Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1983, Síða 40
hverri
viku
27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA33
SMÁAUGLÝSIIMGAR—AFGREIE)SLA
SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI 11 i
86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14
ÚTFÖR
DR. GUNNARS
THORODDSEN
Útför dr. Gunnars Thoroddsens,
fyrrverandi forsætisráöherra, fer
fram á vegum ríkisins frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík föstudaginn 30.
septemberkl. 13.30.
Útvarpað veröur frá athöfninni og
verður Stjómarráöiö lokaö frá kl.
13.00—15.00 sama dag.
Patreksfirðingar:
Slá saman og
vilja kaupa
frystihúsið af
Byggðasjóði
Patreksfiröingar em uggandi um at-
vinnumöguleika á staönum, ekki síst
eftir aö Hraðfrystihús Kópaness hætti
starfsemi og var síðan slegiö Byggöa-
sjóði fyrir 2,5 milljónir. Hafa þeir litla
trú á aö Byggöasjóöur hefji þar
rekstur og því tóku nokkrir heima-
menn sig til fyrir skömmu og leituöu
fulltingis íbúa á staðnum til þess að
stofna hlutafélag og kaupa Kópanes,
ella hef ja aöra fiskvinnslu.
Á milli 40 og 50 manns lýstu sig reiöu-
búna aö standa að stofnun félags til
fiskvinnslu og munu hlutafjárloforð
nema um tveim milljónum króna.
Nú á aö stofna undirbúningsfélag og
munu fulltrúar þess væntanlega halda
á fund Byggðasjóðs og falast eftir
Kópanesi. Þótt hraðfrystihúsið hafi
verið slegiö Byggðasjóöi á 2,5 milljónir
á nauöuhgarappboöi vora áhvílandi
skuldir á eigninni margföld sú upphæð.
-GS.
Boðunarkerfið
á fulla feiið
— þegar rafmagnið fór
af ígærkvöldi
Rafmagnslaust varð um tíma í Þing-
holtunum í Reykjavík í gærkvöldi og
olli þaö víöa vandræðum.
Meöal þess sem úr lagi fór var boö-
unarkerfi slökkviliðsins en þaö þolir
ekki rafmagnstraflanir. Kom til dæmis
tilkynning um bruna í Borgarbóka-
sa&iinu og fór slökkviliöiö þangað en
þar var enginn eldur.
Bilunin varö vegna þess að leysti út í
háspennu, eins og þeir hjá Rafmagns-
veitunni sögðu í morgun. Tók um
klukkustund aö finna bilunina og gera
viðhana.
-klp-
LOKI
Hvað er Steingrimur að
gera SÉR?
Steingrímur Hermannsson for- Ríkissjóöur mun greíöa allan alvegsömunotafhonum.RíkiÖhefði
sætisráöherra hefur keypt sér nýjan rekstrarkostnað nýja jeppans. Por- hins vegar átt bilinn í því tilviki.
bil. Vegna fríðinda sinna sem ráö- sætisráöherra mun nota bUinn Þess má geta að ráðherrar Alþýðu-
herra greiddi hann aðeins um 500 jöfiium höndum vegna starfs sins og flokksins og Alþýöubandalagsins
þúsund krónur fyrir Blazer-jeppa tileinkaerinda. afsöiuðu sér bílakaupafríðindum
sem almenningur þyrfti aö greiða Steingrímur átti annan kost. Hann þegar þeir sátu í ríkisstjórn 1978 tU
mUU 1.100 og 1.200 þúsund krónur gat látið ríkissjóð greiða bUinn. 1979.
fyrír. Ráöherrann hefði þá getað haft -KMU.
Flugmálast jóri boðar
breytingará
Reykjavíkurflugvelli:
Kartöflurækt
bönnuð
’ Þaö veröa ekki fleiri kartöflur settar
niöur á Reykjavíkurflugvelli, þeir sem
hafa haft kartöflugarða þar um árabil
veröa að flytja sig um set.
„Mannaferöir og flugumferö fara
ekki saman,” ' segir flugmálastjóri,
„og þekki ég engan flugvöll í víöri
veröld þar sem ræktaðar eru kartöflur
innan girðingar.”
Kartöfluræktunarbann Péturs
Einarssonar flugmálastjóra er aöeins
hluti ýmissa breytinga sem boðaðar
hafa veríð á flugvallarsvæðinu. 1 stað
kartaflanna er hafin ræktun trjáa og
einnig er unnið að því að losna við
svarta reykinn sem stígur til himins
þegar slökkviliöiö æflr sig. Einnig eru
hugmyndir flugmálastjóra um flug-
stöðvarbyggingu fyrir innanlandsflug
til hliðar við Hótel Loftleiöir ræddar í
ahröru meðal ráðamanna. -EIR.
„ÞaO ar grundvallarrogla íslanikrer rtfómskipunar aö menn fái aO geeta róttar sins og aO mann séu
ekki sviptir eignum sinum nema meO dómi," segir meOal annars í áiyktun sem stjórn Hundarœktarfó-
lags íslands hóit í gærkvöldi vegna atviksins viO Framnesveg siðastiióiö föstudagskvöld.
Síðan segir: „Á það við um hunda eins og önnur húsdýr. Ef viö rannsókn kemur i ijós að nauðsyn-
legt er talið að lóga húsdýri á að gera það eftir þeim reglum sem settar eru i dýraverndunarlögum en
þvi fer viOs fjarri að svo hafi veriO gert á föstudagskvöldið var."
Þá er vitnað i orð Haiidórs Laxness: „Það hefur aldrei fundist þjóOfiokkur af svo lágu stigi að hann
hafi ekki haft siðmenningu tH að umgangast hund."
Á myndinni má sjá stjórn Hundarœktarfólagsins ásamt iögfræðingi fólagsins, Haraldi Blöndal.
-JGH/DV-mynd: Einar Ólason.
Davíð Oddsson borgarstjóri:
Memhluti vill
hafa hundabann
,jEg er þeirrar skoðunar að meiri-
hluti borgarbúa vilji hafa hundabann
í borginni. En þrátt fyrir bannið
fjölgar hundum í borginni svo að nú
skipta þeir hundraðum eða þúsund-
um,” segir Davíð Oddsson borgar-
stjóri.
Davíð sagöi aö óformlegur
viðræðuhópur skipaður einum full-
trúa frá hverjum stjórnmálaflokki
hefði verið skipaður til aö ræöa
hundahald i borginni. Hópurinn
myndi skila áliti sínu til borgarráðs
að líkindum innan nokkurra vikna.
Hefði hópnum einkum verið faliö aö
ræða hvort hægt væri að framfylgja
hundabanni i Reykjavík eða hvort
eðlilegt væri að leyfa hundahald með
ströngum skilyrðum. Borgarráð
mun síðan taka afstöðu eftir að álit
hópsins liggurfyrir.
Er æskilegt að fram fari skoðana-
könnun í borginni um hundahald eins
og í ýmsum nágrannasveitarfélög-
um?
„Það er erfitt aö spyrja í slíkri
könnun. Ég tel að meirihluti borgar-
búa óski hundabanns í borginni. En
hverju svara menn ef spurt er hvort
þeir vilji hundabann sem ekki er
hægt að framfylgja? ” sagði Davíð.
ÖEF
Páll Eiríksson
geðlæknir:
„Leyfa
hundahald
með skil-
yrðum”
„Eg tel að það sé eina vitiö að leyfa
hundahald i Reykjavík með
ströngum skilyrðum eins og gert
hefur verið í Garöabæ. Og þaö
verður að fylgja þessum skilyrðum
eftir og sjá til þess að hundar ónáöi
ekki nágranna sína og gangi lausir,”
sagði Páll Eiríksson geðlæknir, en
hann hefur mikiö fengist við ræktun
hunda.
„Þaö er mikil fásinna að halda að
þeim hundum sem aldir hafa verið
upp í borgum líði best þegar þeir
ganga um lausir. Þeir finna sig
nefnilega best i öiygginu með hús-
bóndasínum.”
Páll sagöi ennfremur að ef hunda-
hald yrði leyft með skilyrðum þá
teldi hann að þeim hundaeigendum,
sem hirtu ekki nægilega um hunda
sína, myndi fækka. -JGH