöldi of mikill
, ,Okkur sýnist á öllu að niðurstöður
könnunarinnar sem við gerðum séu
vægast sagt slæmar,” sagði Jóhann-
es Gunnarsson formaður Neytenda-
félags Reykjavíkur og nágrennis.
Hér svarar hann spurningu um könn-
,un sem fram fór nýlega á vegum
félagsins á nauta- og kindahakki i
tólf verslunum á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu.
Sýni voru tekin af hvorri hakk-
tegund i hverri verslun og látið í
rannsókn.
„Endanlegar niðurstöður liggja
ekki fyrir en í gerlarannsókn má þó
fullyrða að of mikill gerlaf jöldi kom
fram í sýnunum,” sagði Jóhannes.
Niðurstöður könnunarinnar munu
birtast i Neytendablaöinu i næsta
mánuði, sem verður veglegt
afmælisrit.
Eitt þeirra mála sem ofarlega er á
baugi hjá stjórn NRON er rýmkun
opnunartíma verslana á höfuð-
borgarsvæðinu. I undirbúningi er
könnun á vilja neytenda í þessu máli.
-ÞG
f
7
\
UMBOÐSMENN
VANTAR STRAX Á:
BREIÐDALSVÍK
ÓLAFSVÍK
OG HELLISSAND.
VINSAMLEGAST HAFID SAMBAND VIÐ
AFGREIÐSLUNA í SÍMA 27022.
Toyota Corolla ke-30 órg. 78, Toyota Cressida station sjótfsk. Toyota Carina árg. 78 4-dyra,
ekinn 57.000, grmnn. Verð órg. 78, ekinn 78.000, grænn. ekinn 72.000, brúnn. Verð 135.000.
100.000. Verð 150.000.
Toyota Cressida station órg. '80,
ekinn 32.000, gull-sans. Verð
230.000.
Toyota Cressida 4-dyra 5gira, órg.
78, ekinn 62.000, grænn. Verð
155.000.
Toyota Cressida órg. 78 4-dyra, 5
gira, ekinn 43.000, grænn. Verð
160.000.
Toyota Carina Gl sjótfskiptur órg.
80, ekinn 34.000, rauður. Verð
220.000.
Toyota Crown dísil órg. 80, sjótf-
skiptur, ekinn 180.000, brúnn.
Verð 260.000.
Toyota Cressida station sjálfsk.
órg. 81, ekinn 21.000, vinrauður.
Verð 325.000. Skipti möguleg ó
ódýrari.
Toyota Land Cruiser, station dísil
órg. 81, ekinn 33.000, rauður.
Verð 660.000. IBreið dekk og
felgur, spil.)
Toyota Hi-ACE bensín órg. '82,
ekinn 45.000, gulur. Verð315.000.
Einnig Toyota HI-ACE bensin árg.
81, hvítur, ekinn 80.000. Verö
265.000.
Toyota Tercel órg. 82, 3-dyra, 5
gíra, ekinn 31.000, grór. Verð
240.000.
Einnig Toyota Tercel órg. '81, 3-
dyra, 5 gira, ekinn 27.000,
vinrauður. Verð 200.000.
Toyota HI-LUX 4x4 órg. 80,
lengri gerð. Ekinn 48.000, gulur.
Verð 260.000. tBreið dekk og
felgur, stóiar.)
§ TOYOTA
SALURINN
Nýbýlavegi 8, sími 44144.