Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1983, Page 9
9
.'•H' r fírxnV’f'ZTci'íiv R
DV. MIÐVIKUDAGUR 28.
Útlönd
Andófs-
maður
dæmdur
Lettneski gullsmiöurinn og mann-
réttindabaráttumaðurinn Ints Calitis
var dæmdur til sex ára þrælkunar-
vinnu af dómstóld í Ríga.Honum var
gefið að sök að hafa unnið að and-
sovéskum aögerðum. Calitis var hand-
tekinn í apríl og hefur áður verið
tvisvar dæmdur til vistar í þrælkunar-
búðum fyrir samstarf við aðra andófs-
menn í Eystrasaltsríkjunum þrem.
Annar andófsmaður, Gunars Astra,
var handtekinn 15. september eftir að
hann hafði veriö kallaður til þess að
bera vitni við réttarhöldin gegn Calitis.
Fregnum frá Eystrasaltsríkjunum
ber saman um það að eftir að Andropof
tók við völdum hefur harðnað sókn
yf irvalda á hendur andófsmönnum.
Á
Átak
gegn
glæpum
Hin opinbera ungverska frétta-
stofa MH hefur tilkynnt að yfirvöld
í Ungverjalandi hafi hafið átak til
að koma í veg fyrir glæpi. Munu
lögregluyfirvöld hafa lagt fram 25
þús. tillögur um úrbætur. Meira
en 83 þúsund dómsmál, vegna af-
brota sem snerta einka- eða opin-
bera eign, komu fyrir rétt í Ung-
verjalandi í fyrra.
I skýrslu sem heitir .JEigna-
vemd í Ungverjalandi” segir að
glæpir gegn einum manni nemi
60% af öllum glæpum sem framdir
voru 1982. Og einn þriðji þeirra
glæpa var gegn opinberum eignum.
Fimm myrt
Fimm manns var rænt á veitinga-
húsi í Texas á föstudag og fundust lík
þeirra í skógi nærri þorpinu Kilgore í
Austur-Texas á laugardaginn. Þetta
voru þrír karlar og tvær konur og
höfðu þau öll verið myrt með því að
skotiö var í höfuð þeim.
Þrjú fórnarlambanna unnu á
veitingahúsinu og munu ræningjamir
hafa komist inn um eldhúsdyrnar
skömmu eftir lokunartíma og tekið
alla fjármuni sem fundust í húsinu.
Samtals höfðu morðingjarnir tvö
þúsund dollara upp úr krafsinu.
Lögreglan hefur litlar vísbendingar
um það hver jir vora þar að verki.
Heimsmeist-
arakeppnin
íbridgeí
Stokkhólmi
Þessa dagana stendur yfir í
Stokkhólmi heimsmeistarakeppnin
I bridge og eru búnar sex umferðir.
Átta lönd eiga þama sveitir sem
keppa um tvö sæti í þriggja liða úr-
slitum. Urslitakeppnin verður
straxínæstuviku.
Bandarikin eru efst með 138 stig
(30 stig, era til skipta í hverjum
leik). Pakistan hefur 112 stig,
Svíþjóð 87 1/2 st., Nýja Sjáland 87
st., Italía 85 st., Brasilía 76 st.,
Indónesía 64 st., Jamaíka 60 st.
Frakkar, sem era núverandi
ólympíumeistarar og nýbakaðir
Evrópumeistarar, koma beint í úr-
slitin án forkeppni.
WIGENDUR
Eigum fyrtrHggjandt frambretti
og Ijósi flestar Bíih,Htir ht
argeroir si«nm.A ».si>n :i8»«5
ENN
ERANN
og Húsgagnahöllin í Bíldshöiða er stútíull aí norðanvörum.
Góðum vörum á góðu verði, sem íjúka út jaínharðan.
__________Við opnum á morgun klukkan 1.
Á boðstólum:
Gallabuxur, úlpur, peysur, sokkar, skór í öllum regnbogans litum
_____og mörgum gerðum og barnaíatnaður alls konar.
Ennfremur:
Kvenkápur, kjólar, pils og tískuvörur úr ull.
Líka:
Herraíöt, stakar buxur, stakir tweed jakkar, írakkar og eínisbútar.
Þar að auki:
Teppabútar, áklœðiseíni og gluggatjölá, buxnaeíni, einlitt og
teinótt terylene og gullíalleg ullarteppi á gjatverði.
Einnig:
Teppagœrur, mokkaskinn í mörgum litum, mokkaíatnaður og
_______________________mokkah úíur.
Og auðvitað: Ho,gun a.,3-22
Garn, m.a. í stórhespum, loðband oq lopi. C fostudag u. 13 - is
** ^ Laugaidag kl. 10-16
Strœtisvagnaferðir frá Hlemmtorgi: Leið 10.
*VERKSMmJUSALA*
SAmANDSVmSmjAMA Á AKUSEYSl