Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1983, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1983, Page 32
32 DV. MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER1983. Kristján Arnljótsson fyrrv. raf- veitustjóri lést 20. september sl. Hann var fæddur 30. apríl 1918 að Efra- Lýtingsstaöakoti í Skagafiröi. Foreldr- ar hans voru Sigurbjörg Pálsdóttir og Arnljótur Kristjánsson. Kristján lærði afvirkjun. Hann starfaði síðan um hríð við Laxárvirkjun og rafveitu Akureyrar en réöst árið 1945 til Rafveitu Hafnarfjarðar, þar var hann verkstjóri í 7 ár. Árið 1952 var Kristján ráðinn rafveitustjóri á Húsavík. Því starfi gengdi hann í 30 ár. Etirlifandi eiginkona hans er Gerður Bjömsdóttir. Þau eignuðust fimm böm, eru þrjú á lífi. Utför Kristjáns veröur gerð frá Húsavíkurkirkju í dag. Sæmundur B. Þórðarson, Baldursgötu 7, sem lést á öldrunardeild Borgar- spítalans 21. september sl., verður jarðsunginn frá FríkirkjunnJ fimmtudaginn 29. september nk. kl. 13.30. Kristín S. Kristjánsdóttir, Sólheimum 22 Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 29. septemberkl. 15. Sigríður Pálsdóttir frá Kirkjubóli í Korpudal, lést að Sólvangi 26. þ.m. Willy Hansen yngri, trúboði, lést á Nýja Sjálandi, 26. september sl. Dr. Gunnar Thoroddsen, fyrrverandi forsætisráðherra, sem lést 25. þ.m. verður jarösunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 30. september kl. 13.30. Athöfninni verður útvarpað. Hans Guðnason, Rauðalæk 45, fyrrum bóndi að Hjalla í Kjós, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu föstudaginn 30. sept. kl. 13.30. Hörður Scheving Ellertsson lést mánudaginn 19. sept. sl. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju í dag, miðvikudaginn 28. september, kl. 15. Sigurður Smári Hilmarsson, sem lést af slysförum 18. september sl., verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, miðvikudaginn, 28. september, kl. 13.30. Tilkyrtningar Halgrímskirkja — starf aldraðra Opið hús verður fimmtudaginn 29. sept kl. 1430. Gestur verður Ragnheiður Guðmundsdóttir augn- læknir. Kaffiveitingar. Safnaðarsystur. Aðalfundur félags óháðra borgara í Hafnarfirði verður í Góðtemplarahúsinu við Suðurgötu fimmtudaginn 6. október og hefst kl. 20.30. Langholtssöfnuður Starf fyrir aldraða alla miövikudaga kl. 14— 17 í Safnaðarheimilinu. Föndur — handa- vinna — upplestur — söngur — bænastund — léttar æfingar — kaffiveitingar. Ahersla lögð á að ná til þeirra sem þurfa stuðnings til að fara út á meðal fólks. Bíla- þjónusta verður veitt og þá metið hverjir þurfa hennar mest með. Þjónusta fyrir aldraða og aðstandendur með einkaviðtalstímum kl. 11—12 á miðviku- dögum. Upplýsingar og tímapantanir bæði í hár- snyrtingu og fótaaðgerð í síma 35750 kl. 12— 13 á miðvikudögum. Sóknarnefndin. Hlutafélagið KOT hf. kvikmyndagerð, var stofiiað árið 1975 og er sam- eign meginþorra starfandi kvikmyndagerðar- manna. 'nigangurfélagsinseraðskapahluthöfum aðstöðu fyrir tónsetningu og klippingu kvikmynda sinna Á hkithafafundi, sem haUinn var 879 1963, var samþykkt að auka hlutafé félagsins um kr. 800 þús., einnig var samþykkt eftirfarandi áskorun. Áskorun til menntamálaráðherra, fjármálaráðherra, útvarpsstjóra og útvarpsráðs. Félagsfundur í Koti hf. skorar á stjómvöld að beita sér fyrir því að dagskrárgerð sjón- varpsins verði boðin út til kvikmyndafyrir- tækja. Nú er starfandi fjöldi frjálsra kvik- myndafyrirtækja sem geta framleitt bæði betra og ódýrara myndefni en sjónvarpið sjálft eins og þær kvikmyndir sanna sem komið hafa á markaðinn á síðustu árum. Ot- boð sjónvarpsefnis yrði til að skapa enn fleiri tækifæri á hinum frjálsa markaði fyrir kvikmyndagerðarfólk og aðra listamenn sem fást við myndmál. Eyfirðingar Árlegur kaffidagur og basar verður að Hótel Sögu, Súlnasal, sunnudaginn 2. október. Húsið opnar kl. 14. Fjölmennið og takið með ykkur gesti. Kvennadeild Eyfirðingafélagsins. Vetrarstarf kvenréttindafé- lags íslands að hefjast Vetrarstarf Kvenréttindafélags Islands hefst að þessu sinni með hádegisfundi fimmtudag- inn 29. september nk. í Leifsbúð, Hótel Loft- leiðum. Salome Þorkelsdóttir alþingismaður kemur á fundinn og segir frá störfum nefndar þeirrar sem menntamálaráðherra skipaði í sumar og kanna á hvernig hægt er að koma á betri tengslum milli heimila og skóla og möguleika á samfelldum skóladegi. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi Gunnar Thoroddsen sem lést 25. þ.m. verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 30. september kl. 13.30. Athöfninni verður útvarpað. Þeim sem hafa hugsað sér að minnast hans með blómagjöfum er vinsamlega bent á að láta líknarfélög fremur njóta þess. Vala Ásgeirsdóttir Thoroddsen, börn, tengdabörn og barnabörn. t tltför og minningarathöfn um syni okkar og bræður, Þórð Markússon og Sigfús Markússon, Ásgaröi Eyrarbakka, sem fórust með Bakkavík ÁR-100 þann 7. september síöastlið- inn, fer fram frá Eyrarbakkakirkju þann 1. október kl. 14. Ási Markús Þórðarson Aðalheiöur Sigfúsdóttir Vigfús Markússon. I gærkvöldi I gærkvöldi ÞAÐ SEM HÖFÐAR TIL FLESTRA ÆTTIAÐVERAFYRSTÁDAGSKRÁ Sjónvarpsútsendingar verða margar aö miklum blaðaskrifum. Oftast er kvartaö undan lélegum þáttum, þá kemur fyrir að beðið er um fleiri þætti af einstökum fram- haldsmyndaflokkum. Nú er það án efa ósk flestra sjónvarpsunnenda aö róttækar breytingar verði gerðar á sjónvarpsdagskránni sem setja mætti í sigti þannig að þunnir þættir renna í gegn og hinir bestu verða eftir. Vil ég í því sambandi eindregið taka undir orð Siguröar Sverris Páls- sonar sem rætt var við í kvöldfrétta- tíma útvarps í gærkveldi. Verði komið á samvinnu sjónvarps- og kvikmyndagerðarmanna, verður það án efa „áhorfendum til heilla” eins og Sigurður komst að orði. Þá var og rætt við Pálma Matthíasson, fréttaritara útvarps á Akureyri, í fréttatímanum. Var það vegna umferðaröryggisdags þar nyrðra. Það er eftirtektarvert að heyra barnaraddir í útvarpi og skemmtileg tilbreytni. Þetta er gott framtak og ættum við að hafa i huga ábendingu sem þar kom fram að vakna fyrr á morgnana, þá erum við laus við að keyra í loftinu. Kemst þótt hægtfarí.sagðiskjaldbakan. Uppröðun dagskrár langar mig að síðustu að taka til umfjöllunar. Hvers vegna í ósköpunum er kvöld- tónleikum troðið á útvarpsdagskrá á undan þætti Rafns Jónssonar um húsnæðismálin??? Sá þáttur höfðar til margfalt fleiri Islendinga en sinfóníutónleikarnir en til þess að tryggja að einhver pínist til að hlusta á sinfóníuvælið var það haft á undan. Nú, sjónvarpið skarst í leikinn og hélt fjölmiðlaháðum einstaklingum vakandi meö manndrápum á sama tíma og kvöldtónleikum var út- varpað. Þannig aö viðkomandi aðili sofnaði ekki út frá útvarpinu. Það kemur allt of oft fyrir að góðir þættir eru hafðir of seint á dagskránni, einkum barnaþættir í s jónvarpi. Margrét Sverrisdóttir. Fundurinn er opinn félagsmönnum og þeim sem áhuga hafa á málinu. 1 vetur verður bryddaö upp á þeirri ný- breytni aö hafa umræöuhópa í húsnæði KRFI á Hallveigarstöðum um atvinnuþátt- töku kvenna öll miðvikudagskvöld. Fyrsti hópurinn kemur saman miövikudaginn 5. október kl. 20.30 og fjallar um Iaunakjör/- launamun kvenna og karla. Miðvikudaginn þar á eftir verður rætt um kosti og galla þess fyrir konur að vera í hlutastörfum og/eða heilsdagsstörfum á vinnumarkaðin- um. Þá verður fjallað um styttri vinnutíma fyrir alla; konur og stéttarfélög og um áhrif örtölvubyltingar á störf kvenna. Vonast er til að félagsmenn og aðrir er áhuga hafa á líti inn og taki þátt í umræðum. Allar nánari upplýsingar er hægt að fá á skrifstofu KRFl mánudaga til fimmtudaga frá kl. 14.00— 17.00. Aðalfundur blakdeildar HK Aðalfundur blakdeildar HK verður haldinn mánud. 3. okt. að Hamraborg 1 (niðri), Kópavogi. Fundurinn hefst kl. 19.30. Venju- leg aðalfundarstörf. Aðalfundur Hússtjórnar- kennarafélags íslands var haldinn í Gerðubergi í Breiðholti nýlega. 1 skýrslu formanns félagsins, Gerðar H. Jóhannsdóttur, kom fram að eftirspurn eftir kennslu i heimilisfræði hefur aukist á öllum skólastigum og í fræðslustarfsemi fyrir full- orðna. Vegna þessa er aukin þörf fyrir sér- menntaða kennara í greininni. Stjórn félagsins hefur gengist fyrir stofnun deilda í fræðsluumdæmum landsins og hlut- verk þeirra er að efla samstarf hússtjómar- kennara og framgang námsgreinarinnar á öllum skólastigum. Auk venjulegra aðalfundarstarfa flutti Ámi Einarsson erindi um áhrif fíkniefna á fólk og samfélag. Stjóm félagsins næsta ár skipa auk for- manns þær Sigríður Haraldsdóttir varafor- maður, Anna Sigurðardóttir gjaldkeri og Hólmfríður Pétursdóttir ritari, meðstjórn- endur em Ásdis Magnúsdóttir og Hanna Kjeld. Frá heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytinu I ljós hefur komið, að ráðstöfunarfé örorku- og ekkjulífeyrisþega á dvalarstofnunum, og vistmanna á dvalarstofnunum aldraðra, hækkaði ekki hinn 1. júni sl. til samræmis við reglugerðir nr. 284 og 286/1983, sem fyrr- verandi heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra gaf út hinn 14. april sl. Ráðuneytið hefur gert ráðstafanir til að þessi skekkja verði leiðrétt og í októbermán- uði verði bæði greidd sú hækkun sem koma hefði átt á mánuðina júní til september og að frá og með október verði greiðslur þessa ráðstöfunarfjár í samræmi við fyrrgreindar reglugerðir, með þeim hækkunum sem koma áttu á bætur almannatrygginga hinn 1. júní og koma eiga á bætur almannatrygg- inga hinn 1. október nk. ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Sölu aðgangskorta lýkur í þessari viku Nú er síðasta söluvika á afsláttarkortum í Þjóðleikhúsinu og siöasti söludagurinn er á laugardaginn kemur, þann 1. október. Sala kortanna hefur gengið mjög vel til þessa enda fæst 20% afsláttur af aðgöngumiðum með þessu fyrirkomulagi. Þá eiga þeir sem kaupa kortin ennfremur rétt á sama afslætti á sýningum á Litla sviði Þjóðleikhússins en það er nýjung. Rétt er að minna á hvaða verkefni leik- hússins eru í áskrift, en það eru SKVALDUR, nýr breskur farsi eftir Michael Frayn, sem reyndar er þegar búið að frumsýna og fengið hefur mjög lofsamlega dóma, annað verk- efnið er EFTIR KONSERTINN, eftir Odd Bjömsson, sem frumsýnt verður 12. október. Þriðja verkefnið er NÁVIGI, eftir Jón Laxdal, sem verður frumsýnt í nóvember og fjórða verkefnið er TYRKJA-GUDDA, eftir Jakob Jónsson frá Hrauni, sem verður frumsýnt 26. desember. Eftir áramót koma síðan SVEIK1 SEINNI HEIMSSTYRJÖLDINNI eftir Bertolt Brecht, leikrit sem byggt er á sögunni vinsælu um Góða dátann Svæk, eftir Jaroslav Hasek, ballettinn ÖSKUBUSKA, við tónlist eftir Serge Prokofév og loks söngleikurinn GUYS & DOLLS eftir Loesser, Swerling og Burrows, byggður á sögu eftir Damon Runyon. Skólameistarafélag íslands Aöalfundur Skólameistarafélags Islands var haldinn í Iðnskólanum í Reykjavík laugar- daginn 24. september. Á fundinum flutti Olafur Ásgeirsson, skólameistari Fjölbrauta- skólans á Akranesi, erindi um yfirstjóm framhaldsskólans, Ingvar Ásmundsson, skólastjóri Iðnskólans í Reykjavík, fjallaði um inntak náms á framhaldsskólastigi og Heimir Pálsson fráfarandi skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi, ræddi um gerð framhaldsskóla og staðsetningu þeirra. Karl Kristjánsson, aðstoðarskólameistari Ármúlaskóla, sagði frá kynnisför skóla- meistara til Bandaríkjanna í október 1982. Samþykktar voru eftirfarandi ályktanir um málefni framhaldsskólans og félagsins. 1. Stjórn félagsins var falið að vinna að því að gerðar yrðu skipulagsbreytingar á yfirstjórn framhaldsskólanna þannig að þeir heyri undir sérstaka deild í menntamálaráðuneyt- inu eða sérstaka stofnun. 2. Aðalfundurinn samþykkti einróma að skora á alþingi og ríkisstjóm að setja nú þegar lög um framhaldsskóla á Islandi. Þá var kosin nefnd þriggja manna til þessi að undirbúa ráðstefnu á vegum félagsins þar sem fjallað verður um yfirstjóm framhalds- skólans, inntak náms á framhaldsskólastigi og staðsetningu f ramhaldsskólans. Ný stjóm félagsins var kjörin á fundinum og skipa hana Ingvar Ásmundsson, skóla- stjóri Iðnskólans í Reykjavík, formaður, Olafur Ásgeirsson, skólameistari Fjölbrauta- skólans á Akranesi, ritari, Karl Kristjánsson, aðstoðarskólameistari Armúlaskóla, gjald- keri. I varastjórn vora kjörnir Kristinn Kristmundsson, skólameistari Menntaskól- ans á Laugarvatni, og Tryggvi Gxslason, skólameistari Menntaskólans á AkureyrL Fundarstjóri á aðalfundi var Jón Böðvarsson, skólameistari Fjölbrautaskóla Suðumesja. Ályktun frá stjórn Heim- dallar I framhaldi af umræðum um opnunartíma verslana í Reykjavík og nágrenni ályktar stjóm Heimdallar: Stjórn Heimdallar telur að ákvarðanir um opnunartíma verslana hvar sem er á land- inu eigi aö vera í höndum verslunareigenda og starfsfólks, og miðast fyrst og fremst við þarfir og óskir neytenda. Annarlegir hagsmunir Kaupmannasam- taka, sem aðeins hafa hluta kaupmanna inn- an sinna vébanda, eða reglugerð borgaryfir- valda era haldlitlar mælistikur á þá þjón- ustu, sem almenningur viU njóta i frjálsu samfélagi. Stjóm Heimdallar hvetur borgarstjóm Reykjavíkur tU að taka upp stefnu ná- grannasveitarfélaganna í þessum efnum og leggja traust sitt á verslunarmenn og neyt- endur hvað opnunartíma verslana varðar. I beinu framhaldi minnir stjóm HeimdaUar á þörfina fyrir virk og sterk neytendasamtök og neytendaeftirUt. Núverandi verðlagseftir- Ut og verðlagsákvæði eru löngu úrelt stjóm- tæki Ul verðákvarðana. Núverandi ákvæði henta versluninni iUa auk þess sem þau hvetja tU óhagkvæmari innkaupa. Neytendasamtök í stað verðlagseftirlits, frjáls verðmyndun í stað verðlagsákvæða. Stjórn Heimdallar hvetur stjómvöld til að taka upp nýja og markvissa stefnu í neyt- enda- og verðlags málum til hagsbóta fyrir atvinnulífiö og neytendur alla. Stjórn Heimdallar. Ferðafélag íslands Helgarferðlr 30. sept.—2. okt.: 1. Landmannalaugar — KirkjufeU 964 m — KýUngar. Samkvæmt ferðaáætlun er þetta síðasta feröin í Landmannalaugar á árinu. Notið tækifærið og komið með. Gist í upphituöu sæluhúsi Fl í Laugum. 2. Þórsmörk — haustUtaferð. Góð gistiað- staöa i Skagfjörðsskála, og nýstandsett setustofa fyrir gesti. Upplýsingar og far- miðasala á skrifstofu Fl, öldugötu 3. Ferðafélag Islands. Útivistarferðir Helgarferðlr 30. sept.—2.okt. 1. öræfaferð út í óvissuna. Spennandi ferð um fagurt og ævintýralegt svæði. Gist f húsi. 2. Þérsmörk—haustlitir. Gönguferðir við aUra hæfi í haustlitadýrðinni. Frábær gisti- aðstaða í Utivistarskálanum í Básum. Kvöldvaka. Uppl. og fars. á skrifst. Lækjarg. 6a, s. 14606. Sjáumst um helgina. Otivist. Afmæli 70 ára afmæli á í dag, 28. september, Halldóra P. Þorláksdóttlr frá Bakka á Mýrum, Hólabergi 32 hér í Reykjavik. Eiginmaður Halldóru var Valgeir Sveinbjörnsson. Hann lést sumarið 1976. Þau hjónin bjuggu síðustu 20 árin á Gufuskálum í Leiru. I dag verður Halldóra stödd á Skálholtsbraut 3 i Þorlákshöfn og tekur þar á móti gestum eftir kl. 17. ■1 Sextugur er í dag, 28. september Elnar H. Guðmundsson múrarameistarí. Hann mun taka á móti gestum laugar- daginn 1. október eftir kL 15 á heimili sínu, Sólvallagötu 74 hér í borg.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.