Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1983, Page 31
c*Mor rp onníirrTwnFaF/
DV. MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER1983.
Sandkorn
Sandkorn
31
Sandkorn
Þegar kanínan
var handtekin
! framhaldi af átökum lög-
rcglunnar í Reykjavik við
hundinn á Framnesveginum
hefur það rifjast upp fyrir
mönnum að þetta er ekki í
fyrsta sinn sem lÖgregluþjón-
ar hafa lent i átökum við
gæludýr eða „ferfætta heimil-
isvini” eins og þeir eru stund-
um kallaðlr.
Það var fyrir tíu árum eða
svo að lögregluþjónar i
Hafnarfirði handtóku kanínu
sem gerst hafðl brotleg við
ákvæðl lögreglusamþykktar
sem þar gilti. Ekki fór málið
fyrir dóm enda sök skepnunn-
arljós.
Lögregluþjónarnir tóku þvi
dýrið með sér út á öskuhauga
og þegar þangað var komið
skiptu þeir með sér verkum
þannig að annar þeirra hélt
skepnunni meðan hinn miðaði
rifflinum og skaut. Kúlan
rispaði kaninuua litillega en
hljóp síðan í fót lögregiu-
Ekki vitum við hvort þessi
kanina ar skyld þoirri hafn-
fírsku, an vist er að sú hafn-
fírska siapp.
þjónsins sem hélt á henni.
Hann missti kaninuna sem
hafði sig á brott tafarlaust.
Síöan var lögregluþjóninum
komið undir læknishendur.
Það er augljóslega hættuspil
að framfylgja lögum um
dýrahaldíþéttbýli.
Ungversku ieikmennirnir, tannpina en ekkert sódavatn.
Draga Víkingar
tennur?
Nú eru komnir tii landslns
leikmenn ungverska knatt-
spyrnuliðsins Raba til þess að
leika sinn seinnl leik gegn
Víkingum í Evrópukeppni
meistaraliða. Fyrri leikurinn
fór, eins og aiþjóð mun kunn-
ugt, 2—1 fyrir Ungverja og
þótti það góð frammistaða
hjá Víkingum. Sérlega þóttu
Víkingarnir leika góðán vam-
arleik og líktu ungverskir
blaðamenn vöra Víkinga við
kínverska múrinn. Þjóðlegir
íslendingar kjósa þó frekar
að sækja sina samliklngu við
Vikingsvöraina til þjóðlegri
stefja og líkja henni við vel-
hlaðlnn túngarð með gamla
laginu.
En ekki voru Ungverjarnir
fyrr komnir til landsins en
elnum þeirra var ekið í hend-
ingskasti til tannlæknis og úr
honum dregin tönn sem hafði
kvalið hann ákaflega alla
ferðlna. Þetta þótti hjátrúar-
fullum Vikingsunnendum
góðs viti og vonast tU þess að
Víkingar dragi tennuraar úr
Ungverjunum í kvöld.
Ekkert Gvendar-
brunnavatn
Það vakti athygU þcirra
sem stjana við ungverska
knattspyrnuliðið Raba að
þeir taka ekki í mál að drekka
kranavatnið góða úr Gvend-
arbrannum en heimta sóda-
vatn á flöskum og ekkert
annað. Þetta kemur eflaust
Reykvikingum á óvart sem
flestir telja drykkjarvatn hér
það besta i heimi. Þelrri skýr-
ingu var varpað fram að guð-
lausir efnishyggjumenn og
kommúnistar hefðu enga trú
á þvi að þeim gæti orðið gott
af vatni sem einhver kaþólsk-
ur biskup blessaði í fyradinni.
Mublur SÁÁ
i fyrri viku blrtist hér í
sandkoraum frásögn af
blaöamannafundi sem sagt
var að húsgagnaframleiðend-
ur hefðu haldið tll að mót- I
mæla þeirri ákvörðun SÁÁ að
kaupa erlend húsgögn i end-
urhæflngastöð samtakanna
sem nú er að verða fullbyggð.
Var þess getið í frásögninni
að á fundinum hefði verið
borin fram dönsk rúUuterta
með kaffinu.
Ekki reyndist þessi frásögn
með öUu rétt. Það voru nefni-
lega ekki samtök húsgagna-
framleiðenda sem héldu um-
ræddan fund heldur var fund-
urinn haldinn á vegum SÁÁ
og öðlast þar danska rúUu-
tertan aðra merkingu.
Svo alvarlega taka hús-
gagnaframleiðendur hér
stuðning við íslenskan iðnað
að einn þeirra kaupir sérlega
inn islenskt kex sem starfs-
fólk hans getur síðan keypt á
kostnaðarverði á kaffistof-
unni svo fólkið leiðist ekki út í
þá vitleysu að kaupa erlenda
framleiðslu þcgar fuUboðleg
islensk varaer tU.
Við biðjumst velvirðingar á
þessu ranghermi.
Umsjón: Ólafur B. Guðnason.
Kvikmyndir Kvikmyndir
Kvikmyndir Kvikmyndir
Rölt um götur New York
Heiti: Laumuspil (The All Laughed).
Leikstjóri og handritshöfundur: Peter Bog-
danovich.
Kvikmyndun: Robby Muller.
Aðalleikendur: Audrey Hepburn, Ben Gazzara,
John Ritter, Colleen Camp, Dorothy Stratten
og Patti Hansen.
Fyrir rúmum tíu árum þótti Peter
Bogdanovich einhver efnilegasti
leikstjóri í Hollywood, hafði hann þá
látiö frá sér fara þrjár myndir er
allar þóttu lofa góðu um ferU hans.
Voru það myndirnar The Last Pict-
ure Show, sterk mynd um líf í smábæ
á fimmta áratugnum og varð sú
mynd til þess að aftur var farið að
kvikmynda í svarthvítu og gaman-
myndirnar What’s Up Doc og Paper
Moon voru gerðar.
En eftir að þessar myndir litu
dagsins ljós komu hver mistökin á
fætur öörum og hefur hann átt erfitt
uppdráttar síðan með myndir sínar.
Hann lét sig hverfa frá Hollywood
1979 og gerði mynd í Singapore, Saint
Jack, sem aö vísu hlaut góða dóma,
en litla aðsókn: En Peter Bogdan-
ovick hefur ætíð farið stnar eigin
leiðir og eftir að hafa verið í Singa-
pore hélt hann til New York og gerði
síðustu mynd sína hingað til,
gamanmyndina Laumuspil (They
AllLaughed).
Myndin segir frá þremur einka-
leynilögreglumönnum sem aðallega
hafa atvinnu af því að elta eigin-
konur um alla New York og njósna
um hvort þær lumi á elskhugum. En
eins og í sönnum farsa verða tveir
þeirra ástfangnir af verkefni sínu og
snýst myndin að mestu leyti um ást-
arsamböndin á gamansaman hátt,
misskilning og árekstra hinna ýmsu
sögupersóna á götum New York
borgar undir ljúfum tónum Frank
Sinatra og fleiri kunnuglegra New
Yorklaga.
Það verður að segjast að þrátt
fyrir nokkra góöa spretti veldur
Laumuspil nokkrum vonbrigðum.
Eg bjóst svo sannarlega við meiru
eftir að Bogdanovich hafði lýst yfir
aö hann hefði lært af mistökunum á
seinni hluta áttunda áratugarins.
Kannski ligg ja mistökin í því að hann
hefur ætlað persónum sínum of mikiö
í of litlu máli og mynd, og verður
hver karakterinn af öðrum vand-
ræðalegri þegar líða tekur á mynd-
ina um leið og brosið á vörum áhorf-
andans minnkar.
Það eru bæði þekktir og óþekktir
leikarar sem koma viö sögu í Laumu-
spili. Audrey Hepbum er mætt til
leiks og er það alltaf saga til næsta
bæjar þegar þessi ljúfa leikkona
tekur sig til og bregður á leik, en þau
skipti hafa vcrið fá á undanfömum
árum. Gallinn við hlutverk hennar er
aðallega sá að hún fær ekkert tæki-
færi til að leika, heldur röltir aðal-
lega um götur stórborgarinnar. Ben
Gazzara, sá ágæti leikari, er hálf-
vandræðalegur í hlutverki leynilög-
reglunnar sem f ellur fyrir Hepburn.
Aðrir leikarar passa miklu betur
inn í ramma myndarinnar og hafði
ég sérstaklega gaman af Blaine
Novak en hann var sá eini þremenn-
inganna er ekki lét heillast af kven-
fólkinu og var oft á tíðum bráðfynd-
inn þótt ekki segði hann mikiö.
En sú sem vakti hvað mesta
athygli mína var Dorothy Stratten.
Þessi fagra, tvítuga leikkona var
myrt einum mánuði eftir að taka
myndarinnar hófst og vakti það að
sjálfsögðu mikla athygli á sínum
tíma og hefur síðan verið tilefni til að
gerð hefur verið ein sjónvarpsmynd
um ævi hennar og sjálfur Bob Fosse
er þessa dagana aö leggja síðustu
hönd á kvikmynd byggða á ævi
hennar. Hún virðist í þessari mynd
hafa haft alla burði til að verða stór-
stjarna á hvíta tjaldinu, fögur og
eðlileg.
Laumuspil er rómantísk
gamanmynd sem hefði átt að verða
betri í höndum Bogdanovick, en
þrátt fyrir galla er mörg afþreyingin
verri. Það eru dágóðir kaflar inni á
milli þó heildin hefði mátt vera betri.
-Hilmar Karlsson.
Fögur og óánægð eiginkona og mlsbeppnaður leynilögreglumaður. Dorothy Stratten og John Ritter.
Bíóhöllin—Laumuspil:
BORGARSTARFSMENN
Almennur félagsfundur um samningsréttarmál verður hald-
inn að Hótel Sögu fimmtudaginn 29. september nk. kl. 20.
Félagsmenn fjölmennið.
Stjórn Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.
BLAÐBURÐAR
FÚLK
VANTAR
STRAX
í
REYKJAHVERFI
MOSFELLSSVEIT.
UPPLÝSINGAR í
SÍMA 66481.
1 X 2 - 1X 2-Tx 2
5. leikvika — leikir 24. sept. 1983
Vinningsröð: 11 x —2 x 2—112—122
1. vinningur: 12 réttir — kr. 346.700.-
695(1/12,1/11) (Akureyri)
2. vinningur: 11 réttir — kr. 2.606.-
330 2231 35810 43581 50280 89156 43660(2/11)
690 2946 37451 43929 51297+ 90999 47881(2/11)
692 4885 38449 45197 85003 91630+ 49705(2/11)
694 12795 38614 45469+ 85017 91879+ 49750
866 14001 39145 46298 85191 92997+ 49826
1044 14681 41629 47778 85217 160894 50811
1988 16504 42318+ 48238 88994 180449 89117(2/11)
Kærufrestur er til 17. október kl. 12 á hádegi.
Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást
hjá umboðsmönnum og á skrifstofunni í
Reykjavík. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef
kærur verða teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að
framvísa stofni eða senda stofninn og fullar
upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna
fyrir lok kærufrests.
GETRAUNIR — íþróttamiðstöðinni — REYKJAVÍK