Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Síða 2
2
DV. LAUGARDAGUR1. OKTOBER1983.
Fiskveiðasjóður í sjálfheldu:
GETUR ENGINN
KEYPT VAN-
SKILASKIPIN?
Sú staöa er komin upp varðandi þau
fiskiskip, sem skulda Fiskveiöasjóði
meira en andviröi sitt, aö sjóösstjórn
sýnist að enginn hafi bolmagn til aö
kaupa þau á viðunandi verði ef gripið
yröi til þess að selja þau á nauðungar-
uppboöi. Stór, nýleg loðnuskip eru t.d.
ekki talin góð markaðsvara þessa
stundina og sama á við um ýmsar aðr-
ar bátastærðir. Hins vegar er enn eftir-
spurn eftir togurum og kynnu sveitar-
félög eða stórútgeröir að sýna áhuga á
þeim.
Hins vegar gætu erlendir aðilar kom-
ið til skjalanna því sáralítið hefur verið
smiðað af nýjum fiskiskipum undan-
farin ár nema þá helst fyrir Islendinga
og Kanadamenn. Það eru einmitt ný-
leg skip, sem eiga í nestu erfiö'eikun-
um.
Biðlund er einkennandi fyrir starfs-
hætti Fiskveiðasjóðs og er ein ástæöa
þess að ekki er komið til uppboða sú aö
hann var að bíða eftir hvaða áhrif ýms-
ar oþinberar aðgerðir hefðu á afkomu
útgerðarinnar. En nú liggur fyrir að
þessar aðgerðir hafa dugaö skammt og
veröa þvi mál vanskilaskipanna enn
tekin fýrir á fundi sjóðsins á þriðjudag.
-GS.
. :
Öllu starfsfólki
Slippfélagsins
sagt upp störfum
öllu starfsfólki Slippfélagsins í
Reykjavík hefur verið sagt upp störf-
um. Tilkynnt var um uppsagnirnar í
gærmorgun en þær munu taka gildi
um næstu áramót. Hjá fyrirtækinu
starfa 77 manns, en reiknað er með
að meirihluti þeirra verði endurráö-
inn eftir aö endurskipulagning hefur
farið fram innan fyrirtækísins.
Jón Sævar Jónsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Slippfélagsins, sagöi í
samtali við DV að afkoma fyrirtæk-
isins hefði verið mjög slæm undan-
farin tvö ár og fyrirsjáanlegt væri að
hún yrði enn verri á þessu ári. Væri
ástæðan fyrir því verkefnaskortur
auk almennra erfiðleika í efnahags-
málum þjóðarinnar sem bitnað
hefðu sérstaklega á fyrirtækjum sem
tengjast sjávarútvegi. Sagði Jón
Sævar ennfremur að stefnt yrði að
því að endurráða sem flesta starfs-
menn aftur eftir að endurskipulagn-
ingu væri lokið en eitthvaö gæti oröið
um tilflutning starfsfólks milli
deilda. Taldi hann aö málin myndu
skýrast á fundum sem haldnir yrðu
meðstarfsfólkiinnanskamms. -ÖEF.
Róið moð ajófíugvólina að landi skömmu eftir að lent hafði verið 6 Miklavatni.
DV-mynd: Kristján Möller.
SJOFLUGVEL A MIKLAVATNI
Sjóflugvél lenti á Miklavatni í Fljót-
um síðastiiðinn miðvikudag. Þetta var
í fyrsta sinn í meira en þrjátíu ár sem
flugvél lenti á vatninu.
Það var flugvélin TF-GRS sem fékk
Fljótamenn til að rifja upp gamlar
minningar tengdar síldinni sem hvarf.
Miklavatn var, eins og margir vita,
miðstöð sildarleitar úr lofti á sínum
tíma. Þaðan var flogið og leitað síldar
úti fýrir Noröurlandi til aö auövelda
flotanum veiðarnar.
Amgrímur Jóhannsson, flugstjóri
hjá Arnarflugi, flaug TF-GRS. Flug-
vélin komst í hendur Islendinga fyrir
nokkrum árum eftir að finnsk flugkona
haföi nauðlent henni úti af Reykjanesi.
Flugvélin skemmdist töluvert en is-
lenskir aðilar keyptu hana og geröu við
hana.
-KMU.
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra:
Betri kostur fyrir ríkissjóð
—að ráðherra eigi bfl sjálfur
Steingrímur Hermannsson hefur
gefið út yfirlýsingu vegna þeirra
blaöaskrifa sem orðiö hafa að undan-
fömu vegna bifrdöarkai4>a hans. Segir
- 1000
möguleikar
KYNNIR:
SKILRÚM,
HANDRIÐ
OG HÚSGÖGN
Opið í dag 9—16
Komið með mál og þið
fáið hannað meðan þið bíðið. k
I
Ármúla 20, símar 84630 og 84635.
hann tilefniö síendurteknar árásir
Þjóðviljans á sig vegna þessa. I yfir-
lýsingunni segir Steingrimur að sam-
kvæmt reglugerðum séu tvær leiðir
færar þegar ráðherra festir kaup á bif-
reið. Annars vegar kaupir ríkissjóður
bifreið handa ráðherra, greiðir inn-
Qutningsverð hennar og lætur bílstjóra
fylgja með. Hins vegar getur ráðherra,
sem sjálfur vill eiga sinn bil, greitt inn-
Qutningsverðið sjálfur, sloppið við að-
Qutningsgjöld og sé sá kostur ríkiss jóði
íhageins og augljóstættiaðvera. ,,Eg
hygg að þessar tvær leiöir hafi verið
farnar nokkuð jöfnum höndum,” segir
Steingrímur í yfirlýsingu sinni og
bendir jafnframt á að á undanförnum
13 árum hafi minnst 40 ráðherrar fest
kaup á bifreiö með sama hætti og hann
hefur nú gert og sumir oftar en einu
sinni.
Steingrímur segir að sér hafi
þótt rétt að losa sig við þá stóru og
dýru bifreið er hann ók á áður og fá sér
aðra minni og spameytnarL „Þetta er
lítill og spameytinn jeppi og á meðan
ríkissjóður rekur bifreiðina er það að
sjálfsögðu hann sem hagnast á því,”
segir í yfirlýsingu forsætisráðherra.
-EIR.
Veitingahúsin:
Fengu ábót á
söluskatts-
afsláttinn
Veitingahús í landinu hafa undanfar-
in ár geta dregið frá söluskatts-
skyldri veltu innkaupsverð hráefna í
mat. Þann 1. apríl í vor ákvað þáver-
andi fjármálaráðherra aö heimila veit-
ingahúsunum 25% álag á þennan frá-
drátt.
Mátvæli í verslunum eru með sama
hætti dregin frá söluskattsskyldri
veltu þar. 25% álagið sem veitinga-
húsin fengu í vor átti að þýða jöfnuð
milli þessara seljenda gagnvart
söluverði matvæla og matar.
Þessi ábót til veitingahúsanna á
söluskattsafsláttinn olli engri skyndi-
lækkun á matarveröi þeirra, svo vart
yrði almennt. Hólmfriður Ámadóttir,
framkvæmdastjóri Sambands veit-
inga- og gistihúsa, sagði að í þeirri
miklu verðbólgu sem geisaði á þessum
tíma mætti búast við að söluskatts-
breyting af þessu tagi hefði horfið
fljótt, en líklega minnkað og tafið eitt-
hvaö hækkanir.
Hólmfríður sagði 25% hækkun á sölu-
skattsfrádrætti veitingahúsanna
vegna hráefniskaupanna einna ekki
vega mjög þungt í hefldarveltu þeirra
og mikið vantaði enn upp á að veitinga-
hús sætu við sama borð af hálfu skatt-
heimtunnar og mötuneyti sem kepptu
beint og óbeint við veitingahúsin.
-herb.
IATA
ALLIR
FLUGFARSEÐLAR
oruivm
Ferðaskrifstofa, Iðnaðarhúsinu, Hallveigarstig 1 simar 28388 og 28580