Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1983, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1983, Side 36
36 DV. MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER1983. Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Liberace bankastjórí Bandaríski popppíanistinn Liberace sem nú er 64 ára gamall er orðinn svo vel efnaður að hann veit ekki hvað hann á að gera við peningana sína. Liberace hefur helst orðiö frægur fyrir það að koma fram skrautlega klæddur enda hefur hann sagt aö glys og prjál sé hans líf og yndi. Til að gera eitthvað við allar þessar milljónir sínar hefur hann ákveðið aö stofna banka. Nú er verið að byggja þann banka við hliöina á Liberace safninu í Las Vegas. Búið er að ákveða að ávísanir frá banka þessum verði með mynd af kertaljós- um og konsertflygli. Wyman orðin trúuð Leikkonan Jane Wyman sem var fyrsta kona Ronalds Reagans, er enn- þá á fullu í leiklistinni. Hún leikur um þessar mundir í sjónvarpsmyndaflokki úti í Ameríku sem heitir Falcon Crest. Það er annars af þessari góðu konu aö frétta og hún mun vera orðin trúuö mjög í ellinni og til marks um það þá hefur hún kunngert þá ósk sína að verða grafin í nunnuklæðum þegar þar að kemur, hvað sem það á að þýða. Jane komst í heimsfréttimar um það leyti sem Reagan varð forseti því hún var spurð af hverju hún heföi skilið við hannásínum tíma. Jane á að hafa litið brosandi á spyrj- andann og sagt síðan: „Eg skildi við hann af því mér fannst hann svo hund- leiðiniegur. ” Karólína fer á kreik Ekki ætlar Karólína Mónakóprins- essa að bregðast slúöurpressunni frekar en endranær. Þeir sem fylgj- ast með vita að aUt er búið miUi hennar og Robertino Rosselini, enda er það orðin gömul lumma. Hér á þessum siöum birtist fyrir skömmu frásögn af því þegar einhver Jean- Paul Scarpitta var aö myndast við að hugga KaróUnu eftir þann skilnað og var getum leitt áð því að hann hefði ábyggilega eitthvað annað í huga. Svo virðist sem stúlkan hafi séð í gegnum Scarpitta því ekki var hann með henni þegar hún brá sér í frí til Sardinia. Hún reyndist ekki í erfiðleikum með að ná sér í fylgdarsvein á Sardiníu. Sorpblaðaljósmyndarar eltu hana á röndum með aðdráttar- Unsurnar og ekki leiö á löngu þar til þeir fengu nóg að mynda. TU hennar sást í hraðbáti með einhverjum Þjóð- verja, Ludwig Harst að nafni, og virtust þau ekki hafa annaö að gera en að sigla mUU eyjanna í hraðbátn- um hans. Spuming dagsins er því sú hvort þetta sé samband sem einhver ending er í eða hvort hann fari sömu leiðogScarpitta. Erf&askrá Nivens Breski leikarinn David Niven var ekki staddur á vonarvöl þegar hann lést. Dánarbú hans var gert upp fyrir skömmu og reyndust eigur hans vera rúmlega 500 mUljónir króna. Af þeim, eignum fékk ekkja hans 100 mUljónir í peningum og einnig stóra og mikla viUu sem hann átti í Suður-Frakklandi. Hinum eignunum var skipt á mUU f jög- urra bama sem Niven ættleiddi. Lancaster heilsutæpur GamU töffarinn Burt Lancaster er nú orðinn 69 ára gamaU og gekkst hann undir nukla hjartaskurðaðgerð fyrir skömmu. Mun sú aðgerð hafa gengið mjög nærrí heilsu leikarans því læknar hans ráðlögöu honum að hvíla sig í hálft ár. Nú hefur það frést að hann ætU að fara að leika i kvikmynd sem fyrirhugað er að hefja tökur á eftir mánuð. 1 staðinn fyrir að Uggja á spít- alanum þangaö til lét hann útskrifa sig með hraði, þvert ofan í ráðleggingar lækna sinna. Eru menn nú uggandi um aö gamU maðurinn þoli þetta álag ekkl Málsháttur dagsins Bófi, bófi, haf þig í hófi. Slúðurdálkahöfundurfnn. Útgefandi kvennabiaðsins. Könnuður kannaöur Lesendur Sviðsljóssins era ábyggi- lega margs fróðari eftir lestur aUra þeirra kannana sem birst hafa hér á síðum að undanfömu. Kannanir þessar em yfirleitt þannig unnar að rannsóknaraðUar hringja í fólk og krefja það svars eða þá spumingar- listar eru sendir út. Fyrir skömmu flögraði inn á borð grein úr bresku blaði. Þar var til um- fjöllunar könnun sem breska kvennablaðið Womans Magazine gekkst fyrir. Markmið þeirrar könn- unar var að leiða í Ijós hvemig kyn- Ufi giftra kvenna þar í landi er hátt- að. I þeirri könnun kom fram að þriðjungur þeirra 7000 kvenna sem svöruðu sögðust óánægðar meö kyn- líf sitt. Greinarhöfundur þessa breska slúðurdálks er giftur maður og skUjanlega gramdist honum þeg- ar hann sá þessar niðurstöður. Því var það að hann ákvað í gremju sinni að hringja í útgefanda kvennablaðs- ins og leggja sömu spurningar fyrir hana og hún lagði fyrir lesendur sína. Hér kemur svo greinin. Frúin, sem var svo frökk að spyrja 7000 konur hvort þær fengju nóg, reyndist frekar treg til svara þegar ég lagöi hennar eigin spurningar fyr- ir hana. Þar sem ég vissi að hin bráð- fallega Jo Foley haföi ekki tekið þátt í könnuninni sem hún gekkst sjálf fyr- ir fannst mér alveg tUvaUð að leggja hennar eigin spumingar fyrir hana og spurði ég hana fyrst hvort hún til- heyrði þeim hópi kvenna sem sagöist vera ánægður með kynlíf sitt. , Jilér dytti ekki í hug að segja ÞER frá því,” svaraði hún. Ef hinar 7000 heföu svarað svona þá hefðum við .aldrei séö neina könnun. Næsta spurning sem ég lagði fyrir hana var á þá leið hvort hún og maður hennar stunduðu sín myrkra- verk einu sinni eða tvisvarí viku? „Þaö fer eftir því um hvaða vUcu er að ræða,” svaraði hún. Af hverju datt hinum 7000 þetta svar ekki í hug? Þriðja spurning. Veltir þú þér upp úr kynlífsdraumórum? „Þaðermittmál.” Fjórða spurning. Hefur ástkær eig- inmaður þinn keypt handa þér nudd- tæki? „Ekki svo ég viti til.” Fimmta spurning. Þegar þú og eig- inmaður þinn hafið samfarir kemur það þá fyrir að þú þykist fá fullnæg- ingu? „Æi, góði láttu ekki svona, þú veist að mér dytti ekki í hug að svara svona löguðu.” „Hvaða illska er þetta eiginlega, þú fékkst 7000 konur til þess að svara þessu. ” „Ef ég svaraði þér þá myndir þú bara láta það koma dónalega út.” Fleiravarþaðekki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.