Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1983, Page 34
34
DV. MIÐVKUDAGUR 28. SEPTEMBER1983.
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
/ sumarbústaðinn, þá í
golfogsvo á völlinn
Komiö þiö þið sælir, félagar
og vinir góðir, og við bjóðumi
góðan daginn eins og allir hinir
veðurfræðingarnir.
Við höldum áfram að koma á
óvart. Að þessu sinni tökum við
ekki neitt ákveðið efni fyrir,
heldur ræðum við fólk, ja, sem
okkur datt bara svona í hug að
ræða við. Dægradvöl þess er
ansi ólík, en er það ekki bara
betra?
Við byrjum á því að banka
upp á hjá Margréti Helgadótt-
ur, eiginkonu Erlends Einars-
sonar, forstjóra Sambandsins.
’Þar kemur fram að þau hjón
eyða flestum f rístundum sínum
saman og dvelja á sumrin um
flestar helgar í sumarbústaðn-
um austur í Seglbúðum.
Þá förum við hringinn
Nesvellinum með Sigurbirni
Theódórssyni golfleikara en
hann spilar aðeins með annarri
hendinni.
Og síðast en ekki síst er það
Pálmi ölafsson, landskunnur
Reykvíkingur og vallargestur
með meiru. Skemmtilega lesn-
ingu, félagar og vinir.
-JGH.
„Fékk áhuga er ég sá að
það var ekki úti-
lokað að hitta kúluna”
— segir Sigurb jörn Theódórsson,
sem lamaðist á hægri hendi í bílslysi en er samt liðtækur golfari
A afmælisdeginum sínum fyrir
sautján árum, þann 28. janúar 1966, ók
Sigurbjörn Theódórsson eftir Suður-
götunni á skellinöðrunni sinni, Hondu
50. Hann var orðinn 17 ára og átti að
fara í bílpróf eftir aðeins tvær klukku-
stundir. Allt virtist leika í lyndi.
En skyndilega gerðist það. Hann ók
aftan á vörubil. Síðan þá hefur hægri
hönd hans verið lömuð, en hann hefur
þó smákraft í fingrunum. Höndin var
sett í spelkur og höfð í réttri hæð til að
hann gæti haldið viö með henni.
Þrátt fyrir þetta stundar hann nú
golfíþróttina og lætur ekki deigan síga
þó að hann geti aöeins notað aöra hönd-
ina.
Spi/ar fíka
badminton
,,Ég byrjaöi á golfinu í fyrrasumar,”
sagði Sigurbjörn er við fórum hringinn
með honum á golfvelli Golfklúbbsins
Ness einn góðviðrisdaginn fyrir stuttu.
,,Eg hef reynt að fara sem oftast í
golfið, en þrekið er enn ekki nógu mikið
þar sem þetta reynir talsvert á axlirn-
ar. Þó hefði ég sjálfsagt ekki getað
byrjað í golfinu nema vera búinn að
stunda badmintonið áður.”
— En hvemig atvikaöist það að þú
fórst aðspila golf?
„Eg fór með kunningja mínum,
Eggert Isfeid, út á golfvöll og fékk að
prófa kylfumar hjá honum. Fékk síöan
áhuga, er ég sá að það var ekki úti-
lokað hjá mér að hitta kúluna.”
Sigurbjöm segist hafa f undið sérlega
mikla framför hjá sér í golfinu í sum-
ar. „En þetta er nú einu sinni þannig
að maður spilar vel einn daginn en
kannski mjög illa daginn eftir.”
Félagsskapurinn
skiptir mikiu máfí
„Annars skiptir félagsskapurinn
ekki síöur máli og hef ég reynt að taka
eins oft þátt í keppni og ég hef getað til
að kynnast félögunum hér í Nesklúbbn-
um.”
— En hvað um eiginkonuna? Hef-
urðu fengið hana með þér í golfið?
„Já, hún er rétt að byrja í þessu en á
þó ekkert golfsett ennþá.”
Sigurbjörn er rennismiður og starfar
hjá Agli Vilhjálmssyni, í Kópa-
voginum. „Þetta er góður vinnustaður
og ég á mjög hjálplega vinnufélaga.”
Gerði Pontiac upp
og innróttaði íbúð
Eftir að viö Sigurbjöm höfðum farið
hringinn á Nesvellinum komst ég að
því að það er ekki aðeins að Sigurbjöm
spili golf og badminton einhentur.
Hann innréttaði íbúð sína við Ægis-
síöuna og í sex ár gerði hann upp bílinn
sem hann ekur á, Pontiac Catalina
Coupé, af árgerðinni 1955.
„Eg var með hann inni í skúr og
greip í þetta þegar ég hafði tíma. Kom
honum svo loksins á götuna í fyrra-
sumar,” sagði þessi viljasterki maður
aö lokum.
-JGH.
Texti: Jón G. Hauksson Myndir: Einar Ólason, Gunnar V. Andrésson og Eirfkur Jónsson
„Dræverinn" mundaður og sú hvíta
biður eftir flugtaki. Þess mi geta að
Sigurbjörn var rétthendur áður en
hann lenti í bflslysinu A Suðurgötunni.
Hór hafa menn lent i„bönkemum”,
en það er staður sem golfarar eru lltt
hrifnir af.Enþáer bara að koma
þeirri hvitu upp iir sandinum og inn á
„grinið".
DV-myndir: Gunnar V. Andrisson