Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1983, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1983, Blaðsíða 11
DV. MIÐVKUDAGUR 28. SEPTEMBER1983. 11 Róttírnar komnar upp og byrjað or að rótta. Fjárflutningabilarnir eru mættír á staðinn tíibúnir að flytja diikana i sláturhús. Fullorðna fóð er tekið á trakt- orsvagnana og flutt i byggð. í baksýn er Hekla gamia, sem öllu umstang- inu olli með gosinu 1980. Landréttirfærðar: Réttað á miðri vikurauðninni Afleiðingar Heklugossins 1980 Menn láta sig nú ekki vanta i ráttímar, þótt þær sóu færðar upp á af- róttínn. Fró vinstri: Óttar Möller, fv. forstjóri Eimskips og núverandi fjór- bóndi á Hellu, Jón Sigurðsson, bóndi og iandskunnur hestamaður í Skolla- grófiHrunamannahreppi, og réttarstjórinn, Guðni Kristínsson hreppstjórii Skarði ó Landi. Ljósm.: G.T. K. Höfn Hornafirði: Fullviss- ir um góða vertíð Frá Júlíu Imsland frcttaritara DVáHöfn: Það er óðum að lifna yfir athafnalífinu hér á Hornafirði. Slátrun sauðfjár er nýhafin og veröur slátrað 27 þúsund fjár; er þaö 600 færra en í fyrra. Kartöflubændur eru misjafnlega ánægðir meö uppskeruna, en hún mun alls staðar vera minni en í fyrra. Togarinn Sunnutindur á Djúpavogi landaði hér í síðustu viku 60 tonnum af karfa. Gissur hvíti hefur verið á spærlings- veiöum sl. mánuð og er búinn að landa um 500 tonnum þennan tíma. Tveir minnstu bátamir, Amý og Rúna, em þeir einu sem leggja upp fisk hjá frystihúsinu núna og eru þeir með um 11/21 í róðri. Garðey og Æskan halda áfram rækjuveiöum þar til síld- veiðar hefjast og em meö um tvö tonn í veiðiferð. Síldarsaltendur em tilbúnir að taka á móti síld- inni og em þess fullvissir að þetta verðigóðvertíð. Sem kunnugt er lögðust Landréttir niður með Heklugosinu 1980. Vikur- gjallið eyðilagði algjörlega vestur- hluta Landmannaafréttar og bmgðið var þá á það ráð að rétta allt féð inn við Landmannahelli og keyra það síðan niður í byggð. Em það um 60 km til efstu bæja í Landsveit. Vesturhluti afréttarins er nú eitt- hvað að gróa upp og er æ erfiðara að reka allt féð til baka inn í Landmanna- helli. Á fimmtudaginn var því brugðiö á það ráð að rétta allt safnið á miðjum vikurflákanum, rétt hjá Tröllkonu- hlaupi í Þjórsá. Var þetta í einu homi Sandgræðslugirðingarinnar og hafði Landgræðslan gefið leyfi til rétta- stæðisins. Var slegið upp timburflek- um og réttirnar búnar til á staðnum. Vom síðan nokkur þúsund fjár réttuð þarna og allt dregiö upp á bíla eða fjárflutningavagna og kermr og síöan keyrt til byggða. Gekk þetta vel í blíð- viðrinu á fimmtudag. Þökkuðu menn hátt og í hljóði aö ekki væri norðan strekkingur, því rjúkandi sandbylur er þá þama. Eftir aö fjársafnið hafði verið réttað voru svo réttirnar teknar niður og var þá vikurauðnin ein eftir. Féð þótti mjög vænt af fjallinu og er afrétturinn enn í bata og með besta móti. G.T.K. Umferðarbót Fyrir skömmu afhenti Davíð Odds- son borgarstjóri Skipulagsstofu höfuð- borgarsvæðisins reiknilíkan umferðar en það á að auövelda skipulagsmál öll svo og umferðina. Hingað til hafa út- reikningar þessir farið fram erlendis. „Þetta er stór áfangi í samstarfi sveitarfélaganna á höfuöborgar- svæðinu,” sagði borgarstjóri er hann afhenti líkanið. Richard Björgvinsson veitti því móttöku fyrir hönd Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu en á yfirráðasvæði þeirra búa 54 prósent þjóðarinnar. -DV-mynd GEA. BREIÐHOLTI SÍMI 76225 MIKLATORGI/ 122822’ Fersk blóm daglega Sigurðar Hákonarsonai* láttu nú loksins verða af því skelltu þér í dans kennum alla almenna dansa óþvingað og hressilegt andrúmsloft innritun og allar nánari upplýsingar daglega frá kl. 10-19 BARNA-UNGLINGA OG FULLOR ÐINSKENNSLA opið til sjö í kvöld N&1 Yörumarkaðurinn hf. e/ðistorg/ n MANUDAGA - ÞRIÐJUDAGA - MIÐVIKUDAGA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.